Morgunblaðið - 20.01.1988, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANÚAR 1988
Dani kærir
tvo Islendinga
fyrir nauðgun
DANSKUR karlmaður á þrítugs-
aldri hefur kært tvo fslenska karla
á svipuðum aldri fyrir líkamsárás
og nauðgun. Atburðurinn á að
hafa átt sér stað í íbúð í Reykjavík
aðfaranótt mánudagsins.
Daninn var staddur hér á landi um
helgina þar sem skip, sem hann er
skipveiji á, hafði hér viðdvöl. Daninn
segir svo frá, að hann hafi hitt íslend-
ingana á veitingahúsi og síðan farið
með þeim heim. Hann segir, að menn-
imir hafi ráðist á sig og misnotað
kynferðislega.
Rannsóknarlögregla ríkisins hefur
unnið að rannsókn málsins síðan á
mánudag. í gær voru íslendingamir
tveir yfirheyrðir, en samkvæmt upp-
lýsingum Rannsóknarlögreglunnar
em málsatvik mjög óljós.
Ráðstefna um
sjávarspendýr
hefst á morgun
RÁÐSTEFNA um skynsamlega
nýtingu sjávarspendýra hefst í
Reykjavík á morgun, 21. janúar,
og stendur f 2 daga. FuUtrúar
Færeyja, íslands, Japans, Kanada,
Noregs og Sovétríkjanna munu
taka þátt f ráðstefnunni auk þess
sem áheymarfulltrúar frá Grænl-
andi sitja hana.
Búist er við að hvalvemdunarsam-
tök muni nota þessa ráðstefnu til að
koma sjónarmiðum sínum á fram-
færi. Þannig hefur til dæmis Paul
Watson, forsprakki Sea Shephejrd
samtakanna, boðað komu sína til ís-
lands á morgun og ætlar hann að
halda fyririestur á Hótel Borg nk.
laugardag.
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson/AP
Myndin var tekin fyrir fund iðnaðarráðherra íslands og orkuráðherra Bretlands í London í gær, en á henm eru f.v: Jóhannes Nord-
al, stjórnarformaður Landsvirkjunar, Cecil Parkinson, orkuráðherra Bretlands, Friðrik Sophusson iðnaðarráðherra og Ólafur Egilsson
sendiherra.
Fundur Friðriks og Parkinsons:
Uppörvandi vegna áhuga á orku frá Islandi
London, frá Valdimar Unnari Vaidimarssyni, fréttaritara Morgunblaðsins.
FRIÐRIK Sophusson iðnaðar-
ráðherra átti í gær. viðræður
við Cecil Parkinson, orkuráð-
herra Breta, f Lundúnum og
snerust þær einkum um hugs-
anlegan raforkuflutning um
sæstreng frá íslandi til Bret-
lands. Sýndi Parkinson þessum
hugmyndum mikinn áhuga.
Fundur ráðherranna hafði verið
ákveðinn áður en þessar hug-
myndir um samstarf ríkjanna í
raforkumálum vöknuðu, en Frið-
rik Sophusson sagði, að viðbrögð
breska ráðherrans hefðu verið
afar uppörvandi. Var Parkinson
vel heima í þessum málum og
sagði, að raforkukaup frá Islandi
féllu vel að áætlunum og stefnu
bresku ríkisstjómarinnar í orku-
málum.
Friðrik Sophusson ræddi einnig
um áhyggjur íslendinga af endur-
vinnslustöðinni í Dounreay og
hugsanlegri mengun vegna kjam-
orkuúrgangs frá henni en á
morgun, fimmtudag, mun hann
fara til Skotlands, þar sem hann
ræðir m.a. um mögulega orkusölu
við frammámenn.
Sjá viðtal við Fríðrik Sophus-
son á bls. 31 og frásögn The
Economist um orkukaup frá
Islandi.
Air Tractor-flugvél, sömu gerðar og Landgræðsla ríksins ætlar að
festa kaup á.
Landgræðsla ríkisins:
Kannar kaup á nýrri flugvél
Landgræðsla ríkisins leitar nú
nýrrar vélar f stað TF-Tún, sem
eyðilagðist í fyrrasumar, og sagði
Sveinn Runólfsson, landgræðslu-
stjóri, í samtali við Morgunblaðið,
að leitað væri að notaðri Air Tract-
or vél í Bandaríkjunum. Áætlað
kaupverð vélarinnar er 6-8 millj. kr.
„Þessi nýja vél ber um eitt tonn,"
sagði Sveinn. „Við þurfum að fá hana
í lok maí, svo hún nýtist sem best á
þessu ári. Kaupverð vélarinnar verður
að hluta greitt með tryggingarfé TF-
Tún, sem eru 2,5 milljónir, en að
auki er heimild í flárlögum fyrir að
veita 3,5 miiijónum til kaupanna.“
Borgarráð:
Tvisvar kviknað í
Aburð-
arverksmiðju ríkisins
RÚNAR Bjamason slökkviliðs-
stjóri, hefur rítað borgarráði
bréf þar sem fram kemur að
nýlega hafi tvisvar kviknað í
Áburðarverksmiðju ríkisins.
