Morgunblaðið - 29.01.1988, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988
23
Skæður bráðadauðafaraldur
í A-Húnavatnssýslu:
Þijátíu og sex kýr
drápust í fyrra
BlSnduósi.
í Austur-Húnavatnssýslu urðu 36 kýr bráðadauðar á síðasta ári
og er það 3% af nyólkurkúastofninum i sýslunni. Ábúendur í Sauða-
nesi í Torfalækjarhreppi urðu hvað harðast fyrir barðinu á þessum
sjúkdómi, misstu 9 kýr eða um þriðjung af mjólkurkúastofni sinum
á siðastliðnu ári. Besta mjólkurkýrin í Sauðanesi varð svo bráðadauð
um síðustu helgi.
Þetta var fyrsta bráðadauðatil-
fellið í Austur-Húnavatnssýslu á
þessu ári. Að sögn Sigurðar H.
Péturssonar héraðsdýralæknis í
Austur-Húnavatnssýslu eru uppi
efasemdir um að hér sé um gama-
pest að ræða eins og greindist í kúm
frá Kagaðarhóli síðastliðið vor og
greint var frá hér í blaðinu. Sigurð-
ur sagði að bólusetning hefði ekki
haft nein áhrif á gang veikinnar
hvort sem notuð em innlend eða
erlend bóluefni. Sigurður H. Péturs-
son sagði að kýmar dræpust of
skyndilega til þess að um gama-
pest geti verið að ræða. Taldi hann
þetta vera líkara smiti en eitmn og
benti í því sambandi á að kýr sem
hefðu verið keyptar á þá bæi, þar
sem bráðadauðatilfelli em skæðust,
væm ekki eins viðkvæmar fyrir
veikinni. Að sögn Sigurðar bendir
það til þess að veikin sé þó nokk-
um tíma að búa um sig í kúnum.
Um gang rannsókna á þessum
alvarlega búfjársjúkdómi sagði Sig-
urður að ekkert hefði verið unnið
síðan í sumar og í raun stæðu menn
í sömu sporam eða jafnvel verr að
vígi því greiningin á gamapestar-
bakteríunni síðastliðið vor gaf
mönnum vissar vonir um lausn
vandans en sú kenning er óðum að
bresta og því er fátt um svör við
lausn þessarar gátu.
— Jón. Sig..
Morgunblaðið/Bjamj
Gunnar B. Kvaran við nýjasta verkið á sýningunni, sjálfsmynd Jóns
Oskars, málaða 1988.
Kjarvalsstaðir:
Sýning á sjálfsmynd-
um íslenskra málara
SÝNING á sjálfsmyndum eftir
íslenska myndlistarmenn verður
opnuð á Kjarvalsstöðum næst-
komandi sunnudag, 31. janúar,
kl. 14. Er þetta í fyrsta sinn sem
sýning sem þessi er haldin hér-
lendis og þó víðar væri leitað,
að sögn Gunnars B. Kvaran list-
fræðings en hann valdi myndir
á sýninguna. Um 70 sjálfsmyndir
verða sýndar og er sú elsta mynd
Sigurðar Guðmundssonar frá um
1850. Nýjasta myndin er svo
sjálfsmynd Jóns Óskars, máluð á
þessu ári.
Gunnar B. Kvaran sagði að
áhersla væri lögð á að sýna hverja
einstaka mynd, ekki samspil þeirra
eins og á flestum sýningum. Því
yrði reynt að haga lýsingu í sam-
ræmi við það. Yrði salurinn
myrkvaður og hver mynd lýst sérs-
taklega.
Mest er um olíumálverk á sýning-
unni en einnig má nefna vatnslita-
myndir, blýants- og krítarteikning-
ar og ljósmyndir. Gunnar sagðist
ekki hafa sett myndir af gjöming-
um á sýninguna þar sem gjöminga-
listamaðurinn væri oft stoð í sínum
verkum en ekki aðalatriði þeirra.
Meðal þeirra sem verk em eftir
á sýningunni má nefna Jóhannes
S. Kjarval, Nínu Tryggvadóttur,
Alfreð Flóka, Þórarin B. Þorláks-
son, Gunnar Öm, Rúrí, Júlíönu
Sveinsdóttur og Jón Stefánsson, en
hann mun vera eini íslenski mynd-
listarmaðurinn sem hefur gert
sjálfsmynd af sér sem málara.
Sýningin stendurtil 14. febrúar.
Skelveiðin er hafin
StykkÍBhólmi.
VERTÍÐ er nú hafin eftir ára-
mótin. Þrir bátar eru nú á
linuveiðum og svo eru skelveið-
arnar hafnar. Fiskvinnslustöðv-
arnar hafa því nokkuð umleikis
og allt kemur þetta atvinnulífinu
á hreyfingu. Fimm manns vinna
við beitingu á hverjum bát og
miklu fleiri að aðgerð aflans.
Þá er undirbúningur í fullum
gangi að netaveiðum sem nú em
skammt framundan og fólk í önn
við að ganga frá netum. Einn bátur
hefir bæst við flotann hér eins og
áður hefur verið sagt frá, Kópur
frá Stokkseyri, sem nú hefir verið
skírður upp og heitir nú Ársæll SH
88, en Ársæll sem fyrir var hér
með sama númeri var seldur til
Flateyrar og að tonnatali er hér um
aukningu að ræða. Aftur á móti
hefir m.b. Hrímnir verið seldur héð-
an úr bænum til Hólmavíkur.
— Árni
Engin
hækkun
heiltár
- Já, því ekki að segja frá því þegar allt verðlagskerfí landsins
riðlast, að í verslun okkar hafa húsgögn ekki hækkað - í það
heila tekið - síðan í febrúar í fyrra.
Síðan 1964 - þegar við byrjuðum að versla - hefur aldrei
verið hagstæðara að kaupa húsgögn en nú.
Yinningur
í verslun okkar eru öll húsgögn verðlögð á nettóverði - svo-
nefndu staðgreiðsluverði, sem að sjálfsögðu verður til þess að
þeir, sem kaupa með afborgunum hjá okkur, skaðast ekki um
staðgreiðsluafslátt, sem víða er 5-10% af útsöluverði - og aug-
ljóslega hrein viðbót við vexti.
Peningar
Greiðslukortin frá Visa og Euro eru peningar í verslun okkar
- eins og hverjir aðrir peningaseðlar - hvort heldur sem fullnað-
argreiðsla eða útborgun á kaupsamninga. Greiðslukortin eru
peningar okkar tíma - svo einfalt er það.
Auðvelt
Við bjóðum upp á léttar greiðsluraðir - í allt að 12 mánuði -
á afborgunarsamningum, sem greiða má af í hvaða banka sem
er - og samninga, sem kortafyrirtækin Euro og Visa gefa út
og annast innheimtu á, þér að fyrirhafnarlausu. Eurokredit og
Visa vildarkjör.
Öryggi
Dagsett sölunóta er ábyrgðarskírteini þitt, því við bjóðum 2ja
ára ábyrgð á gæðum efnis og vinnu húsgagnanna.
Úrval
Öll viljum við. eiga falleg heimili og það er gaman að versla
þar sem úrval er mikið - ef við gefum okkur til þess góðan
tíma. Berum saman hinar ýmsu gerðir og liti, mælum og met-
um gæðin og gerum verðsamanburð.
/ Húsgagnahöllinni er mesta og fjölbreyttasta úrval húsgagna
á íslandi - um það efast enginn sem lítur til okkar.
n
húsgagna»liöllin
M0BLER
REYKJAVÍK