Morgunblaðið - 29.01.1988, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988
35
Að hengja bakarameist-
ara fyrir stjórnvöld
FÉLAGSFUNDUR Landssam-
bands bakarameistara sendi í
gær frá sér eftirfarandi ályktun
og er fyrirsögnip bakarameist-
ara.
Félagsfundur Landssambands
bakarameistara haldinn 28. janúar
1988 ítrekar fyrri mótmæli við
álagningu söluskatts á matvæli og
harmar þær afleiðingar, sem hann
hefur á verðmyndun í landinu.
Frjáls verðmyndun hefur ríkt í verð-
lagningu brauð- og kökugerða
samkvæmt ákvörðun verðlagsyfír-
valda. Sérhvetju bakaríi er ætlað
að ákveða verðið með hliðsjón af
framleiðslukostnaði og markaðsað-
stæðum, án beinna afskipta Verð-
lagsstofnunar. Samkvæmt lögum
er Verðlagsstofnun þannig ætlað
að fylgjast með verðlagningu ein-
stakra bakaría en ekki gefa út
almennar tilskipanir um brauðverð.
Ennfremur er henni ætlað að fylgj-
ast með því að forsendur fijálsrar
verðmyndunar séu til staðar.
Stjómvöld hafa nú gripið inn í
þessa atburðarás og í raun sett
tímabundna verðstöðvun á brauð.
Landssambandi bakarameistara er
ljóst, að hækkun sú, sem varð á
brauðum í janúarbyijun, kom á
óheppilegum tíma. Fundurinn mót-
mælir hinsvegar eindregið þeim
fullyrðingum verðlagsstjóra og ein-
stakra aðila í verðlagsráði að
50 tonn
/ / X •
i roðn
Sifflufjörður.
VART hefur orðið við loðnu-
göngur í kringum Kolbeinsey og
bátar hafa fengið þar 50 tonn
af þorski í tvær netalagnir.
Símakerfíð fór úr sambandi hér
í bæ í fyrradag og sambandslaust
var frá því klukkan 10 um morgun-
in til klukkan hálf tíu um kvöldið.
Ástæðan mun vera sú að mastur
fór niður á Húsavíkurfjalli og gætir
mikillar óánægju hjá fólki með að
ekki skuli vera til varakerfi að grípa
til í tilfellum sem þessum.
Þá varð sá atburður í vikunni að
skip Dýpkunarfélags Siglufjarðar
komust undir íslenskan fána. Dýpk-
unarskipið heitir Grettir og dráttar-
báturinn Bjöminn.
Matthías
verðhækkanir á brauðum almennt
á síðasta ári hafí fram úr almennri
verðlagsþróun. Ennfremur lýsir
fundurinn furðu sinni á vinnubrögð-
um við nýgerða verðkönnun Verð-
lagsstofnunar, sem gefur engan
veginn rétta mynd af verðþróun eða
verðlagi brauða. Könnun þessi nær
einungis til mjög fárra vörutegunda
sem gefa engan veginn rétta mynd
af meðal hækkunum viðkomandi
fyrirtækja. Hún sýnir einungis
hækkanir á mjög skömmum tíma
en þar kemur ekki fram hvort rík
ástæða hafí verið til þeirra eða
hvort verðlag var hátt eða lágt á
viðkomandi brauðum fyrir og eftir
breytinguna.
Þær kannanir sem Landssam-
band bakarameistara hefur að
undanfömu gert og kynnt fyrir
Verðlagsstofnun sýna ótvírætt, að
full ástæða var til verðhækkana á
brauðum umfram það, sem breyt-
ingar á tolla- og skattalögum gáfu
tilefni til. Verðlagsstofnun hefur í
reynd viðurkennt þetta með því að
lýsa yfír, að þeir bakarameistarar
sem sýnt geta fram á slíka verð-
hækkunarþörf, geti hækkað í
samráði við stofnunina. Til þess að
koma til móts við verðlagsyfirvöld
í þeirri óvenjulegu stöðu, sem at-
burðir síðustu vikna hafa leitt þau
inní, vill Landssamband bakara-
meistara þó beina þeim tilmælum
til félagsmanna sinna að draga til
baka verðbreytingar á brauðum
umfram það, sem söluskattshækk-
un gaf tilefni til, þar til mál þeirra
hafa verið skoðuð sérstaklega. Það
skal tekið fram að hér er einungis
um tilmæli að ræða en landssam-
bandið getur ekki bundið hendur
einstakra félagsmanna í þessu máli,
enda bryti það f bága við verðlags-
lög.
Yfirlýsing
Þá sendi Sveinn Kristdórsson,
bakarameistari, frá sér eftirfar-
andi yfirlýsingu i gær.
