Morgunblaðið - 29.01.1988, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988
A fullriferð
Hnokkinn á myndinni renndi sér
á fullri ferð niður brekkuna í
Hamragili og skeytti engu um
þó hinir fullorðnu hefðu áhyggj-
ur af hraðanum. Hann virtist líka
hafa gott vald á farkosti sinum.
Morgunblaðið/Helena
Tæplega 7 0 þús-
und einstaklingar
fá 547 milljónir
BARNABÆTUR fyrsta ársfjórð-
ungs hafa verið reiknaðar út og
ávisanir sendar innheimtumönn-
um ríkisSjóðs og gjaldheimtum
til dreifingar til rétthafa.
Heiidarflárhæð bamabóta fyrsta
árs^órðungs er rúmlega 547 millj.
kr. sem dreifist á 69.059 móttak-
endur. Þeir skiptast þannig.
Hjón, 50.838 einstaklingar, bæt-
ur alls 354 millj. kr. eða um 13.940
kr. á hvert hjóna að meðaltali.
Sambýlisfólk 10.962 einstakling-
ar, bætur alls 75 millj. kr. eða um
13.720 kr. á hvert par að meðaltali.
Einstæðir foreldrar, 5.909, bætur
alls 111 millj. kr., eða um 18.770
kr. að meðaltali.
Aðrir 1.350, bætur alls 7 millj.
kr. eða um 4.961 kr. að meðaltali.
Fyrirframgreiðsla bamabóta-
auka verður afgreidd á næstu
dögum og mun verða nálægt 100
millj. kr.
Aætlað er, að bamabætur
greiddar 1988 verði alls um 2.250
millj. kr. og bamabótaauki um 550
millj. kr. eða alls um 2.800 millj. kr.
A síðasta ári vom greiddar
bamabætur 1.547 millj. kr. og
bamabótaauki 379 millj. kr. eða
alls 1.926 millj. kr. og hækka því
um 874 millj. kr. milli ára.
Greiðsla bamabóta í hveijum
ársflórðungi verður miðuð við fram-
færendur skv. þjóðskrá í lok næsta
ársfjórðungs á undan. Áríðandi er
að rétthafar bamabóta sjái til þess
að fjölskylduaðstæður, hjúskapar-
staða, böm á framfæri og heimilis-
fang sé rétt skráð hveiju sinni.
Rétthafar bóta, sem ekki fá þær
greiddar á næstu dögum, verða að
snúa sér til viðkomandi skattstofu.
Kemur ekki til greina að
baruia endumvjim flotans
- segir Kristján Ragnarsson, framkvæmdasljóri LÍÚ
„ÞÆR upplýsingar, sem fram hafa komið um innflutning á skipum,
gefa að mínu mati ekki neina mynd af því hvað verða muni. Þetta
er óskalisti, sem ekki nema að mjög takmörkuðu leyti uppfyllir þær
reglur, sem gilda og þau skilyrði, sem sett eru fyrir eigin fjármagni.
Ég tel því að úr þessum umsóknum eigi að vinna með eðlilegum hætti
og halda áfram þeirri endurnýjun flotans, sem ákveðið var i fyrra
að hefja. Hún hafði verið bönnuð f nokkur ár. Mér finnst ekki koma
til greina að fara að banna endumýjun á ný vegna þess að flotinn
gengur úr sér og þarfnast enduraýjunar,“ sagði Kristján Ragnarsson,
framkvæmdastjóri LÍÚ, í samtali við Morgunblaðið.
„Endumýjun flotans á að ganga leyti til, að um fá skip sé að ræða
fynr sig með eðlilegum hætti að því á hveiju ári, en ekki holskeflur eins
og þegar síldarflotinn var byggður
milli 1960 og 1970 og skuttogaram-
ir milli 1970 til 1980. Þetta verður
að gerast jafnt og þétt og það munu
ekki verða mörg skip, sem þannig
verða samþykkt núna. Þau skip
munu ekki koma fyrr en á næsta
ári og þar næsta, sem nú yrði sam-
þykkt að kæmu í stað annarra, sem
féllu úr rekstri eða yrðil seld úr landi.
