Morgunblaðið - 29.01.1988, Síða 27
rrrnv//rrrrrr
rttfJk.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988
27
Svíþjóð:
Fylgst með sölu-
mönnum sem gætu
verið njósnarar
Ferðir sovéskra vöruflutninga-
bifreiða verði takmarkaðar
Stokkhólmi, Reuter.
HERMÖNNUM í bænum Ystad í Svfþjóð hefur veríð fyrírskipað að
vera á varðbergi gagnvart sölumönnum sem gætu veríð erlendir
tyósnarar. Til þessa ráðs var grípið eftir að þrálátur orðrómur hafði
gengið um að erlendir qjósnarar gengju á milli húsa i hemaðarlega
mikilvægum bæjum og seldu myndir til að geta fylgst með ferðum
háttsettra starfsmanna hersins. Ennfremur hefur sænska stjómin
lagt fram frumvarp um að ferðir sovéskra vöruflutningabifreiða
um Sviþjóð verði takmarkaðar vegna grunsemda um að þær séu
notaðar til njósna.
Hermönnum og öðrum starfs-
mönnum tveggja hersveita sem
staðsettar eru í Ystad hefur verið
sagt að útfylla eyðublöð ef ske
kynni að þeir tækju eftir grunsam-
legum sölumönnum á ferli, og
greina þar frá þjóðemi sölumann-
anna, hvað þeir væru að selja og
hvers vegna þeir þættu grunsam-
legir, að sögn talsmanns sænska
hersins, Jans Tuningers.
Einar Lyth, ofursti í sænska
hemum, sagðist f mars síðastliðnum
gmna að njósnarar sem seldu
myndir héidu uppi ósvífnum og
hrokafullum njósnum í opnu sam-
félagi Svíþjóðar. „Það sætir furðu
hversu opinskátt þeir njósna um
okkur," sagði Lyth. „Fágunina, sem
stórveldin viðhafa yfírleitt, skortir
alveg, þetta er frekar eins og hroka-
fulla kæruleysisfasið sem stórveldin
Reuter
Ronald Reagan, forseti Bandaríkjanna, klappar fyrír Hosni Mubar-
ak, forseta Egyptalands, við móttökuathöfnina f Hvita húsinu.
Mið-Austurlönd:
beita gagnvart þróunarlöndunum."
Ennfremur hefur sænska sijómin
lagt frumvarp um að ferðir erlendra
vömflutningabílstjóra, sem gmnað-
ir em um að njósna um sænskar
herstöðvar, verði takmarkaðar.
Þetta frumvarp, sem talið er víst
að verði að lögum, var lagt fram
eftir að stjómmálamenn og hátt-
settir menn innan hersins héldu því
fram að sovéskar vömflutningabif-
reiðir sem notaðar væm til njósna
ækju um Svíþjóð án þess að nokkuð
væri gert við því. Þeir sögðu að
bifreiðimar væm hlaðnar rafeinda-
tækjum og þeim ækju skriðdreka-
hermenn, sem væra að athuga
hvemig sænskir vegir myndu henta
ef til innrásar í Svíþjóð kæmi. Sov-
ésk stjómvöld vísuðu þessum
ásökunum á bug og kváðust engar
opinberar kvartanir hafa fengið.
Reagan styður til-
lögu Mubaraks um
friðarviðræður
WaahingtoD, Reuter.
RONALD Reagan, forsetí Bandarfkjanna, sagði í gær að treysta
mættí á fullan stuðning Bandaríkjastjórnar við tillögu Hosnis Mubar-
aks, forseta Egyptalands, um að komið verði á fríðarviðræðum um
Mið-Austurlönd og að ofbeldið á hemumdum svæðum ísraels verði
stöðvað f sex mánuði.
