Morgunblaðið - 17.01.1988, Page 59

Morgunblaðið - 17.01.1988, Page 59
MORGI 'NBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 17. JANÚAR 1988 59 Er heilsu- æðið bara blekking? Perth, Reuter. AÐ REYKJA og lifa aðallega á ruslfæði skiptir engu fyrir lífslíkur manna og heilsuæðið, sem nú ríður húsum á Vestur- löndum, er bara blekking. Þetta hljómar vitaskuld sem hin verstu öfugmæli en er eigi að síður skoðun ástralsks lífeðlisfræð- ings, sem segist hafa kynnt sér rannsóknir á þessum málum í langan tíma. Dr. Ray Johnstone, kennari við Vestur-ástralska háskólann, sagði, að rannsóknir víða um heim sýndu, að slabbarinn, sem nærðist mest á svokölluðu ruslfæði og reykti, gæti búist við að lifa jafn lengi og trefja- ætan og skokkarinn, sem þyldi ekki tóbaksreyk nálægt sér. Dregur hann þessa ályktun af niðurstöðum níu umfangsmikilla samanburðar- rannsókna, sem fram hafa farið sl. 20 ár og náð til margra þúsunda manna. í öllum rannsóknunum voru bornar saman lífslíkur manna, sem lifa „óheilbrigðu" lífi, og annarra, sem hafa tekið til við að skokka, breytt um mataræði og hætt að reykja. „I átta af þessum níu rannsókn- um kom fram, að lífslíkumar breyttust ekkert og dauðsföll af völdum krabbameins eða hjarta- áfalla vom jafn mörg eftir sem áður,“ sagði Johnstone og bætti því við, að þrátt fyrir þetta þreyttust heilbrigðisstofnanir ekki á því að leggja mönnum lífsreglurnar. „Mér fínnst, að þær ættu að þagna um stund. Áróðurinn á að mörgu leyti ekki við rök að styðjast og hann er allur á kostnað skatt- borgaranna. ÖIl verðum við líka að deyja úr einhveiju og úr hveiju vill þetta fólk eiginlega deyja? Mér finnst ekkert athugavert við að vera kallaður yfir um vegna krabba- meins eða hjartaáfalls. Ef menn lifa nógu lengi þá er það næstum óhjá- kvæmilegt." Sovétríkin: Skákblaða- maður fær brottfar- arleyfi Kaupmannahöfn. Frá Nils Jörgen Bruun, fréttaritara Morgunblaðsins. SOVÉSKI skákblaðamaðurinn Vladimir Pimonov fékk nýlega leyfi til að fara frá Sovétríkjun- um, og er búist við honum til Danmerkur innan tveggja til þriggja vikna. Pimonov er kvæntur danskri konu og á með henni bam. Hann hefur ítrekað sótt um leyfi til að fara til fjölskyldu sinnar í Dan- mörku, en ævinlega verið neitað. Eiginkona hans, Lise Pedersen, stundar rússneskunám við Kaup- mannahafnarháskóla. Þau kyniit- ust, er hún var við nám í Sovétríkjunum 1983. Mál Pimonovs hefur hvað eftir annað verið á dagskrá á fundum danskra og sovéskra stjómmála- manna. Hingað til hefur Pimonov verið neitað um leyfi til að flytjast frá Sovétríkjunum á þeim forsend- um, að hann byggi yfir þess konar vitneskju um sovésk málefni, sem gerði slíkt óhugsandi. Síðast tók Uffe Elleman-Jensen utanríkisráðherra mál hans til um- ræðu í nóvmebermánuði síðastliðn- um, þegar Kamentsev, varaforsæt- isráðherra Sovétríkjanna, var í heimsókn í Danmörku. Pimonov vann á sínum tíma"víð þýðingar við efnafræðistofnun Moskvuháskóla, og telja sovésk stjómvöld, að þar hafi hann sýslað með ríkisleyndarmál. Við erum flutt Janúar1988 Viö tilkynnum hér meö aö viö höfum flutt skrifstofu okkar og vörugeymslu frá Laugavegi 178 að: Skútuvogi lOa, 104 Reykjavík. Símanúmer okkar 91 -686700 og telexnúmer 2033 Rolf is eru óbreytt. Við notum þetta tækifæri til aö óska viðskiptavinum okkarog landsmönnum öllum velfarnaðar á nýbyrjuöu ári. 0 0 0 fj/iip fíi 870 loridaferðirnar eru alltafað lækka í verði, þökk sé hagstæðum samning- um Ferðaskrifstofunnar Polaris og beinu flugi Flugleiða. Florida er sam- nefnari fyrir sumar og sól allt árið. eiðin liggur beint til Orlando og þaðan er ekið til St. Petersburg og dval- ið í góðu yfiriæti við Mexicoflóann. kkar farþegar láta vel af hótelunum Alden og Lamara. Allar hótelíbúð- irnar eru með vel búnu eldhúsi, smekklegum húsgögnum, sjónvarpi og öllum þægindum. Og ekki má gleyma sundlaugunum og hótelgörðunum." I11 eyns^n sýn'r að viðskiptavinir Polaris kunna að meta lága verðið og góðu þjónustuna. Starfsfólk Polaris vinnur fyrir þig. J J Oisney World, Epcot Center og Sea World eru ævintýrastaðir sem gera ferðina ógleymanlega fyrir unga sem aldna. Pantið fljótt, því í fyrra seld- ust ferðirnar upp á svipstundu. nnifalið í þessu ótrúlega verði er flug, akstur til og frá flugvellinum í Orlando og hótelgisting. 0 llt þetta færðu fyrir 31.870, - pr. mann (miðað við 2 fullorðna og 2 börn IS í íbúð) eða 45.900,- pr. mann (miðað við 2 fullorðna í studio). Já, það er einmitt þess vegna sem fólk talar um Ferðaskrifstofuna Polaris. * Verð miðað við 2 fullorðna og 2 börn í íbúð. Flugvallarskattur er ekki innifalinn. FERÐASKRIFSTOFAN POLARIS w Kirkjutorgi 4 Sfmi622 011 ■JL LETURprent

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.