Morgunblaðið - 29.01.1988, Síða 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 1988
Mm
FOLK
■ SANDRO Altobelli, ítalski
landsliðsmaðurinn hjá Inter
Mílanó, var sektaður af forráða-
mönnum félagsins um kr. 162 þús.
krónur. Hann var sektaður fyrir að
hafa kasta peysu sinni niður á völl-
inn - þegar hann mótmælti að vera
tekinn af leikvelli í leik gegn Pesc-
&!*&•
jJS STUÐNINGSMAÐUR
ítalska 2. deildarfélagsins Brescia,
mætti með sög á völl félagsins í
vikunni. Hann sagaði mörkin á vell-
inum niður í búta. Þetta gerði hann
til að mótmæla lélegum árangri
liðsins að undanfömu.
■ SPÁNVERJAR urðu að sætta
sig við jafntefli, 0:0, gegn A-Þjóð-
veijum í vináttulandsleik í knatt-
spymu sem fór fram í Valencia á
miðvikudagskvöldið. 22 þús. áhorf-
endur sáu a-þýska liðið leika
vamarleik og átti markvörðurinn
Rena MUller mjög góðan leik.
■ A-ÞÝSKA landsliðið var í æf-
ingabúðum á Kanarýeyjum fyrir
landsleikinn í Valencia. Þar stökk
Konrad Weise, fyrrum landsliðs-
maður (88 landsleikir) A-Þýska-
lands „frá borði" og hefur hann
óskað eftir hæli í V-Þýskalandi
sem pólitískur flóttamaður. Fyrir
viku strauk annar gamalkunnur
knattspymumaður frá A-Þýska-
landi. Það er Jttrgen Sparwasser,
fymim leikmaður Magdeburg.
Hann strauk í V-Þýskalandi.
■ ÞAÐ eina sem Sheffield
Wed. fékk upp úr viðureignum
sínum við Everton i bikarkeppninni
~ elisku, er 250 þús. sterlingspund í
kassann. 142 þús. áhorfendur komu
til að sjá fjóra leiki félaganna.
■ MICHAEL Laudrup, leik-
maður hjá Juventus á Ítalíu,
verður frá keppni í tíu daga. Hann
fékk slæmt spark í ökkla i leik
gegn Como um sl. helgi. Um tíma
var haldið að væri jafnvel fótbrot-
inn. Laudrup fékk spark í ökklann
eftir aðeins fimm mín. „Ég lék þá
á Annoni og var á leiðinni með
knöttinn að marki Coma. Þá kom
Annoni hlaupandi á eftir mér - síðan
lá ég á vellinum," sagði Laudrup.
■ SCHALKE í V-Þýskalandi
hefur keupt danska knattspymu-
manninn Alex Nielsen, 20 ára
^sÖknarleikmann - frá Næstved á
kr. 7.2 milljónir. Axel mun þar leika
við hliðina á félaga sínum Bjarne
Galdbæk, sem Schalke keypti á
kr. 1.8 millj. sl. september.
D CLAUSNielsen, 24 ára Dani,
er næsti „gullfugl" meistaraliðsins
Bröndby. I vikunni komu útsendar-
ar frá ítölsku félagi til Danmerkur,
til að ræða um kaup á Nielsen og
var honum boðið tveggja ára samn-
ingur. ítalska félagið sem vill fá
Nielsen, hefur farið fram á það að
nafni þess verði haldið leyndu um
tíma. Bröndby mun fá kr. sex
millj. fyrir Nielsen.
D GRÍSKA knattspymufélagið
AEK Aþena hefur keypt danska
knattspymumanninn Kim Ras-
mussen frá Hvidovre á kr. 2.4
milljónir.
D S-KÓREUMENN taka við
olympíueldinum 27. ágúst. Þeir
taka við kyndlinum með olympíu-
eldingum á eyjunni Cheju, sem er
fyrir utan strönd S-Kóreu. Þaðan
skiptast um 21 þús. íþróttamenn
á að hlaupa með kyndilinn til
Olympíuleikvangsins í Seoul -
4.163 km leið. Olympíuleikamir
verða settir 17. september.
D ÍSRAELSMENN og Frakkar
gerðu jafntefli, 0:0, í vináttulands-
leik í knattspymu í Tel Aviv á
miðvikudagskvöldið
D MANCHESTER City lánaði í
gær miðvallarspilarann Kevin
Langley til 3. deildarliðsins Chest-
er. Man. City keypti hann frá
Ehrerton á 100 þús. pund fyrir
tveimur árum.
