Morgunblaðið - 24.01.1988, Side 10

Morgunblaðið - 24.01.1988, Side 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 24. JANÚAR 1988 ffltþú reyna eitthvart nýtt Á geðdeildum Landspítal- ans starfa um 600 manns við lækningar, hjúkrun, endur- hæfingu og aðstoð við sjúkl- inga og aðstandcndur J?eirra. Starfsemin fer fram á nokkr- um stöðum á höfúðborgar- svæðinu, t.d. á Landspítalan- um, á Kleppi, á Vífilsstöðum og í Hátúni Starfi hjá Ríkisspítölum fylgja ýmis hlunnindi, svo sem ókeypis vinnufatnaður (eða fatapeningar), ódýrt fæði í matsölum á vinnustað, mikið atvinnuöryggi, öflugur lífeyrissjóður og launahækk- andi námskeið. HJÚKRUNARFRÆÐING- AR/SJÚKRALIÐAR Á LYIJADEILD Lyfjadeild I, II A óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga og sjúkraliða nú þegar, eða eftir samkomulagi. Deildin er almenn lyfja- deild og tekur 18 sjúklinga. Sérstök áhersla er lögð á þjónustu við sjúklinga með meltingarfærasjúkdóma, smitsjúkdóma og innkirtla- sjúkdóma. Boðið er upp á einstakl- ingsbundna aðlögun og tækifæri til áframhaldandi fræðslu. Fastar næturvaktir og kvöldvaktir koma til greina. Nánari upplýsingar hjá hjúkrunarframkvæmdastjóra í síma 29000 - 485 eða hjúkrunardeildarstjóra í síma 29000 - 391. LÆKNARITARI Á GEÐ- DEILD Geðdeild Landspítalans óskar eftir að ráða læknarit- ara í 50% starf. Stúdentspróf eða sambærileg menntun æskileg og góð íslensku- og vélritunarkunnátta. Upplýsingar um starfið gefur skrifstofustjóri geð- deildar í síma 29000 - 637 STARFSMENN VIÐ RÆST- INGAR Störf við ræstingar og þrif á ákveðnum svæðum á göng- um og sjúkradeildum. Laun eru miðuð við tímamælingu (að hluta). Upplýsingar hjá ræstinga- stjóra í síma 29000 - 494. SJÚKRALIÐAR/STARFS- MAÐUR Á ÖLDRUNAR- LÆKNINGARDEILD Sjúkradeildir öldrunarlækn- ingardeildar eru sérhæfðar í rannsókn, umönnun og mcðferð aldraðra. Notalegur vinnustaður og góður starfs- andi. Sjúkraliða vantar nú þegar á næturvaktir í 50% starf og annan í 60% starf. Einnig óskast sjúkraliðar á aðrar vaktir. Ennfremur óskast starfs- maður nú þegar til afleysinga á dagspítala, í tvo mánuði - dagvinna. Nánari upplýsingar gefur Guðrún Karlsdóttir í síma 29000 - 582. AÐSTOÐARMAÐUR Á GEÐDEILD fæst við þjálfun, uppeldi og umönnun sjúklinga og vinn- ur í nánu samstarfi við hjúkr- unarfræðinga, sjúkra- og iðjuþjálfa, auk lækna og sálfræðinga. Aðstoðarmaður óskast á vinnustofú sjúklinga á geð- deild Landspítalans að Kleppi. Nánari upplýsingar í síma 38160-48. STARFSMAÐUR Á LÓÐ Starfsmaður óskast til starfa nú þegar við snyrtingu og viðhald, bílastæða, gróðurs ofl. á lóð Landspítalans. Upplýsingar gefur Porvald- ur Thoroddsen í síma 29000 - 216. AÐSTOÐARMAÐUR Á GEÐDEILD Aðstoðardeildarstjóri óskast nú þegar til starfa á deild 32 C. Upplýsingar veitir Anna Ásmundsdóttir í síma 29000 - 276. BARNA OG UNGLINGA- GEÐDEILD LAND- SPÍTALANS HJÚKRUNARFRÆÐINGUR óskast á Barna- og unglinga- geðdeild. Ný deild