Morgunblaðið - 29.01.1988, Blaðsíða 60

Morgunblaðið - 29.01.1988, Blaðsíða 60
Fróðleikur og skemmtun fyrir háa sem lága! 18 GuÓjónÓ.hf. I 91-27233 FOSTUDAGUR 29. JANUAR 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 55 KR. Formlegnr fundur VSÍ ogVMSÍ BOÐAÐ hefur verið til fundar Vinnuveitendasambands íslands lands í dag eftir hádegið. Til fundarins ér boðað að ósk Verka- mannasambandsins, sem viU freista þess að ná kjarasamning- um til nokkurra mánaða. Milli þessara aðila hafa ekki ver- ið formlegir samningafundir frá þvf nokkru fyrir áramót. Viðræður verkalýðsfélaga og vinnuveitenda á Suðumesjum em í biðstöðu, þar til nefnd á vegum aðila hefur farið til Vestflarða og kynnt sér hluta- skiptakerfið í fiskvinnslu. í nefnd- ina hefur verið valið trúnaðarfólk af vinnustöðum á Suðumesjum, auk fulltrúa verkalýðsfélaganna og full- trúa vinnuveitenda. Gert er ráð fyrir að nefndin fari til ísafjarðar á sunnudaginn kemur. Óvirk umferð- arljós UMFERÐ í Reykjavík gekk heldur treglega i gær, enda voru umferðarljós í austur- hluta borgarinnar óvirk. Ljósleysið má rekja til bilun- ar í höfuðstöð ljósanna, sem staðsett er við gatnamót Miklu- brautar og Kringlumýrarbraut- ar. Höfuðstöðin sendir skilaboð til umferðarvitanna og berist þessi boð ekki hætta ljósin að virka. Unnið var að viðgerð í allan gærdag og í gærkvöldi var enn óvíst hver bilunin væri. „Ég var með unn- ið þegar hann féll - var það ekki?“ Frá Guðmundi Sv. Hermannssyni í St. „ÉG var með unnið þegar hann féll, var það ekki?“ var það fyrsta sem Jóhann Hjartarson sagði við aðstoðarmann sinn, Margeir Pétursson, eftir sigur á Viktor Kortsjnoj í einvíginu í St. John í Kanada í gær. Með þessum sigri er Jóhann kominn með 3 vinninga gegn 1 vinningi Kortsjnojs og nægir hálfur vinningur í þeim tveimur skák- um sem eftir eru í einvíginu til að tryggja sér sigur. „Þetta var nú meiri bamingurinn sagði Jóhann en vildi ekkert segja um framhald einvígisins; ætlar að bíða og sjá, en honum dugir hálfur vinningur til sigurs úr tveimur síðustu skákunum. Skákin í gærkvöldi var mjög spennandi og einkenndist af miklu tímahraki Kortsjnojs. Að skákinni John i Kanada. lokinni tókust stórmeistaramir í hendur, en Kortsjnoj fór síðan rak- leiðis út í sal til eiginkonu sinnar sem tárfelldi af vonbrigðum. Er skákdómarinn gekk til hans og bað hann að undirrita skákpappír- ana virti Kortsjnoj hann ekki viðlits. Augu áhorfenda beindust að þessari einu skák í St. John í gærkvöldi. Frammistaða Jóhanns gegn þessum margrejmda meist- ara hefur vakið mikla athygli og eru þeir ekki margir lengur sem spá Kortsjnoj sigri í einvíginu. Ekki verður teflt í dag en fímmta skákin hefst kl. 19 á morg- un, laugardag. Sú skák gæti orðið hin síðasta í einvíginu, ljúki henni með jafntefli eða sigri Jóhanns. Sjá nánar á bls. 2,24 og 25. Samkomulag um verðlækk- un á brauðum og kökum Soðningin lækkar einnig um 8% SAMKOMULAG Verðlagsstofnunar og Landssambands bakarameist- ara um að lækka 'verð á brauðum og kökum var staðfest í verðlags- ráði í gær og kemur væntanlega til framkvæmda í dag. Bakarar taka tíl baka þá hækkun sem orðið hefur umfram áhrif breytinga á söluskatti og vörugjaldi í tvo mánuði. A fundi sínum í gær sam- þykkti verðlagsráð að lækka hámarkssmásöluverð á ýsu um 8%, en ákvörðun um lækkun bensinverðs var frestað til fundar ráðsins i næstu viku. Verðlagsráð gerði nýlega verð- könnun á brauðum og kökum og kom þá í ljós að verðið hafði hækk- að um 10—25% frá því í desember, en