Morgunblaðið - 16.02.1988, Síða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988
Aflabrögð á vetrarvertíð
Loðnan komin á mið-
in undan Hornafirði
Hðfn,^ Hornafirði.
NÍTJÁN bátar lögðu upp hjá
kaupfélaginu, KASK, I vikunni
sem leið. Afli þeirra var alls
294 tonn í 63 sjóferðum. Mest-
Ólafsvík:
Gæftir hafa
verið erfiðar
vegna norð-
austanáttar
Ólafsvík.
ENN sem komið er hefur vetr-
arvertíðin verið með daufasta
móti hér í Ólafsvík. Gæftir
hafa verið erfiðar vegna
harðrar norðaustanáttar að
undanförnu. Stóru línubátarn-
ir, sem róa með tvo ganga í
senn, hafa þó getað haldið sínu
striki. Afli þeirra er líka sá
skásti eða 10-18 tonn í róðri.
Enginn ljós punktur hefur enn
sést hjá netabátunum og hafa
þeir verið með 1-3 tonn í róðfi.
Dragnótabátamir hafa fengið
smáglefsur við og við. Engin
spenningur hefur þó verið á þeim
veiðum og hefur veður verið
dragnótabátunum erfítt. Sama
er að segja um litlu línubátana,
þeir hafa lítið getað róið og er
þó fuli ákveðni um borð enda
sæmilegasti afli hjá þeim, varla
undir 100 kílóum á balann. Þó
ber nokkuð á steinbít í aflanum
sem dregur niður verðið. Það er
því dauft yfír hér ennþá.
\ Allmargt aðkomufólk er komið
hingað í verið enda reikna menn
með að afli fari að glæðast hvað
úr hverju. Aflatölur einstakra
skipa læt ég liggja milli hluta
fram að mánaðamótum.
- Helgi
Keflavík:
Skagaröst
KE aflahæst
KefUvik.
SKAGARÖST KE sem er á
netum varð aflahæsti báturinn
í Keflavík eftir vikuna með
48,5 tonn, en aflanum var bæði
landað f Keflavík og Sangerði.
Skagaröstin var einnig afla-
hæsfc báturinn í vikunni á und-
an Allir stóru netabátarnir
lönduðu hluta af afla sínum i
Sandgerði.
Stafneí. KE var með 30,2 tonn,
Vonin KE 29,3 tonn og Happa-
sæll Kt: vai- með 23,2 tonrf.
Línubátamir voru að fá sæmi-
legan afla, Eldeyjar-Boði KE var
meö 29,4 tonn, Albert Ólafsson
KE var með 23,1 tonn og Búr-
felí KE var með 18,6 tonn. Línu-
bátamir hafa verið í Jökuldýpi
og viö Eldeyjarboða. Þeir hafa
átt erfítt um vik vegna brælu og
töpuðu. þeir Eldeyjar-Boði og
Búrfell 10 bjóðum hvor í einum
róðrinum.
Minni bátamir hafa lítið kom-
ist á sjó og fóru snuruvoðarbát-
amir aðeins í einn róður í vik-
unni, Amar KE var með 8,4 tonn
og Farsæll GK var með 8,1 tonn.
- BB
um afla netabáta landaði Þórir
SF-77, 35,8 tonnum í 6 löndun-
um.
Æskan SF-140 landaði 28,3
tonnum eftir 5 línuróðra og hefur
landað mestu frá áramótum eða
95,8 tonnum. Afli frá áramótum
er nú orðinn 823,3 tonn en var
1445,5 tonn á sama tíma fyrir
ári.
Talsverð loðna barst til Fiski-
mjölsverksmiðju Homafjarðar,
og nú er loðnan komin á miðin
undan Homafírði. Búast menn
þá við að afli taki að glæðast.
Skinneyjarbátar öfluðu sem
hér segir: Steinunn SF-10 15,8
tonn, Freyr SF-20 16,2 tonn og
Skinney SF-30 15,9 tonn. Þeir
lönduðu að auki hjá KASK sam-
tals 11,42 tonnum.
