Morgunblaðið - 20.01.1988, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20- JANÚAR 1988
31
Verðkönnun Verðlagsstofnunar:
Hjólbarðar hafa
lækkað um 12—18%
HJÓLBARÐAR hafa aimennt
lækkað um 12—18% frá því fyrir
áramót, samkvæmt könnun sem
Verðlagsstofnun gerði miðviku-
daginn 13. janúar 'sl. á verði
ónegldra vetrarhjólbarða hjá
hjólbarðainnflytjendum og
nokkrum hjólbarðasölum á höf-
uðborgarsvæðinu. Tilgangur
könnunarinnar var að athuga
hvort verðlækkun hefði orðið í
kjölfar tollabreytingarinnar sem
var um áramótin.
Könnunin leiddi eftirfarandi í
ljós, samkvæmt fréttatilkynningu
frá Verðlagsstofnun:
Allir hjólbarðasalar sem könnun-
in nær til utan tveir, Gúmmívinnu-
stofan hf., Skipholti 35 og
Holtadekk, Langatanga la, Mos-
fellsbæ, höfðu þegar lækkað verðið
á hjólbörðum frá því í desember.
I nokkrum tilvikum var um verð-
lækkun að ræða á hjólbörðum sem
keyptir höfðu verið inn fyrir ára-
mótin með vörugjaldi því sem fellt
var niður frá 1. janúar 1988. Þéir
sem þannig lækkuðu verðið á þeim
vörum sem voru í birgðum hafa því
skert fyrri álagningu sína sem nem-
ur verðlækkuninni.
Verðlækkunin á hjólbörðum
reyndist almennt vera 12—18%
samkvæmt könnuninni. Þegar verð-
lækkun hjólbarða verður að fuilu
komin fram vegna niðurfellingar á
vörugjaldi ættu þeir að hafa lækkað
um 20% miðað við óbreytt inn-
kaupsverð, gengi og hlutfallslega
álagningu.
Sólaðir vetrarhjólbarðar hafa
ekki lækkað í verði enn sem komið
er en munu að sögn seljenda gera
það síðar.
Útflutningur raforku frá íslandi:
Viðbrögðin einkar já-
kvæð og uppörvandi
- segir Friörik Sophusson iðnaðarráðherra um fund
Dekkjastærð 165 x 13 Pekkjastærð 175 x 14
Bridgestone Bilaborg, Rvík. 3441 3010 -1?.5% 4091 3580 -12,5%
Gúmmikarlar, Rvik. 3820 3350 -12,3% 4540. 3850 -15,2%
Dekkið. Hamartirði 3825 3352 -12.4% 4500 3990 -11.3%
Goodyear Barðinn, Rvik. 3800 3T50 -T7.t% 4680 3900 -167%
Hekla, Rvík. 3800 3150 -17.1% 4680 3900 -16.7%
Hjólbaröahöllin. Rvik. 3800 3150 -17r1% 4680 3900 -16.7%
H|ólbarðaverkst Sigurjóns, Rvík 3800 3150 -17.1% 4680 3900 -16.7%
H|ólbarðaviðgerðin. Hafnartirði 3800 3150 -17.1%
Firestone Gúmmívinnustolar Rvik 3990 3990 0.0%
H-ólbardaviögerð Kópavogs 3823 3133 -18.0% 4463 3657 -18,1%
Jofur, Kópavogt 3823 3133 -18.0% 4463 3635 -18.6%
Michelin Dekkið, Hafnarfirði 3765- J166 -15.9% 4770 4005 -16.0%
Gúmmikarlar. Rvik 3765 3300 -12.4% 4770 4170 -12.6%
Gúmmivinnustofar, Rvik 3765 3765 0.0% 4770 4770 0.0%
H|ólbarðahöllinr Rvík 3770 3165 -16.0% 4780 4000 -16.3%
Hjólbarðastöðm. Rvik 3730 3270 -12.3% 4650 4080 -T2.3%
H|ólbardaverkst. Jón ólafss . Rvik 3765 3065 -18.6% 4775 4005 -16.T%
Hjólbarðaverkst Sigurións. Rvik 3800 3165 -16.7% 4770 4005 -T6,0%
Holtadekk. Mosfelisbae 4770 4770 0.0%
Höfðadekk. Rvik 3765 3300 -12.4% 4770 4100 -T4;0%
isdekk, Rvik 3765 3165 -15.9% 4770 4005 -16.0%
