Morgunblaðið - 29.01.1988, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 29.01.1988, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988 Útgefandi Árvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Aöstoöarritstjóri Björn Bjarnason. Fulltrúar ritstjóra Þorbjörn Guömundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Fréttastjórar Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Auglýsingastjóri Baidvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aðalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 55 kr. eintakiö. Slysavamir í 60ár Haraldur Henrysson, forseti Slysavamafélags íslands, ritar grein í Morgunblaðið í dag í tilefni af því að sextíu ár eru liðin frá stofnun félagsins. Hann vitnar til orða Guðmundar Bjömssonar, landlæknis og fyrsta forseta félagsins, á stofn- ftindi þess. Þar kemur fram að á árabilinu 1901 til 1910 „misstu íslendingar um 550 fiskimenn í sjóinn eða til jafnaðar 12 af hverjum 1.000 fískimönnum á ári“. Manntjón á íslenzkum físki- skipum á þessum ámm var tífalt meira — hlutfallslega — en á norskum fískiskipum. Það var því ærin ástæða til stofnunar samtaka, sem hefðu þann tvíþætta tilgang, að starfa að fyrirbyggjandi slysavömum og hafa á hendi björgunarstörf þeg- ar sjómenn lentu í sjávarháska. í dag vinnur Slysavamafélagið að alhliða slysavömum og neyð- arhjálp. Það er byggt upp af félagsdeildum, sem starfa víðsvegar um íandið og hafa skil- að frábæm starfí og unnið ýmis björgunarafrek. Starfsstöðvar þessara deilda, sem sinna leitar og björgunarstörfum, em um 50 talsins. Að auki hefur félagið og deildir þess komið upp 80 skip- brotsmanna- og Qallaskýlum með ýmsum búnaði, meðal ann- ars fjarskiptatækjum. Björgun- armiðstöð félagsins er í Reykjavík og til hennar er leitað í neyðartilvikum af hálfu opin7 berra aðila, útgerðaraðila og almennings. Slysavamafélagið hefur barizt og beitt sér íyrir margþættum fyrirbyggjandi að- gerðum: Útgáfu- og fræðslu- starfí, eftirliti með skipum, bifreiðum og vinnutælgum, ör- yggisbúnaði við haftiir, lögleið- ingu björgunartækja, Slysa- vamaskóla sjómanna, námskeiðum um slysavamir og neyðarhjálp, kaupum og viðhaldi öryggistækja, björgunartækja og búnaðar. Tilkjmningaskylda íslenzkra skipa, sem tók til starfa 1968, og er í umsjá félagsins en kostuð af ríkinu, gegnir og mikil- vægu hlutverki. Slysavamafé- lagið starfrækti og umferðarör- yggisnefndir um land allt þegar breytt var yfír í hægri umferð hér á landi árið 1968. Enn er fjölmargt ótalið úr starfssögu félagsins. Þörfín fyrir starfsemi af því tagi, sem Slysavamafélag Is- lands annast, fer vaxandi, þótt margt hafí breytzt og flest til hins betra í sextíu ára sögu fé- lagsins. Árið 1986 lést 71 Islend- ingur af slysförum, þar af 26 í sjóslysum og drukknunum og 24 í umferðarslysum. Það segir sína sögu að þetta ár vóm á milli 7 og 8 þúsund umferðaróhöpp hér á landi, sem leiddu til meiðsla og/eða skemmda á bifreiðum, en bifreiðum hefur fjölgað úr 45.000 þá er hægri umferð var upp tekin 1968 í um 135.000 ökutæki 1987. Slysin gera ekki boð á undan sér. Þau geta orðið nánast hvar sem er, á sjó, í lofti og á landi; á vinnustöðum, á heimilum, í skólum — eða á ferð milli þessara viðverustaða