Morgunblaðið - 29.01.1988, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988
15
Samband veitinga- og gistihúsa:
Borðvín sérpönt-
uð frá Frakklandi
Samband veitinga- og gistihúsa
hefur sérpantað borðvín frá
Frakklandi fyrir tíu veitinga-
hús. Þetta er Í annað sinn sem
sambandið stendur að slíkri
sérpöntun en að þessu sinni var
veitingamönnum boðið til
vinkynningar þar sem Jón Ár-
mannsson, ráðgjafi Sambands
veitinga- og gistihúsa, kynnti
nokkrar tegundir.
Jón sagði að hver víntegund
hefði sitt einkenni og spumingunni
um hvaða tegund hæfði hveijum
mat, væri erfítt að svara, slíkt
færi eftir smekk hvers og eins.
Ema Hauksdóttir framkvæmda-
stjóri Sambands veitinga- og
gistihúsa sagði að tilgangurinn
með sérpöntun sem þessari væri
sá, að gefa matargestum færi á
að kynnast öðmm vínum en þeim
sem Áfengisverslun ríkisins hefði
á boðstóiunum.
Vínin eru valin af Jóni Ár-
mannssyni og em frá helstu
vínræktarhémðum Frakklands.
Veitingahúsin, sem pantað er fyrir
em: Gullni Haninn Laugavegi 178,
Hallargarðurinn í Húsi Verzlunar-
innar, Hótel Óðinsvé við Óðin-
storg, Torfan Amtmannsstíg 1,
Við Sjávarsíðuna í Hamarshúsinu,
Þorscafé Brautarholti 20, Þrír
Frakkar Baldursgötu 14, Veit-
ingahúsið Hvammstanga, Hótel
KEA Akureyri og Alex Laugavegi
126. Boðið er upp á sex tegundir
af hvítvínum sem kosta 1.000 til
1.700 krónur flaskan og níu teg-
undir af rauðvíni sem kosta 1.000
til 2.700 krónur flaskan.
Áburðarverksmiðja ríkisins:
Beint samband við
slökkviliðið sl. tvö ár
f BRÉFI Rúnars Bjarnasonar slökkviliðsstjóra í Reykjavík tíl borgar-
ráðs kemur fram að Slökkvilið Reykjavíkur hafi ekki verið kallað til
í tveimur tilvikum, um og eftir síðustu áramót, þegar eldur kom upp
í Áburðarverksmiðju rikisins í Gufunesi. Að sögn Hákons Björnsson-
ar framkvæmdastjóra Áburðarverksmiðjunnar var komið á beinu
sambandi milli verksmiðjunnar og slökkviliðsins eftir að flugeldar
kveiktu í sinu við verksmiðjuna fyrir tveimur árum.
Hákon sagði ’að í fyrra tilvikinu um,“ sagði Hákon. „Ég man að
Jón Ármannsson skyggnir vínið
í glasinu.
um síðustu áramót hefðu menn
verið að vinna við rafmagnstöflu
þegar skammhlaup varð. Við það
sviðnaði umhverfís töfíuna en varð
aldrei að neinum eldi. Þrátt fyrir
það fór viðvörunarkerfi verksmiðj-
unnar í gang.
„Sem betur fer er það ekki oft
sem eitthvað þessu líkt kemur fyrir
og man ég ekki eftir öðrum tilvik-
vísu eftir að flugeldar kveiktu í sinu
á lóð verksmiðjunnar á gamlárs-
kvöld fyrir tveimur árum. Þá var
svo mikið álag á símakerfí borgar-
innar að ekki tókst að ná sambandi
við slökkviliðið nema með aðstoð
lögreglunnar. Þá tókst einnig að
slökkva eldinn áður en slökkviliði
kom á vettvang. Eftir þann atburð
var komið á breinu sambandi við
slökkviliðið."
Morgunblaðið/Þorkell
Veitmgamenn smakka vin undir leiðsögn Jóns Ármannssonar.
Um matarútgjöld
og barnabætur
O
INNLENT
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi athugasemd frá Ól-
afi ísleifssyni, efnahagsráðunaut
ríkisstjórnarinnar:
Forseti Alþýðusambandsins ber
mér á brýn (Morgunblaðið 26/1)
að hafa haft (frammi útúrsnúninga
í tilefni ályktunar miðstjómar ASÍ
um matarskatt. Forseti ASÍ hefur
þó í engu hrakið ummæli mín um
að ótækt sé að bera saman útgjöld
fjölskyldu og tekjur einstaklings.
Hann vefengir heldur ekki tölur sem
ég lagði fram um hækkun bama-
bóta og bamabótaauka.
Athugasemd mín stendur óhögg-
uð. Óeðlilegt er að bera saman
hækkun matvöruliðar framfærslu-
vísitölu um 5400 kr. og hækkun
lágmarkslauna um 2100 kr. á mán-
uði. í flestum fjölskyidum em tvær
fyrirvinnur, og hjón sem eiga böm
fá bamabætur. Engar tvær §öl-
skyldur búa að öllu leyti við sömu
aðstæður, en svo notuð sé viðmiðun
miðstjómar ASÍ um lágmarkslaun
má taka dæmi af fjölskyldu þar sem
bæði hjón vinna fyrir lágmarkslaun-
um og þar sem bömin eru tvö,
annað undir 7 árá aldri. í þessu
dæmi kemur fram sú niðurstaða,
að á móti 5400 kr. hækkun mat-
vöruliðar koma 4200 kr. hærri laun
og 3600 kr. hærri bamabætur eða
samtals 7800 kr. á mánuði.
