Morgunblaðið - 24.01.1988, Síða 58

Morgunblaðið - 24.01.1988, Síða 58
58 " MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1988 Minning: * Frímann A. Jónas son fv. skólasijóri Fæddur 30. nóvember 1901 Dáinn 16. janúar 1988 Frímann Ágúst Jónasson, eins og hann hét fullu nafni, var fæddur 30. nóvember 1901 að Fremrikotum í Norðurárdal í Skagafirði, sonur Jónasar Hallgrímssonar og Þóreyj- ar Magnúsdóttur sem þar bjuggu. Hann nam bókband á Akureyri 1916—17; það mun hafa verið hjá Oddi Bjömssyni. Hann gekk í Kenn- araskóla íslands og lauk þaðan prófi 1923. Síðan kenndi hann tvo vetur á Melgraseyri við Ísafjarðardjúp og var kennari við bamaskólann á Akranesi átta ár. Árið 1933 tók hann við nýreistum heimavistar- skóla á Strönd á Rangárvöllum og stýrði honum í sextán ár, en 1949 gerðist hann skólastjóri við Kópa- vogsskóla (bamaskóla) og gegndi því starfi til 1964. Síðan fékkst hann við bókband um hríð, hafði fengið sveinspróf í iðninni 1947. Frímann fór tvívegis utan til að afla sér aukinnar menntunar, var í lýðháskólanum í Askov sumarið 1936 og fór námsferðir til Noregs og Danmerkur 1947—48. Auk kennslu sinnti hann ýmsum félagsmálum, sat í stjómum kenn- arafélaga og ungmennafélaga þar sem hann var kennari, einnig í stjóm Norræna félagsins í Kópa- vogi og Rotaryklúbbs Kópavogs. Lengi starfaði hann í Góðtemplara- reglunni, var einn aðalstofnandi stúkunnar á Rangárvöllum og lengi æðstitemplari hennar. Hann var á Akranesárum sínum í stjóm bóka- safnsins þar, en á Rangárvöllum sá hann um bækur lestrarfélagsins og í Kópavogi var hann í stjóm bókasafnsins. Hann var lengi í sljóm Sambands íslenskra bama- kennara og mun hafa verið einn þremenninganna sem á sínum tíma stofnuðu Kennarafélag Rangæinga. BREYTTUR persónuafslóttun Nú14.797 kr. fyrir hvem mánuð Persónuafsláttur í staðgreiðslu opin- berra gjaida hefur verið ákveðinn 14.797 krónur fyrír hvem mánuð á tímabilinu jan.- júní 1988. Þessi breyting á persónuafslætti hefur ekki íförmeðséraðnýskattkortverðigefinúttil þeirra sem fengu sín skattkort fyrir 28. des. sl., heldur ber launagreiðanda að hækka persónu- afsláttinn við útreikning staðgreiðslu. Til þess að þeir, sem fengu skattkort sín útgefin fyrir 28. desember 1987, fái notið rétts afsláttar ber launagreiðanda að hækka þann persónuafslátt, sem fram kemur á þessum skattkortum og aukaskattkortum (öllum grænum og gulum kortum), um 8,745% (stuðull 1,08745). í S* 9 Mikilvægt er að launagreiðandi breyti ekki upphæðinni á sjálfu skattkortinu. Sú upphasð á að standa óhreyfð til ársloka. Hins vegar ber að taka tillit til orðinnar hækkunar við útreikning staðgreiðslu. Launamaður má ekki heldur breyta upphæðinni sem fram kemur á skatt- korti hans. Hann afhendir launagreiðanda kort- ið óbreytt nema hann fái aukaskattkort. Skattkort sem gefin eru út 28. desember og síöar bera annan lit en þau skattkort sem gefin voru út fram að þeim tíma. Þau skattkort munu sýna réttan persónuafslátt fyrir tímabilið janúar-júní 1988 og þarf því ekki að hækka persónuafslátt þann sem þar kemur fram við útreikning staðgreiðslu. Heimilt er að millrfæra 80% af ónotuðum persónuafslætti til maka. Þetta gildir bæði um hjón og sambúðarfólk, sem hefur heimild til samsköttunar. Launagreiðandi millifærir persónu- afsláttinn, þannig að hann tekur tillit