Morgunblaðið - 24.01.1988, Síða 54
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1988
SigurðurE. Óla-
son hæstaréttarlög-
maður — Minning
Ég man ekki hvenær það gerð-
ist. Eg get ékki heldur gert mér
grein fyrir því hvort ég hafði sjálfur
aflað mér fróðleiks um tákn hinnar
eldfomu helgiathafnar eða hann var
veittur mér að nafna mínum. En
ég var sannfærður um að við hefð-
um þá í einu og öllu farið að
fyrirmælum guðanna þvi við skrið-
um báðir með ærinni fyrirhöfn undir
torfu og hörkuðum af okkur sárs-
aukann þegar við blönduðum blóði.
Upp frá því vorum við óvéfengjan-
lega orðnir fóstbræður. Minnis-
stæðast er mér enn frá þessum
atburði hve rígmontinn ég var yfír
því að þessi stóri leikbróðir minn
frá Gröf skyldi vera svo ljúfur og
lítillátur að hefla hinn fimm árum
yngri smástrák frá Miklaholti til svo
mikillar vegsemdar.
Enda þótt ýmislegt eftirminnilegt
væri brallað á þessum árum þá
hefur athöfti fóstbræðralagsins orð-
ið mér minnisstæðust af hinum
furðulegu uppátækjum okkar og
sígilt tákn þakkarskuldar við æsku-
félaga minn og ævilangan leik-
bróður. En þótt hefndarskyldan
hafí efíaust verið ofarlega í hugum
okkar um þessar mundir þá er mér
nú ljúft að minnast þess að hana
hef ég aldrei þurft að rækja þar sem
ég veit ekki betur en þó að fóst-
bróðir minn yrði stöku sinnum að
láta undan síga um stundarsakir
þá auðnaðist honum jaftian að
ganga að lokum ósigraður frá hveij-
um þeim leik er hann háði. Hins
vegar er mér nú bæði Ijúft og skylt
að rækja þá bróðurskyldu að færa
honum innilegar þakkir frá mér og
öllum öðrum sem fengu að njóta
samvista við hann á löngum og
litríkum æviferli sem lauk með
líknsemd dauðans eftir að þjáning
ein ríkti þar sem áður var unaður
lífsins.
Enda þótt alllöng hlé yrðu á dag-
legum samskiptum okkar eftir að
lauk búsetu á æskustöðvum þá efld-
ist vinátta okkar á ný eftir að við
vorum báðir komnir til starfa hér
í Reykjavík. Að henni var ekki ein-
ungis hiúð með tíðum samfundum
hjá ijölskyldum okkar. Hún var
einnig nærð í félagsskap okkar
íjórtán fyrrum Snæfellinga og
Hnappdæla, þá búsettra Reyk-
víkinga, nú allra horfínna héðan að
þeim eina undanskildum sem harm-
ar nú alla fallna félaga með innileg-
um þökkum fyrir unaðslega
samfylgd í okkar gamla og góða
„Hnappi". Við nafnar fórum einnig
stundum á fíakk saman bæði hér
heima og einnig til Ástralíu og
Asíu. Ég er ekki að rifja þetta upp
hér til þess að miklast af því að
Sigurður skyldi velja mig að vini
enda þótt mér sé engin launug á
að ég var og er hreykinn af því.
Ég minnist þessa bæði vegna þess
hve rík mér er nú í huga þakkar-
skuldin við þennan fomvin minn
og eigi síður að löng og náin kynni
leiði til þess að mér verði trúað
þegar ég fullyrði að með Sigurði
Ólasyni sé nú fallinn einn ágætasti
samtíðarmaður okkar, frábærlega
vel úr garði gerðpr, ágætlega
menntaður og sfleitandi aukinnar
þekkingar, sérstæður og ógleyman-
legur öllum sem honum kynntust,
mest metinn af þeim sem þekktu
hann best.
Enda þótt ég hafí nú, þrátt fyrir
ákvörðun um að láta kapítula minn-
ingargreina lokið í lífí mínu, talið
mér skylt að þakka vini mínum með
nokkrum orðum við þessi leiðarlok
þá mun ég einungis stikla á stóru
við uppriíjun á æviferli hans einkum
þar sem ég geri ráð fyrir að ein-
hveijir úr hópi samverkamanna
hans muni riQ'a það upp sem hæst
er talið bera í lögfræði- og embætt-
isstörfum hans.
Sigurður Ellert fæddist hinn 19.
janúar 1907 að Stakkhamri á Snæ-
fellsnesi og skorti þess vegna einn
sólarhring til þess að lifa 81. af-
mælisdag sinn. Faðir hans, sveitar-
höfðinginn Óli Jón, bjó þá að
Stakkhamri. Móðir Sigurðar var
Þórunn Sigurðardóttir. Hún var af
góðkunnum ættum að norðan,
veiktist á leið til Ameríku, ætlaði
sér einungis að eiga áningarstað á
Snæfellsnesi en iauk þar í áfanga-
stað langri og farsælli ævi.