og góð starfsaðstaða. Vaktavinna. Húsnæði í boði, einnig barna- og skóladagheimili. SJÚKRALIÐAR OG MEÐ- FERÐARFULLTRÚAR. óskast á Barna- og unglinga- geðdeild. Ný deild og góð starfsaðstaða. Vaktavinna. Æskilegt er að meðferðarfull- trúar hafi menntun á sviði kennslu, uppeldis, eða sálar- fræði. STARFSMENN óskast til starfa í býtibúri og við ræstingar. Upplýsingar veitir hjúkr- unarframkvæmdastjóri í síma 84611. GEÐDEILD LANDSPÍTAL- ANS HJÚKRUNARFRÆÐINGAR Á NÆTURVAKTIR Hjúkrunarfræðingar óskast á næturvaktir á Geðdeild Landspítalans og á Geðdeild Landsp. að Kleppi. Um er að ræða störf á fleiri en einni deild. Launað sem starf hjúkrunarstjóra. HJÚKRUNARFRÆÐINGAR - MÓTTÖKUDEILD Hjúkrunarfræðingar óskast á deild 33C (Landspítala) og deild 13 (að Kleppi). Vakta- vinna (morgun- og kvöld- vaktir). Fullt starf eða hluta- starf. Boðið er upp á aðlögunartíma. Upplýsingar veitir hjúkr- unarframkvæmdastjóri í síma 38160. og vínna víð aÓ byggja upp fólk RÍKISSPÍTALAR GEÐDEILD LANDSPÍTALANS Gestur Ólafsson arkitekt og- skipulagsfræðingur. Nýr eigandi að Skipulags- stofu höfuð- borgar- svæðisins Ráðgjöf í staðar- vali fyrirtækja SAMTÖK sveitarfélaga á höfuð- borgarsvæðinu hafa ákveðið að selja Gesti Ólafssyni arkitekt og skipulagsfræðingi, eignir og rekstur Skipulagsstofu höfuð- borgarsvæðisins. Mun Gestur jafnframt hætta sem fram- kvæmdastjóri samtakanna. Undanfarin ár hefur Skipulags- stofa höfuðborgarsvæðisins unnið að gerð svæðisskipulags á höfuð- borgarsvæðinu fyrir samtök sveit- arfélaganna níu. Skipulagsstofan var stofnuð sérstaklega til að anri- ast það verkefni, en nú er því lokið að sögn Gests en hann hyggst reka skipulags- arkitekta- og verkfræði- þjónustu fyrir einstaklinga og sveitarfélög á stofu sinni að Hamra- borg 7 í Kópavogi. „Við höfum mjög gott almennt jrfírlit yfir skipulag á höfuðborgar- svæðinu sem aðrjr hafa ekki,“ sagði Gestur. „Við getum ráðlagt fyrir- tækjum í byggingahugleiðingum og sagt til um hvar er að fínna góða lóð sem-hækkar hratt í verði. Hvar er að fínna land undir stórmarkað, timburverslun, bensínstöð eða opin- bera þjónustu. Hjá okkur er að fínna yfírlit yfír byggðaþróun, gatnakerfi og umferð og því getum við auð- veldlega reiknað út arðsemi fyrir- tækja og verslana með tilliti til staðsetningar." Leiðarþing í Kjalarnes- prófastdæmi ® í DAG sunnudag fer fram leiðar- þing Kjalarnesprófastdæmis i safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli i $ Garðabæ, en á leiðarþingi munu fulltrúar á kirkjuþingi kynna málefni siðasta þings. Þingmenn Reykjaneskjördæmis er boðið að sitja leiðarþingið til að ræða samskifti Alþingis og kirkju. Framsögumenn verða Matthías Á. Mathiesen, samgöngumálaráð- herra, Margrét Sveinsdóttir og séra Ólafur Oddur Jónsson. Sóknar- prestar, safnaðarfólk og sóknar- nefndarmenn sækja leiðarþing en að öðru leyti er það öllum opið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.