Morgunblaðið - 24.01.1988, Side 4

Morgunblaðið - 24.01.1988, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1988 Kortið sýnir staðsetningu stöðva og rásafjölda. Þau svœði sem Póstur og simi telur sig ná dl eru skyggð en engin ábyrgð er þó tekin á þvi vegna breytilegra aðstæðna. Farsimakerfið eflt samfara mikilli fjölgun notenda FARSÍMAKERFI Pósts og sima var eflt mjög á siðasta ári og er nú minna um að notendur nái ekki sambandi vegna þess að all- ar rásir séu uppteknar. Undanteknar eru þær stöðvar sem þjóna togurunum á Vestfjarðamiðum og loðnuflotanum undan Aust- fjörðum, en þar hefur ástandið verið mjög slæmt að undanfömu, að sögn Magnúsar Waage, verkfræðings hjá Pósti og sima. „Við reynum að halda í við notendafjölda, en notendum farsímakerfis- ins hefur fjölgað mun meira cn menn áttu von á þegar þvi var komið á laggiraar fyrir einu og háifu ári,“ sagði hann. Farsímanotendur um síðustu áramót voru 5008 og hafði þá fjölgað um 137%, móðurstöðvum hefur fjölgaö úr 29 í 38 (31%) og rásir eru um 210 talsins, hefur ijölgað um 123%. Þá var farsíma- stöðin stækkuð í byijun ársins. Teknar hafa verið í notkun móður- stöðvar á Háöxl í öræfum, Stórholti á Holtavörðuheiði, Tjöm á Skaga, Viðarfialli við Þistilfjörð, Húsavíkurfjalli, Grænnípu við FáskrúðsflÖrð, Gildruholt austan Helissands, Hænuvíkurháls sunn- anvert við Patreksflörð og Grímu, sunnanvert við Reyðarflörð. Á þessu ári er áætlað að taka rúmlega 100 rásir í notkun auk Qölda móðurstöðva, fáist fjárveit- ing til. Enn eru ’ótengdar móður- stöðvar á Hátungum á Steingrímsfjarðarheiði og á Rjúpnahæð í Reykjavík en vonir standa til að hægt verði að tengja þær í næstu viku. Að sögn Magn- úsar hafa tafír á tengingu þessara stöðva ekki komið að sök. Farsímanotendur hringja að meðaltali 3 samtöl á dag og tala að meðaltali í 3 mínútur og er þetta mun meiri notkun en hjá nágrannalöndunum. Séu ársljórð- ungs- og mfnútugjöid á Norðurl- öndum borinn saman, kemur í ijós að lægst eru þau hér á landi; árs- flórðungsgjaldið hér er 1.062,50 en hæst í Finnlandi, 4.053 kr. Mínútugjaldið hér er 12,95 en hæst í Svíþjóð, 21,10 að degi til. Stofngjald fyrir farsíma er aftur á móti hæst hérlendis, en það er það sama og fyrir almennan síma, 9.125 kr. Póstur og sími bjóða farsíma- notendum nú upp á nýja þjónustu þeim að kostnaðarlausu; samtals- flutning ef ekki svarar (*61). Sé sfminn f sambandi, hringir þrisvar áður en samtal flyst, en sé hann tekinn úr sambandi fíyst samtalið þegar. Þá er vonast til að með vorinu verði hægt að samtengja íslenska farsímakerfið samsvar- andi kerfum á hinum Norðurlönd- unum. Magnús vildi taka það fram, að sögusagnir um að jafndýrt væri að hringja til útlanda og inn- anlands úr farsímum, væru algerlega úr lausu lofti gripnar. Jafndýrt væri að hringja til út- landa og úr venjulegum símtælq- um. Breytt umferðarlög; Lögregla aðeins kölluð á vett- vang verði slys Sérstök eyðublöð send öllum bíleigendum MEÐ nýjum umferðarlögum, sem taka gildi 1. mars, verða meðal annars gerðar þær breytingar að ekki þarf að gera lögreglu við- vart um umferðaróhöpp nema meiðsli verði á fólki eða ókunnugt sé um tjónvald eða -þola. Þetta hefur f för með sér að ökumenn eiga að jafnaði sjálfir að skrá niður upplýsingar um tjón og aðdraganda óhapps og koma þeim upplýsingum f hendur tryggingafélaga sinna. Tryggingaf élög og lögregluyfirvöld eru nú að undirbúa þær ráðstaf- anir sem þessum breytingum fylgja. Nú er unnið á vegum trygginga- um alls ekki skerðd öryggi manna félaganna að hönnun og prentun eyðublaða, svokallaðra tjónstil- kynninga, sem eftir 1. mars eiga að vera til í öllum skráðum ökutækj- um. Eyðublöðin og leiðbeiningar um notkun þeirra verða, að sögn Sig- mars Ármannssonar framkvæmda- stjóra Sambands íslenskra tryggingafélaga, tilbúin fyrri hluta febrúar og er stefnt að því að senda þau til bíleigenda um leið og gíró- seðla vegna greiðslu iðgjalda fyrir nýtt tryggingaár, sem hefst eins og kunnugt er 1. mars. „Við viljum að lögreglan hjálpi fólki að læra á þessi blöð og verði til aðstoðar meðan fólk er að læra á þetta nýja kerfí," sagði Hjalti Zóphóníasson skrifstofustjóri dóms- málaráðuneytisins þegar hann var spurður að því hvort lögreglan mundi ekki koma á árekstrarstað eftir 1. mars nema um meiðsli eða verulegt eignatjón væri að ræða. . „Það er ekki hægt að klippa á þessi afskipti fyrirvaralaust." Að sögn Hjalta er um þessar