Nýbarði. Garðabæ 3765 3140 -T6.6% 4770 4005 -16.0%
Sólnmg, Kópavogi 3920 3290 -T6.1% 4970 4175 - T6.0%
General Gúmmikarlar. Rvik. 3330 2995 -10.1% 3675 3350 -8,8%
Gúmmivinnustofan. Rvík 3330 3330 0.0% 3675 3675 0.0%
Hiolbarðastöðin. Rvik. 3530 3050 -13.6% 3980 3670 -7.8%
Skórinn, Rvik. 3330 2997 -10.0% 3675 3310 -9.9%
Pneumant Barðinn. Rvik. 2950 2850 3.4%
Barum Hjólbarðaverkst. Sigurjóns. Rvík. 2956 2388 -19,2% 3450 2972 -13.9%
Hjólbarðavidgerd Kópavogs 2831 2295 -18.9% 3514 2847 -19.0%
Jofur. Kópavogi 2831 2295 -18.9% 3514 2847 -19.0%
Nýbaröi. Garðabæ 2955 2295 -22.3% 3670 2850 -22.3%
Sólaðir hjólbarðar Barðmn. Rvik. 2150 2495
Dekkið. Hafnarfirði 2155 2520
Gúmmikartar. Rvik. 2165 2520
Gúmmívinnustofan, Rvik. 2155 2520
HjólbarðahOllin. Rvik. 2155 2620
Hjólbarðastöðm. Rvik 2150 2520
Hjólbardavidgerð Kópavogs 2066 2187
Hjólbarðaviðgerdin, Hafnarf«rði 2090 2450
Hjólb verkst JónsÓlafss Rvik 2100 2500
Hióibarðaverkst Sigurjórvs. Rvik 2155 _ 2525
Hoitadekk. Mosfelisbæ 2150 2500
Hofðadekk, Rvík 2155 2520
Kaidsólun. Rvik 2175 2500
Nýbarði. Garðabæ 2070 2430
Sóirung Kópavogi 2155 2525
Skoðanakönnun Skáís:
34,1% Reykvíkinga
sinn með Cecil Parkinson orkuráðherra Bretlands
London. Frá Valdimar Unnari Valdimarssyni, fréttaritara Morgnnblaðsins.
Á fundi Friðriks Sophussonar iðnaðarráðherra og Cecils Parkin-
sons, orkumálaráðherra Breta, í Lundúnum í gær var meðal annars
rætt um þær hugmyndir, sem uppi hafa verið um raforkuútflutning
frá íslandi til Bretlands um sæstreng. Að sögn Friðriks voru undir-
tektir breska orkuráðherrans mjög jákvæðar.
fylgjandi byggingu
ráðhúss við Tjörnina
33,4% Reykvíkinga svöruðu neitandi
Fundur þeirra Friðriks Sophus-
sonar og Cecils Parkinsons hefur
lengi verið á döfínni og hafði raun-
ar verið ákveðinn áður en umræður
hófust um raforkuútflutning ffá
íslandi tii Bretlands. Vegna þeirrar
umræðu þótti hins vegar sjálfsagt
að taka málið til umræðu á fundin-
um í gær og í samtali við Morgun-
blaðið sagði Friðrik, að viðræðurnar
hefu verið einkar _ fróðlegar og
gagnlegar. Að hálfu íslendinga sátu
fundinn auk Friðriks þeir Ólafur
Egilsson sendiherra og Jóhannes
Nordal seðlabankastjóri og stjóm-
arformaður Landsvirkjunar.
Kynntu þeir almenn viðhorf ís-
lendinga tii raforkumála og hlýddu
á Cecil Parkinson og embættismenn
breska orkumálaráðuneytisins gera
grein fyrir gangi þeirra mála í Bret-
landi. Sagði Friðrik, að fróðlegt
hefði verið að fá nasasjón af hug-
myndum um einkavæðingu breska
raforkugeirans. „Það, sem var
einna mest uppörvandi, var hversu
þessi áform um einkavæðingu geta
fallið vel að okkar hugmyndum um
orkusölu til Bretlands. Það er ekk-
ert launungarmál, að við viðruðum
þessar orkusöluhugmyndir okkar á
fundinum í gær, gerðum viðmæl-
endum okkar ljóst, að um slíkan
kost gæti verið að ræða og að bresk
stjómvöld ættu að taka tillit til
þess í sínum framtíðaráætlunum.