SJÓNVARP
Knattspyrnuveisla hjá Stöð 2 á morgun:
Bein útsending frá viðureign
Man. Utd. og Chelsea á Old Trafford
Stöð 2 hefurtryggt sér rétt til að sýna frá leikjum í ensku bikarkeppninni
Hoyrðl ég rétt...Verð ég I sviðsljós-
inu i Stöð 2 á íslandi, getur Colin
Gibson, leikmaður Man. Utd. verið að
hugsa.
KNATTSPYRNUÁHUGAMENN
komast ífeitt á morgun. Þá
verður leikur Manchester Un-
ited og Chelsea í ensku bikar-
keppninni - sýndur beint hjá
Stöð 2, en viðureignin fer fram
á hinum frœga leikvelli United,
Old Trafford.
Við höfum tryggt okkur rétt að
sýna beint frá leikjum í ensku
bikarkeppninni og er þetta aðeins
byrjunin," sagði Heimir Karlsson,
íþróttafréttamaður hjá Stöð 2. Á
morgun verður tímamót í sambandi
við beinar útsendingar. Ríkissjón-
varpið sýnir einni beint frá leik
Port Vale og Tottenham í bikar-
keppninni. Utsendingar hefjast kl.
15 hjá báðum sjónvarpsstöðvunum.
Leikurinn hjá Stöð 2 verður sýndir
í læstri dagskrá.
„Á þriðjudaginn kl. 18.30 munum
við sýna valda kafla úr bikarleik
Aston Villa og Liverpool. Leik sem
verður sjónvarpað beint um Bret-
landseyjar á sunnudaginn," sagði
Heimir. Stöð 2 hefur tryggt sér
rétt til að sýna beint eða þá valda
kafla úr sex bikarleikjum í Eng-
landi í vetur. „Við höfum rétt á að
sýna beint frá undanúrslitaleikjun-
um og erum að vinna að því að
sýna beint frá úrslitaleiknum á
Wembley," sagði Heimir.
Durie ekki meA Cholsea
Það þarf ekki að fara mörgum orð-
um um það að knattspymuáhuga-
menn fagna því að fá tækifæri til
að sjá leik Man. Utd. og Chelsea
sýndan beint. Leikir liðanna siðustu
þrettán ár á Old Trafford hafa ver-
ið mjög spennandi og er eins og
Chelsea hafí haft viss tök á Man.
Utd. í Manchester. United vann sinn
fyrsta sigur, 3:1, í þrettán ár, yfir
Chelsea á Old Trafford í vetur.
Það voru ekki gleðifréttir sem
ensku blöðin færðu stuðningsmönn-
um Chelsea í gærmorgun. Blöðin
sögðu þá frá því að markaskorarinn
mikli, Gordon Durie, sem AC Mílanó
hefur mikinn áhuga að fá, myndi
ekki leika með liðinu næstu fimm
vikumar. Durie, sem var keyptur
frá Hibs í Skotlandi fyrir 350 þús.
pund fyrir tveimur árum - verður
skorinn upp fyrir meiðslum í hné í
næstu viku. Hann er 22 ára og
hefur skorað þrettán mörk fyrir
Lundúnarfélagið í vetur.
Þetta er mikið áfall fyrir Chelsea -
svona rétt fyrir bikarslaginn á Old
Trafford.
HANDKNATTLEIKUR / LANDSLIÐIÐ
HANDBOLTI
Suður-Kóreumenn
aftur til íslands!
Rúmenarvilja
einnig ólmir leika hér á landi
SUÐURr-KÓREUMENN hafa
sýnt mikinn áhuga á að koma
aftur til íslands og taka þátt í
geysilega öflugu handknatt-
leiksmóti sem fer fram hér á
landi 19.-26. ágúst, í Reykjavík
og Akureyri.
Hér er um að ræða sex þjóða
mót, sem verður geysilega
öflugt. í mótinu taka þátt, auk Is-
lendinga, Sovétmenn, Spánveijar,
Svisslendingar og Svíar. Að öllum
líkindum verða S-Kóreumenn sjötta
þjóðin.
