Morgunblaðið - 20.01.1988, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANUAR 1988
Félag íslenskra stórkaupmanna:
Misræmi í tollakerfi kemur
í veg fyrir hagkvæm innkaup
Lágt gengi dollarans hjálpar innflytjendum lítið
MISRÆMI í tollakerfinu - á þann
veg að mun hærri tollar eru á
vörum frá löndum utan EB og
EFTA en frá Evrópu - kemur í
veg fyrir að hægt sé að gera
hagkvæm innkaup frá Banda-
ríkjunum og fleiri ríkjum, að áliti
Félags íslenskra stórkaupmanna.
Þá hefur félagið sent fjármála-
ráðherra bréf þar sem segir að
í breytingum á tollalögum hljóti
vörur frá EB ekki sömu meðferð
og vörur frá EFTA, og óskað er
eftir svari hvort þetta samrýmist
viðskiptasamningum íslands.
Stefán Guðjónsson, viðskipta-
fræðingur Félags íslenskra stór-
kaupmanna, sagði að oft væri hægt
að fá vörur frá Bandaríkjunum sem
væru ódýrari og jafnvel betri en
vörur frá Evrópu, en háir tollar
kæmu í veg fyrir að þessar vörur
væru keyptar inn. Afleiðingamar
væru dýrari vara fyrir neytendur
og óþarfa sóun á gjaldeyri.
Vegna samninga við EB er
ákveðinn forgangur á vörum frá
löndum þess, en hann er hins vegar
allt of mikill, að sögn Stefáns.
Munurinn vegna sk. ytri tolla væri
allt að 20%, en svo háir tollar þekkt-
ust óvíða. 3-5% munur væri hins
vegar nægilegur til að staðið væri
við samninga.
Þetta misræmi á tollum kæmi
sér sérlega illa nú, þegar lágt gengi
dollarans gerði það að verkum að
hægt væri að gera hagkvæm inn-
kaup frá Bandaríkjunum. Ein
undantekning á þessu væru bílar,
en þeir eru tollaðir eins, óháð fram-
leiðslulandi. Innflutningur á bflum
frá Bandaríkjunum hefur svo til
legið niðri í nokkur ár, en lágt gengi
dollarans hefði ollið því að hann
hefur glæðst að nýju, innflytjendum
og neytendum til hagsbóta.
Jón Baldvin Hannibalsson fjár-
málaráðherra sagði um þetta að í
upphaflega tollafrumvarpinu hefði
verið gert ráð fyrir að fella niður
tolla af innfluttum vörum frá EB
ríkjum sem og EFTA ríkjum. Þessu
hefði verið mótmælt af hálfu EFTA
vegna þess að þar með væri upphaf-
ið það hagræði sem EFTA ríkin
ættu rétt á samkvæmt gagnkvæm-
um samningum. Einnig hefði komið
fram ábending frá réttum aðilum
að æskilegt væri að hafa uppi í
erminni eitthvað til að semja um
við EB. Þetta hefði verið leiðrétt í
meðförum þingsins sem meðal ann-
ars samþykkti 20% toll á innfluttar
unnar sjávarafurðir.
Varðandi ytri tollana sagði fjár-
málaráðherra að hugmyndir hefðu
verið uppi um að taka upp sam-
ræmda lága ytri tolla, eða um
10-15%, samkvæmt ábendingum
um að það gæti orðið til þess að
innflutningsverslunin hagnýtti sér
í ríkari mæli lækkun dollars til auk-
ins innflutnings frá Bandaríkjunum.
Á móti kom ótti ýmissa aðila um
að með því væri opnað upp á gátt
fyrir tiltölulega ódýran innflutning
frá láglaunalöndum sem að gæti
haft varhugaverð áhrif í t.d. fata-
iðnaði. Niðurstaðan hefði verið sú
að tollar voru lækkaðir misjafnlega
eftir vörutegundum.
Fjármálaráðherra benti á að þró-
un dollarans síðustu vikur gerði það
að verkum að hagkvæmt væri að
flytja inn vörur frá Bandaríkjunum
þrátt fyrir nokkra tollun.
Alþjóðleg
leitar- og
björgun-
aræfing
Leitar- og björgunaræfing var í
gær í samvinnu Landhelgisgæzl-
unnar, vamarliðsins og danska
varðskipsins Hvidebjömen. Sett
var á svið leit og björgun manna
úr björgunarbáti vestur af Garðs-
skaga.
Að sögn starfsmanns Gæzlunnar
tók þyrla Gæzlunnar TF Sif, Hercu-
les-vél og þyrla af Keflavíkurflugvelli
þátt í æfingunni auk Hvidebjömsins.
Að auki voru 6 manns frá varðskipa-
deild Stýrimannaskólans um borð í
skipinu. Skipið setti út menn í björg-
unarbát, Hercules-vélin fann þá og
Sif „bjargaði" þeim. Leitinni var
stjómað frá Hvidebjömen og tókst
æfingin vel.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Landað úr Eldeyjar-Boða í gær.
Fékk met-
verðfyrir
fyrstaróður
Keflavík.
ELDEYJAR-BOÐI, hið nýja
skip útgerðarfélagsins Eldeyj-
ar hf., landaði tæpum 10
tonnum af fiski í Njarðvík í gær
og var aflaverðmætið rúmar
400 þúsund krónur. Uppistaðan
í aflanum var þorskur og ýsa
og seldust á hæsta verði.
