Morgunblaðið - 24.01.1988, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.01.1988, Blaðsíða 12
12 B MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGÚR 24. JANÚAR 1988 POTT- ÞETTAR PERUR AGOÐU VERÐI Allar RING bílaperur bera merkið (D sem þýðir að þœr uppfylla ýtrustu gœðakröfur E.B.E. Islendingafélag stofnað á Nýja-Sjálandi Auckland, Nýja-Sj&landi. Frá Skúla Franz Hjaltasyni. HELGINA 27.-29. nóvember sl. héldu 50-60 manns, íslendingar og íslandsvinir, upp á fullveldishátíð íslands í sól og sumaryl við Lake Taupo í Lake Taupo Holiday Park á Nýja-Sjálandi. íslendingum hefur fjölgað mikið á Nýja Sjál- andi að undanfomu. Eru það þá einkum íslenskir karlmenn sem hafa gifst nýsjálenskum konum sem unnið hafa í fískvinnslu á íslandi. Á föstudagskvöldinu var haldin samkoma þar sem m.a. var horft á íslenska gamanþætti við mikla kátínu viðstaddra. Á laugardagsmorgnin- um voru riijuð Upp kynnin við íslenska hitaveitu- vatnið í lauginni Thermal Pools. Þann eftirmiðdag var haldinn stofnfundur íslendingafélags á Nýja- Sjálandi._ Formaður félagsins til næstu tveggja ára er Ómar Sveinbjömsson sem er búsettur í Auckland. Eftir fundinn var haldin kvöldvaka og skálað í sex ára gömlu brennivíni og sungnir ættjarðarsöngvar. A sunnudeginum var haldið aftur i laugamar og þá um kvöldið kom hópurinn saman og var þá m.a. spilað á spil. Á mánudegin- um héldu síðan allir til síns heima víða um Nýja-Sjáland og hlökkuðu til að hittast aftur á fundi Islendingafélagsins. Hópurinn sem tók þátt í hátíð íslendinganna á Nýja-Sjálandi. BETRIBILAKAUP Lúxusbíll á hálfvirði? Þannig flytjum við sjálf inn lítið notaðan bíl Kynntu þér verðskrána vel áður en þú slærð til Það borgar sig Verð notaðra bila erlendis Allt um aðflutnlngsgídldin Nýkomið áalla helstu blaðsölustaði Stærstu bílasýningar Evrópu Frjálstframtak MjólkursamlagJ&r Bragðbætt skagfirsk súrmjólk í handhægum hálfslítra fernum Dreifingaraðili Mjólkursamsalan

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.