Þórunn gerðist bústýra Halldórs
Bjamasonar að Gröf í Miklaholts-
hreppi og síðar eiginkona hans og
fóstra þeirra bama er fyrir vom í
búi hans við komu hennar. Sigurður
bættist við bamahópinn að Gröf og
síðar Unnur dóttir þeirra Þórunnar
og Halldórs.
Heimilið að Gröf var jafnan í
fremstu röð enda Halldór einn fyrir-
manna byggðarlagsins og Þórunn
annáluð sæmdarkona. Er mér í
bamsminni sú mikia vinátta sem
jafnan var með foreldmm mínum
og Grafarhjónunum og sú frábæra
gestrisni er allir nutu sem sóttu
heim hjónin að Gröf.
Sigurður hóf ungur langskóla-
nám. Til þess naut hann áreiðanlega
nokkurs styrks frá hálfbræðmm
sínum, kaupmönnunum óla Jóni og
Tómasi, sem báðir vom öðlings-
menn og þá komnir til sæmilegra
bjargálna hér í bæ. Sjálfur reyndist
Sigurður fljótlega hinn mesti dugn-
aðarmaður og aflakló. Allt renndi
þetta stoðum undir óslitinn náms-
feril sem lauk með embættisprófí í
lögfræði árið 1933.
Á námsámnum komst Sigurður
fljótlega í sviðsljósið vegna forystu-
hæfíleika sinna. Formaður Stúd-
entaráðs varð hann síðasta
háskólaár sitt og síðar formaður
Stúdentafélags Reykjavíkur.
Nokkmm mánuðum eftir að Sig-
urður lýkur lögfræðiprófí gerist
hann fulltrúi hjá ríkisféhirði og
síðar í fj ármálaráðuneytinu. Þar var
hann alla tíð síðan, oftast í hálfu
starfi, þangað til hámarksaldri var
náð. Jafnhliða embættisstörfum
opnaði Sigurður lögfræðiskrifstofu
árið 1935 og rak hana alla tíð síðan.
Hæstaréttarlögmaður varð hann
árið 1941.
Sigurður gegndi margvíslegum
trúnaðar- og virðingarstörfum á
ferli sínum. Hann annaðist skjala-
vörslu Alþingis árið 1932, var í
fyrsta haþpdrættisráði Háskóla ís-
lands, sat í milliþinganefndum við
úrlausn ýmissa vandamála, t.d. end-
urheimt íslenskra handrita úr
erlendum söfnum. Hann var skipað-
ur í landsnefnd lýðveldiskosning-
anna 1944. Er hér einungis getið
fárra trúnaðarstarfa af þeim
mörgu, sem honum vom falin. Öll
rækti hann þau með ágætum og
hefði áreiðanlega getað hlaðið sig
ábyrgðarmiklum embættum ef hug-
ur hans hefði staðið til meiri
mannvirðinga en þeirra sem hann
kærði síg um.
Alkunna er það sem forðum var
sagt um biskup þann sem talið var
að jafn listilega hefði getað gegnt
þrem ólíkum trúnaðarstörfum. Ekki
veit ég hve mörg störf Sigurður
hefði getað rækt með miklum ágæt-
um en áreiðanlegt er það að fleiri
strengir vom á hans hörpu en þeir
sem hann lék á sér til nauðþurfta.
Ég er t.d. sannfærður um að ef
Sigurður hefði kosið að feta í fót-
spor forfeðra sinna hefði hann orðið
frábær búhöldur á Snæfellsnesi.
Um það vitnar ótal margt í fari
hans sem of langt mál yrði nú upp
að telja. Þeir sem hlýddu á er Sig-
urður lék á hin margvíslegustu
hljóðfæri og vissu að bak við það
tómstundagaman var sjálfsnám
eitt, sannfærðust um að þar hefði
skikkja hæstaréttarlögmannsins
sveipast um hinn ágætasta tónlist-
armann.
Einni fræðigrein mun þó öðmm
fremur eftirsjá í þvi að Sigurður
helgaði ekki henni einni allra starfs-
ævi sína. Það er sagnfræði. En hún
varð einungis tómstundagaman
sem jók honum lífsnautn og færði
öðmm aukinn fróðleik og ný við-
horf til margvíslegra vandamála.
Um þau fræði ritaði hann fjölda
greina í blöð og tímarit auk bókar-
innar YFIR ALDA HAF, sem út
kom fyrir um tveim áratugum. Fjöl-
breytnin í efnisvali er því til vitnis-
burðar hve áhugamál Sigurðar vom
fjölbreytileg og fjarlæg hinu dag-
lega brauðstriti hans.
Það virðist freista margra sem
hefjast frá ókynni og fátækt til
menntunar, mikilla mannvirðinga
og æskilegrar afkomu að gadd-
ftjósa í ímyndaðri hátign og ein-
angra sig með stertimennsku frá
alþýðunni sem ól þá. Ekkert var
flarlægara Sigurði Ólasyni. Hann
var í rauninni alla ævi sami ágæti
sveitamaðurinn og allir þeir forfeð-
ur hans sem urðu fyrst og fremst
eftirminnilegir vegna hinna miklu
mannkosta sinna. Sléttmáll en flug-
háll broddborgarinn var algjör
andstaða hans. Hann kaus jafnan
að koma til dyra eins og hann var
klæddur og lét sig engu skipta hver
það var sem á þær knúði. Það læt-
ur að líkum um jafn margslunginn
mann og Sigurður var að hann virt-
ist ekki alltaf jafn prúðbúinn. En
við nánari kynni reyndist sá búnað-
ur einmitt það sem gerði hann nógu
sérkennilegan þá stundina til þess
að næstu samfimdir yrðu mikið til-
hlökkunarefni.