Eldeyjar-Boði er á Hnu og er
hann með tvöfalda setningu sem
eru 90 balar. Aflinn fékkst við
Malarrif og var hann boðinn upp
hjá Fiskmarkaði Suðumesja á
mánudaginn. Þá var báturinn að
draga síðustu bjóðin og fengust
41.50 kr. fyrir kflóið af þorski og
50.50 kr. fyrir kílóið af ýsunni.
Verðið var jafnframt það besta
sem fékkst fyrir þessar fiskteg-
undir á markaðinum þann daginn.
Þetta var fyrsti róður Eldeyjar-
Boða. Jón Norðfjörð, stjómarfor-
maður hjá Eldey hf., sagði að
byijunin lofaði góðu og menn
væru ákaflega ánægðir með ár-
angurinn í þessari fyrstu veiðiferð.
Eftir að Eldeyjar-Boði hafði land-
að aflanum lagði hann frá og hélt
í annan róður.
BB
VEÐURHORFUR í DAG, 20.01.88
YFIRLIT kl. 15.00 í gær: Búist er við stormi á Vestfjarðamiðum,
norðvesturmiðum, norðausturmiðum, austurmiðum, Austfjarða-
miðum, suðausturmiðum, norðurdjúpi, austurdjúpi, Færeyjadjúpi
og suðausturdjúpi. Um 300 km vestur af Reykjanesi er hægfara
985 mb lægð en vaxandi 970 mb lægð við Suðureyjar fer allhratt
norður. Frost verður áfram um mestallt land.
SPÁ: Noröan- og norðaustanátt um land allt, víða hvassviðri eða
stormur noröan- og austanlands, en stinningskaldi á Suðvestur-
landi. Slydda á Austurlandi, en snjókoma eða él á Norðurlandi.
Sunnanlands verður skýjað, en úrkomulaust að mestu.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á FIMMTUDAG og FÖSTUDAG: Noröan- og norðaustan-
átt og frost um land allt. Snjókoma eða él um norðanvert landiö,
en úrkomulítið syðra.
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
hiti vsöur
Akureyri +3 skýjað
Reykjavlk +3 léttskýjað
Bergen 2 skýjaö
Helslnkl 0 komsnjör
Jan Mayon +13 skafrennlngur
Kaupmannah. 2 þokumóða
Narssarssuaq +8 skýjsð
Nuuk +13 snjók. á s. klst.
Oslú 0 þoka
Stokkhólmur 2 slydda
Þórshöfn s alskýjað
Algarve 14 léttskýjsð
Amstordsm 7 mlstur
Aþona 12 skýjað
Barcelona 13 þokumóða
Berlfn 2 þokumóða
Chicago 2 alskýjað
Feneyjar 7 rígn.és.klst.
Frankfurt 3 þokumóða
Glaegow 9 rign. é s. klst.
Hamborg 3 þokumóða
Las Palmas 20 léttskýjað
London 9 rlgn. 6 ». klst.
LosAngeles 11 helðskfrt
Lúxemborg 3 þoka
Madrfd 8 þokumóða
Malaga 13 rigning
Mallorca 13 léttskýjaö
Montreal 1 hálfskýjað
NewYork 4 heiðskfrt
Parfs 9 skýjað
Róm 17 skýjað
Vfn 2 súld
Washington 2 alskýjað
Winnipog +12 lóttskýjað
Valoncia 12
Flugleiðir:
Miklar launahækkanir
hafa valdið erfið-
leikum í rekstrinum
- segir Sigurður Helgason forstjóri
„ÉG TEK undir það að launa-
hækkanir á síðasta ári, bæði til
flugmanna og annarra, voru
óraunhæfar og mikil hækkun
launakostnaðar veldur okkur
verulegum erfiðleikum í rekstr-
inum, “ sagði Sigurður Helgason,
forstjóri Flugleiða, er hann var
inntur álits á þeim ummælum
Kristins Sigtryggssonar, for-
stjóra Arnarflugs, að samningar
við stéttarfélög flugliða á síðasta
ári hafi reynst flugfélögunum
þungir í skauti og aukið launa-
kostnað þeirra um 40%.
Sigurður Helgason sagði að
samningamir við flugliða í júní
1987 hefðu verið á svipuðum nótum
og aðrir kjarasamningar með hlið-
sjón af því mikla launaskriði sem
viðgekkst á almennum vinnumark-
aði hér á landi. „Flugliðar njóta
ekki þessa launaskriðs, heldur gilda
fastir kjarasamningar við þá, og
því má segja að þessir samningar
hafi verið í samræmi við það sem
var að gerast á almennum vinnu-
markaði," sagði Sigurður. „Það
liggur nú fyrir að launahækkanir
hér á landi á síðasta ári voru á bil-
inu 35 til 40% og ég tek undir það
sem Kristinn segir, að þetta er allt
of hátt og þessi afturvirkni samn-
inganna kom sér afar illa fyrir
okkur. Það gefur því auga leið að
í rekstri, eins og til dæmis á Norð-
ur-Atlantshafsleiðinni, þar sem við
seljum að stórum hluta til í dollur-
um, hlýtur iaunakostnaður, sem
hækkar um 40% á einu ári, að valda
verulegum erfiðleikum, auk þess
sem krónán hækkar gagnvart dollar
um 11% frá ársbyijun til ársloka.
Samtals er þetta því um 50% hækk-
un miðað við dollar og við getum
ekki hækkað okkar verð í Banda-
ríkjunum sem því nemur. Þetta
hefur því óneitanlega reynst okkur
þungur baggi í rekstrinum og sérs-
taklega í Norður-Atlantshafsflug-
inu," sagði Sigurður Helgason.