mann- fólksins. Haraldur Henryssort, forseti Slysavamafélagsins, segir í Morgunblaðinu í dag: „Þrátt fyrir aukið forvamar- starf á mörgum sviðum af hálfu hins opinbera, til dæmis varðandi öryggi á vinnustöðum, slysavam- ir í umferðinni og fleira, er ljóst, að frjáls félagasamtök eins og Slysavamafélag íslands hafa miklu hlutverki að gegna í þjóð- félagi okkar, ekki síður en fyrir 60 árum. Nægir þar að minna á hið mikilvæga hlutverk björgun- arsveitanna, en á vegum félags- ins starfa 94 slíkar sveitir, skipaðar sjálfboðaliðum. Þau verkefni, sem stjóm SVFÍ telur brýnt að leysa á næstunni, eru til dæmis að festa Slysavama- skóla sjómanna í sessi og gera að skyldu að allir sjómenn sæki þar námskeið, að auka þjálfun björgunarsveitarmanna og bæta útbúnað sveitanna, ekki sízt til sjóbjörgunarstarfa, að gera átak varðandi þjálfun og skipulagn- ingu hjálparliðs til mðnings- og björgunarstarfa vegna samnings félagsins við Almannavamir ríkisins, og að stórauka forvam- arstarf vegna slysa í heimahús- um, í ferðalögum og frístund- um.“ Morgunblaðið tekur undir þessi orð, þakkar Slysavamafé- laginu mikil og góð störf í þágu samfélagsins, ámar því framtíð- arheilla á 60 ára starfsafmæli og hvetur ríkisvald, sveitar- stjómir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að leggja því lið. Blaðið hefur um langt skeið haft mjög gott samstarf við SVFÍ og þakkar það sérstaklega. Vegna þessa samstarfs ekki sízt hefur blaðið getað sinnt upplýs- ingastarfí sínu um slysavamamál og flutt réttar fréttir um ýmis viðkvæm atriði, sem snerta þetta starf, svo sem slys og önnur sorg- leg tíðindi. Er sérstök ástæða til að þakka Hannesi Hafstein, framkvæmdastjóra SVFI, þá miklu aðstoð, sem hann hefiir ávallt verið boðinn og búinn að veita á öllum tímum sólarhrings- ins. Gjald fyrir veiðil stað gengisfellii eftir Gylfa Þ. Gíslason og Þorkel Helgason I, í kjölfar einhvers mesta góðær- is, sem íslensk þjóð hefur notið, blasa nú við erfíðleikar í íslenzkum efnahagsmálum. Eins og við má búast eru menn ekki á einu máli um, hvemig við þeim eigi að snú- ast. Það er tilgangur okkar með þessari grein að vekja athygli á einum tilteknum þætti þessara erf- iðleika og hvemig vinna mætti bug á þeim vanda, sem þar er um að raeða. Það er kunnara en frá þurfi að segja, að ástand mála í tveim meg- ingreinum íslenzks sjávarútvegs, veiðum og vinnslu, er mjög ólíkt. Fiskvinnslan stendur höllum fæti, einkum frystihúsin. Þau era sem heild talin rekin með tapi, sem metið er sem svarar 7—8% af tekj- um að dómi Þjóðhagsstofnunar. Þar era ekki á döfínni áform um mikla fjárfestingu. Fiskveiðamar skila hins vegar hagnaði. Þar era laun miklu hærri en í fískvinnsl- unni. Mikil fíárfesting á sér stað í skipum, ekki fyrst og fremst kaupum nýrra skipa í stað gam- alla, heldur í breytingu skipa til þess að gera þau afkastameiri. Tengist þetta að sjálfsögðu gild- andi lögum um fískveiðistjóm. Nýjum skipum er ekki úthlutað veiðileyfum nema skip hverfí úr flotanum í staðinn. n. Við, sem skrifum þessa grein, höfum báðir nýlega birt greinar hér í blaðinu um, að það mundi auka hagkvæmni í íslenzkum sjáv- arútvegi að afhenda veiðileyfí ekki ókeypis, heldur láta leyfíshafa greiða gjald fyrir þau í