Bráðfyndin og markviss tilsvör
hans, sem mörg urðu þjóðfræg,
óþrotlegur fróðleiksbrunnur, ríkt
ímyndunarafl, ævintýralegt hugar-
flug, mikil hjartahlýja og veitinga-
gleði ollu þvf að enginn var honum
eftirsóknarverðari þegar eftit var
til fagnaðar ljúfu lífí. Einnig þar
var hann fágætur afburðamaður,
ógleymanlegur og ákjósanlegur
lagsbróðir og sáiufélagi. Við geng-
um raunar líka í stúku saman. Þó
að sú dvöl yrði skemmri en í önd-
verðu var fyrirhugað þá varð hún
nógu löng til að sannfæra mig um
að Sigurður hefði áreiðanlega á
skömmum tíma getað orðið einn
af máttarstólpum stórstúkunnar ef
hann hefði talið það eftirsóknarvert.
Enda þótt mikill fagnaður í hópi
margra góðra vina virtust löngum
vera Sigurði hugstæðust mannlegra
samskipta þá fer því fjarri að það
einkenndi allra sfðustu ár æviferils
hans. Þá þótti honum gott að ger-
ast einfari, draga sig inn í skelina
til þess að njóta næðisstunda. Hvers
vegna það var vissi ég aldrei örugg-
lega. Hugsanlegt er að í venjulegu
Qölskyldulífí, flölbreytilegu amstri
daganna, grúski fomra fræða eða
háværum veislufagnaði hátíða-
stunda hafí Sigurður ekki fundið
sjalfan sig og af þeim sökum tekið
til við að leita sín í einsemd kyrrðar-
innar. Ég veit það ekki en þar var
hann þegar hann veiktist nú á
síðastliðnu hausti. Eftir það var
hann fluttur í Borgarspítalann þar
sem hann naut frábærrar umönnun-
ar þar til yfír lauk.
Sigurður þótti á yngri árum mik-
ið kvennagull og naut alla tíð eigi
síður hylli kvenna en annarra sam-
ferðamanna. Hann kvæntist árið
1934 Ragnhildi kjördóttur Ásgeirs
prófasts að Hvammi í Dölum. Eigi
áttu þau skap saman og skildu því
eftir stutta sambúð. Aftur kvæntist
Sigurður hinn 6. mars 1943 hinni
ágætu konu, Unni kennara, dóttur
Kolbeins skálds og bónda að Kolla-
fírði og konu hans Guðrúnar
Jóhannsdóttur kennara. Ung að
árum bjó Unnur Sigurði fagurt og
hlýlegt heimili og ól honum sex
böm. Þau hjón nutu fágæts bama-
láns. Bömin em Kolbeinn flugstjóri,
búsettur í Lúxemborg, Þómnn leik-
stjóri og rithöfundur, Jón skólastjóri
að Bifröst, Guðbjartur prentfræð-
ingur, Guðrún sem enn er við nám
í talmeinafræði á Ítalíu og Katrín
myndlistamemi. Hafa bömin öll
augljóslega notið góðrar heiman-
fylgju frá þeim ágætu stofnum sem
þau em vaxin af.
Ég rifjaði það áðan upp hve
hreykinn ég var af að eignast í
bamæsku vináttu hins gamla og
góða leikbróður míns. Ég man enn
hve hugkvæmur, snjall og úrræða-
góður hann var og hve ljúft mér
var að fylgja forystu hans. Löngu
síðar varð mér ljóst að það vom
einmitt þessir sömu eiginleikar sem
ollu því hve þjóðkunnur og vinsæll
hann varð. Én nú er ég einnig
hreykinn af því að það skyldi hafa
verið mín kæra ættbyggð sem ól
Reykjavík þennan frábæra fóstur-
son. Þótt það kunni e.t.v. að hljóma
grimmilega verð ég að játa að and-
látsfregn hans varð mér fagnaðar-
-----,----------•• V AXW-----
Í3% ttl i6% verðlœkknn á símtœkjum
Þessi fallegi sími með 11 númera minni,
sem hannaður er afhinu rómaða fyrir-
tæki Bang og Olufsen lækkar í verði
um 43% vegna tollalækkana, úr 8.260
kr. ÍU.681 kr.
Samsvarandi lækkun ereinnigá öðrum
tegundum símtækja. T.d. lækkar Modu-
lophone handsími úr kr. 2.990 kr. í
1.666 kr. og Comét memo með 10 núm-
era minniúr 5.978 kr. í 3.236 kr.
PÓSTUR OG SÍMI
Símarnireru seldir í söludeildum Pósts
ogsíma íKringlunni, Kirkjustræti og
á póst- ogsímstöðvum um allt land.