Morgunblaðið - 29.01.1988, Side 10

Morgunblaðið - 29.01.1988, Side 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988 Bókavarðatal Békmenntir Sigurjón Björnsson Bókavarðatal hefur ekki komið út áður og þar sem orðið er allangt síðan farið var að efna til bókasafna hér- lendis, þar sem bækur voru leigðar eða lánaðar almenningi, — og fólk þurfti til að annast vðrslu og útlán, — þarf ærið marga einstaklinga sam- an að tína í safn sem þetta. Þegar þess er og gætt að bókasöfn voru flest mjög lítil (t.a.m. söfti lestrarfé- laga i sveitum) og varsla lítt eða ekki launað aukastarf, stundum um skamman tíma, er líkiegt að erfitt sé að kollheimta bókaverði. En þetta er aðeins fyrsta smölun. í seinni leit- um koma vonandi eftirlegukindur. f formála ritsins og orðum útgef- anda að honum loknum kemur í ljós að útgáfa þessa rits hefur af ein- hveijum ástæðum tafist i nokkur ár. Er að sjá sem ritið hafi verið samið á árinu 1982 og handriti skilað 1983. Sú Qölgun sem orðið hefur í bóka- varðastétt og stétt bókasafnsfræð- inga á seinustu fimm árum, — og hún er án efa talsverð — kemur þvi ekki fram hér. Eins og við er að búast fer hér að sjálfsögðu mikið fyrir fólki frá eldri tímum, löngu látnu. Er margt af þvi sýnu kunnara af öðrum störfum sinum en vörslu bóka. En það er ein- sog við mátti búast, enda tekur höfundur það fram í formála að rit þetta sé ekki stéttatal í líkingu við lögfræðinga- eða guðfræðingatal. í starfs- eða æviskrám er greindur fæðingardagur, ár og fæðingarstaður viðkomanda. Foreldrar eru tilgreindir með sama hætti. Greint er frá mennt- un og starfsferli. Maki, ásamt gifting- ardegi og ári og fæðingardegi og ári, fæðingarstað og starfi. Foreldrar maka eru tilgreindir með sama hætti og áður. Hverri skrá lýkur með rita- skrá viðkomanda, þar sem það á við. Sú skrá virðist mér þó vera mjög misítarleg. Mynd fylgir flestum skránum. Að sjálfsögðu vantar mynd- ir af mörgum hinna elstu. Og raunar vantar fleiri myndir en ætla skyldi af þeim sem yngri eru. Skrámar fylgja í flestu gróinni hefð. Galli þykir mér þó að ekki skuli getið dánardags og árs viðkomanda og maka hans, þegar fólk er látið. Þær upplýsingar finnst mér eiga að vera ef á annað borð eru tilgreindir áfangar í ævi manns, s.s. fæðing, hjúskapur, starfsáfangar og fl. Skyldleikatengsl eru hérengin rak- in eins og stundum tíðkast í „tölum" sem þessum. Oft er þar vissulega of langt gengið. En eðlilegt held ég að hljóti að teljast að greina frá því ef foreldri, systkini, maki, systkini maka eða foreldri maka eiga einnig skrá f bókinni. Eins og að líkum lætur skarast þetta tal talsvert við ýmis önnur töl, einkum þó hið mikla Kennaratal. Guðrún Karlsdóttir Annars gegnir furðu hversu marg- háttuðum störfum bókaverðir hafa gegnt og fróðlegt að sjá hversu víða þeir koma við í þjóðfélaginu. En það er þó ekki annað en við má búast með þjóð þar sem einstaklingamir hafa mörgu þurft að sinna, einkum hinir hæflleikameiri, — og þjóðin löngum bókhneigð að sögn. Varla lfða mörg ár áður en nýtt og mun stærra bókavarðatal sér dagsins ljós. Verður sá róður miklum mun léttari. En í þeirri útgáfu kysi ég að sjá ágrip af sögu lestrarfélaga og bókasafna. Talsvert er til af sögu einstakra félaga og saftia, t.am. f héraðssöguritum, en heildaiyfirlit hef ég ekki séð. Slíkt ágrip á hér heima og ætti vitaskuld að vera verk bóka- varðar eða bókasafnsfræðings. Rit þetta er snyrtilegt útlits og vel frá því gengið í alla staði. spurt og svarad I Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINSI Staðgreiðslu- kerfi skatta HÉR Á eftir fara spurningar sem lesendur Morgunblaðsins hafa beint til þáttarins Spurt og svarað um staðgreiðslukerfi