Morgunblaðið - 16.02.1988, Side 35

Morgunblaðið - 16.02.1988, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988 35 Umframkostnaður við flugstöðina: Ræddtir munur talna utanríkisráð- herra o g Ríkisendurskoðunar SKÝRSLA utanrikisráðherra um umframkostnað við byggingu Flug- stöðvar Leifs Eirikssonar, sem lögð var fram í desember, kom til umræðu i sameinuðu þingi í gær. Guðrún Agnarsdóttir las þar upp athugasemdir frá Ríkisendurskoðun um mismun á tölum i skýrslu utanríkisráðherra og skýrslu stofnunarinnar. í athugasemdum RE segir að meginskýringar á krónutöluhækkun byggingarkostnaðar séu viðbætur og magnaukning, enda kostnaðaráætlun og byggingarkostn- aður framreiknaður til 1. sept. 1987, en i skýrslu utanríkisráðherra er meginskýringin talin vera verðhækkanir á byggingartíma. Steingrimur Hermannsson, utanríkisráðherra, sagðist ekki telja mun- inn á skýrslunum vera svo mikinn en hann myndi láta þriðja aðila yfirfara þær. Steingrímur Hermannsson, ut- anríkisráðherra, sagði þessa skýrslu sem nú kæmi til umræðu hafa verið lagða fram í desember á síðasta ári. í henni ætti það að koma glöggt fram í hveiju viðbótarkostn- aður vegna Flugstöðvar Leifs Eiríks- sonar væri fólginn, það væri aðallega vegna viðbóta og verðbreytinga á byggingartímanum. Þetta mál hefði verið mjög ítarlega rætt í sambandi við skýrslu ríkisendurskoðunar og teldi hann því ekki ástæðu til að ræða það nú ítarlega. Utanríkisráðherra sagði að bygg- ing flugstöðvarinnar væri fjármögn- uð með erlendum lánum að stórum hluta en einnig kæmi til 20 inilljón dollara framlag Bandaríkjamanna. Þessi upphæð hefði verið óbreytt frá upphafi. Vegna mikillar lækkunar á Bandaríkjadollar hefði hlutfall þess- arar upphæðar af heildarkostnaði lækkað. Utanríkisráðherra sagði að vissu- lega mætti gagnrýna margt við þessa fi-amkvæmd en einnig væri ýmislegt við hana sem bæri að fagna. Sagði hann þingmenn kannski geta álasað sér fyrir að samþykkja þessa bygg- ingu. Hann hefði í upphafi verið því andvígur en síðan skipt um skoðun. Það væri að hans mati enginn vafi á því að veruleg mistök hefðu orðið við hönnun sem hefðu leitt til aukins kostnaðar. Einnig mætti gagnrýna að ákvarðanir um viðbætur hefðu ekki farið rétta boðleið. Þáverandi utanríkisráðherra hefði samþykkt þær en þær hefðu ekki komið fyrir Alþingi. Þær hefðu verið samþykktar í þeirri trú að þær rúmuðust innan samþykktra fjárveitinga en svo hefði ekki reynst vera. Það bæri að hafa í huga að ýmsu varðandi bygginguna væri enn ólok- ið. Það mætti t.d. ekki að hans mati bíða annan vetur með að byggja ráð- gerða hitaveitu, nú væri þama ein- ungis bráðabirgðahitaveita. Það væri iíka forgangsverkefni að ljúka við þau listaverk sem samið hefði verið um. Guðrún Agnarsdóttir (Kvl/Rvk) sagði beiðnina um þessa skýrslu hafa verið lagða fram þegar vitnaðist um mikinn umframkostnað við flugstöð- ina sem hefði að sögn fjármálaráð- herra verið „óvæntur". Þær hefðu átt von á hlutlausri málefnalegri skýrslu en hún hefði reynst vera til- raun til að „beija í brestina" I stað þess að kryfja málið til mergjar. Guðrún sagði tölu í skýrslunni ekki bera saman við tölur i skýrslu Ríkisendurskoðunar (RE) og þvf hefði verið beðið um skýringu á því á fundi forseta Alþingis og formanna þingflokka 8. febrúar sl. þar sem skýrsla RE hefði verið til umræðu. í athugasemdum sem hefðu borist frá RE ségði að áður en bygging flugstöðvarinnar hófst hefðu verið gerðar ýmsar kostnaðaráætlanir. Sú kostnaðaráætlun sem hefði verið lögð til grundvallar í meðferð Alþingis hljóðaði upp á 2121 m.kr. framreikn- uð til 1. sept. 1987. Síðan segir í athugasemdum Ríkisendurskoðunar: „í skýrslu utanríkisráðherra er getið um aðrar áætlanir s.s. frumáætlun að upphæð 67 MUSD og það sem nefnt er áætlanir byggingamefndar um byggingarkostnað samtals að Qárhæð 2544,2 m.kr. Þær „áætlanir" eru þó ekki annað en samlagning á flárveitingabeiðnum byggingar- nefndar frá ári til árs. Ríkisendurskoðun hefur ekki feng- ið í hendur og er ekki kunnugt um að á vegum byggingamefndar hafi nokkum tíma verið gerð heildstæð kostnaðaráætlun um framkvæmdina eftir að framkvæmdir hófust." Næst er rætt um byggingarkostn- að og segir þá í athugasemdunum: „í skýrslu utanríkisráðherra er bygg- ingarkostnaður talinn vera samtals 2438 m.kr. Hér er um bókfærðan kostnað á breytilegu verðlagi og áætlaðan kostnað frá september 1987 og fyrir árið 1988 að ræða og því ekki samanburðarhæfur að mati Ríkisendurskoðunar. Framreiknaður byggingarkostn- aður til 1. september 1987 telst vera 2992 m.kr. og byggir Ríkisendur- skoðunin þar á tölum fengnum frá Seðlabanka íslands og ráðgjöfum byggingamefndar. “ Að lokum er vikið að samanburði áætlana og raunkostnaðar. „í skýrslu utanríkisráðherra er bókfærður kostnaður borinn saman við fjárveit- ingabeiðnir bygginganefndar og komist að þeirri niðurstöðu að um svipaðar ijárhæðir sé að ræða. Að áliti RE er hér um ósambæri- legar tölur að ræða. Einnig er í skýrslunni sett fram endurmetin áætlun frá ágúst 1983 að upphæð 42 MUSD og komist að því að með því að taka tillit til viðbóta og magn- aukninga sé sú áætlun 2909 m.kr. í stað 2121 rn.kr." Að áliti RE lítur samanburðurinn þannig út að kostnaðaráætlun hefði hljóðað upp á 2121 m.kr., Viðbætur næmu 653 m.kr., magnaukningar 135 m.kr. og óskiptur kostnaður 83 m.kr. Framkvæmdakostnaður væri því alls 2992 m.kr. í lok athugasemda RE segir síðan: „Eins og að ofan greinir em megin- skýringar á krónutöluhækkun bygg- ingarkostnaðar viðbætur og magn- aukning enda hefur kostnaðaráætlun frá árinu 1983 verið framreiknuð til 1. september 1987 svo og byggingar- kostnaður. í skýrslu utanríkisráð- herra er meginskýringin talin vera verðhækkanir á byggingartlma." Eftir að hafa lesið upp þessar at- hugasemdir RE gagntýndi Guðrún skýrslu utanríkisráðherra og spurði hvar hollusta hans lægi fyrst hann sendi frá sér svona skýrslu. Þetta væri dæmi um samtryggingu stjóm- málamanna sem hefði leitt til þess að almenningur hefði misst trú á þeim. Fólk byggist ekki við að menn yrðu látnir sæta ábyrgð