Morgunblaðið - 16.02.1988, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988
19
Samkeppni um
gerð ruslíláta:
Tillögum skal
skilað fyrir
17. febrúar
BORGARRÁÐ ákvað á síðasta
ári að efna til samkeppni um
gerð og staðsetningu íláta fyrir
rusl. Tillögum á að skila fyrir
kl. 18 miðvikudaginn 17. febrúar.
Keppnin er tvíþætt og getur hver
þátttakandi skilað inn tillögum um
annan eða báða þættina. Annar
þátturinn er gerð uppdrátta af
ýmiss konar flátum og staðsetningu
þeirra og hinn er kjörorð, eða slag-
orð. Samkeppnin er opin öllum,
bæði fagfólki í hönnun og áhuga-
fólki um bætta umgengni í borg-
inni. Þá geta hópar einnig skilað inn
tillögum, til dæmis bekkjardeildir.
Trúnaðarmaður dómnefndar er
Ólafur Jensson, Byggingarþjón-
ustunni, Hallveigarstíg 1. Hann
veitir allar upplýsingar um keppn-
ina og þangað ber að skila tillögum,
fyrir 17. febrúar.
Gróska í
félagslífi
á Ströndum
Ámesi, Ströndum.
HÉR hefur verið einmuna góð
tíð allt til jóla, þá fyrst sýndi
Vetur konungur klærnar. Að-
ventumessa, jólamessa og aftan-
söngur á gamlársdag féllu þó í
nokkurn hefðbundinn farveg, en
fresta varð jólatrésskemmtun
barna um sinn, vegna ófærðar.
Bændur eru yfírleitt vel heybirg-
ir eftir afburðagott sumar. Talsvert
bar á rási á sauðfé í blíðunni fram
að hátíðum, en ekki er vitað um
vanhöld. Ófært hefur verið að venju
frá Djúpuvík að sunnan, og reyndar
Munaðamesi að norðan, og hafa
stundum verið talsvérðir erfíðleikar
á að koma bömum í skólann. Þá
hefur rafmagnið stundum ekki vilj-
að tolla hjá okkur.
Þrátt fyrir að mannlífí hætti til
að leggjast í nokkum dróma á út-
mánuðum, em þó góðar lífshrær-
ingar með fólki. Menn grípa í spil
og einu sinni í viku er skákæfíng
í skólanum. Skólaböm njóta til-
sagnar í píanóleik og enskutímar
fyrir fullorðna em í Amesi vikulega.
Aðeins eitt bam verður fermt í
ár, en hvítasunnudag 1952 stóðu
14 fermingarböm fyrir altari Ár-
neskirkju. Það var sannarlega
fríður hópur, en af þeim fjórtán em
nú fjögur enn búsett í sveitinni. Það
verða því nokkur fímmtugsafmælin
í ár. Sá sem fyrstur reið á vaðið
var Hjalti Guðmundsson, þann 17.
janúar, en Hjalti býr í Bæ í samlög-
um við föður sinn, Guðmund Val-
geirsson, Tímagreinahöfund.
Og þann 26. janúar sannaðist að
jólasveinninn hafði ekki með öUu
gleymt okkur Ámeshreppsbúum,
því þá var haldið bamaball með
öllu tilheyrandi, jólatré, harmoníku
og jólasveini, sem að þessu sinni
var giýlubamið Skyrgámur. Hann
hafði eitthvað mglast í ríminu,
blessaður karlinn, en þó lifað góðu
lffí á súm skyri í kaupfélaginu og
var stétt sinni til sóma á ballinu.
Þorrablót er nú framundan, en
þau hafa jafnan verið vel lukkuð
og þótt hin besta skemmtun. Lítt
þýðir þó að hugsa til blóts um sinn,
meðan veður og færð haldast
óbreytt.
Amarflug lætur þó ekki veðrið
hamla sér, en heldur sinni áætlun
í Gjögur, hvað sem tautar og raul-
ar. Þá er Ríkisskip með ferðir hing-
að hálfsmánaðarlega.
— Einar
SRSSSSSSSf
Stöðvar 2
■
AKRANES
Aöalrás st.
akubeyw--
Akutvík
SgSfSSW
esKifjöbðub;
Elís Guönason
gbindavík;
Rafborg
RafbúöB'- Mask.
HELtA-
Moste»
húsavíK;
Bókaveriun
p stetáossonas
Sölva Ragnarssona
ísafjördu«
póllinn
keflavík;
Stapate®
neskaupstaouw
Nesvideó
ssssa®
SELFOSS-
MM-búöin
seyðísfjöbðub;
Stál
STYKKISHÓI-MUR-
vÍtmannaeyjaR;
Sksse*
PORUÁKSHÖFN;
Rásst
SS£.
Saetúniö
Hafnarstreeti 3
Knnglunni
Radíóhusið,
s’
Aéi
Liun. j \L||/ ^ -
Hewaösöáfi-
ffiðeAM*