skatta og svör starfsmanna embættis ríkisskattstjóra við þeim. Húsaleigutekjur Guðrún Thorarensen spyr: Eiga húsaleigutekjur að gefast upp mán- aðarlega eða samkvæmt framtali eftir árið? Svar: Tekjur af útleigu húsnæðis eru utan staðgreiðslu og ber að telja fram á skattframtali eftir að tekjuári lýkur. Eftirágreidd desemberlaun Siguijón Þórarinsson spyr: Er leyfilegt að taka staðgreiðsluskatt af síðustu viku desembermánaðar 1987 þó hún sé greidd á þessu ári? Svar: Hér er nauðsynlegt að hafa í huga þann uppgjörshátt sem á hefur verið hafður undanfarin ár. Fram hefur komið að óheimilt er að breyta uppgjöri milli ára vegna gildistöku staðgreiðslu þannig að hafi til að mynda desembergreiðsla 1986 að einhveiju leyti verið talin til tekna 1987 hjá fyrirspyijanda þá ber að hafa sama hátt á upp- gjöri vegna desemberlauna 1987. Að öðru leyti eiga við ákvæði 60. gr. laga nr. 75/1981 um tekjuskatt og eignarskatt hvað varðar mörk tekna milli almanaksára. Húsnæðisbætur Halldóra Jónsdóttir spyr: Ég keypti 50% í íbúð 1987 sem ég eign- aðist að hálfu við skilnað 1983. Fæ ég húsnæðisbætur? Svar: Ekki koma fram nægilega miklar upplýsingar í spumingu fyT- irspyijanda þannig að unnt sé að svara afdráttarlaust hvort viðkom- andi eigi rétt á húsnæðisbótum eða ekki. Hins vegar eru almennar regl- ur þær sem gilda um húsnæðis- bætur að maður sem kaupir, byggir eða eignast á annan hátt í fyrsta sinn (búðarhúsnæði til eigin nota á rétt á sérstökum bótum, húsnæðis- bótum. Réttur þessi stofnast aðeins einu sinni fyrir hvem framteljanda. Rétturinn stofnast á því ári sem bygging húsnæðis er hafln eða keypt og varir í sex ár frá og með því ári. Sá sem skattlagður er skv. 63. gr. laga nr. 75/1981 um tekju- skatt og eignarskatt (hjón og Brlds Amór Ragnarsson Bridsdeild Barð- strendingafélagsins Átta umferðum er lokið í aðal- sveitakeppni félagsins og er staða efstu sveita þessi: Ragnar Þorsteinsson 178 Pétur Sigurðsson 159 Valdimar Sigurðsson 152 Ágústa Jónsdóttir 131 Anton Sigurðsson 128 Spilað er á hveijum mánudegi í Ármúla 40. Bridsfélag’ Hafnarfjarðar Sl. mánudag, 25.01., var spiluð þrettánda og síðasta umferðin í sveitakeppni félagsins og urðu úr- slit eftirfarandi: Sveit Valgarðs Blöndal 253 Sveit ólafs Gíslasonar 246 Sveit Drafnar Guðmundsdóttur 231 Sveit Sigurðar Steingrímssonar 230 Sveit Kristófers Magnússonar 225 Sveit ólafs Torfasonar 208 Sveit Þorsteins Þorsteinssonar 201 Sveit Þórarins Sófussonar 193 Sveit Ingvars Ingvarssonar 191 Sveit Jóns Gíslasonar 181 Sigursveitina skipa: Hrólfur Hjaltason, Kristján Blöndal, Einar Jónsson, Stefán Pálsson auk fyrir- liðans, Valgarðs Blöndal. Nk. mánudag 1. feb. hefst tölvu- gefinn barómeter-tvímenningur og em þeir sem hug hafa á að taka þátt í honum vinsamlegast beðnir um að tilkynna þátttöku hjá Ein- ari, s. 52941, Ingvari, s. 50189 eða Kristjáni, s. 50275. Bridsfélag Suðurnesja Gísli Torfason og Birkir Jónsson sigmðu í meistaramóti félagsins sem lauk sl. mánudagskvöld. Keppnin var mjög jöfn og spenn- andi og gátu t.d. 6 efstu pörin unnið mótið þegar einni umferð var ólok- ið. 18 pör tóku þátt í keppninni sem var Barometer-tvímenningur. Eftirtalin pör fengu yfír meðal- skon Gísli Torfason — Birkir Jónsson 72 Gísli ísleifsson — Kjartan Ólafsson 66 Jóhannes Ellertsson — Eiríkur Ellertsson 56 Heiðar Agnarsson - Hafstejnn Ögmundsson 45 Ragnar Öm Jónsson - Eysteinn Eyjólfsson 35 Sigurhans Sigurhánsson — Amór Ragnarsson 33 Heimir Hjartarson — Pétur Júlíusson 9 Næsta mánudag hefst meistara- mót félagsins í sveitakeppni. Spilað er í Golfskálanum í Leimnni og hefst spilamennska einhvem tfma á nfunda tímanum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.