Morgunblaðið - 24.01.1988, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 24.01.1988, Qupperneq 1
96 SIÐUR B 19. tbl. 76. árg. STOFNAÐ 1913 SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1988 Prentsmiðja Morgunbiaðsina Bólumeð- al vinnur á hrukkum New York. Reuter. Unglingabólumeðal, Retin-A, sem verið hefur á markaði frá þvi á áttunda áratugnum, hefur ákveðna hliðarverkun, sem uppgötvaðist ekki fyrr en ný- lega: Það getur afmáð hrukkur af völdum sólarljóss og öld- runar. Dr. John Vorhees, sem starfar við læknadeild Michigan-háskóla, þar sem lyfíð var til rannsóknar í fjóra mánuði, sagði á fundi með fréttamönnum: „Það snýr við hrukkumyndun af völdum sólar- ljóss og ef til vill einnig af völdum eðlilegrar öldrunar." Vísindamenn við læknadeild Michigan-háskóla telja, að Retin- A þykki ystu lög húðarinnar og auki myndun eggjahvítuefnisins kollagens í innri lögum hennar. \ ^ Morgunblaðið/Ámi Sœberg. I Þormóðsdal á þorra Afvopnunarviðræður risaveldanna í Genf: Lögð fram drög að samningi um varnakerfi í geimnum Genf^Washington. Reuter. RONALD Reagan Bandaríkjafor- Getur fisk- eldi af sér njjategund inflúensu? London. Reuter. FISKELDI f þróunarlöndunum eykur hættuna á stórfelldum inflúensufaraldri, sem breiðst gæti út um allan heim. Fátt yrði um varnir, því að mannslíkaminn er ekki búinn ónæmi gagnvart þessum sjúkdómi, að þvi er fram kemur í nýjasta tölublaði vísinda- tímaritsins Nature. Vísindamenn segja, að hættan stafi af nýrri veiru, sem orðið gæti til, þar sem fiskur er alinn í návígi við svín og fíðurfénað. Þannig er staðið að fiskeldi í mörgum löndum Asíu, þar á meðal Kína, Indlandi og Thailandi. Þessi tegund fiskeldis — þar sem leiddar eru saman mismunandi inflú- ensuveirur — gæti leitt til þess, að ný gerð sjúkdómsins, sem mannslík- aminn yrði berskjaldaður fyrir, brytist út á 10 til 20 ára fresti, að þvi er segir í greininni. seti hefur falið samningamönnum Bandaríkjastjómar i Genf að þrýsta á Sovétmenn um að þeir skilgreini afstöðu sína til geim- varnaáætlunar Bandaríkjastjórn- ar. Samningamenn Bandaríkja- stjórnar lögðu fram drög að samningi um geimvamakerfi á föstudag og er gert ráð fyrir, að þvi verði komið upp „stig af stigi og undir eftirliti". Henry Cooper, samningamaður Bandaríkjastjómar, sagði að sam- komulagsdrögin kvæðu á um, að geimvamakerfinu yrði komið upp smám saman og undir eftirliti og lagði áherslu á, að það væri í þágu „Bandaríkjanna, Sovétríkjanna og alls heimsins" að leggja meiri áherslu á vamir við kjamorkuvopn- um en á árásarvopnin sjálf. Kvaðst Cooper vilja taka það skýrt fram, að Bandaríkjastjóm stefndi að því að gera tvo samninga, annan um langdræg kjamorkuvopn og hinn um geimvamakerfið. Bandaríska dagblaðið The Wash- ington Post skýrði frá því í gær að Bandaríkjamenn krefðust þess nú að Sovétstjómin féllist á svonefnda „rýmri túlkun" ABM-sáttmálans um takmarkanir gagneldflaugakerfa, sem Bandaríkjamenn telja að heim- ili tilraunir með vamarvopn í geimnum. Sovétmenn líta hins vegar svo á að sáttmálinn taki fyrir þess háttar tilraunir. Leiðtogum stórveld- anna tókst ekki að ná sáttum um túlkun sáttmálans á fundinum í Washington í síðasta mánuði. Sérfræðingar sem fylgst hafa með viðræðunum í Genf segja að bæði risaveldin muni þurfa að fallast á verulegar tilslakanir ætli þau sér að ná fram samningi um helmings fækkun langdrægra kjamorku- vopna, sem búist er við að verði helsta umræðuefnið á fýrirhugðum fundi þeirra Reagans og Míkhaíls Gorbatsjovs í Moskvu síðar á þessu ári. Meðferðarstofnanir í Sovétríkjuimm: Taumlaus refsigleði og áfengis- sjúklingar taldir til glæpamanna Moskvu, Reuter. SOVÉSKIR áfengissjúklingar, sem vistaðir eru á ríkisreknum meðferðarstofnunum, eru með- höndlaðir eins og glæpamenn, að þvi er segir i bréfi eins þeirra sem birt var í Prövdu, málgagni sovéska kommúnistaflokksins, á föstudag. „Þeir líta ekki á okkur sem menn. Við erum settir í einangrun vegna hinna smávægilegustu brota og þá er ekki von á góðu,“ segir í bréfínu til Prövdu en höfundur þess dvelst á meðferðarstofnun ( Ashkhabad, höfuðborg Asíu-lýð- veldisins Túrkmeníu. Stjómvöld í Sovétríkjunum telja að fjölskyldum áfengissjúklinga og samfélaginu öllu stafí ógn af of- drykkju þeirra. Komi fram kvartan- ir frá hendi vinnuveitenda eða ættmenna vegna ofdrykkju manna, rétta sérstakir dómstólar í málum þeirra og geta þeir dæmt áfengis- sjúklinga til meðferðar. Blaðamaður frá Prövdu var sendur til að kynna sér hvemig starfseminni væri háttað í Ashk- habad og sagði í frásögn hans að meðferðin einkenndist af hörku. Sjúklingamir væru neyddir til að vinna alla sjö daga vikunnar, mat- urinn væri hræðilegur og þótt meðferðarstbfnunin starfrækti verslun væri þar ekkert að fá. Matvæli sem ættingjar sendu gjaman áfengissjúklingunum væru gerð upptæk og bæru menn fram kvartanir kostaði það tíu daga ein- angrun.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.