hækkun söluskatts og lækkun vörugjalds átti aðeins að leiða til 10,3% verðhækkunar. í framhaldi af því beindi Verðlagsstofnun þeim tilmælum til bakara að þeir lækk- uðu verðið aftur og í verðlagsráði kom fram tillaga um að færa verð- ið niður. Síðustu daga hafa átt sér stað viðræður á milli forystumanna bakara og Verðlagsstofiiunar sem leiddu til samkomulags rétt fyrir fund verðlagsráðs í gær. Georg Olafsson verðlagsstjóri sagði eftir fundinn í gær að í sam- komulaginu fælist að Landssam- „Ég hljóp ínn í reykinn og sótti strákinn minn“ „ÉG HLJÓP inn í reykinn þegar ég sá að húsið var fullt af reyk. Sótti strákinn minn og fór með hann út í bíl,“ sagði Jón Einars- son, bóndi á Bakka í Austur-Landeyjum, sem með snarræði bjargaði syni sínum úr eldsvoða í gær. Eldurinn kom upp um níuleytið í gærmorgun. Jón bóndi slökkti mesta eldinn með hand- slökkvitæki og nágrannar hans komu .fljótlega á vettvang og héldu eldinum í skefjum þar til slökkviliðið á Hvolsvelli kom á vettvang. Jón var við störf í fjósinu og varð eldsins var þegar rafinagnið fór. Þegar hann aðgætti betur sá hann að mikill reykur var í hús- inu. Hann snaraðist þá inn og sótti sjö ára gamlan son sinn sem svaf þar og fór með hann út. Hann reyndi að hringja í slökkvi- liðið en tókst ekki vegna mikils hita og reyks. Þá fór hann á næsta bæ og þaðan var hringt á slökkviliðið og á næstu bæi. Jóni og Eiríki Inga, syni hans, varð ekki meint af reyknum utan að Jón fann fyrir sviða í bijósti. Jón þakkar forsjóninni að ekki fór ver, en það var fyrir tilviljun að Eiríkur Ingi, sonur hans, svaf á neðri hæð. Þar sem hann var vanur að sofa var mun meiri reyk- ur. Hann sagðist vilja koma á framfæri þökkum til nágranna sinna og sveitunga sem hefðu sýnt rnikla hjálpsemi við erfíðar aðstæður. — Sig. Jóns. Jón Einarsson bóndi með 7 ára gamlan son sinn, Eirík Inga. bandið beindi þeim tilmælum til félagsmanna sinna að í tvo mánuði myndu þeir ekki hækka verðið nema um 10,3% miðað við desemberverð. Jafnframt hefði Verðlagsstofiiun lýst því yfír að henni væri ljóst að ýmsir hefðu að undanfömu hækkað vörur sínar minna en næmi kostnað- arhækkunum og gætu þeir fengið hækkanir í samráði við Verðlags- stofnun. Georg sagði að áfram yrði fylgst með verði á brauðum og kökum, en Verðlagsstofnun hefði þó enga ástæðu til að ætla annað en bakar- ar stæðu almennt við þetta samkomulag. Á félagsfundi hjá Landssam- bandi bakarameistara í gær var samkomulagið við Verðlagsstofnun samþykkt. Bakarameistarar kynntu sjónarmið sín einnig á blaðamanna- fimdi síðdegis í gær og kom þar fram að þeir telja sig ekki njóta sanngimi í verðathugunum Verð- lagsstofnunar þar sem stofnunin kanni aðeins verð á fáeinum teg- undum brauða. Þeir hafí hins vegar fallist á að beina tilmælum til fé- lagsmanna sinna að lækka verðið til að koma til móts við verðlagsyfir- völd í þeirri óvenjulegu stöðu sem atburðir síðustu vikna hefðu leitt þau í, þar til mál þeirra hefði verið skoðað sérstaklega. Lækkun hámarkssmásöluverðs á ýsu þýðir að kíló af flökum lækkar úr 304 kr. í 280 kr. Verðlagsstofn- un lagði þessa lækkun til vegna lækkunar á verði fisks á fiskmörk- uðunum, að sögn Gerogs Ólafsson- ar. Einnig mun Verðlagsstofnun beina þeim tilmælum til fisksala að þeir lækki aðrar tegundir samsvar- andi. Sagðist verðlagsstjóri vita til þess að umsvifamiklir fisksalar ætluðu að verða við þessum tilmæl- um. Sjá samþykkt bakarameistara og yfirlýsingu á bls. 35.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.