- JGG
Sandgerði:
Togarinn
Haukurfékk
150 tonn
á 5 dögum
KefUvfk.
LÍNUBÁTARNIR voru með
mesta aflann í síðustu viku.
Tíð var slæm, en þrátt fyrir
það sóttu menn fast og náði
Bjarni KE 9,9 tonna bátur að
fara í 6 róðra. Hann er á línu
og fékk 19,9 tonn. Una í Garði
var aflahæst með 42,5 tonn,
Víðir II GK og Mummi GK
voru með 39 tonn hvor. Stóru
línubátarnir hafa lagt við El-
deyjarboða. Þá kom togarinn
Haukur inn með 150 tonn sem
fékst á 5 dögum á Faxaflóa-
svæðinu.
. Amey KE var með 39,8 tonn
og var aflahæsti netabáturinn og
var hann með netin á svokölluð-
um Skerjum. Af minni línubátun-
um er það að segja að Bragi GK
var með 9,1 tonn í 3 róðrum og
Sóley KE var með 7,4 tonn einn-
ig í 3 róðrum.
Snuruvoðarbátamir voru að-
eins einn dag á sjó, þeir veiða á
Hafnarleimum og var Reykja-
borg með 12,6 tonn, Ægir Jó-
hannsson var með 10,4 tonn og
Baldur KE var með 6,8 tonn.
^ - BB
Þorlákshöfn:
Gæftir góðar
ar og afli
að aukast
Þorlákshðfn.
ALLS lönduðu 25 bátar um 600
tonnum í síðustu viku. Gæftir
hafa verið góðar og aflinn er
eitthvað að aukast.
Aflahæstu netabátar í vikunni
vom: Júlíus ÁR 111 66 tonn,
Höfrungur III ÁR 250 60 tonn,
Brynjólfur ÁR 4 55 tonn. Dala-
röst ÁR 63 var aflahæst drag-
nótabáta með 65 tonn. Togarinn
Jón Vídalín landaði í vikunni um
85 tonnum, mest karfa.
. - JHS
Frá kynningu á byggingu nýrra hjónagarða. Guðmundur Gunnlaugsson arkitekt, Valdimar K Jónsson
prófessor, Eiríkur Ingólfsson framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta og Sigmundur Guðbjamason
rektor Háskóla íslands við likan af nýbyggingunni.
Byggingasjóður stúdenta:
Nýjar leiðir í fjáröflun
Atak til byggingar nýrra hjónagarða
Frá byggingarstað, gömlu hjónagarðarnir eru í baksýn, nýbygging-
in er risin af grunni hægra megin og sést í grunn síðari áfanga í
forgrunni.
HÁSKÓLI íslands og Félags-
stofnun stúdenta kynntu bygg-
ingu nýrra hjónagarða fimmtu-
daginn 4. febrúar síðastliðinn.
Jafnframt var kynnt fyrirhugað
söfnunarátak Byggingasjóðs
stúdenta til að standa straum af
kostnaði við nýbygginguna. Við
athöfnina flutti Birgir ísleifur
Gunnarsson, menntamálaráð-
herra, ávarp og Valdimar K
Jónsson, prófessor, lýsti bygg-
ingunni. Kynningin fór fram í
fyrsta áfanga nýbyggingarinnar,
sem er við hlið eldri hjónagarða.
Byggingasjéður stúdenta fær lán
frá Húsnáeðisstofnun ríkisins fyrir
85% af byggingarkostnaði og stúd-
entar fjármagna síðan 15% sjálfir.
Það gera þeir að hluta með fjórð-
ungi af innritunargjöldum stúdenta
og framlagi frá Háskóla íslands.
Nú fer Byggingasjóðurinn nýjar
leiðir til þess að afla þess fjár sem
á vantar, með því að senda sveitar-
félögum og fyrirtækjum beiðni um
framlög. Höfðað er til þeirrar fíár-
festingar, sem felst í menntun fyrir
alla og að Hjónagarðar séu liður í
því, að jafna aðstöðu fólks til náms
við Háskólann. Fjárframlög séu því
fíárfesting til framtíðar.