V-Þjóðveijum var boðið að taka
þátt í mótinu. Forráðamenn 1.
deildarfélaganna í V-Þýskalandi
eru á móti því, að tekið verði þátt
í mótinu. Félögin eru á þessum tíma
að undirbúa sig á fullum krafti fyr-
ir 1. deildarkeppnina í V-Þýska-
landi.
Rúmenar vilja koma
Rúmenar hafa sent HSÍ skeyti þess
efnis að þeir hafa mikinn áhuga
að koma til íslands 1.-4. júlí og
leika hér tvo landsleiki. Enn er ekki
ákveðið hvort HSÍ verði við ósk
Rúmena. Þessir leikdagar falla ekki
inn í æfingaprógram landsliðsins.
Morgunblaðið/Einar Falur
Karl Þrálnsson skorar gegn Suður-Kóreumönnum í Laugardalshöll í desem-
ber. Koma þeir aftur i sumar?
Verður leikið gegn
V-Þjóðveijum í Berlín?
ÞAÐ getur farið svo að íslenska
landsliðið f handknattleik leiki
landsleik gegn V-Þýskalandi í
Vestur-Berlín 7. júlí í tengslum
við opinbera heimsókn Forseta
fslands til Vestur-Þýskalands f
byrjun júlí.
Ef af þessu verður þá er hugsan-
legt að landsliðið verði í fimm
daga æfíngabúðum í V-Þýskalandi
á kostnað Flugleiða. Landsliðið
færi síðan beint frá V-Bérlín til
A-Þýskalands, þar sem liðið tekur
þátt í sterku alþjóðlegu handknatt-
leiksmóti í Rostock 12.-17. júlí,
ásamt landsliðum A-Þýskalands,
Tékkóslóvakíu, Frakklands, Pól-
lands og Búlgaríu.
Bogdan Kowalczyk, landsliðsþjálf-
ari íslands, er ekki hrifinn af því
að leika gegn V-Þjóðvetjum í V-
Berlín á þessum tíma. Hann segir
að leikurinn falli ekki inn í æfinga-
og landsleikjaprógram landsliðsins
fyrir Olympíuleikana í Seoul, sem
hefjast 17. september. Bogdan vill
frekar hafa leikmenn sína í æfínga-
búðum hér heima heldur en í
V-Þýskalandi. Honum finnst álagið
á Ieikmönnum orðið það mikið, að
það sé betra að hafa þá smá tíma
í heimahögum. Ef landsliðið færi
til V-Þýskaland í byijun júlí, yrði
ekki komið heim fyrr en 18. júlí.
Siðan verður farið í keppnisferð til
Spánar og Frakklands 29. júlí til
11. ágúst.
Basel
íSviss
vilifá
Jóhann Inga
JÓHANN Ingi Gunnarsson
fókk f gœrtilboA frá sviss-
neska 1. deiidarllAinu Basel.
FormaAur fólagsins hafði
samband vlA Jóhann Inga
og bað hann að koma strax
til Basel til vlðrsaðna. Bauð
honum þriggja ára samn-
íng.Áður hefur Dankersen
haft samband við Jóhann
Inga.
Eg er að sjálfssögðu ánægður
að fá tilboð frá Basel, sem
er með ungt og efnilegt lið -
sem er í þriðja sæti í svissnesku
1. deildarkeppninni. Með liðinu
leikur fyrrum landsliðsmaður
frá Júgóslavíu. Ég sagði við
formanninn að ég vildi átta mig
á hlutunum - áður en ég tæki
ákvörðun um hvað ég myndi
gera. Bað hann að senda mér
myndbandsspólu með leikjum
liðsins á,“ sagði Jóhann Ingi,
sem hefur hug á að fara til
Basel og kanna aðstæður.
Jóhann Ingi er ekki ókunnugur
í Sviss. Hann var þar þegar
hann var 19 ára, 1974. Þá þjálf-
aði hann og lék með félaginu
Horgen.
Kiel lagði
Grosswall-
stadt
Frank Gersch var hetja Kiel
þegar félagið lagði Gross-
wallstadt að velli, 23:22, í Kiel
á miðvikudagskvöldið. Gersch,
sem skoraði sex mörk í leiknum,
skoraði sigurmarkið rétt fyrir
leikslok.
Það er lóst að þijú félög beijast
um meistaratitilinn. Gummers-
bach, sem er með 23 stig, Kiel,
sem er með 21 og Dusseldorf,
sem er einnig með 21 stig. Göpp-
ingen er í fjórða sæti með 17
stig.