Morgunblaðið - 29.01.1988, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 29.01.1988, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988 17 „Besta vatn í heimi“ eftirPál Gíslason Við íslendingar þurfum yfírleitt ekki að kvarta yfir því, að eiga ekki gott drykkjarvatn. Reyk- víkingar og nágrannabyggðir fá vatn sitt frá hinum frægu Gvend- arbrunnum og úr borholum í Heiðmörk. Við köllum það stund- um „besta vatn í heimi“, þegar við komum heim frá útlöndum. Aður fyrr var vatn fengið úr allmörgum brunnum víðsvegar í borginni, þar sem vatninu var dælt upp í fötur, sem voru svo bomar í hús. Maður getur ímynd- að sér, að nokkur hætta var á því að það mengaðist eða tapaði ferskleika sínum. Þá komu líka upp taugaveikifaraldrar, sem mátti rekja til sýkts vatns. Ein fyrsta stórframkvæmd, sem Reykjavíkurborg stóð fyrir, var lagning 'vatnsleiðslu frá Gvendarbrunnum til borgarinnar og síðan um allar götur og í hvert hús. Þetta skeði á ámnum 1908 og 1909 og var kostnaður 500.000 kr. á þá-virði. Geta allir ímyndað sér hver áhrif þetta hefur haft á alla lifnað- arhætti og hreinlæti á heimilum, svo og að fá nú hreint, tært og hressandi kalt vatn til drykkjar, hvenær sem óskað var. Þetta er nú talið svo sjálfsagt, að menn gleyma hve mikils virði það er. Ég man það, þegar ég var að læra heilbrigðisfræði hjá prófess- or Júlíusi Sigurjónssyni, þá sagði hann okkur, að rétt væri að áætla afköst vatnsveitu 250 lítra á mann á dag, þegar vatnsveita væri hönnuð (eins og nú er sagt). Fer þá mest af vatninu til hreinlætis og þvotta, en tiitölulega lítið til drykkjar — og svo undarlega vill til við síðustu mælingar, að þá nota Breiðholtsbúar, um 25 þús- und, einmitt þetta vatnsmagn á dag, en meðaltal vatnsnotkunar alls á veitusvæði Vatnsveitu Reykjavíkur er um 800 lítrar á mann, svo að mikið fer að sjálf- sögðu til atvinnurekstrar, en all-nokkuð því miður til spillis. Stendur til að bæta úr því eins fljótt og hægt er. Við, sem eldri emm, vomm alin upp við að drekka vatn við þorsta og með mat. Nú hefur borið allm- Páll Gíslason „Munum að við eigrim „besta vatn í heimi“, en það kemur ekki að gagni nema að við neytum þess daglega.“ ikið á því, að sykraðir drykkir hafi tekið við því hlutverki. Þegar við hugsum um, að við flytjum inn sykur, sem svarar til þess að hver Islendingur neyti um 65 kg af sykri á ári, þá fer ekki hjá því að okkur detti í hug, að þetta hafi ekki mjög góð áhrif á ríflegt holdarfar okkar margra og bágt ástand tanna. Það hefur margt verið skrifað um kúgun danskra einokunar- kaupmanna á öldum áður, en eitt má þó segja, sem jákvætt var heilsufarslega, en það var stað- reynd að ekki neyddu þeir sykri upp í landsmenn, enda tann- skemmdir litlar þá. Ég held að okkur sé -ijóst, að sykumeysla okkar er alltof mikil, t.d. um helmingi meiri en frænda okkar á Norðurlöndum og tann- skemmdir miklu fátíðari þar. Þetta er neysluvenja, sem við höfum smám saman tamið okkur og bömum okkar og þetta gífur- lega magn af sykri, sem gefur mikla orku (og oft fitusöfnun á líkamann), er algjörlega snautt af mikilvægum næringarefnum, sem nauðsynleg em til að halda góðri heilsu, Eitt er þó ónefnt, sem er þó ennþá verra, en það er hið mikla át á sykri í fljótandi eða föstu formi milli máltíða, þannig að sykur er stöðugt í munnvatni. Það eykur áhrif sýkla og ýmissa efna, sem em hinn mikli orsakavaldur tannskemmda. Á þetta sérstak- lega við um böm og unglinga. Nú er ég ekki að halda því fram að við eigum að hætta að drekka gosdrykki eða borða sælgæti, heldur að við eigum að gæta hófs eins og á fleiri sviðum. Við gætum t.d. bundið sælgæt- isát bama við helgamar, en lofað tönnunum að hvílast á milli. Við gætum líka dmkkið ískalt, ferskt vatnið með matnum hvers- dagslega, þó að við gerðum okkur dagamun á hátíðum. Munum að við eigum „besta vatn S heimi“, en það kemur ekki að gagni nema að við neytum þess daglega. Höfundur er yfirlæknir og fyrr- verandi akátáhöfðingi. (Frá HeUbrigðisráðuneytinu og Bandalagi ísienskra skáta). Ödýrt og endist lengi,lengi! viðþorsta! YDDA F5.2/SIA ■1_" •' r»-. /■/. w R ' - B ■ . jeae 1 pi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.