Morgunblaðið - 29.01.1988, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 29.01.1988, Blaðsíða 46
46 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988 Gunnlaug Thoraren- sen - Minningarorð Fædd 8. mai 1901 Dáin 28. desember 1987 Á björtum vordegi fyrir hartnær fímmtíu árum sá ég Gunnlaugu Thorarensen fyrsta sinni. Við höfð- um nokkrir skólastrákar úr MA farið í bæinn, en svo var tekið til orða er haldið var niður í miðbæ Akureyrar. Það var vorilmur í lofti og fuglasöngur og iðandi mannhaf á götum. Nálægt Ráðhústorgi mættum við þremur glæsijegum konum, vel klæddum að þess tíma sið og fyrir- mannlegum. Félagar mínir höfðu á orði að hér væru glæsilegar konur á ferð. Ég samsinnti því og bætti við að sú í miðið væri sýnu glæsi- legust. Einn félaga minna bar kennsl á konuna og sagði að þar færi frú Gunnlaug Thorarensen, kona Odds Thorarensen apótekara, eins af fyrirmönnum bæjarins, sem þekktur var m.a. fyrir að bjóða nemendum MA í bíó, nokkuð ár- visst. Ég kynntist ekki frú Gunnlaugu fyrr en að loknu námi, fyrir norð- an, þegar ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að eignast hana fyrir tengdamóður. Hún hafði þá um árabii verið húsfreyja á einu mynd- arlegasta heimili Akureyrar, en þau hjón voru annáluð fyrir rausn og höfðingsskap í hvívetna. Mín fyrstu t Móðir okkar, DAISY SAGA JÓSEFSSON, Fornhaga 17, Reykjavfk, lést í Borgarspítalanum mánudaginn 25. janúar. Hildur Lárusdóttir, Karólína Lárusdóttir, Lúðvík Lárusson. t Eiginkona mín og móðir okkar, GUÐRÚN ARNFRÍÐUR TRYGGVADÓTTIR, Hróarsholti, Flóa, lést í Sjúkrahúsi Suðurlands þriðjudaginn 26. janúar síðastliðinn. Gestur Jónsson og börn. t Hjartkær móðir okkar, ANNA MAGNÚSDÓTTIR frá Villingavatni, andaöist á Sólvangi í Hafnarfirði 27. janúar. Ragnhildur Þorgeirsdóttir, Magnús Þorgeirsson. t Eiginmaður minn og faðir okkar, WILLÝ FREDERIKSEN, lést í Danmörku 9. þessa mánaðar. Jaröarförin hefurfariðfram. Þökkum auðsýnda samúð. Sigrún Guðgeirsdóttir Frederiksen og dætur. t Móðir min, MARGRÉT JÓNSDÓTTIR, lést á Droplaugarstööum að morgni 28. janúar. Jón Þór Einarsson. t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, BJÖRN KON RÁÐSSON fyrrverandi bústjóri á Vífilsstöðum, Hagaflöt S, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Garöakirkju, Garðabæ, laugardaginn 30. janúar kl. 13.30. Þeim sem vildu minnast hans er bent á líknarfélög. Signhild Konráðsson, Sigurður Björnsson, Helga Magnúsdóttir, Ragnheiöur Björnsdóttir, Þorlelfur Björnsson, Borgþór Björnsson, Signhild Birna Borgþórsdóttir, Elísabet Björnsdóttir, Grótar Karlsson, barnabörn og barnabarnabörn. kynni af tengdamóður minni voru einstaklega góð. Hún tók mér með hlýju og elskulegheitum og vináttu. Þessi tengsl entust alla tíð og bar þar ekki skugga á. Frú Gunnlaug var greind kona og einkar glæsileg, glaðvær, hrein- skiptin og traustvekjandi. Hjálp- semi hennar var viðbrugðið og vildi hún öllum gott gera, þeim er á ein- hvern hátt hafði farið halloka í lífsbaráttunni. Þegar við hjónin héldum utan til framhaldsnáms áttu tveir synir okk- ar öruggt athvarf á heimili hennar árum saman og gekk hún þeim í móðurstað. Mér er ekki grunlaust um að eitthvað hafí þeir verið ódæl- ir í fyrstu, drengimir, en þeim lærðist fljótt að hlýða ömmu sinni og bera virðingu fyrir mildi hennar, umhyggju ogréttsýni. Drengskapur af þessu tagi og ósérplægni verður aldrei fullþakkað. Þegar Oddur, eiginmaður Gunn- t Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN JÓHANNESDÓTTIR, Kirkjuvegi 3, Víkf Mýrdal, verður jarðsungin frá Víkurkirkju laugardaginn 30. janúar kl. 14.00. Bílferð verður frá BSÍ kl. 10.00 f.h. Brandur Stefánsson, Jóhannes Brandsson, Þurfður Halldórs, Hrönn Brandsdóttir, Guöjón Þorsteinsson, Birgir Brandsson, Jóhanna Þórhallsdóttir, Höröur Brandsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Minningarathöfn um eiginmann minn, föður okkar, tengdafööur og afa, MAGNÚS GEIR ÞÓRARINSSON, sem fórst með mb. Bergþóri KE 5 þann 8. janúar sl., fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 