Morgunblaðið - 29.01.1988, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, PÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988
■ ÍTALSKA landsliðið í knatt-
spymu tók sér frí frá æfíngum nú
fyrir skömmu til að syngja inn á
litla hljómplötu. Lagið heitir
„Knattspyraa er ást“ og textinn
er samtal milli föður og sonar um
knattspymu. Ástæðan fyrir útgáfu
þessarar plötu er vaxandi ofbeldi á
knattspymuvöllum Ítalíu og á þessi
samsöngur landsliðsins að draga
úr þeim ósköpum. Plötunni verður
dreift ókeypis í skólum landsins.
Gianluca Vialli, leikmaður Samp-
doria syngur einsöng, en hinir
landsliðsmennimir og Azeglio Vic-
ini, landsliðsþjálfari, syngja bak-
raddir. ítalska landsliðið dvelur nú
f Flórens þar sem það æfír fyrir
Evrópumótið í knattspymu í júní.
■ ALEX Ferguaon fram-
kvæmdastjóri Manchester United
vill fá Mark Hughes aftur til liðs-
ins til að leika við hlið Brian
McClair f sókninni. Hughes leikur
nú með Bayem Miinchen, þrátt
fyrir að vera samningsbundin við
Barcelona og litlar lfkur eru á þvf
að v-þýsku meistaramir sleppi hon-
um, enda hefur hann staðið sig vel
sfðustu mánuði. Bayera hefur nú
iánað danska landsliðsmanninn
Lars Lunde til Aarau f Sviss og
því em útlendingamir aðeins þrír
hjá Bayera og litlar líkur til að lið-
ið láti Hughes fara.
■ AGNELLI, forseti FLAT-
verksmiðjanna ftölsku, mætti á
útileik Juventus gegn Como um
sfðustu helgi, og þótti það talsvert
fréttnæmt þar í landi því það er
" sjaldgæft að hann fylgist með liðinu
á útivöllum þó hann sé tíður gestur
er liðið spilar heima f Tórinó. Það
þótti ekki sfður fréttnæmt að Agn-
elli yfirgaf leikvanginn í fússi í
leikhléi, vegna þess hve liðið lék
illa. FIAT er aðaleigandi Juventus.
■ NÍGERÍUMENN hafa ákveð-
ið að taka upp atvinnumennsku í
knattspymu. Tilgangurinn með því
er að auka gæði knattspymunnar
og halda bestu leimönnum lands-
liðsins áfram í Nígeríu. Lögin taka
Sdi í febrúar 1989.
PATRIK Sjöberg, hástök-
kvari, var nú fyrir skömmu kjörinn
íþróttamaður ársins 1987 í Svíþjóð.
Sjöberg náði frábæmm árangri í
'fyrra og setti heimsmet er hann
stökk yfír 2,42 metra.
■ MANCHESTER United hef-
ur selt körfuknattleikslið sitt. Liðið,
sem ber sama nafn, hefur verið
rekið með tapi og í fyrra þurfti
Manchester United að borga
320.000 pund undir körfuknatt-
leiksiiðið. Það var selt einstakling-
um sem fá að halda nafninu út
keppnistímabilið.
■ MARC GiradeUJ mun ekki
taka þátt í brankeppninni í
Schladming f Austurriki á morg-
un, föstudag. Faðir hans og þjálfari,
Helmut Giradelli sagði að sonur-
inn væri enn að ná sér eftir að
hann datt i keppni í Leukeroad í
Sviss.
■ BORIS Becker frá Vestur-
Þýskalandi sigraði Ivan Lendl,
Tékkóslóvakíu f sýningarleik í
Osaka f Japan, 6:3, 1:6 og 6:2.
Steffi Graf frá V-Þýskalandi sigr-
aði Gabriela Sabatini frá Arg-
entínu, 6:0 og 6:1.
■ BOB Paialey fyrrum fram-
kvæmdastjóri Liverpool sagði í
viðtali við enska dagblaðið The Ti-
mes fyrir skömmu að 1. deildin
hafí aldrei verið jafn léleg. „Það er
staðreynd að þegar keppnistímabi-
lið hófst vom aðeins 5-6 lið sem
áttu möguleika á titlinum. Það vom
Liverpool, Everton, Arsenal,
Manchester United, Nottingham
Forest og Tottenham. Ég veit
ekki hvemig stendur á þessu, en
líklega hefur það áhrif að við emm
ekki með í Evrópukeppninni." Pais-
ley sagði þeir einu sem sem gætu
ógnað Liverpool væm erkifénd-
umir, Everton.
KNATTSPYRNA / 1.DEILD
I æfinga-
búðirtil
Bretlands-
eyja,
Belgíu og
Hollands
Fjögur 1. deildarlið í knattspymu
fara í æfíngabúðir til útlanda
til að undirbúa sig fyrir keppnis-
tímabilið. KR-ingar bregða sér til
Skotlands, þar sem þeir leika m.a.
við Hibs og Motherwell.
Nýliðar Leifturs frá Ólafsfírði fara
til London, Þór frá Akureyri fer til
Belgíu, þar sem Þórsarar leika m.a.
gegn Lokeren og Völsungar frá
Húsavfk bregða sér til Hollands.
