Morgunblaðið - 20.01.1988, Blaðsíða 55
M0RGUN3LAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. JANUAR 1988
SKÍÐI / HM
Enn
Tomba-
sigur
Hefur nú 43 stiga
forskot á Pirmin
Zurbriggen
ALBERTO Tomba sannaði það
enn einu sinn í stórsvigi heims-
bikarsins í gær að hann er
bestur. Tomba sigraði örugg-
iega og var tæpum tveimur
sekúndum á undan næsta
keppanda. Hann hefur nú 43
stiga forskot á Pirmin Zúr-
briggen í keppninni samaniagt.
Sigur Tomba í gær var hans
sjöundi í vetur. Hann hefur nú
unnið fjögur af fímm svigmótum
vetrarins og varð annar í því
fímmta. í gær vann hann sinn þriðja
sigur í stórsvigi, sem er frábær
árangur.
„Ég er svo gott sem er búinn að
vinna svigið og stórsvigið saman-
lagt. Ziirbriggen má reyna að
komast upp fyrir mig með því að
ná stigum í bruni. Ef stigin úr risa-
stórsviginu nægja mér ekki til að
vinna keppnina samanlagt mun ég
freista þess að keppa í bruni, en
þó ekki fyrr en eftir Ólympíuleika,"
sagði Tomba eftir sigurinn í gær.
Stórsvigskeppnin í gær fór fram í
Saas Fee í Sviss. Tomba náði besta
brautartímanum í báðum umferðum
og var tæpum tveimur sekúndum á
undan Gunter Mader frá Aust-
urríki. Landi hans, Helmut Mayer,
varð þriðji og Pirmin Ziirbriggen í
Qórða sæti.
Austurríkismenn komu sterkir frá
þessari keppni, áttu þrjá af fimm
fyrstu. Svisslendingar áttu aðeins
einn keppanda sem hlaut stig fyrir
utan Zurbriggen, Martin Hangl,
sem varð f 11. sæti. Svisslendingum
hefur hins vegar gengið betur í
kvennaflokki.
Alberto Tomba hefur nú hlotið 206
stig, Ziirbriggen er næstur með 163
stig, Gunther Mader með 96, Hu-
bert Strolz með 93 og í fímmta
sæti er Markus Wasmeier með 85.
Næsta mót hjá körlunum verður í
Leukerbad í Sviss á laugardaginn.
Þá keppa konumar í Bad Gastein
í Austurríki.
BLAK
Þróttur
marði HK
Tveir leikir fóru fram í 1. deild
karia í blaki um síðustu helgi.
Þróttur átti í miklu basli með
HK og Víkingur vann Fram
nokkuð örugglega. Einnig fóru
fram nokkrir leikir í bikar-
keppninni.
Þróttur sigraði HK í 1. deild
karla 3:2 eftir spennandi viður-
eign. Þróttur vann fyrstu hrinuna
19:17 og tók hún 36 mínútur, eða
sama tíma og næstu þijár. Einstak-
ir leikir fóru þannig: 19:17, 3:15,
2:15, 15:4 og 15:9. Víkingur vann
Fram 3:1 (15:3, 13:15, 15:9 og
15:6).
í 1. deild kvenna fóm fram tveir
leikir. Þróttur vann HK 3:1 og
Breiðablik vann Þrótt 3:0.
Fimm leikir fóm fram í bikarkeppni
karla. Á sunnudaginn sigraði Þrótt-
ur frá Neskaupstað Þrótt-b, 3:2
(15:6, 14:16, 15:11 og 18:16).
Þróttur spilaði aftur í bikarkeppn-
inni síðar sama dag við Vfking og
tapaði þá 1:3. Önnur úrslit í karla-
flokki urðu þau að HSK vann Fram
3:1, á Akureyri vann KA Skautafé-
lag-b 3:0 og Óðinn vann Skautaflé-
lag-a 3:0. Loks vann kvennnalið
Völsungs Óðinn á Akureyri 3:0.
HANDKNATTLEIKUR
Morgunblaðtð/Bjam;
Páll Ólafsson, sem hér skorar i landsteik gegn heims- og ólympíumeisturum Júgóslava I Laugardalshöll á dögun-
um, er á heimleið og leikur í KR-búningnum næsta keppnistimabil. KR-ingar hafa þvf nælt f tvo af bestu
handknattleiksmönnum íslands, Pál og Alffeð Gfslason, sem báðir hafa leikið í Vestur-Þýskalandi undanfarín ár.
PállOlafs-
sontilKR!
PÁLL Ólafsson, landsliðs-
maðunnn snjalli sem ieikið
hefur í Vestur-Þýskalandi
síðustu ár, hefur ákveðið að
ganga tii liðs við KR fyrir
næsta keppnistfmabii. Hann
flytur heim í vor, eftir að
keppnistfmabHinu lýkur ytra.
KR fær þvf tvo firnasterka
leikmenn frá þýskum liðum
fyrir næsta keppnistímabil:
Alfreð Gíslason snýr aftur tii
Vesturbæjarliðsins frá meist-
urum Essen, eins og Morgun-
blaðið greindi frá á dögunum.
etta var nokkuð erfíð ákvörð-
un, já,“ sagði Páll í samtali
við Morgunblaðið í gærkvöldi. „En
það skipti í sjálfu sér ekki máli
hvað félagið heitir sem ég fer til.
