Morgunblaðið - 29.01.1988, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 29.01.1988, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988 3 Áskriftargjöld Stöðvar 2: Hækkun um 31,4% á 4 mánaða tímabili Gjöldin munu framvegis fylgja framfærsluvísi- tölu, segir Sighvatur Blöndal, markaðsstjóri hækkun verður því 1. FASTEIGNAVERÐIBUÐAI FJOLBYLISHUSUM MIÐAÐ VIÐ LÁNSKJARAVÍSITÖLU 1980-87 Janúar 1984 er settur á 100 1980 1981 1982 1983 1984 1985 1986 1987 Fjölbýlishús í Reykjavík: Raunverð íbúða hef- ui’ hækkað um 15-18% SÖLUVERÐ íbúða i fjölbýlis- húsum í Reykjavík hækkaði að meðaltali lítillega umfram lánskjaravísitölu á milli annars og þriðja ársfjórðungs sfðasta árs, samkvæmt upplýsingum sem fram koma f Markaðs- Bergþór KE 5: Minningar- athöfn um skipveijana Minningarathöfn um skip- veijana tvo, Magnús Geir Þórarinsson skipstjóra og Elfar Þór Jónsson háseta, sem fórust með mb. Bergþóri KE 5 föstudaginn 8. janúar sl., fer fram f Keflavíkurkirkju á morgun, laugardag, kl. 14:00. Séra Ólafur Oddur Jónsson, sóknarprestur í Keflavík, og séra Þorvaldur Karl Helgason, sóknar- prestur í Njarðvík, þjóna við athöfnina. Kirkjukórar Keflavík- urkirkju og Ytri-Njarðvíkurkirkju syngja og Haraldur Haraldsson leikur á básúnu. Söngstjórar verða Gróa Hreinsdóttir og Siguróli Geirsson. Reiknað er með fjölmenni og verður hægt að hlýða á minningar- athöfnina í safnaðarheimilinu Kirkjulundi og í tveimur lang- ferðabifreiðum sem verða stað- settar við kirkjuna. - BB Leikfélag Reykjavíkur sýnir Hamlet um páskana HAMLET eftir William Shake- speare, f útfærslu Kjartans Ragnarssonar, verður sýnt hjá Leikfélagi Reykjavíkur um næstu páska. Samlestur á verk- inu hófst fyrir nokkru. Að sögn Kjartans hafði hann velt því lengi fyrir sér að gera eig- in útfærslu á verkinu. Með helstu hlutverk fara Þröstur Leó Gunn- arsson, sem leikur Hamlet, Sigrún Edda Bjömsdóttir leikur. Ófelíu, Guðrún Ásmundsdóttir Geirþrúði, Sigurður Karlsson Kládíus og Eggert Þorleifsson Hóras. Kjartan leikstýrir verkinu sjálfur. fréttum Fasteignamats rfkis- ins. Þegar söluverð íbúðanna er borið saman við þriðja árs- fjórðung 1986 kemur hins vegar f ljós að á þessu ári hef- ur verð fbúða hækkað um 36,1% á sama tíma og lán- skjaravísitalan hefur hækkað um 18,5%, þannig að raunverð íbúða hefur hækkað um 15—18% á einu ári. Raunverð Qölbýlishúsaíbúða miðað við lánskjaravísitölu var á ársfjórðungnum orðið álíka hátt og á íjórða ársfjórðungi 1984. Fækkun kaupsamninga gefur til kynna minni umsvif á fasteigna- markaði en á sama ársijórðungi árið áður. Útborgunarhlutfall helst enn hátt, samkvæmt upplýsingum Fasteignamatsins, og óverðtryggð lán sem hlutfall af söluverði lækka jafnframt. Á þriðja ársfjórðungi síðasta árs var meðalverð á íbúð 3.083 þúsund krónur, á móti 2.364 þúsund kr. á sama tíma árið áður. Söluverð á fermetra hækkaði frá fyrra ári úr 28.204 krónur í 38.373 kr. Útborgunarhlutfall hækkaði úr 73,7% í 77,4%. Söluverð á fermetra var á þriðja ársfjórðungi orðið hæst í þriggja herbergja íbúðum, sem er óvenju- legt. Verð á fermetra í 1—2 herbergja íbúðum var 39.362 krónur að meðaltali, 40.047 kr. í 3 herbergja íbúðum, 37.775 í 4 herbergja íbúðum og 34.460 í stærri íbúðum. Áskriftargjöld á Stöð 2 hækka þann 1. febrúar næst- komandi um 10,4% og verða 1380 krónur. Hækkun áskrift- argjalda stöðvarinnar nemur um 31,4% frá þvf um mánaða- mót september og október á sfðasta ári. Er stöðin hóf rekstur sinn var áskriftargjaldið 950 krónur. í millitíðinni hefur gjaldið hækkað tvisvar, í 1050 í maí og í 1250 krónur í október síðastliðnum. Sighvatur Blöndahl, markaðs- stjóri Stöðvar 2 sagðist ekki telja hækkunina frá því í september óeðlilega mikla þó að hún væri í hærri kantinum miðað við hversu stuttan tíma væri um að