Morgunblaðið - 17.01.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1988
31
raunverulega séð fljótið Missisippi
heldur en að hafa aðeins lesið um
það.
Skólarnir móti efnið,
sjónvarpið tæknina
Að lokum ræðum við um niður-
stöður dr. Sigrúnar Stefánsdóttur
og hvemig hún telur að best verði
að nýta þær upplýsingar sem hún
aflaði við uppbyggingu á okkar eig-
in skólasjónvarpi.„Við þessa vinnu
sannfærðist ég um gildi þess að við
byggjum upp skólasjónvarp, er nýti
sér það dreifikerfí sem fyrir er í
landinu og er í höndum sjónvarps-
ins. Það nægir okkur ekki að nota
eingöngu myndbönd, sem dreift er
í skólana gegn um námsgagna-
stofnun og menntakerfíð. Nýting
hins almenna dreifíkerfís auðveldar
skólum að nota skólaprógröm. í
fyrst lagi geta skólamir notað efnið
beint um leið og það er sent út, en
þeir geta líka tekið efni upþ og
nýtt sér það seinna, ef þeim sýnist
svo. Jafnframt þessu tel ég að eigi
að vera í höndum námsgagnastofn-
unar að annast dreifíngu á
myndböndum, sem sjónvarpið fjöl-
faldar sérstaklega fyrir stofnunina.
Mestan hluta dagsins nýtir sjón-
varpið ekki til útsendinga. Þessi
tími bíður þess að verða notaður.
Skólasjónvarþið þarf því ekki að
verða einhver homreka eins og
danska skóladagskráin.
Þá er spurt hver eigi að stjóma
skólasjónvarpi og Sigrún svarar
því:„Ég komst að þeirri niðurstöðu
að ríkissjónvarpið sé ekki rétti aðil-
inn til að þróa skólasjónvarp.
Menntakerfíð þarf að sjá um þá
hlið. Ef ríkissjónvarpið bæri þá
ábyrgð óttast ég að sama staða
kæmi upp og í Danmörku, þ.e. að
það myndi bara framleiða eitthvað
og senda út einhvem tíma. Skóla-
sjónvarp þarf að vera í svo nánu
samhengi við skólana að ég held
að eðlilegast væri að láta hvert
menntastig vera ábyrgt fyrir mótun
þeirra þátta sem þau telja sig þurfa.
Þannig hefði t.d. námsgagnastofn-
un í nánu samráði við kennara
ábyrgð á því að ákveða hvað skuli
framleiða og síðan kæmi sjónvarpið
inn í sem tæknilegur ráðgjafi um
hvemig megi útfæra þær hugmynd-
ir sem fram eru komnar um efnisval
og efnistök. Þegar bæði sjónvarpið
og námsgangastofnun em orðin
sátt við rammann að þáttagerðinni
í smáatriðum, þá verði verkefnið
boðið út til þeirra ijölmörgu fyrir-
tækja sem hér era og geta framleitt
þau. Námsgagnastofnun yrði svo
ábyrg fyrir framleiðslu á fylgiefni
eða stuðningsefni. Uppi hafa verið
raddir um að þróa upp sérstaka
tæknideild til að annast framleiðslu
á skólaefni. Ég held að í bili a.m.k.
sé farsælla að nota féð til þess að
búa til meira efni heldur en til
tækjakaupa. Það mundi flýta fyrir
því að skólamir fengju eitthvað að
moða úr, enda er til svo mikið af
tækjum í þessu landi, sem bíða
þess að verða notuð, að ég held að
það væri óráð að byija á að eyða
stóram fúlgum í kaup á tækjum,
sem fljótt verða úrelt. Farsælla að
sanna tilverarétt skólasjónvarps
með efnisframleiðslu. Síðan má
kaupa tæki, ef allt gengur vel. Nið-
urstaða mín er semsagt þessi:
sjónvarpið verði dreifíngaraðili á
efni og tæknilegur ráðgjafi við
framleiðslu á skólaefni og hvert
námstig fyrir sig ákveði hvað þurfi
að gera, en síðan verði verkefnin
boðin út.“
ii
flö PIOIMEER
HUÓMTÆKI
4 eða 5 dagar í hinni óviðjafnanlegu Chicago gefa
þér sannarlega nóg til að hugsa um - hvort sem þú vilt
njóta lista- og menningarlífs, nætur- og skemmtanaiífs eða
gerast viðskiptavinur einhverra hinna ævintýralegu
verslana sem hafa upp á fleira að bjóða en þig hefur nokkru
sinni dreymt um.
Líttu snöggvast á gengisskráninguna í dagblöðunum
og sjáðu hvað verðið á dollarnum er hagstætt - einmitt
núna.
Verðdæmi 1: 3 nætur - frá sunnudegi til miðvikudags.
Verð frá kr. 21.222* á mann, miðað við flug
og gistingu á 2ja manna herbergi á Days Inn.
Verðdæmi 2: 4 nætur - frá miðvikudegi til sunnudags.
Verð frá kr. 22.554** á mann, miðað við flug
og gistingu á 2ja manna herbergi á Days Inn.
Hafi þig einhverntíma dreymt um að sveifla þér
til Ameríku þá er tækifærið núna. Beint flug til BOSTON,
NEW YORK, ORLANDO og WASHINGTON auk CHICAGO.
FLUGLEIÐIR
-fyrír þíg-
* Morgunverður og flugvallarskattur eru ekki innifaldir í verði.
** Þessi verðdæmi eru í gildi til febrúarloka.
Nánari upplýsingar veita söluskrifstofur Flugleiða, umboðsmenn um allt land og ferðaskrifstofurnar,
Söluskrifstofur Flugleiða: Lækjargötu 2, Hótel Esju og Kringlunni. Upplýsingasími 25 100.