Ég er Þróttari og verð alltaf Þrótt-
ari, en ég tel KR geta gert mest
fyrir mjg núna sem handbolta-
mann. Ég held að liðið geti orðið
mjög gott næsta keppnistímabil
og það skipti miklu máli.“
Það verður gaman að
spila með Alfreð
Alfreð Gíslason ákvað fyrir
skömmu að ganga til liðs við KR
á nýjan leik sem fyrr greinir og
sagði Páll að það hefði haft mikið
að segja fyrir sig. „Það verður
gaman að spila með Alfreð og
hefur lika mikið að segja upp á
landsh'ðið — það er engin spum-
ing.“
• Páll leikur nú þriðja keppnistíma-
bilið í röð í Vestur-Þýskalandi —
var fyrst í eitt ár hjá Dankersen
en leikur nú annað tímabilið með
Dusseldorf. Liðinu hefur gengið
mjög vel í vetur — miklu betur
en nokkur þorði að vona og sagði
Páll að velgengnin hefði vissulega
haft þau áhrif að hann hefði íhug-
að að vera lengur hjá félaginu.
„En konan mín er orðin þreytt
hér og vill fara heim og það skipt-
ir miklu máli. Félagið vill hafa
mig áfram, en forráðamenn þess
eru mannlegir og hleypa mér burt
án nokkurra illinda."
Utetmjögwlá
1. deildina i vatur
Páll sagðist hafa dvalið hér heima
um tíma í vetur og séð nokkra
leiki í 1. deildarkeppninni. „Það
var viririlega gaman að þeim leikj-
um, mér leist vel á það sem ég
sá og deildin verður örugglega
enn betri næsta ár þegar enn
fleiri leíkmenn verða komnir heim
frá útlöndum. Það er Ijóst að ég
hefði einhvem tíma komið heim
og þetta er ekki slæmur tími til
þess. Bæði er að deildin er orðin
skemmtileg aftur og sfðan er gott
að vera fluttur heim til að taka
þátt i iokaundirbúningi landsliðs-
ins fyrir Ólympíuleikana," sagði
Páll Olafsson.
55
—“v
KÖRFUBOLTI
Sturia
og Valur
ekki með
aegn
IBK
TVEIR lykilmenn í liði Njarðvík-
ur, þeir Valur Ingimundarson
og Sturla Örlygsson, munu ekkr
leika með UMFN gegn ÍBK f
síðari leik liðanna í 8-liða úrslit-
um bikarkeppni KKÍ á föstu-
daginn. Þeir voru báðir dæmdir
í eins ieiks bann af aganefnd
KKÍígær.
Valur Ingimundarson fékk tvær
tæknivillur í fyrri leiknum
gegn ÍBK og fékk því sjálfkrafa
eins leiks bann. Sturla var hinsveg-
ar kærður fyrir að slá andstæðing
í leik UMFN gegn ÍR um helgina.
Þrátt fyrir mismunandi brot urðu
þeir að sæta sömu refsingu.
Njarðvíkingar sigruðu í fyrri leikn-
um gegn ÍBK í Keflavík, 88:83. Það
eru því aðeins fímm stig sem skilja
iiðin að og það verður án efa erfitt
fyrir Njarðvíkinga að halda þessum
mun án Vals og Sturlu sem hafa
báðir leikið mjög vel í síðustu leikj-
um. Valur skoraði t.d. 37 af 88
stigum Njarðvíkinga í fyrri leiknum.
„Þett er tóm þvæla og dómurinn á
alls ekki rétt á sér,“ sagði Sturla
Örlygsson í samtali við Morgun-
blaðið í gær. „Þetta gerðist í hita
leiksins og var ekki högg heldur
hrinding. Það er líka gróft að vera
tekinn fyrir- af þremur mönnum og
fá ekki tækifæri til að veija sig!"
Ég var dæmdur út frá hnefahöggi.
Valur Ingimundarson er svo dæmd-
ur út frá starfsreglum dómara, sem
þeir eru ekki allir sammála um.
Annars er ég bara bjartsýnn fyrir
leikinn og ég hef ekki trú á öðru
en að við komumst áfram. Hinir
strákamir bæta bara við sig.“
ívar Webster ( eins lelks bann?
Mal ívars Websters verður tekið
fyrir í dag í dómstól UMSK. Hann
er sakaður um hnefahögg, það
sama og Sturla Örlygsson var
dæmdur fyrir. Nokkur munur er
þó á þessum tveimur málum. Högg
Ivars var þyngra og kom í leikhléi,
en Sturla var kærður fyrir högg í
leiknum sjálfum.
„Það er að sjálfsögðu bæði stigs-
og eðlismunur á höggi í hita leiks-
ins og svo aftur á móti höggi sem
kemur í leikhléi,“ sagði Bjöm Björg-
vinsson, formaður KKÍ, í samtali
við Morgunblaðið í gær. „Það er
þó ekki hægt að neita því að handa-
lögmál era alltaf handalögmál sama
hve höggin era þung.“
Eins og áður sagði fer mál ívars
Websters fyrir dóm í dag og sam-
kvæmt kæranum era málin svipuð.
„Þetta er mjög gott fyrir okkur og
samkvæmt öllu ætti ívar bara að
fá eins leiks bann“ sagði Pálmar
Sigurðsson, þjálfari Hauka. „Ég fæ
ekki séð annað en að kæraatriðin
séu þau sömu. Menn vissu ekki
hvemig átti að taka á máli ívars
vegna þess að slíkt mál hafði ekki
komið upp en nú hafa þeir for-
dæmi. Það er nefnilega ekki hægt
að dæma bara eftir þvi hve höggið
er þungt."
ENGLAND
Watford áfram
I bikamum
Luton sigraði Bradford 2:0 í
gærkvöldi í átta liða úrslitum
ensku deildarbikarkeppninnar í
knattspymu, sem nú er kennd við
Littlewoods, í gærkvöldi. í fyrra-
kvöld vann Watford sigur á Hull,
1:0, í 3. umferð FA bikarkeppninn-
ar. Watford mætir Coventry, sem
er handhafí bikarsins, í 4. umferð.