Morgunblaðið - 29.01.1988, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988
Maraþonkeppni í
blaki hjá níunda bekk
StykkishAImi.
NÍUNDI bekkur Grunnskólans arins. í ferðasjóðinn hafa þau
í Stykkishólmi efndi til mara- safnað með ýmsu móti og var
þonkeppni i blaki, þ.e. bekkur- maraþonkeppnin einn liður í söfn-
inn „blakaði“ i heilan sólar- uninni.
hring- án þess að stoppa. Þar sem krakkamir hafa æft
Tilgangur þessarar keppni var blak í vetur þótti þeim sjálfsagt
að safna áheitum bæjarbúa í að kynna íþróttina og datt því í
ferðasjóð. hug að efna til maraþonkeppni
Níundi bekkur Grunnskólans um leið og þau söfnuðu í ferða-
hefur á hverju vorið farið í ferða- sjóðinn. Maraþonkeppnin hófst
lag til að kynnast landinu og laugardaginn 23. janúar og stóð
skoða helstu sögustaði um leið. yfír fram á sunnudagsmorgun.
Þetta hafa verið þriggja til fjög- Keppnin var haldin í íþróttahús-
ura daga ferðir og þykja ferðimar inu.
góðartilhugarléttiseftirönnvetr- — Árni.
Morgunblaðið/Ámi Helgason
Hópurinn sem blakaði í heilan sólarhring. Þetta eru nemendur
í nfunda bekk Grunnskólans i Stykkishólmi og var tilgangurinn
með maraþonkeppninni að safna í ferðasjóð nemendanna.
Bíóhöllin:
Mynd Mel Brooks
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson.
Fulltrúar nemendafélags Fjölbrautaskóians, Þorvaldur Snorrason gjaldkeri og Sigurður Eyþórsson form-
aður ásamt Kjartani Valgarðssyni við einn af nýju sjálfsölunum.
Alíka ábyrgð að selja
smokka og fallhlífar
Fyrirtak á Selfossi flytur inn smokkasjálfsala og hefur
þýtt upplýsingabækling um kynsjúkdóma
Selfossi.
FYRIRTAK, einkafyrirtæki á
BÍÓHÖLLIN hefur hafið sýningar
á grínmynd þar sem framleiðandi
og leikstjóri er Mel Brooks, en
hann leikur einnig eitt aðalhlut-
verkið ásamt John Candy og Rick
Moranis.
Myndin gerist á plánetu sem heitir
Geimkúla. Erfíðleikar hafa gert vart
við sig þar sem menn hafa eytt og
sóað andrúmsloftinu. Því gerir
Skrúbb forseti (Mel Brooks) út leið-
angur til að afla birgða lofts á annarri
plánetu til þess að þegnar hans geti
haldið lífí, þótt það leiði til dauða
þeirra sem rændir verða loftinu, seg-
ir f fréttatilkynningu.
Selfossi, flytur inn og selur
smokka frá RFSU í Svíþjóð. Fyr-
irtak hóf nýlega innflutning á
smokkasjálfsölum og voru tveir
fyrstu sjálfsalarnir settir upp í
Fjölbrautaskóla Suðurlands.
Fyrirtak hefur þýtt lftinn upplýs-
ingabækling sem fylgir einni
gerð smokkanna. Landlæknir lo-
far mjög það framtak og segir
til fyrirmyndar.
Sjálfsalamir sem Fyrirtak flytur
inn eru gerðir fyrir 50 krónu pen-
inga og pakkningamar í þeim eru
með leiðbeiningum á íslensku.
Sama er að segja um áletranir á
kössunum sjálfum, þær eru á
íslensku. Kjartan Valgarðsson eig-
andi Fyrirtaks sagði smokkasöluna
hafa aukist jafnt og þétt og janúar-
mánuður verður metmánuður í sölu.
Smokkunum frá RFSU væri vel
tekið sem væri í takt við markaðs-
hlutdeild þeirra á hinum Norður-
löndunum þar sem þeir eru
algengastir.
Smokkamir sem Fyrirtak flytur
inn eru sænskir, frá Landssamtök-
um um kynlífs- og samlífsfræðslu
í Svíþjóð, RFSU, „Riksforbundet för
sexuell upplysning". RFSU er
stofnun þar sem einkahagsmunir
ráða ekki ferðinni og hagnaðinum
af smokkasölunni er varið til upp-
lýsingastarfsemi um kynlíf og
samlíf, um kynsjúkdóma og til
rannsóknarstarfsemi.
RFSU smokkamir eru undir
mjög ströngu gæðaeftirliti sem er
enn strangara en innflutningseftir-
litið með þessari vöru er í Svíþjóð.
Þar eru teknir 400 smokkar úr
hverjum 150 þúsund og prófaðir.
Annar helmingurinn fer í vatns-
þrýstiprófun og hinn í loftþrýstings-
próf. Ef eitt prósent smokkanna
reynist gallað er innflutningur
bannaður á þeim.