á mistökum sínum. Guðrún taldi gæslumenn almanna- fé fara óvarlega með það og spurði hvort það væri rétt að rekstrarkostn- aður 10 ráðherrabfla væri tvöfalt hærri en rekstur Hæstaréttar eða Fiskvinnsluskólans. Þingmaðurinn sagði ekki vera orð I skýrslunni um ábyrgðarhlutdeild. Það væri þó ljóst að hin stjómunar- lega ábyrgð lægi hjá utanríkisráð- herra og utanríkisráðuneyti þó að mistökin væru gerð hjá öðrum, t.d. verktökum. Það væri nauðsynlegt að fara yfir hið stjómunarlega ferli í þessu ráðuneyti og öðrum til að atburður af þessu tagi myndi ekki endurtaka sig. „Ævintýramennimir" mættu ekki leika lausum hala lengur án þess að sæta ábyrgð. Steingrímur J. Sigfússon (Abl/Rvk) sagði að þegar skýrsla RE hefði komið út hefði hún vakið óhug en einnig von um að á málinu yrði tekið með öðrum hætti en menn ættu að vei\jast. öll framkoma stjómar og stjómvalda virtist þó benda til þess að við svo búið ætti að láta sitja. Steingrímur J. vék næst að skýrsl- unum tveimur og sagði að það gengi ekki að þær stönguðust svona á. Ríkisendurskoðun stæði á sínu og það gengi ekki að utanríkisráðherra ætlaði að láta líta svo út sem allt væri I lagi. Þingmaðurinn sagðist halda að það væri mikið áfall fyrir þjóðina að fá svona „dýra og vonda" flugstöð auk þess sem hún væri dæmi um siðferðisbrest ráðamanna. Skýrsla ráðherrans væri „aumt plagg og yfir- klór“ með ranglega framsettum upp- lýsingum. Best vaeri að láta sem hún væri ekki til. Júlíus Sólnes (B/Rn) sagðist ekki hafa komið í flugstöðina fyrr en haustið 1987. Hann hafði þó lesið margt um hana og virtust allir sam- mála um að hve stórkostlegt allt væri. Mesti glansinn hefði þó farið af þegar inn fyrir dyr var komið. Þetta væri að hans mati ákaflega illa unnið mannvirki og burðarvirkið „fáránlegt". í það heila yrði hann því að segja að svo virtist sem við hefðum fengið ansi lítið fyrir þessa peninga. JúIIus sagði það ljóst að hönnun bygginga væri í miklum ólestri hér á landi. Steingrímur Hermannsson sagði aðalmuninn á skýrslunum vera að I hans skýrslu væru verðhækkanir dregnar meira fram en hjá RE. í upphaflegu áætluninni hefði verið gert ráð fyrir 25% verðlagsbreytingu en hún hefði reynst verða 88% og hlyti það að hafa mikil áhrif á bygg- ingarkostnaðinn. Við þetta hefði síðan bæst magnaukning, alvarleg mistök við hönnun og breyting á dollara. Varðandi ábyrgðarþáttinn sagði Steingrímur að við umræður um skýrslu RE í desember hefði Matt- hías Á. Mathiesen, samgöngumála- ráðherra, sagt að hann bæri tvímæla- laust ábyrgð á þeim tíma sem hann hefði verið utanríkisráðherra. Það hefði enginn reynt að skjóta sér und- an ábyrgð. Utanríkisráðherra sagði að hann teldi muninn á skýrslunum ekki mik- inn en hann myndi biðja tölfróðan þriðja aðila að fara yfir þetta. Hann ságðist að lokum ekki vilja vefengja RE en héldi samt að ekki væri allt rétt sem hún hefði sagt. Munurinn á skýrslunum tveimur væri minni en sagt væri í athugasemdunum frá RE. Albert Guðmundsson (B/Rvk) sagði flugstöðina hafa verið rædda í