Hlutimir em svo orðnir anzi
öfugsnúnir, ef þeir, sem gjaldeyris-
ins afla, fá ekki að nota hann til
þess að gera við skipin sín. Fari svo
mun eitthvað eiga eftir að ganga á
og við höft á viðgerðir og viðhald
erlendis verður aldrei unað. Hins
vegar er það undir mjög ströngum
reglum hvað mönnum leyfíst að gera
í þeim eftium og mestu endurbæt-
umar standa yfir nú eða um þær
hefur verið samið, svo sem á sex
skuttogurum í Póllandi. Það verkefni
er í gangi og verður ekki slakað á
því.
Nú eru ekki uppi nein stór áform
um endurbætur á skipum. Svo
slæma reynslu sem við höfum af
íslenzkum skipasmíðastöðvum á
síðasta ári með hliðsjón af mikilli
hækkun þeirra á útseldri vinnu, þá
myndi því aldrei verða unað að lejrfí
til lagfærínga á skipum erlendis yrðu
takmörkuð. Viðgerðir og viðhald
skipa hlýtur að eiga sér stað bæði
hér heima og erlendis eftir því hvað
er hagstæðara fyrir útgerðarmenn,"
sagði Krístján Ragnarsson.
Flugu út
til að sækja
sendi er var
á heimleið
Fáskrúðsfirði
HÚN varð dýr og til einskis
ferðin sem nokkrir forráða-
menn Útvarpsfélags Austur-
lands fóru til Þýskalands, til
að sækja sendi svo þeir gætu
hafið útsendingar á Austur-
landi.
Afgreiðsia tækisins hafði dreg-
ist úr hömlu og þar kom að
forráðamenn útvarpsfélagsins
misstu þolinmæðina. Einn þeirra
tilkynnti i svæðisútvarpinu að
þeir ætluðu að leigja flugvél fi-á
Flugfélagi Austurlands og sækja
gripinn til Hannover í Þýzkalandi.
Ifyrr í þessari viku hófst ferðin
á Egilsstöðum og eftir sjö klukku-
stunda flug með einkavél var lent
í Hannover. Þá kom í ljós að send-
irinn góði hafði verið fluttur til
Hamboigar. Þegar málið var
kannað nánar reyndist sendirinn
vera kominn um borð í flugvél
frá Amarflugi, sem flaug með
hann beint til Keflavíkur.
Albert
Ríkisstjórnin:
Efnahags- og
kjaramálrædd
EFNAHAGS- og kjaramál voru
rætt almennt á ríkisstjóraar-
fundi í gær. Engar ákvarðanir
voru teknar um aðgerðir þar sem
engar tillögur lágu fyrir í því
efni, að sögn Þorsteins Pálssonar
forsætisráðherra.
í dag
JHorsunblabib Jfiorcunhlntiib
VIKUNA 30. JANÚAR — 5. FCBRÚAR
BREYTT
DAGSKRÁ
BLAÐ B
_x.*.
BLAD C
„Sá Kortsjnoj fyrir
mér beija í borðið“
- segir Jónína Ingvadóttir, eiginkona Jóhanns Hjartarsonar
„ÉG hoppaði í stólnum. Maður trú-
ir þessu varla ennþá þetta var svo
spennandi. Ég sá eiginlega Kortsjnoj
fyrir mér beija f borðið, þegar hann
sá að hann var fallinn á tima og hann
var það sem betur fer. Þetta var svo
tvfsýnt og IftUl umhugsunartími eftir.
Jói átti líka mjög lítinn tíma eftir,
þannig að það gat allt gerst,“ sagði
Jónfna Ingvadóttir eiginkona Jóhanns
Hjartarsonar. Hún dvelur þjá föður
a(nnm á Selfossi á meðan bóndi henn-
ar teflir f Kanada.
„Ég er búin að komast að þvf að
maður getur aldrei verið viss og það er
von á öllu,“ sagði hún þegar hún var
spurð hvort hún hefði átt von á þessum
góða árangri Jóhanns. „Við bjuggumst
ekki við miklu í fyrrasumar þegar hann
fór til Szirak á millisvæðamótið. Þá kom
árangurinn skemmtilega á óvart og aftur
núna, en samt ekki. Það eru jafnmargir
taflmenn á borðinu báðum megin og
hann er búinn að undirbúa sig vel og er
í góðu jafnvægi. Af hveiju ekki? Auðvit-
að er sigurinn ekki alveg í höfii, en
virðist blasa við,“ sagði Jónfna.
Jónína Ingvadóttir, kona Jóhanns Hjartarsonar, með
tæplega fimm mánaða son þeirra, Hjört Ingva.