Morgunblaðið - 16.02.1988, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988
Jón Baldvin Hannibalsson í Keflavík:
Gengisfelling nú
er óðs manns æði
Keflavík.
JÓN Baldvin Hannibalsson fjármálaráðherra sagði á hádegisverð-
arfundi í Glaumbergi í Keflavík á laugardaginn að gengisfelling
til að bæta hag fiskvinnsiunnar í landinu við þær aðstæður sem
nú riktu væri óðs manns æði. Á fundinum sem haldinn var að
tilstuðlan Alþýðuflokksfélaganna á Suðurnesjum ræddi fjármála-
ráðherra um loforð og efndir Alþýðuflokksins í ríkisstjórn. Pjár-
málaráðherra sagði að gengisfelling nú yrði aðeins skammtíma-
lausn fyrir fiskvinnsluna og sagði að vanda hennar yrði að leysa
á annan hátt.
Jón Baldvin sagði m.a. að skatt-
kerfisbreytingin væri róttækasta
umbót sem gerð hefði verið á Is-
landi og sagði hann að stefna
stjómarinnar væri að ná verð-
bólgunni niður á svipað stig og í
nágrannalöndunum þar sem hún
INNLEN'T
væri innan við 10%. Ráðherra varði
matarskammtinn og sakaði and-
stæðinga sína um að slíta orð og
gerðir úr samhengi í árásum sínum
á skattinn. Jón Baldvin sagði að
við útreikninga hefði komið í ljós
að meðalfjölskylda með tæplega 2
böm hefði 135 þúsund krónur í
mánaðarlaun. Af þessari upphæð
fæm 25 þúsund til matarinnkaupa,
en 110 þúsund færu í önnur út-
gjöld. Sagði Jón Baldvin að útgjöld
meðalfjölskyldunnar ykjust um
1700 krónur á mánuði vegna mat-
arskattsins.
Fjármálaráðherra sagði að
strangt eftirlit yrði haft með því
að söluskatturinn skilaði sér í ríkis-
kassann og lagði til að tekinn yrði
upp bandaríska aðferðin við þá sem
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Jón Baldvin Hannibalsson fjár-
málaráðherra sagði það óðs
manns æði að fella gengið víð
þær aðstæður sem nú ríktu.
stælu undan skatti; að svipta við-
komandi verslunarleyfi og loka
síðan. Jón Baldvin kom einnig inná
skattsvik og sagði að samkvæmt
skattsvikaskýrslu sem gerð var
undir stjóm Þrastar Óiafssonar
hefði verið áætlað að 5-6 milljörð-
um að núvirði hefði verið stolið
undan skatti árlega með gamla
kerfínu. Með nýju skattalögunum
vonuðust menn til að þessir pening-
ar skiluðu sér betur til ríkisins.
- BB
TRESemmá
fyrír öskudaginn
og grímuböllin
HÁRLITUR
sem þvæst auðveldlega úr, gulur, rauður, grænn og blár, bleik-
ur, svartur og fjólublár.
Fæst ínæstu bókabúð, leikfangabúð og snyrtivöruverslun.
RÁ, heildverslun, sími 46442
Efverslað fyrir 15-50 þÚS.
útborgun 5.000 x
eftirstöðvar á 8 man.
Efverslað fyrir 50-100 þÚS.
útborgun 10.000 r
eftirstöðvar á 12 man.
Ef verslað fyrir 100 þÚS.
útborgun 15.000
eftirstöðvar á 18 mán.
KRINGLUNNI -SÍMI (91)685868
FEBRÚAR-TILBOÐ
Ólafsvík:
Nýr meirihluti
tekur við völdum
Sá fjórði sem myndaður er
frá síðustu kosningum
Ólafsvik.
NÝR bæjarsljómarmeirihluti í Ólafsvík kynnti málefnasamning sinn
nú á dögunum. Meirihluta þennan mynda tveir fulltrúar Alþýðu-
flokks, einn fulltrúi Framsóknarflokks, einn fulltrúi Alþýðubanda-
lags og einn frá lýðræðissinnum. Fulltrúi lýðræðissinna, Kristján
Pálsson, er bæjarstjóri. Forseti bæjarstjórnar er Sveinn Þór Elin-
bergsson frá Alþýðuflokki og Stefán Jóhann Sigurðsson, fulltrúi
Framsóknarflokksins, er formaður bæjarráðs. Tekur hann við því
starfi af Herbert Hjelm, fulltrúa Alþýðubandalags. Þetta er fjórða
meirihlutamyndunin á bæjarstjóminni á kjörtímabilinu en þriðji
meirihlutinn sem hefur störf. Þó ef til vill megi segja að það sé að
æra óstöðugan að rifja þessi tilbrigði upp þykir það þó rétt þar sem
nú þykir vera komin kyrrð á.
Urslit kosninga 1986: A — Al-
þýðuflokkur 164 atkvæði og tveir
fulltrúar, B — Framsóknarflokkur
158 átkvæði og einn fulltrúi, D —
Sjálfstæðisflokkur 184 atkvæði og
tveir fulltrúar, G — Alþýðubandalag
98 atkvæði og einn fulltrúi, L —
Samtök lýðræðissinna 90 atkvæði
og einn fulltrúi. Fljótlega eftir kosn-
ingar tókust samningar milli A og
D. Bæjarstjóraefni þeirra var óráðið
þar sem alþýðuflokksmenn slitu því
samstarfí strax eftir fyrsta fund.