Það er skemmst frá því að segja,
að viðbrögð breska orkuráðherrans
voru einkar jákvæð og uppörvandi
fyrir okkur. Parkinson kom síður
en svo af fjöllum í þessu máli og
lagði áherslu á, að orkusala um
sæstreng frá íslandi til Bretlands
gæti fallið að áætlunum og stefnu
bresku ríkisstjómarinnar í orkumál-
um. Þessi stefna byggðist ekki síst
á því að auka fjölbreytni í orkumál-
um, nýta sem flesta hugsanlega
kosti og dreifa áhættu. Það er því
alveg ljóst eftir fundinn í gær, að
þótt þessar hugmyndir um orkusölu
um sæstreng séu enn á algeru frum-
stigi, getum við íslendingar vænst
jákvæðra viðbragða breskra stjóm-
valda ef ákveðið verður að stíga
einhver frekari skref í þessu máli,"
sagði Friðrik Sophusson iðnaðar-
ráðherra.
Meðal annars, sem bar á góma
ráðherranna í gær, var fyrirhuguð
starfræksla endurvinnslustöðvar
fyrir kjamorkuúrgang í Dounreay
en um hana hafa orðið umræður á
íslandi vegna mögulegrar mengun-
arhættu. Á fundinum gerði Friðrik
viðmælendum sínum grein fyrir því
almenna viðhorfí íslenskra stjóm-
valda, að forðast beri í lengstu lög
að losa eitruð úrgangsefni í hafíð.
„Við lögðum í þessu sambandi sér-
staka áherslu á hagsmuni okkar í
fískveiðimálum og bentum á þær
áhyggjur, sem íslendingar hafa af
þeim afleiðingum, sem það gæti
haft fyrir lífriki hafsins ef eitthvað
færi úrskeiðis í stöð eins og þeirri
í Dounreay. Viðmælendur okkar
lögðu á móti áherslu á, að allt ör-
yggi yrði tryggt í stöðinni og nánast
hverfandi hætta á, að geislavirk
úrgangsefni fæm í hafíð. Þannig
kjmntum við hvorir um sig sjónar-
mið okkar í þessu máli og er það
út af fyrir sig gagnlegt."
Á fímmtudaginn mun Friðrik
Sophusson iðnaðarráðherra fara til
Skotlands þar sem hann mun m.a.
kynna hugmyndir um raforkuflutn-
ing frá íslandi. í fylgd með honum
verður Páll Flygenring, ráðuneytis-
stjóri í iðnaðarráðuneytinu, og
munu þeir ræða við fulitrúa þeirra
tveggja orkufyrirtækja, sem hafa
með höndum raforkusölu í Norður-
og Suður-Skotlandi. Friðrik sagði í
samtali við Morgunblaðið, að þótt
þessar hugmyndir væru enn á frum-
stigi væri rétt að kynna þær þeim,
sem að öllum líkindum yrði við að
eiga ef þeim yrði hrint í fram-
kvæmd. „Auðvitað kann svo að
fara, að þessar hugmyndir verði
aldrei að veruleika, reynist aldrei
hagkvæmur kostur. Við megum þó
ekki varpa þeim fyrir róða nú. Nýj-
ustu athuganir sýna, að þær geta
verið raunhæfar og því er sjálfsagt
að ræða við alla, sem við sögu geta
komið. Til þessa ætla ég m.a. að
nota þessa Bretlandsför mína og
viðbrögð Cecils Parkinsons orku-
málaráðherra voru afar uppör-
vandi," sagði Friðrik Sophusson
iðnaðarráðherra að lokum.
SKÁÍS gerði 15. janúar sl. skoð-
anakönnun fyrir Stöð 2 um
byggingu ráðhúss við Tjörnina.
I greinargerð Skáfs segir m.a.:
„Hringt var í símanúmer eftir
handahófsúrtaki skv. tölvuskrá
Landsímans yfír virk einkanúmer
fyrir ailt landið. Tölvuskráin var
unnin af Skýrsluvélum ríkisins og
Reykjavíkurborgar með heimild
tölvunefndar.
Spumingunum var beint til
þeirra sem svöruðu og voru 18 ára
eða eldri og var haft samband við
alls 838 einstaklinga. Stærð úrtaks-
ins var ákveðin í réttu hlutfalli við
§ölda íbúanna (þ.e. 18 ára og eldri),
á eftirtöldum svæðum: Reykjavík,
Reykjanes og dreifbýli.
Kynningarorð í þessari skoðana-
könnun voru: Við erum að gera
skoðanakönnun á afstöðu almenn-
ings til fyrirhugaðrar byggingar
ráðhúss í Reykjavík. Ert þú fylgj-
andi byggingu ráðhúss við
Tjörnina?
