Morgunblaðið - 24.01.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 24.01.1988, Blaðsíða 1
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1988 BLAÐ JLÞ ENGJAKAFFI olíumálverk 1940-1942 122x142 Krístm Jónsdóttir, listmálarí, 1888-1988 Amorgun, þann 25. janúar, eru 100 ár liðin síðan Kristín Jónsdóttir, listmálari, fæddist að Amamesi við Eyjafjörð, en hún var fyrst íslenskra kvenna til að helga sig myndlist að fullu og öllu. í tilefni af aldarafmæli Kristínar hefur bókaútgáfan Þjóðsaga nýlega gefíð út bókina „Kristín Jónsdóttir — Listakona í gróandanum" eftir Aðalstein Ingólfsson, listfræðing, og seinna á þessu ári mun Listasafn Islands heiðra minningu Kristínar með sýningu á nokkrum völdum málverkum eftir hana. í formála að bók sinni um listakonuna segir Aðalsteinn Ingólfsson: „Kristín var tæplega brautryðjandi í sama skilningi og Asgrímur Jónsson, Kjarval eða Þorvaldur Skúlason, það er, hún hafði ekki úrslitaáhrif á það hvemig myndlistin í landinu þróaðist, formrænt og hugmyndalega. Hún tók hins vegar upp ýmis sigild viðfangsefni sem brautryðjendumir leiddu hjá sér eða fjölluðu lauslega um, til dæmis atvinnulífið, uppstillingar og táknræna umfjöllun um samband manns og náttúru, og þróaði á áhrifameiri hátt en gert hefur verið til þessa. Raunar má segja að Kristín hafi sett mark sitt á allt það sem hún tók sér fyrir hendur, jafnvel á sviði landslagstúlkunar, þar sem aðrir listamenn lögðu mest að mörkum. Sérkenni Kristínar er helst að fínna í litameðferðinni, kvikum pensildráttum hennar og blæbrigðaríku litrófi, en með því tókst henni að bregða sérstakri birtu á allt það sem hún málaði. En framlag Kristínar til íslenskrar myndlistar verður ekki einvörðungu talið í málverkum. Hún var óþreytandi í baráttu sinni fyrir réttindum listamanna, efnahagslegum og siðferðilegum, án þess að draga úr ábyrgð þeirra. Margir yngri starfsbræður Kristínar búa enn að uppörvun hennar og stuðningi, óopinberum sem opinberum." Við þetta má bæta að í gegnum mann sinn, Valtý Stefánsson, ritstjóra, tengdist Kristín Morgunblaðinu nánum böndum og viðraði einatt skoðanir sínar á myndlist og öðrum menningarmálum á síðum þess. Um þessi skrif Kristínar segir Aðalsteinn: „í þeirri menningarpólitísku orrahríð með tilheyrandi flokkadráttum og upphlaupum, sem litaði alla umræðu um listir hér á landi mestan part sjötta áratugarins, er rödd Kristínar eins og frískandi andblær skynsemi og hleypidómaleysis." Hér á eftir fer kafli úr bók Aðalsteins, þar sem sérstaklega er fjallað um fyrsta meiri háttar málverk Kristínar, Piskstökkun við Eyjafjörð (1914), og listræn tengsl þeirra Kristínar og Muggs, en þau voru samtímis á danska Akademíinu á árunum 1911—1915. SJÁ BLS. 18B-19B.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.