Morgunblaðið - 29.01.1988, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 29.01.1988, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988 43 Oskar Sæmunds- son áttræður ^ Stykkishólmi. ÓSKAR Sæmundsson í Grundar- firði átti áttræðisafmæli föstu- daginn 22. janúar og var þess minnst með veglegu samsæti í safnaðarheimilinu i Grundarfirði þann dag. Bar hann upp á sama dag og eldri borgarar Grundar- fjarðar halda sína vikulegu upplyftingu með spilum, hann- yrðum o.fl. Vinir komu til að taka í hönd afmælisbamsins og þakka honum alúðlega fylgd, en ’Oskar er með bestu borgurum Grundarfjarðar, kemur alls staðar fram til góðs. Lengi var hann í starfí meðal þeirra, en nú hefír hann hægt á ferðinni. Hann hefír ekki gifst. Kirkjurækinn er hann með afbrigðum og gefur þar öðrum gott eftirdæmi og hann keppist að fara eftir því sem Guðs orð og góðir siðir leggja honum á herðar. Undirritaður talaði til hans og flutti honum drápu undir lagi sem viðstaddir tóku undir og sóknar- presturinn Jón Þorsteinsson minnt- ist Óskars sem síns góða sóknarbams og las heillaskeyti sem honum bárust í tilefni dagsins. Margar gjafir bárust og blóm sem Breytt hlut- verkaskipan í „Djöflaeyjunniu SÝNINGAR á leikritinu „Þar sem Djöflaeyjan rís“, leikgerð Kjartans Ragnarsson á skáldsög- um Einars Kárasonar, eru nú komnar á annað hundrað. Þær breytingar hafa orðið á hlut- verkaskipan í „Djöflaeyjunni“ að Ingrid Jónsdóttir hefur tekið við hlutverki Dolliar af Eddu Heiðr- únu Backman. Ingrid lauk námi frá Leiklistar- skóla íslands sl. vor og er þetta hennar fyrsta hlutverk hjá atvinnu- leikhúsi. í skólanum lék Ingrid 5 sýningum Nemendaleikhússins á „Leikslokum í Smymu" eftir Horst Laube, „Þrettándakvöldi" Sha- kespeares og „Rúnari og Kyllikki" eftir fínnska leikskáldið Jussy Kyl- litasku. Þá var Ingrid og í þeim hópi Leiklistarskólans (3. bekkur 1985-86) er setti upp fyrstu leik- gerð Kjartans af „Djöflaeyjunni" í Landsmiðjuhúsinu v/Sölvhólsgötu Óskar Sæmundsson. sýndi að Óskar á marga og góða vini. Óskar er fæddur í Ámabotni í Helgafellssveit. Sonur Elínar Bjamadóttur og Sæmundur Guð- mundssonar sem þar bjuggu um 23 ár eða til 1921 er bærinn fór í eyði. Alls urðu böm þeirra hjóna 10. Erfíð lífsbarátta var þar háð, en gleðin og dugnaðurinn sigraði allt. Fjölskyldan flutti síðan að Hraunhálsi í sömu sveit, en um það bil 'að Sæmundur lést flutti Óskar í Gmndarfjörð og hefír átt þar heima síðan. Ámi Ingrid Jónsdóttir i hlutverki Dollíar í „Djöflaeyjunni" sem sýnt er i Leikskemmu Leikfélags Reykjavikur. og þar lék Ingrid einmitt hlutverk Dollíar. Hamborgarahæðin sýnd í Bíóborginni BÍÓBORGIN hefur hafið sýning- ar á myndinni Hamborgarahæð- in sem gerð er af John Irvin og framleidd af Marcia Nasatir. Með aðalhlutverk í myndinni fara m.a. Anthony Barrile, Mic- hael Boatman og Don Cheadle. Myndin gerist árið 1969 í Víet- nam þar sem fámenn sveit her- manna er send af stað og ætlunin er að ná hæð einni sem kölluð er Hæð 973. í hersveitinni em bæði gamalreyndir hermenn og nýliðar. Myndin Qallar um baráttu þessarar hersveitar við að ná yfírráðum yfír hæðinni og hvemig þvi lýkur síðan. Úr myndinni Hamborgarahæðin sem Bióborgin sýnir. AF ERLENDUM VETTVANGI eftir ÁSGEIR SVERRISSON Deilur um herstöðvar auka á vanda Bandaríkjahers Ráðamenn i bandariska vamarmálaráðuneytinu hafa af þvi verulegar áhyggjur að kröfur um að Bandaríkjamenn loki herstöðvum sínum viða um heim komi til með að gerast háværar á