KORFUBOLTI
Detroit Pistons
hingað í sumar?
BANDARÍSKA körfuknattieiks-
liðið Detroit Pistons spilar
hugsanlega 2-3 leiki hór á landi
í sumar. Fólagið leikur í NBA-
atvinnumannadeildinni og með
því leikur m.a. bakvörðurinn
frábæri Isiah Thomas, sem af
mörgum ertalinn einn snjall-
asti leikmaður í þeirri stöðu í
deildinni.
Félagið leikur gegn úrvalsliði
Stóra Bretlands í Wembley-í
þróttahöllinni í Lundúnum 24. júlí
nk. og barst Körfuknattleikssam-
bandi íslands nýlega bréf frá
umboðsmanni þeim sem skipulegg-
ur ferð Detroit-liðsins til Lundúna.
Þar kemur fram að félagið er tilbú-
in til að spila 2-3 leiki hérlendis
áður en það fer til Englands. „Okk-
ur lýst mjög vel á þetta og ætlum
að senda skeyti til baka þess efn-
is,“ sagði Kristinn Albertsson hjá
KKI í samtali við Morgunblaðið í
gær. „Við gemm allt til að fá þá
hingað,“ sagði Kristinn og bætti
við: „nema það kosti óheyrilega
mikið.“ Ekkert hefur enn verið
rætt um peningahlið málsins.
Verði af þessum leikjum mun
bandaríska liðið mæta úrvalsliði
sem sett verður saman af þessu
tilefni, og em allar líkur á að Pétur
Guðmundsson, sem leikur með San
Antonio Spurs í NBA-deildinni verði
í úrvalsliðinu. KKÍ vinnur nú að því,
að Pétur haldi námskeið fyrir böm
og unglinga hér landi í sumar og
fái jafnvel tvo bandaríska leikmenn
með sér til landsins til þess. Þeir
myndu þá einnig leika með úrvals-
liðinu ef af verður.
KA-menn stóöu svo sannar-
lega í efsta liði 1. deildar karla
í blaki um síðustu helgi. Leika
þurfti fimm hrinur til að ná fram
úrslitum og það var ekki fyrr
en Þorvaldur Sigfússon, einn
sterkasti maður ÍS, kom í
fimmtu hrinu, beint úr prófi,
að hlutirnir fóru að ganga upp
hjá ÍS. Þeir unnu sfðustu hrin-
una 15:10.
W
ANeskaupsstað unnu heima-
menn lið HSK og er þetta
annar sigur Norðfírðinga í vetur.
Þeir unnu HSK í fímm hrinu leik.
Hjá kvenfólkinu var líka hart barist
því þar unnu Þróttarar lið ÍS i fímm
hrinum ogtók leikurinn 110 mínút-
ur.
Nú er orðið ljóst að það verða HK,
KA, ÍS og Þróttur sem leika til
úrslita um íslandsmeistaratitilinn í
blaki en HK-menn tryggðu sér rétt-
inn til að leika í úrslitunum með
því að vinna Víking um helgina.
Leikurinn sá dróst óhóflega því
dómarar mættu ekki til leiks en um
síðir var hægt að flauta til leiks og
þá vom HK-menn mun sterkari.
Breiðabliksstúlkur héldu sigur-
göngu sinni áfram og unnu KA í
þremur hrinum og á miðvikudaginn
unnu þær lið ÍS, einnig 3:0, og
hafa Kópavogsstúlkumar unnið alla
sína leiki í vetur og aðeins tapað
einni hrinu!.
Þróttur vann Fram ömgglega 3:0
og ÍS léku sama leikinn gegn HSK
á miðvikuaginn.
í bikamum var keppt á þriðjudaginn
og þá áttust við A og B lið Vfkings.
Stúlkumar í A-liðinu unnu ömgg-
lega.
VIÐURKENNING
Ólafsfjörður:
Þorvaldur Jónsson
íþróttamaður ársins
Þorvaldur Jónsson fyrirliði
knattspymuliðs Leifturs,
sem vann sér sæti í 1. deild ís-
landsmótsins í sumar, hefur verið
útnefndur íþróttamaður ársins
1987 í ólafsfírði. Þorvaldur er
markvörður liðsins og var hann
einnig valinn knattspymumaður
ársins af knattspymudeild Leift-
urs f lok keppnistfmabilsins f
haust.
Val íþróttamanns ársins fer þann-
ig fram að kjömir fulltrúar allra
deilda Leifturs, ásamt fulltrúa
Útgerðarfélags Ólafsfjarðar,
kjósa besta fþróttamanninn, sem
fær til varðveislu farandbikar sem
Útgerðarfélagið gaf í þessum til-
gangi þegar togarinn Ólafur
Bekkur kom frá Japan á sfnum
tfma.
Morgunblaðið/Svavar B. Magnússon
LaHur BrynJóHsson, formaður Leifturs, afhendir Þorvaldi Jónssyni far-
andgripinn.
-
Isiah Thomas, leikmaðurínn snjalli hjá Pistons
BLAK / ÍSLANDSMÓTIÐ
KAstóðílS