ræða. „Við erum að rétta af verðskrána sem við teljum hafa verið of lága. Nú álítum við okkur vera komna með eðlilega verðskrá og stefnan er sú að láta áskriftargjöldin héðan í frá fylgja framfærsluvísitölu. Það teljum við eðlilegast en það þýðir að gjöldin munu hækka á fjögurra mánaða fresti héðan í frá,“ sagði Sighvatur Blöndahl. Næsta júní. Hugmyndir refanefndar hjá ráðherra STARFSHÓPUR sem landbúnað- arráðherra skipaði nýlega til að skoða vandamál refabænda átti fund með Jóni Helgasyni á mið- vikudag og lagði þar fram hugmyndir sfnar. Ekki fæst upp- gefið f hveiju tiUögur starfs- hópsins eru fólgnar. Sveinbjöm Eyjólfsson, fulltrúi í landbúnaðarráðuneytinu, segir að hugmyndir starfshópsins séu nú tii skoðunar í ráðuneytinu. Starfs- hópurinn var skipaður vegna langvarandi halla af refabúskap sem leitt hefur til þess að hópur refabænda hefur hætt og margir standa frammi fyrir ákvörðun um slíkt hið saman. Sæbólsland: Erfðaleign sagt upp verði héraðsdómur staðfestur BÆJARRÁÐ Kópavogs hefur samþykkt að segja upp erfða- leigusamningi útgefnum af landbúnaðarráðherra árið 1937 til Þórðar Þorsteinssonar um Nýbýlaland, svonefnt Sæbólsland. Skal uppsögn þessi koma til fram- kvæmda ef niðurstaða héraðs- dóms verður staðfest f Hæstarétti. Að sögn Krisljáns Guðmundsson- ar bæjarstjóra var seinna gerður sérstakur erfðaleigusamningur milli bæjaryfírvalda og Þórðar Þorsteins- sonar, vegna bóta fyrir mannvirki og ræktun, en samningurinn var dæmdur ógildur í héraðsdómi. „Úr þvi samningurinn er ekki lengur til staðar viljum við segja upp fyrri erfðaleigusamningi," sagði Kristján. í samþykkt bæjarráðs kemur . fram að samningnum sé sagt upp vegna vanefnda erfðaleiguhafa á ákvæðum 1. gr., 2. gr., 3. gr., 4. gr. og 8. gr. erfðaleigusamningsins. „Skal uppsögn þessi koma til fram- kvæmda ef niðurstaða héraðsdóms- ins verður staðfest í Hæstarétti og verðmæti þau, sem afhent hafa ver- ið á grundvelli uppgjörssamnings um Sæbólsland, endurheimt frá hlutað- eigendum." Þá segir og: „Bæjarráð sam- þykkir jafnframt að fella úr gildi með sama hætti þá lóðarleigusamn- inga, sem erfðaleiguhafí umrædds lands hafði stofnað til án samþykkis landeiganda." Tillagan var samþykkt í bæjarráði með þremur atkvaeðum en Richard Björgvinsson og Bragi Michaeisson létu bóka: „Við teljum fráleitt, að gera þessa samþykkt á þessum tíma sem er skilyrt um niðurstöðu máls, sem nú er rekið fyrir Hæstarétti, og sitjum hjá við þessa afgreiðslu." . Morgunblaðið/Þorkell Keppendumir frá Akureyri, þeir Hermann Snorri, Hallgrfmur, Einar Þór og Hlynur. Sjö keppendur um titilinn Herra Island FYRSTA fegurðarsamkeppni karla um titil- inn „Herra Island“ verður haldin í veitinga- húsinu Zebra þann 13. febrúar nk., og hafa sjö keppendur verið valdir til þátttöku. Aðstandendur hennar eru Hljóðbylgjan, Zebra og Sljörnusól, allt fyrirtæki á Akur- eyri. Frá Akureyri eru fjórir keppendanna, þeir Hermann Snorri Jónsson, 17 ára símsmiður, Hallgrímur óskarsson, 20 ára nemi við MA, Einar Þór Karlsson, 18 ára nemi við MA og Hlynur Jónsson, 20 ára starfsmaður á veitinga- staðnum Uppanum á Akureyri. Frá Reykjavík koma tveir keppendur þeir Ivar Hauksson, 22 ára starfsmaður hjá tæknideild Morgunblaðs- ins, og Amór Diego, 18 ára nemi við Fjölbrauta- skólann í Breiðholti. Einn Garðbæingur tekur þátt í keppninni, Edwin Ámason, 22 ára sölu- maður. Kynnir á úrslitakvöldinu verður Bryndís Schram og dómnefnina skipa Anna Margrét Jónsdóttir Ungfrú ísland 1987, formaður, Bima Friðriksdóttir, snyrtifræðingur hjá snyrtistof- unni Evu við Ráðhústorg, Kristjana Geirsdóttir veitingamaður í Reylq'avfk, Ragnar Sverrisson, kaupmaður í JMJ á Akureyri, og Krislján Kristj- ánsson, veitingamaður í Zebra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.