til 80% þeiirar upphæðar sem fram kemur á skatt- korti og aukaskattkorti maka, hafi það veríð afhent honum. Launagreiðendur aihugið að hœkka upphœð persónuafsláitar á eldri skallkortum um 8,745% RSK RÍKISSKATTSTJÓRI t Ct»tl til f • (II f K i *• ... I 5 S Hinir voru Sigfús Sigurðsson í Hvolsskóla og Halldór Sölvason í Fljótshlíðarskóla. Félagið átti lítinn fjölrita (sprittfjölrita) sem gekk milli manna því að vitanlega höfðu skólamir ekki ráð á slíku tæki, en félaginu mun hafa verið ætlað að styrkja skólastarfið. Frímann skrifaði nokkrar bækur handa bömum og unglingum: Hve glöð er vor æska (1944). Þegar sól vermir jörð (1950). Valdi villist í Reykjavík (1980). Landið okkar, lesbók um landafræði íslands (1969). Auk þess skrifaði hann nokkrar frásagnir og minningar- greinar í blöð og flutti útvarpser- indi. Kona hans var Málfríður Bjöms- dóttir kennari frá Innstavogi við Akranes, fædd 1893, dáin 1977. Böm þeirra eru þijú, Ragnheiður Þórey hjúkrunarfræðingur, gift Ove Krebs verkfræðingi í Philadelphiu í Bandaríkjunum, þau eiga tvö böm. Bima Sesselja kennari í Hvera- gerði, gift Trúmanni Kristiansen skólastjóra, eiga fjögur böm og fimm bamaböm. Jónas bygginga- verkfræðingur í Kópavogi, kvæntur Margréti Loftsdóttur bóksafns- fræðingi, eiga þrjú böm. Allt þetta og miklu fleira er auð- fundið í skrám og heimildarritum. En hér er skylt að heyrist rödd úr - hópi þeirra sem áttu í bemsku at- hvarf hjá Frímanni og Málfríði á Strönd. Mörgu baminu fannst þau koma næst foreldrunum. Um það vorum við stundum ófeimin að tala hvert við annað. Frá mörgum bæj- um var löng leið í skólann, og það tók meginhluta dagsins að fara með bamið í heimavistina þar sem það skyldi vera fjórar vikur í einu, en hinn mánuðinn átti það að lesa heima. Vitanlega var farið ríðandi, skólabækur, rúmföt og föt til skipt- anna í einn mánuði haft með í poka eða tösku. Þá voru böm skólaskyld 10—13 ára. Þá var kreppa í landi N og víða var litið svo á að vorverk og háustverk á bæjum væru þarf- legri en skólavist. Það þótti slæmt hversu snemma hálfvaxin böm voru tekin frá haustverkum og sluppu seint heim í vorverk. Slík viðhorf vom þó að mildast, ekki síst fyrir starfsemi manna eins og Frímanns. Bömin fluttu áhrifin heim á af- skekktustu bæi. Það voru mikil umskipti fyrir þann sem hafði alltaf verið í for- eidrahúsum, þekkti fáa jafnaldra og ekki önnur húsakynni en gamal- dags baðstofu, að koma í heimavist með heilum tug annarra krakka í tveggja hæða steinhúsi með renn- andi vatni í krönum. Sumir voru illa læsir þegar þeir komu tíu ára í skólann, en aðrir höfðu lesið mik- ið, svo sem íslendingasögur, Almanak Þjóðvinafélagsins og blöð- in sem komu út vikulega, jafnvel oftar. Á fæstum bæjum var þá út- varpsviðtæki, en þau voru að breiðast út, enda hafði Ríkisútvarp- ið tekið til starfa 1930. Með því lögðust niður kvöldvökur með gamla sniðinu, þar sem einn las fyrir alla eða kvað rímur. En á Strönd var útvarp, að vísu í eigu hjónanna inni í íbúð þeirra. Þar voru nemendur skólans velkomnir til að hlusta á bamatímann á sunnu- Btómastofa Friófinm Suðurlandsbraut 10 108 Reykjavík. Sími 31099 Opið öll kvöld til kl. 22,- éinnig um helgar. Skreytingar við öll tilefni. Gjafavörur. (tikils ■ »• ••• ■ * * *'+ :s -i. Tl -

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.