Ástæður þess að fyrirtæki mitt,
Sveinn bakari, hækkaði verðið á
brauði og kökum umfram það, sem
nam söluskattshækkuninni nú í jan-
úarbyijun, er uppsafpaður vandi.
Þótt hækkanir hafí orðið meiri en
þau 10,4%, sem söluskatturinn
hækkaði um, þá hefur verðhækkun-
in verið innan þeirra marka sem
kostnaðarhækkanir og almenn
verðlagsþróun gefa tiíefni til, sbr.
eftirfarandi:
1. Meðalhækkun smásöluverðs
brauða á tímabilinu ágúst 1986
Námstefna um skjalastjóraun
verður haldin í fyrsta sinn hér á
landi dagana 29.- 31. janúar. Er
hún haldin að tilhlutan Áhuga-
hóps um skjalasfjóra og Menn-
ingarstofnun Bandaríkjanna i
Menningarstofnun Banda-
rfbjanna; Ameriska bókasafninu
að Neshaga 16. Aðalfyrirlesari
verður dr. James C. Bennett,
prófessor f viðskipta- og hag-
fræðideild ríkisháskóla Kali-
foraíu, en hann er þekktur
fræðimaður og fyrirlesari á sviði
skjalastjórnar.
Námstefnuna sækja fulltrúar
nokkurra stærstu fyrirtækja lands-
ins, kennarar og ráðgjafar í skjala-
stjóm, segir í frétt frá Áhugahópi
um skjalastjómun.
Á námstefnunni verður fjallað
um undirstöðuaðtriði í skjalastjóm,
myndun skjala, frágang, notkun,
til des. 1987 er 14,6%. Inni í
þessari hækkun er 10% sölu-
skattur sem kom á í ágúst 1987.
Þetta þýðir að bakaríið hefur
fengið 4,2% hækktm til sín á
17 mánuðum, á meðan al-
mennt verðlag (skv. fram-
færsluvfsitölunni) hækkaði
um 30,22%.
2. Meðalhækkunin frá águst 1986
til janúar 1988 (þ.e.a.s. eftir
hækkunina 8. janúar) á brauð-
unum er 35,7% og er 25%
söluskattur þar inní. Sé sölu-
skattshækkunin tekin frá og
lækkað um vörugjaldslækkunina
sést að bakaríið fær 11,82%
hækkun til sín. Á sama tíma-
bili hækkaði verðlag (skv.
framfærsluvísitölunni) um
35,05%.
Sveinn Kristdórsson
Loðnuveiðin:
Þróarrými fyrir
austan er á þrotum
Loðnuskipin mokfiska enn út af Gerpi og er aflinn frá áramótum
kominn upp f 204.000 tonn. Þróarrými af þessum sökum var aðeins
á Seyðisfirði af Austfjarðahöfnunum. Skipin fóru þvi ýmist norður,
suður eða til Færeyja með afla sinn.
Aflinn á þriðjudag varð samtals
12.155 tonn. Auk þeirra skipa, sem
áður er getið, fór Fífíll GK með 590
tonn til Reyðarfjarðar.
Á miðvikudag varð aflinn 21.800
tonn af 28 skipum, sem flokkuð eru
eftir löndunarstað: Til Siglufjarðar
Þórður Jónasson EA með 700,
Hilmir SU með 1.000, Súlan EA
790, Harpa RE 630, ísleifur VE
Hafnarfjörður:
Ráðstefna um
umferðarmál
Námstefna um
skjalastjóm
BANDALAG kvenna í Hafnar-
firði gengst fyrir ráðstefnu um
umferðarmál og umferðaröryggi
á morgun, laugardaginn 30. jan-
úar. Ráðstefnan er haldin f tilefni
af þjóðarátaki f umferðarmálum
og vegna þess að ný umferðarlög
ganga f gildi 1. mars. í fréttatil-
kynningu segir að bandalaginu
þyki við hæfi að leggja sitt af
mörkum tíl að leita leiða til úr-
bóta í umferðarmálum með þvf
að ræða ýmsa þætti þessara
vandmeðförau mála. Ráðstefnan
fer fram í félagsálmu íþrótta-
hússins við Strandgötu og
stendur frá klukkan 10-15.
Erindi á ráðstefnunni flytja
Salóme Þorkelsdóttir alþingismað-
ur, Þengfíll Oddsson héraðslæknir,
Óli H. Þórðarson framkvæmdastjóri
Umferðarráðs, Sólveig Biynja Grét-
arsdóttir formaður Umferðamefnd-
ar Hafnarfjarðar, Sigrún Ólafs-
dóttir fulltrúi hjá Umferðarráði og
Kristín Pálsdóttir hjúkrunarfor-
stjóri.
Ráðstefnan er opin öllum en
mælst er til að þátttaka sé tilkynnt
í síma 53510 eða 50919.
740 og Gísli Ámi RE með 650 tonn.
