Morgunblaðið - 29.01.1988, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 29.01.1988, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988 St)örnu- speki Umsjón: Gunnlaugur Guðmundsson „Kæri Gunnlaugur. Erindi mitt varðar son minn sem er tæplega 2ja ára gamall. Mig langar mikið að vita hvaða persónu hann gæti haft að geyma og hvaða hæfileikum hann er búinn, upp á seinni tíma og uppeldið að gera. Hann er kominn af fólki sem er mjög listrænt (föðurættin) á fleiri en einu sviði. Strákur- inn er fæddur í Reykjavík 1.3. 1986 kl. 21.44. Með bestu kveðjum." Svan Strákurinn hefur Sól, Merkúr og Venus í Fiskum, Tungl í Sporðdreka, Mars í Bog- manni, Vog Rísandi og Krabba á Miðhimni. Nœmur og viðkvæmur Það sem fyrst vekur athygli við kort sonar þíns er vatnið, eða margar plánetur í Fisk- um og Sporðdreka. Það táknar að hann er með næm- ari mönnum, er tilfinninga- ríkur og viðkvæmur. Nœrgœtni íframkomu Þú þarft þvi að fara vel að honum, m.a. gera þér grein fyrir því að hann skilur það sem er ósagt og er viðkvæm- ur fyrir minristu orðum, svipbrigðum og hreyfingum. Einlæg og hreinskilnisleg framkoma er því nauðsynleg gagnvart honum. ímyndunarajl Þessum merkjum fylgir einn- ig annað, eða sterkt ímynd- unarafl. Það getur birst á tvennan hátt. Annars vegar það að lifa í draumaheimi og vera utan við sig og stundum úti á þekju. Ef vel tekst til getur hann aftur á móti orð- ið maður skapandi ímyndun- arafls, þ.e. listamaður eða a.m.k. unnandi menningar og fagurra lista. Ég tel því mikilvægt að þú takist á við þetta ímyndunarafl og reynir að hjálpa honum að þroska það inn á jákvæðar brautir Listir Þessar jákvæðu leiðir geta verið þær að hvetja hann til að nota ímyndunarafl sitt út á við, td. í gegnum það að teikna, mála o.s.frv., og gefa honum kost á námskeiðum og umræðu sem þroskar myndskynjun og tóneyra. Flestir Fiskar elska tónlist og eru viðkvæmir fyrir háv- aða. Það má skjóta því að hér að æskilegt er að vera mjúkur í máli við strákinn. Skapstór Að öðru jöfnu er sonur þinn rólegur persónuleiki og ljúfur í framkomu en Sól spenna Mars milli Fiskamerkis og Bogmanns táknar að hann á til að vera uppstökkur og verða æstur ef hann telur sér á einhvern hátt misboðið. Það má segja að hann hafí tölu- vert keppnisskap sem hann þarf hins vegar að læra að koma frá sér án tilfínninga- semi. Það þarf m.a. að koma honum í skilning um að ekki er verið að ráðast á hann þó aðrir séu ekki sammála. Sat- úmus í spennu við Sól táknar einnig að hann á til að bæla sjálfan sig niður og gera of miklar kröfur til sín. Það er því æskilegt að hvetja hann til að opna sig, tjá sig og framkvæma það sem hugur hans stendur til. Heilbrigðismál Auk greinilegra listrænna hæfileika bendir margt f kortinu til áhuga á heilbrigð- ismálum og því að hjálpa öðrum. (Sól, Merkúr, Venus í Fiskum í 6. húsi og Krabbi á Miðhimni.) Læknisfræði t.d. er því fag sem gæti átt ágætlega við hann. GARPUR ER.UHERMEa/m (YlÍNIFZ 4D SÝWft OrtNsePA 6efiJ4sr?kb/nrruv Tfrru TU. AB HARBiTaYL L/yr/ TIL -v, SKARHR SKR/&A/ ' HARÐJAXL ERELD- SNÖGGOR #£> &REYTA HAAJD- L£GG 3/nOAI /'.. . UEfUÐ S<€L IR.MSNN E TERNÍU HAREXTA XL LVSfí VF/R AB þ/ÐMB3/D /Vt/SSA y/CKUN..- 7 GRETTIR TOMMI OG JENNI UOSKA BlPPO APEIHS - £6 ER NÆsrUM 6ÓINI 'C') wÞ' FERDINAND 2SÖ7 U'5 KAININ6..N0U) I P0N‘T mave to pav vou.. 11 ‘lll 6-H Hj, />A A n « blí SMAFOLK IF I 00, YOU MAVE TO 6IVE MEARAINCMECK.. FTTT te h" i L m ípS P5VCMIATRI5T5 POM't 6IVE RAIN CHECK5' Það rignir ... þá þarf ég Ef þú gerir það á ég heim- SÁLFRÆÐINGAR AF- ekki að borga þér... sókn inni... LÝSA ENGU VEGNA LYSA ENGU VEGNA RIGNINGAR! Umsjón: Guðm. Páll Arnarson í bók Skotans Hugh Kelsey, „Test Your Timing" (í réttri röð) er að finna þetta skemmtilega vandvirknisspil: Norður gefur; allir á hættu. Vestur ♦ 9654 VK1072 ♦ 5 ♦ G1083 Norður ♦ KDG1073 V4 ♦ K1072 ♦ ÁD Austur ♦ 82 VD85 ♦ D864 ♦ K962 Suður ♦ Á ♦ ÁG963 ♦ ÁG93 ♦ 754 Vestur Norður Austur Suður — 1 spaði Pass 2lyörtu Pass 3 spaðar Pass 4 tíglar Pass 5 lauf Pass 5 spaðar Pass Pass 6 tíglar Pass Pass Vestur spilar út laufgosa. Sú áætlun blasir við að drepa á laufás, taka spaðaás og tvo efstu í trompi, og spila svo spað- anum fram á vor. Ef trompið er 3—2 er spilið nokkuð örugg- lega í höfn ef þessi leið er valin. En við sjáum að tígullinn brotnar 4—1. Er eitthvað við því að gera? Ef vestur hefði átt fjór- litinn væri lítil von, en það er hægt að pína austur með því að nota spaðana sem tromp. Það eina sem þarf að gera er að taka hjartaásinn áður en ballið byijar! Drepa á laufás, taka tígulás, spaðaás og hjarta- ás. Spila svo tígli á kónginn. Austur er þá vamarlaus þegar spöðunum er spilað. Ef hjartaásinn er ekki tekinn fyrst getur austur fleygt hjört- um og stungið hjarta þegar því er spilað í lokin. Umsjón Margeir Pétursson Hinir frægu stórmeistarar Jan Timman og Ljubomir Ljubojevic háðu sex skáka einvígi i desembormánuði. Þessi staða kom upp í fimmtu skákinni, sem réði úrslitum. Timman hafði hvítt og átti leik. Svartur lék síðast 23. — Rg6-e5. Sem sjá má er hvítur með mann yfir fyrir þijú peð í stöðunni, en Ljubojevie hefur líklega talið sig vera að vinna manninn til baka. Honum hafði yfírsézt sterkur leik- ur: 24. Df5! og svartur gafst upp, hví eftir 24. — Rxd3, 25. Rxf6 verður hann mát i fáum leikjum. Svartur hefði hins vegar unnið eftir 24. De2? - Rxd3, 25. Dxd3 — Dxd3, 26. Hxd3 — f5. Timman sigraði með yfirburðum í einvíg- inu, 4*/2— Ws. Hann vann fyrstu, fimmtu og sjöttu skákimar, en hinum lauk með jafntefli.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.