30. janúar kl. 14.00. Ásta Erla Ósk Einarsdóttir, Einar Þórarinn Magnússon, Bryndís Sævarsdóttir, Guðbjörg Magnúsdóttir, Vignir Demusson, Sigurvin Bergþór Magnússon, Sævar Magnús Einarsson. t Minningarathöfn um sambýlismann minn, son okkar og föður, ELFARÞÓRJÓNSSON, sem fórst meö mb. Bergþóri KE 5 þann 8. janúar sl., fer fram frá Keflavíkurkirkju laugardaginn 30. janúar kl. 14.00. Halldóra Grótarsdóttir, Jón Þór Sigurjónsson, Rósa Arngrfmsdóttir, og börn. t Útför AÐALSTEINS SIGURJÓNSSONAR, Sölkutóft, Eyrarbakka, verður gerð laugardaginn 30. þ.m. kl. 14.00 frá Eyrarbakkakirkju. Vandamenn. t Þökkum innilega þeim sem auðsýnt hafa hlýhug og vináttu við fráfall og jaröarför SIGURÐAR ÁGÚSTSSONAR, Borgarkoti. Ingibjörg Pálsdóttir, Jón Sigurðsson, Ásta Sveinsdóttir. Lokað Lokað eftir hádegi í dag, föstudaginn 29. janúar, vegna jarðarfarar SIGRÍÐAR SIGURBJARGAR INGIBERGS- DÓTTUR. Lögmannsstofa Sveins Skúlasonar hdl., Hátúni 2B, Reykjavík. laugar féll frá, langt um aldur fram var það henni mikið áfall, en helju- skapur hennar og óvenjulegur styrkur kom þá vel í ljós. Kristbjörg systir Gunnlaugar og Ólivia mág- kona hennar áttu heimili í sama húsi á Akureyri og áttu þær ætíð öruggt athvarf á heimili hennar. Þær voru báðar fatlaðar og áttu erfíða ævi. Hún hjálpaði þeim og aðstoðaði af fádæma dugnaði og umhyggju. Að leiðarlokum skulu færðar þakkir fyrir vináttu, tryggð, um- hyggju og hjálpsemi. Ymsar minningar sækja á. Ég minnist sérstaklega þeirra ánægjulegu tímabila er tengdamóðir mín dvaldi á heimili okkar hjóna. Það stafaði af henni birta og glaðværð. Stund- um var gripið í spil og var hún þá einatt hrókur alls fagnaðar. Hún var ljóðelsk og fjöllesin, kunni kynstur af ljóðum og kvæðum og var raunar skáldmælt sjálf. Mest hélt hún upp á kvæðin eftir frænda sinn, Jónas Hallgrímsson og Einar Ben. Þegar heilsan fór að bila, kaus Gunnlaug að dvelja í átthögunum fyrir norðan. Síðustu árin dvaldi hún á Kristneshæli og naut þar frá- bærrar aðhlynningar og umhyggju til hinstu stundar. Hún andaðist hinn 28. desember sl. og fékk hægt andlát. Blessuð sé minning góðrar og gagnmerkrar konu. Hjalti Þórarinsson Mig Iangar í fáum orðum að minnast ömmu minnar, Gunnlaugar Thorarensen, sem lést á Krist- nesspítala þann 28. desember síðastliðinn, eftir nokkurra ára dvöl þar. Foreldrar ömmu voru Júlíus Gunnlaugsson bóndi á Hvassafelli og kona hans, Hólmfríður Áma- dóttir, bæði af norðlenskum bændaættum. Þau eignuðust sex böm og var amma elst þeirra. Systkini ömmu vom Benedikt, Kristbjörg, Freygerður, Pálmi og María, sem var yngst og sú eina af systkinunum, sem er á lífí í dag. Á Akureyri kynntist amma afa mínum, Oddi Carli Thorarensen, lyfsala. Hann lést árið 1964. Þau eignuðust þijú böm, Ölmu, Lydiu og Odd. Þegar foreldrar mínir vora bæði við nám ólst ég upp hjá ömmu og afa á Akureyri. Leið mér alltaf vel hjá þeim og bemskuminningamar eru mér kærar. Á meðan afí lifði var oft mjög erilsamt hjá ömmu. Tvisvar átti afí við alvarlega sjúkdóma að stríða og dvaldi þá langdvölum í sjúkra- húsum erlendis. Þá var amma ávallt við hlið hans og hjúkraði honum af einstakrí alúð. Þá sem endranær lifði hún eftir þeirri grandvallar- reglu að sælla er að gefa en þiggja. Eftir lát afa bjó amma í mörg ár með Kristbjörgu, systur sinni, og Oliviu, systur afa. Þær þurftu báðar umönnunar við og annaðist amma þær af stakri fómfysi. Ég kveð nú ömmu í hinsta sinn. Blessuð sé minning hennar. Þórarinn Birting af- mælis og minningar- greina Morgunblaðið tekur af- mælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldsiaust. Tekið er við greinum á rit- stjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafnar- stræti 85, Akureyri. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki era tekin til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfílegt er að birta ljóð eftir þekkt skáld, 1—3 erindi og skal þá höfundar get- ið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minningargreinar birtist undir fullu nafni höfundar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.