Ástæðan: Sjálfstæðismenn studdu
tillögu um að Stefán Jóhann Sig-
urðsson, fulltrúi Framsóknarflokks-
ins, fengi seturétt í bæjarráði með
málfrelsi og tillögurétti. Alþýðu-
flokksmenn sögðu að sjálfstæðis-
menn hefðu gengið í berhögg við
samkomulag flokkanna. Sjálfstæð-
ismenn sögðu það rangt og þama
hefðu þeir eingöngu tekið lýðræðis-
lega afstöðu til mála.
Næsta meirihluta mynduðu A-
listi, B-listi og L-listi. Bæjarstjóri
varð Kristján Pálsson, fulltrúi lýð-
ræðissinna. Þessi meirihluti starfaði
í 15 mánuði. Fulltrúi Alþýðubanda-
lags sagði sig þá úr samstarfinu
og sagðist ekki taka ábyrgð á störf-
um bæjarstjóra. Ástæðan tilgreind
í fjölmiðlum: Bæjarstjóri hefði ekki
yfirsýn yfir erfíðan hag bæjarsjóðs.
Bankalán með afarkjörum hefði
verið tekið án vitundar fulltrúa Al-
þýðubandalagsins. Bæjarstjóri
hefði notað sér stuðning minnihlu-
taflokkanna B og D til að ljúka
framkvæmdum (félagsheimili) sem
Alþýðubandalagið vildi stöðva. For-
seti bæjarstjómar, Sveinn Þ. Elin-
bergsson, Alþýðuflokki, tók í við-
tölum við fjölmiðla undir flest það
sem fulltrúi Alþýðubandalags sagði.
Bæjarstjóri, Kristján Pálsson,
sagði þá upp störfum með tiiskyld-
um fyrirvara til áð opna möguleika
fyrir nýja meirihlutamyndun. Nú
þótti mörgum eðlilegt að þeir bæjar-
fulltrúar sem studdu bæjarstjórann
í þvf að ljúka við félagsheimilið (B
og D) gengju til liðs við hann og
tækju upp meirihlutasamstarf með
honum. Strandaði það á fulltrúa
Framsóknarflokksins sem kvaðst
vilja bíða reikninga bæjarsjóðs fyrir
árið 1986 og 10 mánaðar uppgjörs
1987. Bæjarstjóri og bæjarráð
gengu fram í því að fá þessi upp-
gjör á borðið. Nokkur bið varð á
því af tæknilegum ástæðum en í
desember vom þessi uppgjör lögð
fram. Sömuleiðis var þá haldinn í
bæjarráði fundur með fulltrúa frá
Landsbanka íslands sem skýrði út
og bar saman kjör á hinu umdeilda
láni við aðra kosti á fjármagns-
markaðnum. Sá fundur mun hafa
verið gagnlegur og stutt málstað
bæjarstjóra.
En þá sömu daga var að verða
til nýr kjami bæjarstjómar mynd-
aður af fulltrúum B, D, og G-lista
með Stefán Jóhann Stefánsson,
fulltrúa Framsóknarflokksins, sem
bæjarstjóraefni. Sá meirihluti hóf
aldrei störf. Ástæða, var sú að
grunnur að þessu samkomulagi stóð
aldrei traustum fótum. Þegar við
bættist að persónulegar ástæður
þriggja fulltrúa af fjórum gerðu
þeim erfítt fyrir um störf næstu
vikumar varð ljóst að ekkert yrði
úr samstarfinu.
Eftir nokkrar þreifíngar í síðasta
mánuði varð síðan til fjórði meiri-
hlutinn, sá er nú situr, og sagt var
frá í upphafi máls. Málefnasamn-
ingur kveður á um að ljúka þeim
verkefnum sem nú eru í gangi, og
treysta flárhag bæjarsjóðs sem er
erfiður nú um sinn vegna mikilla
framkvæmda á undanfömum árum.
Kristján Pálsson bæjarstjóri
sagði í spjalli við fréttarita að gerð
fjárhagsáætlunar fyrir 1988 væri
að mestu lokið og yrði hún lögð
fram nú á næstunni. Staða bæjar-
sjóðs væri heldur erfíð og t.d. ætti
bæjarsjóður líka milljónir hjá ríkinu
vegna félagsheimilisins eins. Krist-
ján sagði að menn hefðu áhyggjur
af tekjutapi bæjarsjóðs vegna stað-
greiðslukerfis skatta. Mætti ætla
að miðað við 33% launaskrið 1987
væri tap ólafsvíkurkaupstaðar um
það bil 4,5 milljónir króna. Þrátt
fyrir erfíða stöðu væru menn
ákveðnir í að taka höndum saman '
við að greiða sem best úr málum.
- Helgi
íslenska óperan:
Tónleikar
Andreas
Schmidt
ÞÝSKI baritonsöngvarinn Andre-
as Schmidt flytur þijá ljóðaflokka
Schuberts ásamt píanóleikaran-
um Thomas Palm þijú kvöld í
þessari viku.
Andreas Schmidt og Thomas Palm
héldu tónleika hér á landi í fyrra,
annars er Schmidt fastráðinn við
óperuna í Berlín.
Mánudagskvöldið 22. febrúar
flytja þeir Schmidt og Palm Die
schöne Múllerin (Malarastúlkan
fagra), 23. febrúar flytja þeir Wint-
erreise (Vetrarferðin) og fímmtudag-
inn 25. febrúar Schwanengesang
(Svanasöng) og úrval ljóða. Tónleik-
Andreas Schmidt baritonsöngvari.
amir eru haldnir í íslensku óperunni
og hefjast kl. 20.30 öll kvöldin.
Forsala aðgöngumiða er í ístóni
og íslensku óperunni. Bæði er hægt
að kaupa miða á einstaka tónleika
og á alla þijá og þá með afslætti.