Afstaða til ráðhúss
Reykjavik (37,8%) já fjöldi 108 hlutfaU 34,1%
nei 106 33,4%
vilja ekki ráðhús 32 10,1%
hafa ekki skoðun 56 17,7%
neita að svara 15 4,7 %
317 100,0%
Reykjanes (23,9%) já fjöldi 77 hlutfall 38,5%
nei 45 22,5%
vilja ekki ráðhús 11 5,5%
hafa ekki skoðun 64 32,0%
neita að svara 3 1,5%
200 100,0%
Dreifbýli (38,3%) já fjöldi 75 hlutfall 23,4%
nei 54 16,8%
vilja ekki ráðhús 63 19,6%
hafa ekki skoðun 106 33,0%
neita að svara 23 7,2%
321 100,0%
Rafmagnað tækifæri
EFTIRFARANDI fréttapistill,
sem fjallar um hugsanlega raf-
orkusölu íslendinga til Bret-
lands, birtist í breska tímaritinu
The Economist 9. janúar sl.
ísland getur að nokkru leyti dreg-
ið úr þörf Bretlands fyrir kjam-
orku í framtíðinni. Fjarlægðin
milii iandanna er tæpir 800 km,
og þar sem íbúafjöldi á íslandi
er aðeins um 240.000 manns, er
landið sannkallað orkuforðabúr.
Þar er unnt að virkja um 30.000
MW (megawött) vatnsafls- og
jarðhitaorku án nokkurra teljandi
umhverfisspjalla. íslendingar nota
sjálfir aðeins 800 MW. Blómlegur
raforkuútflutningur gæti gert þá
óháðari sjávarútvegi — sem stóð
undir 49% (rétt tala er 77% —
innsk. Morgunblaðið) af útflutn-
ingi landsmanna árið 1986.
Bretar flytja nú þegar inn raf-
magn. Allt að 2000 MW streyma
í gegnum rafstreng frá Frakkl-
andi, þegar þörf krefur. Sam-
kvæmt upplýsingum breska
umboðs- og miðlunarfyrirtækisins
North Venture gæti Island aukið
2000 MW við það innan 20 ára.
Það eru u.þ.b. 6% af núverandi
raforkunotkun Bretlands.
Framfarir í gerð rafstrengja
hafa gert að verkum, að neðan-
sjávartenging milli íslands og
Bretlands er nú fysilegur kostur,
jafnvel þótt það tæki fímm ár að
leggja hvem hinna Qögurra eða
fímm rafstrengja, sem á þyrfti
að halda. Svo langur framkvæmd-
atími mundi henta íslendingum.
Þeir eiga við vinnuaflsskort að
etja, en eru tregir til að flytja inn
erlenda verkamenn í því skyni að
auka virkjunarhraðann — ekki
síst frá sínum gamla erkióvini úr
þorskastríðunum. íslendingar
gætu hins vegar greitt fyrir þess-
um samningum með því að kaupa
breskan virkjunarbúnað.
Raforkuffamleiðsla með
íslensku vatnsafli er hin ódýrasta,
sem völ er á í Evrópu. Um það
bil tfundi hluti þeirrar orku, sem
flutt yrði til Bretlands, mundi
glatast á leiðinni, en þrátt fyrir
það yrði fslenska rafinagnið ódýr-
ara en sú orka, sem fengist úr
kjamorkuverinu Sizewell „B“,
sem Central Electricity Generat-
ing Board hefur í hyggju að reisa.
Líklegustu kaupendur íslenskr-
ar raforku eru skosku raforkufyr-
irtækin tvö og East Midlands
Electricity Board. Norður-írland,
sem stendur ef til vill frammi fyr-
ir orkuskorti um aldamótin, kæmi
einnig til greina sem kaupandi.
Central Electricity Generating
Board, sem yrði samkeppnisaðili
Islendinga á breska orkumark-
aðnum, hefur gert lítið úr þessari
hugmynd, og kemur það ekki á
óvart. Það segir, að raforka, sem
flutt yrði um sæstreng trá ís-
landi, yrði dýrari en vonast er til,
og miðlun til suðurhluta Bret-
landseyja — þar sem þörf er fyrir
orkuaukningu — gæti valdið erfið-
leikum. Bresk orkudreifingarfyr-
irtæki í einkaeign lfta það mál ef
tii vill öðrum augum.