Birgir Isleifur Gunnarsson sagði
í ávarpi sínu, að það væri einkar
ánægjulegt að stúdentar sýndu
þetta framtak og lýsti jrfír heils
hugar stuðningi sínum og ríkis-
stjómarinnar við fyrirhugað söfn-
unarátak. Hann kvaðst vona, að vel
yrði brugðist við málaleitan um
stuðning við framkvæmdimar og
minnti á, að þótt í fyrstu fengi ekki
stór hluti stúdenta inní á hinum
nýju hjónagörðum, þá kæmu fleiri
kynslóðir, hér væri um góða fjár-
festingu til framtíðar að ræða.
Valdimar K Jónsson lýsti bygg-
ingunni og undirbúningi fram-
kvæmda. 1984 var ákveðið að ráð-
ast í þessar framkvæmdir og þá
tekin ákvörðun um að stofna Bygg-
ingasjóð stúdenta til að standa
straum af kostnaðarhlut stúdenta
við verkið. Efnt var til samkeppni
um hönnun hússins og í framhaldi
af henni var samið við arkitektana
Guðmund Gunnlaugsson og Pétur
Jónsson um hönnun. Verkfræðistof-
an Ferill hannaði burðarvirki og
verkfræðistofan Rafteikning lagnir.
Hönnunarvinna hófst 1985. Eftirlit
með byggingarframkvæmdum ann-
ast Verkfræðistofa Stanleys Páls-
sonar hf. Byggingarframkvæmdir
hófust í apríl 1987 og verktaki er
Sigurður K. Eggertsson.
Stefnt er að því, að taka fyrsta
áfanga garðanna í notkun í sept-
ember næstkomandi. í fyrsta
áfanganum eru tuttugu íbúðir, en
alls munu verða 93 íbúðir í bygging-
unni. Þar verða tvær lesstofur, sam-
komusalur, aðstaða til bamagæslu,
verslun og þvottaaðstaða. Aætluð
verklok eru árið 1990 og heildar-
kóstnaður áætlaður 280 milljónir
króna. Kostnaður við þessa bygg-
ingu er svipaður á hvem fermetra
og í verkamannabústöðum, eða
nálægt 37 þúsund krónum. Áform-
að er, að síðar verði reistur fram-
haldsáfangi þessara garða með 60
íbúðum.
Nemendur við Háskóla íslands
em nú 4.230. Á núverandi stúd-
entagörðum búa 186 manns, eða
um 4% stúdenta. Með þessum nýju
hjónagörðum bætast við 150 til 170
manns og verður þá hægt að hýsa
á stúdentagörðum 7 til 8% stúd-
enta. Enn er þó langt í land með
Kalt hefur verið að undanförnu
á fiskunum í Iaxarækt Guðmund-
ar Runólfssonar og fjölskyldu í
Grundarfirði, en fyrirtækið
nefna þau Snælax hf.
Um tíma var orðið það kalt að eitt-
hvað af laxi drapst í sjókvíum en
það, að hægt sé að bjóða öllum sem
það þurfa húsnæði á stúdentagörð-
um. U.þ.b. helmingur allra stúdenta
býr nú í leiguhúsnæði. Hlutverk
Byggingasjóðs stúdenta er að vinna
að því, á næstu árum, að fleiri geti
fengið inni á stúdentagörðum.
Stúdentar vonast til, að sveitarfé-
lög og fyrirtæki bregðist vel við
söfnunarátaki Byggingasjóðsins og
stuðli með því að bættum aðbúnaði
stúdenta við Háskóla íslands í
framtíðinni. Fyrsta framlagið barst
strax á fímmtudag, þegar Búnaðar-
banki íslands gaf 100.000 krónur
og gíróseðlana, sem sendir verða út.
nú er hættan liðin hjá að sögn Svans
Guðmundssonar, og halda starfs-
menn fyrirtækisins áfram að slátra
regnbogasilungi á Bandaríkjamark-
að eins og þeir hafa gert í hverri
viku að undanfömu.
4.-' * .
—r'
Morgunblaðið/Bæríng Cecilsson
Snælax í Grundarfirði:
Hættan er liðin hjá