næstunni. Svo sem kunnugt er af fréttum hafa stjómvöld á Spáni þröngvað Bandaríkjamönnum til að loka herstöðinni í Torrejón og verða 72 bandariskar omstuþotur fluttar úr landi eftir að nýr varaarsamningur hefur verið undirritaður. Á sama tima velta bandariskir herforingjar því fyrir sér hvaða afleiðingar niðurskurð- ur framlaga til vamarmála muni hafa. Ljóst er að fækka þarf hermönnum, hætt verður við ákveðin verkefni svo sem þróun og smiði nýrra hergagna og hugsanlega verða einhveijar herstöðvar lagðar niður. Þetta era váleg tiðindi ekki síst í ljósi þess að mikil- vægi herstöðva Bandaríkjamanna viða um heim eykst í réttu hlutfalli við fækktm kjamorkuvopna, en risaveldin leggja nú ofur- kapp á að ná fram frekari afvopnunarsamningum eftir að hafa samið um útrýmingu meðal- og skammdrægra kjamorkueldflauga. Ef fram fer sem horfír verður ekki betur séð en að það kerfí sem herafli Bandaríkjamanna hefur stuðst við allt frá lokum síðari heimsstyijaldarinnar riði til falls. Undanfarinn áratug hafa efa- semdir um gildi vamarsamvinnu við Bandaríkin náð að skjótum rótum meðal nokkurra banda- manna þeirra. Samfara þessu hefur þjóðemishyggja farið vax- andi í tilteknum ríkjum auk þess sem þær raddir að kreíja beri Bandaríkjamenn um sffellt aukna efnahagsaðstoð í skiptum fyrir land undir heretöðvar hafa víða fengið hljómgrunn. Sú skoðun að vamarhagsmunir Bandaríkjanna og bandamanna þeirra fari saman á undir högg að sækja. Bandaríkjastjóm á nú í deilum um áframhaldandi vamarsam- vinnu við stjómvöld í Portúgal, Tyrklandi, Grikklandi, á Spáni og á Filippseyjum. Svo kann einnig að fara að dregið verði stórlega úr viðbúnaði Bandaríkjahers í Hondúras verði fríðaráætlun Osc- ars Arias, forseta Costa Rica, að vemleika. Heretöðvar í ríkjum þessum em allar mikilvægar ætli Bandaríkjamenn að veija hags- muni sína í Evrópu, Asíu og í Miðausturlöndum. Öryggi og efnahagur Segja má að þessarar þróunar hafi fyrst orðið vart er Andreas Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, lýsti yfír því í kosn- ingabaráttunni árið 1981 að hann hygðist beita sér fyrir því flota- stöð Bandaríkjamanna í Iandinu yrði lokað. Papandreou skipti síðan um skoðun tveimur ámm síðar er heretöðvarsamningurinn var framlengdur um fímm ár eft- ir að Bandaríkjamenn höfðu skuldbundið sig til að auka stór- lega efnahagsaðstoð við Grikk- land. Nú em aftur hafnar viðræður um framtfð bandarískra heretöðva f Grikklandi og nýlega gerði Papandreou heyrinkunnugt að Bandaríkjamenn yrðu að leggja fram sannanir fyrir því að slík samvinna þjónaði hagsmunum Grikkja. Samtfmis þessu sagði foreætisráðherrann mikilvægt að efnahagsleg afkoma þjóðarinnar yrði tryggð og sýna þau orð ljós- lega hvaða hugafar býr að baki í viðræðum þessum. Ráðamenn á Filippseyjum hafa undanfarið ár þráfaldlega lýst því yfir að til greiná komi að segja herstöðva- samningum við Bandaríkjamenn upp. Þar ræður mestu vaxandi þjóðemishyggja og líta margir svo á að vera bandarískra hermanna þar beri keim af nýlendustefnu fyrri tíma. Deilumar við stjóm- völd í Portúgal eru hins vegar tilkomnar vegna minnkandi efna- hagsaðstoðar Bandaríkjamanna. Embættismenn í bandaríska vamarmálaráðuneytinu hafa kannað hvort unnt yrði að taka nýjar herstöðvar í notkun í stað þeirra sem kann að verða lokað en mörg ljón eru í veginum. Þann- ig hefur verið bent á að reisa mætti heretöðvar í Marokkó í stað þeirra sem kynni að verða lokað á Spáni en hæpið þykir að stjóm- völd þar