sameigin- legan sjóð, enda séu þá litlar eða engar hömlur á viðskipti með leyf- in. Ástæðulaust er að endurtaka röksemdafærsluna hér. Kjami málsins er ofur einfaldur. Ef ekki væri höfð stjóm á sókn í fiskstofnana, sem era helzta auð- lind íslendinga, mundu þeir skerð- ast og virði auðlindarinnar minnka. Ríkisvaldið eitt hefur aðstöðu til þess að takmarka heildarsóknina. Og þjóðin í heild á þessa auðlind. Það hefur raunar nú verið tekið fram í hinum nýju lögum um físk- veiðistjómun, sem sett vora í byijun þessa árs. Takmörkun heildarsóknar eykur afla þeirra fískiskipa, sem veiði- leyfín hljóta, þegar til lengdar lætur, miðað við það, sem átt hef- ur sér stað við meiri sókn. Þessi aukni afli, sem siglir í kjölfar sókn- artakmörkunarinnar, hefur það auðvitað í for með sér, að veiðileyf- in era verðmæt. Verðmæt réttindi eiga menn ekki að fá ókeypis. Þá er verið að mismuna þegnunum. Fyrir veiðiréttindin á að greiða eig- anda auðlindarinnar, þjóðinni allri. Síðan farið var að takmarka heildarsókn hér við land með veiði- leyfum hefur það auðvitað komið í ljós á ýmsan hátt, að veiðileyfín era verðmæt. Eigendur veiðiskipa hafa mátt afhenda eigendum ann- arra skipa rétt þann, sem veiðileyf- ið veitir. Hafa þeir þá tekið gjald fyrir leyfíð og hefur í raun og vera myndast markaður fyrir einstakar tegundir veiðileyfa. Þá hefur það komið í ljós við sölu fískiskipa, að veiðileyfí þau, sem fylgt hafa skipinu, hafa hækk- að mjög verð þess, enda telur kaupandinn sig vera að afla sér aðgangs að veiðum og varanlegra aflaréttinda. í sjálfu sér þarf engum að koma á óvart, þótt framsal veiðileyfa leiði til fjárgreiðslu og að veiðileyfí skipa hækki verð þeina. Það er aðeins vitnisburður um, að veiði- leyfín era verðmæt og þá um leið staðfesting á því, að rangt er af eiganda auðlindarinnar að afhenda þau ókeypis. m. Þegar sóknargeta veiðiflotans er orðin meiri en svarar til afrakst- ursgetu fískstofnanna, er nauðsyn- legt að takmarka heildarsókn. Það er meginstaðreynd þess máls, sem hér er um að ræða. Sóknina má takmarka á ýmsan hátt. Um skeið var hún takmörkuð með „skrap- dagakerfínu" svonefnda, þ.e. fyrst og fremst með takmörkun á veið- itíma. Á sú aðferð enn stuðnings- menn. Samkvæmt þeim lögum, sem gilt hafa undanfarin ár og eiga að gilda næstu þijú ár, er sóknin tak- mörkuð með úthlutun ókeypis leyfa til einstakra veiðiskipa. Era þau ýmist í formi aflamarks, þ.e. heim- ildar til að draga tiltekinn afla á land, eða sóknarmarks, þ.e. heim- ildar til að halda skipi til veiða tiltekinn tima. Við teljum veiðileyfaaðferðina, og þá einkum aflamarksgerð henn- ar, miklu heppilegri e:n „skrap- dagakerfíð". En f greinum þeim, sem við skrifuðum fyrir skömmu hér í blaðið, rökstuddum við, að innheimta ætti gjald fyrir leyfín, en þau síðan að vera framseljan- leg. Annars vegar myndi það hafa í för með sér hagkvæmari sókn, þar sem veiðin myndi smám saman komast í hendur þeirra, sem hefðu hagkvæmastan rekstur. Hins veg- ar væri komið f veg fyrir það þjóðfélagslega ranglæti, sem í því felst að afhenda einstaklingum eða félögum verðmæti ókeypis og svipta eiganda þannig afrakstri af eign sinni. Viljum við í þessu sambandi benda á ákvæði til bráðabirgða við nýsett lög um