Reagan sagði meðal annars þeg-
ar hann bauð Mubarak velkominn
til viðræðna f Hvíta húsinu: „Ef
friður á að komast á, ef annað risa-
skref á að vera tekið, þá byggist
það að miklu leyti á Egyptum og
Bandaríkjamönnum." Mubarak
hvatti Reagan óbeint til að láta
ekki komandi kosningar koma í veg
fyrir að tillagan um friðaramræður
fái stuðning Bandaríkjastjómar.
„Við vitum að margar stjómir hafa
í mörgu að snúast vegna innanríkis-
rnála," sagði Mubarak. „En
mannkynssagan er ekki öll. Og það
er engin spuming, við verðum að
halda áfram."
Mubarak hafði unnið tillögu sinni
stuðning Vestur-Þjóðveija og Breta
á leið sinni til Washington.
Reuter
Mótmæli íMoskvu
Meira en hundrað manns tóku þátt í þögulum mótmælum fyrir framan Lenín-bókasafnið í Moskvu í gær.
Fólkið bar spjöld þar sem það krafðist þess að fá að fara úr landi. Á meðan mótmælendur stóðu utan
dyra fundaði alþjóðleg mannréttindanefnd, sem kennd er við Helsinki, inni í bókasafninu í boði sovésku
mannréttindahreyfingarinnar. Mótmælin fóm friðsamlega fram og lögregla lét fólkið óáreitt.
TOLLSKJÖL
INNRITUNTIL
1. FEB.
SIMI:
621066
Fjallað er um ný tollalög, tollverð og tollverðsákvörðun.
EUfí-reglur, nýjar aðflutningsskýrslur, nýja tollskrá
(H.S) o.fl.
Námskeiðið er eingöngu ætlað þeim sem þekkja til
tollmála og vinna við tollskýrslugerð.
LEIÐBEINENDUfí:
Karl Garðarsson viðskiptafræðingur
og Sveinbjörn Guðmundsson deildarstjóri.
TÍMI OG STAÐUfí:
3.-4. febrúar kl. 8:30 til 12:30 að Ánanaustum 15.
KONUR í STJÓRNUNARSTÖRFUM | 8.2.
INNRITUNTIL 5.FEB. KONUR STEFNA NÚ STÖÐUGT HÆRRA INNAN FYRIRTÆKJA. TIL STJÓRNUNARSTARFA HAFA PÆR ÝMSA EÐLISLÆGA HÆFILEIKA UMFRAM KARLA. ÞÁ HÆFILEIKA BER AÐ EFLA OG ÞETTA NÁMSKEIÐ STUÐLAR BEINLÍNIS AÐ ÞVÍ.
SÍMU 621066 EFNISÞÆTTIfí: Konur í stjórnun • Stjórnunarferlið / völd og pólitík • Þróun stjórnunarstíls • Akvarðanataka - lausnir • Hvatar til árangurs / myndun vinnuhópa • Að vera leiðtogi • Starfsdeiling • Starfsframi. LEIÐBEINANDI: Dr. Judith Mower frá Syracuse University. Hún er eigandi ráðgjafarfyrirtækis í Syracuse í New York, en fyrirtækið sérhæfir sig I stjórnun. Dr. Judith Mower hefur unnið á vegum fjölda þekktra fyrirtækja, svo sem Chrysler Corporation, Philips Corporation, Project Management Association of Women Business Owners. Hún ereinnig höfundur fjölda greina um stjórnun og samskipti. - Námskeiðið fer fram á ensku. TÍMI OG STAÐUfí: 8.-9. febrúar kl. 9.00-17.00 að Hótel Loftleiðum, Kristalssal.
INNRITUN ER AÐ LJÚKA í: Áœtlanir sem stjórntœki 1.-2. feb.
ATHUGIÐ! VR OG STARFSMENNTUNARSJÓÐUR BSRB STYRKJA FÉLAGSMENN SÍNA
TIL ÞÁTTTÖKU í NÁMSKEIÐUM SFÍ.
Stjórnunarfélag Islands
■ Ánanaustum 15 • Sími: 6210 66