ríkisstjóminni I fjármálaráðherratíð sinni og hefði Geir Hallgrímsson, þáverandi utanrfkisráðherra, kynnt mannvirkið mjög vel. Samþykkt hefði verið að fara út I þessa byggingu MMACI Morgunbladið/Þorkel) Guðrún Agnarsdóttir (Kvl/Rvk) í ræðustól í umræðunum i gær. og væru hann og Steingrímur Her- mannsson báðir ábyrgir fyrir þessu. Verkefnið hefði verið kynnt svo dýrt sem það var og sagt að jafnvel mætti búast við því að áætlunin væri of lág. Albert vék næst að falli dollarans á byggingartímanum ">g sagðist gera ráð fyrir því að 20 miiljóna dollara framlag Bandaríkjamanna hefði að mestum hluta farið í kaup á tækjum °g byggingarefiii frá Bandarflcjunum og ætti ekki að vera nein gengis- lækkunarsveifla á þeim kaupum. Albert spurði næst hvort að þa|E tölur um byggingarkostnað sem íuí væri rætt um væru lokatölur eða hvort meira ætti eftir að bætast við, mannvirkið væri langt frá því að vera fullbúið. Hann ítrekaði einnig að menn ættu að vera vissir I sinni sök áður en þeir kölluðu menn siðlausa. Hann hefði ekki þekkt nokkum þingmann síðan hann settist á þing 1974 sem hefði verið siðlaus á neinn hátt. Menntamálaráðherra: Sanngimísmál að telja meðlög ekki til tekna ÁKVÖRÐUN stjóraar Lánasjóðs íslenskra námsmanna að hætta að telja meðlag til tekna við úthlutun lána kom til umræðu utan dagskrár í sameinuðu þingi í'gær. Þessi ákvörðun kom í kjölfar úrskurðar Lagastofnunar Háskólans að þetta stæðist ekki. Flestir þeir þing- menn sem tóku til máls töldu að þetta bæri að koma til framkvæmda nú þegar en ekki f haust. Birgir ísleifur Gunnarsson, menntamálaráð- herra, sagðist hafa ritað stjórninni bréf í kjölfar álits Lagastofnunar þar sem hann beindi eindregnum tilmælum til þeirra að hætta að te(ja meðlög til tekna. Þetta væri fyrst og fremst sanngirnismál að hans mati. Hann hefði ekki rætt við stjórnina eftir þessa ákvörðun hennar en mynda ræða við hana um þessi mál. Hann sagðist engar yfirlýsingar hafa í farteskinu um hvernig fara ætti með fortíðina. Kristín Einarsdóttir (Kvl/rvk) sagði að svo virtist sem stjóm Lána- sjóðsins væri sammála áliti Laga- stofnunar um að hana skorti laga- heimild fyrir svona skerðingar- ákvæði. Samt virtist hún ekki ætla að leiðrétta þetta strax heldur í haust. Sagði Kristín að einstæðir foreldar sem hefðu liðið skerðingu í vetur þyrftu að fá leiðréttingu strax. Upphæðin væri ekki há sem þyrfti en gæti skipt verulegu máli. Birgir ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra, sagði það vera sjónarmið meirihluta stjómar LÍN að meðlög ættu að teljast með öðm sem hefði áhrif á fjárhagsstöðu námsmanns. Eftir að niðurstöður Lagastofnunar Háskólans lágu fyrir hefði hann ritað stjóminni bréf þar sem kæmu fram eindregin tilmæli um að við endurskoðun úthlutunar- reglanna yrði hætt að telja meðlög til tekna. Þessi tilmæli hefðu ekki verið sett fram af lagalegum ástæð- um heldur vegna þess að þetta væri sanngimismál. Stjómin hefði síðan tekið ákvörðun um að breyta þessu frá og með 1. júní. Stemgrlmur J. Sigfússon (Abl/Ne) sagðist