Því er við að bæta að breytingar
á lágmarkslaunum em fjarri því að
vera órækur mælikvarði á almenna
launaþróun í landinu, enda munu
þeir fáir sem vinna fyrir eingöngu
lágmarkslaun.
Staðreyndum verður ekki hnikað
með því að kalla þær útúrsnúninga.
Sýnirí
Slunkaríki
BIRGIR Andrésson opnar sýn-
ingu á myndverkum sínum í
Slunkarfki á ísafirði laugar-
daginn 30. janúar nk.
Birgir hefur haldið einkasýning-
ar hér heima og erlendis. Auk
þess hefur hann tekið þátt í sam-
sýningum.
Sýningin í Slunkaríki verður
opin í mánuð.
Eittaf verkum
Birgis Andréssonar.
Morgunblaðið/ÁgÚ8t Blöndal
Félagar úr Þrótti á Neskaupstað vinna við sorphirðingu til fjáröflun-
ar fyrir starfsemi sína.
Sorphirðing og útskip-
un til fjáröflunar
^ Neskaupstað.
ÝMSAR leiðir eru faraar af fé-
lagasamtökum hér í bæ í fjáröfl-
unarskyni fyrir utan þær
hefðbundnu, eins og happdrætti,
flugeldasölu, bingó og basar.
Félagar úr björgunarsveit Slysa-
vamafélagsins og (þróttafélaginu
Þrótti hafa unnið við útskipanir til
fláröflunar fyrir starfsemi s(na með
góðum árangri. Þá hefur sá háttur
verið hafður á hér I bæ í nokkum
tíma að félagar úr Þrótti hafa séð
um sorphirðingu á staðnum. Bæjar-
félagið hefur lagt til öskubíl og
bílstjóra en Þróttarar sjá um afgang-
inn. Hinar ýmsu deildir innan félags-
ins skipta með sér verkinu, hver deild
einn mánuð ( senn og hefur þetta
fyrirkomulag sorphirðingar gefíst
vel.
— Ágúst.
Viö byrjum á fullu 1. febrúar, svo nú eru
síðustu forvöö að komast á námskeið í
Heilsugqrðinum. Hér að neðan er
tímatafla og námskeiðaskrá. Hringdu ef
þig vantar meiri
upplýsingar um
tímana. Síminn er
65 69 70 og 71.
1) Lífleg leikfimi fyrir kon-
ur á öllum aldri. Liðkandi
og styrkjandi æfingar,
teygjuæfingar, slökun,
góð tónlist. Kennari:
Lovísa Einarsdóttir.
Mánaöarkort kr. 2.320,-
2) Eróbikk, 3 sinnum í
viku. Kennarar: Kristín
Gísladóttir og Áslaug
Óskarsdóttir. Mánaðar-
kort kr. 3.480,-
3a) Leikfimi fyrir karla á
öllum aldri, styrkjandi og
liðkandi.
3b) Leikfimi (30 mín) og
tækjaþjálfun (30 mín) fyrir
karla. Kennari: Páll Ólafs-
son. Mánaðarkort kr.
2.320,-
4) Tækjaþjálfun (30 mfn)
og leikfimi (30 mín). Kenn-
ari: Ólafur Gíslason.
Mánaðarkort: kr. 2.320,-
5) Styrkjandi leikfimi fyrir
ungar hressar konur.
Áhersla lögð á maga, ráss
og læri, engin hopp. Góð-
ar teygjur.
o
HEILSUGAR0URINN
Garöalorgi 1, 210 Garðabæ,
simi : 65 69 70 - 65 69 71.
í tækjasal eru ’NautHus
þjálfunar- og endurhæfingar
tæki, sem eru viðurkennd fyrir
þjálfunarárangur. Einkaleyfisbundin
hönnun Nautilus tryggir að þeir vöðva-
hópar sem þjálfa á
hverju sinni, eru
undir hámarksálagi
allan tímann.'
6) Blandaðir tímar, leik-
fimi (30 mín), tækjasalur
(30 mín). Kennari: Ólafur
Gíslason. Mánaðarkort
kr. 2.320,- pr mann.
(Ódýrara fyrir hjón og
sambýlisfólk).
7) Skíðaæfingar í leik-
fimisal. Kennari: Ólafur
Gíslason. Mánaðarkort
kr. 2.320,-
8) Leikfimi fyrir eldri
bæjarbúa. Kennari:
Lovísa Einarsdóttir.
Mánaðarkort kr. 1.500,-
9) Létt morgunleikfimi fyr-
ir konur. Kennari: Lovísa
Einarsdóttir. Mánaðar-
kortkr. 2.320,-
Við byrjum
1. febrúar
:30 x} Kl 17:30
Kennarar: Elín Birna
Guðmundsdóttir og
Kristín Gísladóttir.
Mánaðarkort kr. 2.320,-