stjóm fískveiða. Við endurskoðun laganna skal sam- kvæmt þessum ákvæðum m.a. kanna fyrirkomulag, sem byggist á veiðiheimildum án þess að þær séu bundnar við skip. Algengustu rökin gegn gjaldi fyrir veiðileyfí era þau, að með því væri verið að skattleggja sjávarút- veginn. Það sé ranglátt að skatt- leggja undirstöðuatvinnuveg þjóðarinnar. Og þá er komið að meginefni þessarar greinar. IV. Að framan var á það bent, að einn sérkennilegasti þáttur þess efnahagsvanda, sem nú er við að glfma hér á landi, er fólginn í því, hve aðstæður era gerólíkar í tveim megingreinum sjávarútvegsins, fískveiðunum og fískvinnslunni. Frystihúsin sérstaklega eiga við tvímælalausan vanda að stríða. Rætt hefur verið um að bæta hag þeirra með ýmsum hætti, t.d. end- urgreiðslu söluskatts og afnámi launaskatts. Ýmsir hafa jafnvel talið gengislækkun nauðsynlega. Burtséð frá deilum um aðferðir við sóknartakmörkunina virðast eig- endur veiðiskipa una hag sínum vel. Þannig virðist umtalsverður Gylfi Þ. Gíslason hagnaður hafa verið af botnfísk- veiðum á sfðastliðnu ári, og er hann að mati Þjóðhagsstofnunar talinn hafa numið um 5—8% af tekjum. Auknar takmarkanir á veiðum á þessu ári kunna að vísu að draga nokkuð úr þessum hagn- aði. Telur Þjóðhagsstofnunin, að nú standi afkoma þessara veiða í jámum. Fiskverð var fijálst mest allt síðastliðið ár og er það í reynd, enda þótt nú sé aftur tekið að ákveða lágmarksverð. Því kann að virðast einkennilegt, að skipta- vandinn innan sjávarútvegsins leysist ekki með lækkun fískverðs, þegar svo árar sem verið hefur. Eina helztu skýringu á því, að þetta hefur ekki gerst, er að fínna í útflutningi ferskfísks. íslenzk fískvinnsla þarf að keppa við er- Ienda fískkaupendur um.hráefni. Þessi samkeppni hefur úrslitaáhrif á fískverðið. En fslenskur útvegur nýtur þess að hafa ókeypis aðgang að gjöfulum fískimiðum. Sjómenn í helstu markaðslöndum okkar þurfa að vísu ekki heldur að greiða fyrir aðgang að sínum miðum, en þau era í flestum tilvikum mun síðri. Þannig nýtur útvegurinn einn þess sérstaka auðs, sem felst í fískimiðunum við ísland. Hér er rétt að geta þess, að af hálfu fískvinnslunnar hefur verið stungið upp á því, að fískvinnslu- fyrirtækjum verði úthlutað veiði- leyfum ásamt skipum. Að baki þeirri ósk liggur auðvitað skilning- ur á því, hvað hér er í raun og vera að gerast. Á slíku leyfakerfí væra hins vegar miklir annmark- ar, þótt ekki verði nánar ijallað um það hér. Aðalatriðið er, að unnt er að ráða bót á þeim vanda, sem hér er á ferðinni, með einfald- ari hætti. V. Það era í sjálfu sér skiljanleg viðbrögð, að ménn séu andstæðir því, sem menn telja skattlagningu á aðalatvinnuveg þjóðarinnar. Hvaða vit getur verið í því að „skattleggja" aðalbjargræðisveg- inn, segja menn. En hér gleymist það, að sóknartakmörkunin, sem felst í úthlutun veiðileyfa, eykur aflann og þar með þjóðartekjum- ar. Þessi aukning þjóðartekna á ekki að lenda í höndum veiðileyfa- hafanna einna. Gjald fyrir veiði- leyfí er alls ekki „skattur" á sjávarútveginn, heldur aðeins end- urgreiðsla á því verðmæti, sem í veiðileyfínu felst. Þess vegna er orðið „auðlindaskattur" rangnefni á gjaldi fyrir veiðileyfí.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.