Morgunblaðið - 16.02.1988, Qupperneq 47
~h
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988
47
Enn um bjórinn
eftirHöskuld
*
Agústsson
Mikil undur hafa skeð, myndi
séra Árni Þórarinsson hafa sagt
ef hann hefði lesið bænaskjal 133
lækna til Alþingis um að leyfa
bruggun á sterku öli með tilheyr-
andi lyfseðli um hollustu bjórsins.
Ég hef verið að íhuga hver
muni vera ráðabruggari að þessari
sambræðslu bjórþyrstra lækna,
niðurstaðan er auðvitað sú að það
sé umboðsmaður Carlsbergs-bjór-
verksmiðjanna á Islandi sem er
læknir og sendir öllum viðskipta-
mönnum hjartnæmar nýárskveðj-
ur með þökk fyrir viðskiptin á liðnu
ári.
Allir læknar fara undantekning-
arlaust til framhaldsnáms erlendis
til að vera færari að gegna heilsu-
gæslu í sínu landi.
I frístundum hefur þeim orðið
tíðfarið annað en kynnast atvinnu-
háttum og fara á vinnustaði og
kynnast lífínu í dagsins önn.
Spegilmynd af því ástandi sem
myndi skapast hér birtist í Velvak-
anda 7. nóvember sl:
Enn einu sinni er lagt fram
frumvarp á Alþingi íslendinga um
leyfí til bruggunar á sterkum bjór,
til þess að bæta drykkjusiði okk-
ar. Ég sigldi í nokkur ár með skip-
um Eimskipafélagsins (sem 'einn
af áhöfninni) til Danmerkur, Skot-
lands og víðar. í Kaupmannahöfn
Höskuldur Ágústsson
virtist vera stöðugur bjórflutning-
ur, frá morgni til kvölds til verka-
manna er unnú við lestun og los-
un. Skiljanlega urðu menn meira
og minna „slompaðir". Fyrir kom
að loknum vinnudegi að leiða
þurfti eldri mann, sem vann við
spilið. í Leith var þetta öðru vísi,
þar hættu verkamennimir að
vinna um leið og bjórstofur opn-
uðu, og komu svo „slompaðir" til
vinnu eftir smátíma. Ég héf komið
á næstum hveija íslenska höfn og
aldrei séð verkamenn eða iðnaðar-
menn drukkna við vinnu sína.
Ungur vinur minn, sem er trésmið-
ur, fór til Danmerkur í tækninám.
Að námi loknu fékk hann vinnu
við húsbyggingar, þar sem stöðug
bjórdrykkja tíðkaðist á vinnustað.
Að nokkrum mánuðum liðnum
taldi hann sig myndi ánetjast þess-
um ósið ef hann yrði lengur í þess-
um félagsskap, svo hann ákvað
að fara heim. Oft hef ég hugsað
til bama og eiginkvenna þessara
manna, sem koma heim þreyttir,
drukknir og jafnvel úrillir, fyrir
utan peningaeyðslu á hverjum
vinnudegi.
Mikið hefur verið rætt og ritað
um ofneyslu áfengis hér á landi.
Er það æskilegt að sterkur bjór
komi til viðbótar? Allir hugsandi
þingmenn hljóta að fella þetta
frumvarp. Ég undrast ekki þó tveir
lítt hugsandi sjálfstæðismenn séu
aðalflutningsmenn, en að uppá-
halds bamabókahöfundur minn,
Guðrún Helgadóttir, sé meðflutn-
ingsmaður þeirra get ég ekki ski-
lið.
Guð forði okkur frá þessum
kaleik.
Höfundur er fyrrverandi yfirvél-
stjóri hjá Hitaveitu Reykjavíkur.
i
I
l