mundir verið að senda bréf til allra lögregluembætta þar sem greint er frá hvemig bregðast skuli við þess- ari ákveðnu breytingu. „t bréfínu stendur meðal annars: Sú breyting verður einnig á að framvegis skal gera skýrslu um öll umferðarslys og -óhöpp sem lögreglunni berast tilkynningar um og hún fer á vett- vang. Það er að segja nú skal einnig gera skýrslur um svokölluð salt- mál. Hins vegar á ekki að vera þörf á að gera afstöðuteikningu nema vátryggingarfélög kalli eftir henni. Því er nauðsynlegt að gögn um fjarlægðir, afstöðu og fleira í slfkum óhöppum verði geymd með öruggum hætti í ákveðinn tfma,“ sagði Hjalti Zóphónfasson. „Við vilj- að þessu leyti en hins vegar teljum við að það sé ekki lögreglumál þótt menn verði fyrir þvf að nudda stuð- ara á næsta bíl,“ sagði Hjalti. í samræmi við þessa breytingu mun lögreglan einnig taka í notkun nýja tegund af skýrslueyðublöðum fyrir umferðaróhöpp 1. mars, þar sem öll skráning upplýsinga um þessi fjón verður með einfaldari hætti en áður. Magnús Gústafsson forstjórí Coldwater: Vona að verð á íslenska gæðafísknum haldist hátt „VIÐ ERUM með litlar birgðir af þorski og ýsu eins og stendur en vel settír með karfa- og ufsabirgðir," sagði Magnús Gústafs- son, forstjóri Coldwater, þegar Morgunblaðið spurðist fyrir um birgðastöðuna á Bandaríkjamarkaði. Magnús taldi birgðir ekki vera óveiyulega miklar miðað við það að bestí sölutími ársins, fastan, væri að ganga i garð. Hann vildi ekki tjá sig um verðþróun á Bandaríkjamarkaði en sagðist vona að verð á íslenska gæðafiskn- um myndi haldast hátt. ekki að valda miklum vandræðum. Samkeppnin er þó mjög hörð á þessum viðkvæma markaði og spumingin sem menn velta fyrir sér þessa stundina er hvort að heildameyslan fari minnkandi: Einar Halldórsson Nýr fram- kvæmdastjóri Kringlunnar NÝR framkvæmdastjóri hefur verið ráðinn að Kringlunni í Reykjavík. Hann er Einar Hall- dórsson, 40 ára að aldri. Einar tekur við af Ragnari Atla Guð- mundssyni sem var fram- kvæmdastjóri byggingafram- kvæmda fyrir Hagkaup og gegndi framkvæmdastj órastöðu hússins timabundið. Einar lauk stúdentsprófí frá Verslunarskóla íslands 1968 og lauk embættisprófí í lögfræði 1974. Að námi loknu starfaði hann hjá Tryggingu hf. í fimm ár en þá varð hann bæjarstjóri í Hafnarfirði tvö kjörtímabil. Undanfarið hefur Einar unnið að ýmsum verkefnum, aðal- lega fyrir fjármálaráðuneytið. Eiginkona Einars er Ásta B. Jón- asdóttir og eiga þau tvö böm. Magnús sagði Kanadamenn hafa lækkað verð á sínum fiski töluvert að undanfömu og væri nú mikið af ódýrum flökum á markaðinum. Hægt væri að kaupa flök á 1,70-1,75 dollara pundið en íslensku flökin kostuðu 2,60 doll- ara. Þetta væri þó alls ekki hægt að bera saman, sagði Magnús, þar sem ekki væri um sambærileg gæði að ræða. Þó að mikið væri af þessum flökum í dreifíkerfínu núna líkaði ekki öllum alls kostar við þau. Hann taldi líklegt að þeir sem hefðu keypt flök af öðrum í bili myndu snúa sér aftur að íslenska físknum þegar hægt yrði að anna eftirspum á ný. „Fisksala hefur almennt verið dræm hjá okkur undafarið en við vonum að það fari að lifna yfír henni aftur eftir mánaðamót þegar líða tekur að föstu," sagði Magnús. Sem dæmi um birgðir á Banda- ríkjamarkaði má nefna að heildar- birgðir af þorskflökum og blokkum eru nú áætlaðar tæplegar 60 millj- ónir punda og þykja mönnum þær miklar. Til samanburðar má geta þess að heildameysla hefur verið um 400 milljónir punda árlega. Þegar síðan er tekið mið af hinum miklu sveiflum sem geta verið á fískframboði ættu þessar birgðir 130 kindum slátr- að vegna riðuveiki Björk, Mývatnssveit. RIÐU varð vart á einum bæ í Mývatnssveit fyrir skömmu. Varð það tíl þess að öllu fé bóndans, 130—140 fjár, var slátrað í sláturhúsinu á Húsavík í vikunni. Riðuveiki mun fyrst hafa orðið vart hér í sveit fyrir 1970. Árið 1980 var gripið til þess ráðs að skera niður fjárstofn eins bón- dans í Álftagerði. Árið 1982 var skorið niður á Helluvaði um 300 §ár og einnig hjá einum bónda í Álftagerði. Haustið 1985 fengu bændumir á Helluvaði nýjan Qárstofn og virðist allt vera í lagi þar. Fyrir skömmu varð yart við riðu í einni á hjá Pétri Gauta Péturssyni bónda á Gautlöndum. Var henni slátrað og sýni sent suður að Keldum og greindist riða svo óyggjandi er. Var öllu fé bóndans slátrað á Húsavík síðastliðinn miðvikudag. Kristján

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.