Á hinum Norðurlöndunum eru
gerðar prófanir á innfluttum
smokkum en hér á landi eru engar
prófanirgerðar. Landlæknisembæt-
tið hefur óskað eftir fé til slíkra
prófana en ekki fengið. Hins vegar
eru innflytjendur beðnir um upplýs-
ingar um það hvemig gæðaeftirliti
yfírvalda í framleiðslulandinu er
háttað.
Bæklingurinn fær
lofsorð landlæknis
Bæklingurinn sem Kjartan Val-
garðsson hjá Fyrirtaki þýddi ber
heitið Nokkrar ráðleggingar um
notkun smokksins, ásamt ísköldum
staðreyndum um kynsjúkdóma.
Landlæknir segir bæklinginn prýði-
lega vel gerðan og þetta sé lofsvert
framtak hjá fyrirtækinu. Fyrirtækið
er brautryðjandi í því að vera með
leiðbeiningar á íslensku með þess-
ari vöru. Olafur Ólafssn landlæknir
sagði að embætti hans styddi það
að bæklingnum væri dreift og mun
embættið meðal annars geraþað á
heilsudögum í Kringlunni. Olafur
sagði að vörur af þessu tagi frá
Norðurlöndunum væru í sókn vegna
öryggis þeirra prófana sem þar
væru framkvæmdar.
Bæklingurinn er þýddur úr
sænsku og þar er að fínna ráðlegg-
ingar um notkun smokksins, ásamt
staðreyndum um kjmsjúkdóma, ein-
kenni, hættur, meðferð og út-
breiðslu þeirra. Það er einsdæmi
að einkaaðili gefí út slíkan bækling
og staðfæri að íslenskum aðstæð-
um.
„Mér fínnst það sjálfsagt mál að
það sé á íslensku sem maður lætur
frá éer. Það er ekkert mál að standa
svona að þessu, það er bara spum-
ing um vilja," sagði Kjartan
Valgarðsson eigandi Fyrirtaks.
Hann sagðist hafa metnað fyrir því
að hafa fslenska þýðingu með þeim
vörum sem hann flytti inn.
„Aðalatriðið í bæklingnum eru
upplýsingamar um kynsjúkdóma
sem mér fannst rétt að kæmust til
skila á íslensku. Líka með tilliti til
þess að smokkurinn er eina getnað-
arvömin sem getur komið í veg
fyir kynsjúkdómasmit. Vilji menn
vara sig á slíku smiti er ekki verra
að nota smokka sem eru undir
ströngu gæðaeftirliti. Það er nefni-
lega álíka ábyrgð að selja smokka
og fallhlffar. Þú skilar ekki aftur
fallhlíf sem ekki opnast og sama
er að segja um smokk sem rifnar
eða er götugur.
Það er líka ábyrgðarhluti að selja
smokka í landi þar sem ekkert eftir-
lit er með því sem er á markaðnum.
Þegar ekkert eftirlit er fyrir hendi
er hætta á því að verið sé að selja
smokka sem ekki standast gæða-
kröfur, rifna gjaman eða eru
götóttir," sagði Kjartan Valgarðs-
son um útgáfu bæklingsins og
innflutning og dreifíngu fyrirtækis
hans á smokkum. Við dreifingu
smokkanna frá RFSU sem hann
hefur einkaumboð fyrir sagðist
hann leggja ríka áherslu á gæði
vörunnar sem byggðust á ströngum
prófunum. Þeirra prófana er getið
í bæklingnum sem Kjartan þýddi.
Á einu af veggspjöldunum sem
Fyrirtak hefur látið gera er smokk-
urinn nefndur fíjópoki og talað um
Ifyrirtaks ftjópoka, mögulegt nýyrði
f þessu efni.
Sig. Jóns.
Útivist:
Gönguferð
um gamla
verleið á
sunnudaginn
FERÐAFÉLAGIÐ Útivist efnir
til gönguferðar sunnudaginn 31.
janúar. Gönguferðin er til að
minna á ferðir sjómanna á fyrri
tið og er tilefnið að vetrarvertíð
á Suðurlandi hófst jafnan á þess-
um tíma, þ.e. um kyndilmessu.
Kyndilmessa er 2. febrúar en þá
áttu sjómenn að vera komnir til
skips.
Gengið verður um Skipsstíg sem
er gömul verleið til Grindavíkur. í
lok göngunnar verður skoðuð Jám-
gerðarstaðavör í Grindavík. Brott-
för er frá BSÍ.
Aðrar ferðir sem Útivist býður
upp á þennan sama dag eru ferð-
að GuIIfossi í klakaböndum og Geysi
kl. 10.30 og á sama tíma verður
nýjung sem er miðdegisganga á
skíðum. Farið verður á Bláfjalla-
svæðið og gengið þar um á skfðum
í 3 klukkustundir.
Rick Moranis og Mel Brooks eru aðalleikarar í grínmynd sem Bió-
höllin hefur hafið sýningar á.
(hvítar).
★ Efnaiðnað (grænar).
★ Snjó (rauðar).
★ Landbúnað og til almennra nota (appelsínugular).