Var einungis haft samband við
slökkvilið Reykjavíkur í síðara
tilvikinu. Þá er rifjað upp að
fyrir tveimur árum hafi flug-
eldur kveikt í sinu við verk-
smiðjuna en þá náðist ekki í
slökkvilið Reykjavíkur. Starfs-
mönnum Aburðarverksmiðj-
unnar tókst að slökkva eidinn
þegar hann átti nokkra tugi
metra eftir að vetnisgeymi
verksmiðjunnar. Átelur
slökkviliðsstjórí þann drátt sem
orðið hefur á ýmsum öryggis-
ráðstöfunum, sem rætt var um
að hrinda i framkvæmd fyrír
þremur árum en hætt var við
og beðið niðurstöðu nefndar
sem félagsmálaráðherra skip-
aði.
í bréfí slökkviliðsstjóra segir
að eldsvoðamir hafí verið frekar
litlir og að í fyrra tilvikinu hafí
skammhlaup í afriðlasal ollið eld-
inum en við skammhlaupið slösuð-
ust þrír menn, mismikið, þó
enginn alvarlega. Sjúkraflutn-
ingsmenn sem komu á staðinn,
gáfu skýrslu um atburðinn, sem
varð til þess að slökkviliðsstjóri
hafði samband við forstjóra
Áburðarverksmiðjunnar og kann-
aði hvers vegna ekki var haft
samband við slökkviliðið. „Kvað
hann ástæðuna vera þá, að eldvið-
vörunarkerfí hefði að undanfömu
gefíð fölsk boð og því væri slökkvi-
liðið ekki látið vita samstundis og
eldboð frá kerfínu bærist."
Síðara tilvikið varð tæpri viku
síðar og var slökkviliðið þá kvatt
á vettvang. Þá kom upp eldur í
sýruverksmiðju og var um að
ræða einangraðan eld í loftræsi-
kerfí sem eingöngu þjónar hluta
verksmiðjunnar. Reykköfumm
slökkviliðsins tókst fljótlega að
ráða niðiu-lögum eldsins.
Fjármálaráðherra:
Vill endurskoða fjárfestingar-
áform ríkis og sveitarfélaga
JÓN BALDVIN Hannibalsson fjármálaráðherra segir að það værí
árangursrík leið til að draga úr eftirspumarþenslu og spennu í þjóð-
félaginu að endurskoða fjárfestingaráform ríkis og sveitarfélaga
og draga úr þeim. Þar megi nefna ráðhús í Reykjavík, nýtt þing-
hús, veitingahús á Oskjuhlíð, fyrirhugaða fjárfestingu í útgerð,
framkvæmdir í vegamálum og þá aðallega á höfuðborgarsvæðinu
og hugsanlega framkvæmdir við Blönduvirkjun.
Fj'ármálaráðherra sagði í samtaii þjóðfélaginu að falast eftir yfírliti
við Morgunblaðið að útgjöld fjár-
laga hefðu verið aukin allnokkuð í
meðferð alþingis og einnig hefði
meirihiuti þingsins slakað nokkuð á
klónni við afgreiðslu lánsfjárlaga.
Hinsvegar væri það besta ráðið til
að draga úr þeirri miklu eftirspum-
arþenslu og spennu sem ríkti í
um fjárfestingaráform bæði opin-
berra aðila og einkaaðila og draga
úr þeim. Þetta gæti kallað á endur-
skoðun og lækkun á þessum
áformum ríkis og sveitarfélaga og
stórum vinnuaflsfrekum og láns-
ijárfrekum framkvæmdum í at-
vinnulífínu.
Fjármálaráðherra sagði menn
hafa staldrað við nokkur dæmi um
stórframkvæmdir á höfuðborgar-
svæðinu, og ef þeim yrði slegið á
frest væri það árangursrík Ieið tii
að draga úr þeirri linnulausu eftir-
spum eftir vinnuafli sem þar hefði
verið að sprengja alit upp. Þar
mætti nefna ráðhús, þinghúsbygg-
ingu og „hringleikahúsið uppi á
Öskjuhlíðargeymum" eins og Jón
Baldvin orðaði það. Sömuleiðis
mætti líta á gríðarleg Qárfesting-
aráform upp á marga milijarða
króna hjá útgerðinni. Einnig væri
svigrúm til að minnka framkvæmd-
ir hjá ríkinu. Fjármálaráðherra
nefndi þar að gífurleg raunaukning
væri á framlögum til vegamála. Til
greina kæmi að fresta þar ýmsum
framkvæmdum og benda mætti á
að áform væru uppi um miklar
vegaframkvæmdir á höfuðborgar-
svæðinu.
Ráðherrann sagði einnig að-
spurður að þótt ekki hefði verið
vilji til þess að draga úr fram-
kvæmdum við Blönduvirkjun þegar
lánsfjáráætlun var samþykkt, kæmi
einnig til greina að endurskoða þau
áform.
í dag
blað B