myndu samþykkja slíkt þar eð beita mætti þeim herafla gegn arabaríkjum í Miðaustur- löndum og til vamar ísraels. Á sama hátt kynni að reynast unnt að staðsetja herafla á Taiwan f stað Filippseyja en slíkt myndi að lfkindum ekki mælast vel fyrir í Kína. Fjárlagahalli Embættismenn innan Banda- ríkjaflota telja að snúast beri gegn þessari þróun með þvf að stórefla flotann þar sem augljóslega verði aukin þörf á flugmóðurekipum og birgðaskipum til að flytja vopn, eldsneyti og vistir verði einhveij- um heretöðvanna lokað. Vandinn er hins vegar sá að stjómvöld og Bandaríkjaþing hafa náð sam- komulagi um leiðir til að draga úr Qárlagahalla Bandaríkjanna. Á næsta fjárlagaári er gert ráð fyr- ir að framlög til vamarmála verði minnkuð um 33 milljarða dollara, sem jafngildir tíu prósenta niður- skurði, og er áformað að draga enn frekar úr fjárveitingum til þessa málaflokks á næstu árum. Ákveðið hefur verið að fresta smíði tiltekinna skipa og kafbáta auk þess sem mannafla verður fækkað. Ráðamenn innan flotans em ekki sáttir við þessa þróun mála og nýlega lagði James Webb flotamáiaráðherra til að dregið yrði úr herafla Bandaríkjamanna í Evrópu, Asíu og Mið-Ámeríku. Mun þessi tillaga hafa vakið tak- markaða hrifningu í Hvíta húsinu. Frank Carlucci vamarmálaráð- herra sagði á dögunum að ákveðin áhætta væri samfara því að skera niður herafla Bandaríkjamanna þar sem vamarskuldbindingar þeirra yrðu hinar sömu eftir sem áður. Sagði Carlucci að hernað- arsérfræðingar Bandaríkjastjóm- ar kæmu til með að standa frammi fyrir erfiðum ákvörðunum og til- tók sérstaklega að svo kynni að fara að ákveðnar herstöðvar yrðu lagðar niður. Niðurskurður og framvarnir Sérfræðingar hafa bent á að mikilvægi hins hefðbundna her- afla komi til með aukast til muna er risaveldin hafa uppfyllt ákvæði sáttmálans sem þeir Ronald Reag- an Bandaríkjaforseti og Míkhaíl Gorbatsjov Sovétleiðtogi undirrit- uðu í Washington í desember um upprætingu meðal- og skamm- drægra kjamorkuflauga. Þykir sýnt að bijótist út átök muni miklu skipta að geta fært til bæði menn og hergögn og á sama hátt blasir við að slíkt verður erfiðara en ella hafí tilteknar herstöðvar verið lagðar niður. Þá hafa menn bent á að þessi þróun verði síst til að styrkja stöðu Bandaríkjamanna í afvopnunarviðræðum við ráða- menn í Sovétríkjunum þar sem Kremlveijar geti einfaldlega treyst á að niðurskurðurinn þjóni hagsmunum Sovétríkjanna. Þegar hafa komið fram tillögur um að Bandaríkin efli hinn hefð- bundna herafla og segir í nýlegri skýrelu, sem unnin var á vegum sérfræðinga í vamarmálum, að of mikil áherela hafi verið lögð á fælingarmátt kjamorkuvopna. Leggja þeir til að þróuð verði ný og nákvæmari vopn t.d langdræg- ar stýriflaugar og telja margir að á þennan hátt megi bæta að nokkm fyrir óhjákvæmilegan nið- urekurð heraflans. Aðrir benda á að slíkt myndi hafa í för með sér brotthvarf frá grundvallarkenn- ingu Bandaríkjahers og sérfræð- inga Atlantshafsbandalagsins um framvamir. „Frá herfræðilegu sjónarmiði koma framvamir einar að notum ætli menn að veija hendur sínar,“ sagði Caspar Wein- berger, fyrrum vamarmálaráð- herra Bandaríkjanna, er hann var beðinn um að leggja mat á hug- myndir þessar. Ýmsum þykir sýnt að mikilvægi Bandaríkjaflota muni aukast til muna verði bandarískar herstöðvar Iagðar niður víða um heim. Myndin sýnir bandarískar orustuþotur um borð i flugmóðurskip- inu Saratoga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.