vilja skora á ráð- herra að breyta þessu strax. Laga- lega séð væru meðlög eign bama og það væri mikil niðurlæging ef menn ætluðu að bíða fram á haust með að framfylgja lögum. Þetta þyrfti ekki að vera afturvirkt en gæti verið frá og með morgundeginum. Málmfriður Sigurðardóttir (Kvl/Rvk) sagðist telja það mjög hæpið að telja meðlög til tekna. Þau ættu að stuðla að umönnun bama en fæm eðli málsins samkvæmt til foreldra. Hæpið væri að skerða láns- réttindi vegna þessa. Guðmundur G. Þórarinsson (F/Rvk) sagði þetta vera mjög eðli- lega leiðréttingu þó að álit Laga- stofnunar væri ekki dómsúrskurður. Hann væri sammála menntamálaráð- herra um að þetta væri fyrst og fremst sanngimismál og ætti að leið- rétta þetta frá og með dagsetningu álitsins. Þessi skerðing kæmi niður þar sem hún sist skyidi. Guðmundur Ágústsson (B/Rvk) sagði það hingað til ekki hafa vafist fyrir lögfróðum mönnum að meðlög væm eign bama og því sætti það furðu að svona regla væri í úthlutun- arreglunum. Það væri vítavert að eftir að hið rétta væri komið fram og mistökin verið leiðrétt væri álitið dæmt ómerkt af meirihluta stjómar LÍN. Sá lærdómur sem við ættum að draga af þessu væri að vanda til löggjafarinnar. Danfríður Skarphéðinsdóttir (Kvl/Vl) sagði leiðréttingu myndu kosta 13,5 m.kr. sem væri 0,1% af framlagi ríkissjóðs. Kristín Halldórsdóttir (Kvl/Rn) sagði þetta vera gmndvallarmál. Nokkmm námsmönnum væri refsað fyrir að vera skrifaðir fyrir lögmæt- um tekjum bama sinna. Ragnhildur Helgadóttir (S/Rvk) sagðist taka undir það sjónarmið 51Á meðlög ætti ekki að telja til tekna/ það væri gmndvallaratriði. Hins vég- ar væri henni kunnugt um að þessi regla hefði ekki nema í sumum tilvik- um orðið til lækkunar lána. Ragn- hildur sagði að þegar þessi regla hefði verið tekin upp hefðu lán til einstæðra forelda samtfmis verið hækkuð. Einstætt foreldri fengi nú 1,5 lán, foreldri í sambúð 1,25 lán. Einstæðir foreldrar hefðu því þrátt fyrir þessa reglu með meðlögin hærri lán en áður. Það væri þó skýrt og ljóst að meðlög væm ekki tekjur, þó að út- koma talnadæmisins sýndi þetta. Sjálfsagt væri að leiðrétta þetta I þeim tilvikum sem það hefði orðið til þyngingar. Álbert Guðmundsson (B/Rvk) sagði að ekki ætti að refsa náms- mönnum fyrir að eignast böm heldur verðlauna þá. Hann sagðist þekkja hjartalag Birgis ísleifs Gunnarssonar svo vel að hann vissi að það hefði ekki verið hans verk að stöðva fram- kvæmd þessara laga. Kristín Einarsdóttir sagði upp- hæðina ekki vera háa og þetta væri varla spuming um peninga. Ríkis- stjómin gæti ef þess þyrfti samþykkt aukaQ árveitingu. Birgir ísleifur Gunnarsson, menntamálaráðherra, sagði ao hann teldi sína skoðun hafa komið skýrt fram í bréfi sfnu til stjómar LÍN. Hann hefði ekki haft tækifæri til að ræða við stjómina eftir að þessi ákvörðun var tekin en myndi að sjálfsögðu ræða við hana um þessi mál. Hann sagðist engar yfirlýsingar hafa í farteskinu um hvemig fara ætti með fortíðina.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.