Albert GK fór til Grindavíkur með
700 tonn. Á Seyðisfjörð fóm Hilm-
ir II SU með 580, Dagfari ÞH 510
og Bergur VE með 530. Til Eski-
fjarðar fóru Guðrún þorkelsdóttir
SU með 710, Júpíter RE 1.340,
Eskfírðingur SU 610 og Jón Kjart-
ansson SU með 1.100 tonn.
Guðmundur Ólafur ÓF fór til Ólafs-
Qarðar með 600 tonn. Eldborg HF
fór með 1.450 til Akraness, Magnús
NK með 520 til Reyðarfjarðar og
Helga II RE 530, Gullberg VE 620
og Galti ÞH til Þórshafnar með 510
tonn. Börkur NK fór með 1.300_til
Neskaupstaðar, og Húnaröst ÁR
600 til Bolungarvíkur. Til Vest-
mannaeyja fóm Sigurður RE 1.400,
Sighvatur Bjamason VE 700 og
Kap II VE með 700 tonn. Keflvík-
ingur KE fór með 530 til Raufar-
hafnar. Loks fóm Öm KE melF75Q*»
og Grindvíkingur GK með 1.000 til
Færeyja.
Fá skip vom eftir á miðunum á
fimmtudagsmorgun. Þá fóm Víkur-
berg GK með 560 tonn og Svanur
RE með 715 til Raufarhafnar. Beit-
ir NK fór til Siglufjarðar með 1.220,
Víkingur AK með 1.350 til Akra-
ness og Hilmir II SU með 580 til
Seyðisfjarðar. Hákon ÞH var með
1.000 tonn, en löndunarstaður var
óákveðinn.
varðveislu, eyðingu.geymsluáætl-
un, upplýsingaleit og endurheimt,
öryggismál, tölvuvæðingu og örfíl-
munotkun. Ennfremur verður rætt
um íslensk lög er varða geymsl-
utima skjala.
Skjalastjóm er kerfisbundin
stjóm á skjólum frá því þau verða
til í fyrirtæki eða stofnun eða ber-
ast að, stjóm á merkingu þeirra ,
dreifíngu, vistum og endurheimt,
allt þar til þeim er komið í endan-
lega geymslu eða þeim eytt.
Dr. Bennett mun flytja fyrirlestur
um skjalastjóm í stofu 101 í Odda,
húsi hugvísindadeildar Háskóla ís-
lands, mánudaginn 1. febrúar kl.
17.15 og er hann opinn öllum sem
áhuga hafa. í tengslum við nám-
stefnuna verður sýning á margs
konar búnaði í tengslum við skjala-
stjóm og verður hún opin almenn-
ingi mánudag 1. febrúar frá kl. 14
til 17 í Ameríska Bókasafninu.
Fyrirlestur um
elli og sjúkdóma
FYRIRLESTUR á vegum Félags
áhugamanna um heimspeki og
heimspekideildar Háskóla ís-
lands verður haldinn sunnudag-
inn 31. janúar nk. Fyrirlesarinn
verður Millers Browns heim-
spekiprófessor við Trinity Coll-
ege í Connecticut.
Erindi Miller Brown nefnist
„Ageing and Disease" og fjallar um
eðli sjúkdóma og hvort rétt sé að
líta á elli sem einhvers konar sjúk-
dóm.
Miller Brown hlaut doktorsgráðu
frá Harvard-háskóla árið 1970 og
hefur kennt síðan við Trinity Coll-
ege. Hann er að vinna að bók um
eðli sjúkdóma, einkum og sér í lagi
geðsjúkdóma, með sérstöku tilliti
til félagslegrar stefnumótunar. Á
undanfömum árum hefur hann birt
ýmis rit um tengd efni.
Fundurinn hefst kl. 14.30 í stofu
101 í Lögbergi, húsi lagadeildar,
og er öllum opinn.
Leiðréttíng
Kynning á Einari Emi Stefánssyni
með grein hans í gær var röng.
Hann er framkvæmdastjóri Sam-
bands ísl. bankamanna. Blaðið biðst
velvirðingar á þessum mistökum.
Námskeið
í græðslu
HARALD Thiis frá Noregi
heldur byijendanámskeið
fyrir græðara i Gerðubergi
dagana laugardaginn 30. og
sunnudaginn 31. janúar.
í fréttatilkynningu segir að
námskeiðið sé hið fyrsta í röð
fjögurra sem efnt verður til um
græðslu. Námskeiðaröðin eigi
að gefa fólki möguleika á að
öðlast betri heilsu.
Þátttökugjald er krónur
4800. Væntanlegir þátttakend-
ur geta skráð sig hjá Nönnu
Ólafsdóttur i og Guðríði Péturs-
dóttur. Námskeiðið stendur frá
klukkan 10-19 á laugardag og
fráklukkan 10-17 ásunnudag.