Morgunblaðið - 16.02.1988, Blaðsíða 53
53
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988
Minning:
Sturla Svansson
Fæddur 3. júní 1944
Dáinn 4. febrúar 1988
Hve óútskýranlegur er dauðinn,
þegar hann birtist svo óvænt? En
hvemig eigum við, sem skiljum
ekki einu sinni lífið, að skilja dauð-
ann?
Sturla var alltaf kátur, alltaf
hress og brosandi — þannig minn-
umst við hans.
Sturla vinur okkar er dáinn, en
minningin um góðan dreng lifír.
Minning sem gleður hjörtu okkar.
Aðstandendum hans vottum við
samúð okkar.
Anna Þóra og Einar
„Enginn veit hvað átt hefur fyrr
en misst hefur." Þessi setning leitar
á hugann á þessari stundu er ég
kveð vin minn, Sturlu Svansson,
sem kallaður var á brautu með svo
skjótum hætti. Þótt flest okkar
myndum kjósa svona dauðdaga er
alltaf erfitt að sætta sig við, að svo
fyrirvaralaust sé klippt á lífsþráðinn
hjá manni í blóma lífsins.
Sturla fæddist í Reykjavík 3. júní
1944, elsta bam Unnar Sturludótt-
ur og Svans Skæringssonar, pípu-
lagningameistara, en hann lést fyr-
ir þremur árum. Sturla ólst upp hjá
foreldrum sínum og 10 systkinum.
Minning: ^
Jón Guðni Arnason
húsasmíðameistari
Fæddur 21. febrúar 1914
Dáinn 6. febrúar 1988
Nú er hann elsku afí okkar, Jón
Guðni Ámason, húsasmíðasmeist-
ari, dáinn og em þá liðin átta ár
frá því hann veiktist. Síðustu árin
var hann rúmliggjandi. Það var
erfítt fyrir okkur unga stráka að
horfa á afa veikan og rúmliggjandi
og oft hugsuðum við: Hvers vegna
hann?
Afí, sem var svo lífsglaður, heið-
arlegur, gamansamur og góður. Og
núna þegar við kveðjum hann í
hinsta sinn koma upp í huga okkar
margar ógleymanlegar minningar,
sem munu geymast um alla framtíð.
Það var oft glatt á hjalla hjá afa
og ömmu á Bugðulæk, minningam-
ar um afa að leika sér með okkur,
afa að kenna okkur að spila og er
hann tók upp harmonikkuna. Afí
kunni líka að spila á munnhörpu
og var hún oftast tekin með í ferða-
lög, hún var ómissandi eins og fót-
boltinn. Þær vom ófáar ferðimar
upp í sveit með honum afa á Bron-
conum, sunnudagsbfltúrar, útilegur
og beijaferðir, því helstu áhugamál
afa vom fjölskyldan, heimiiið, vinn-
an og ferðalög um landið, hann
unni náttúmnni og naut þess að
ferðast.
Um helgar á sumrin, oft á föstu-
dögum eftir vinnu, dreif afí fjöl-
skylduna út úr bænum, „út í Guðs
Blómastofii
Friðfinm
Suðurlandsbraut 10
108 Reykjavík. Sími 31099
græna náttúruna", eins og hann
sagði. Eitt af því sem afi brýndi
fyrir okkur var heiðarleiki. Hann
þoldi illa óréttlæti og hann var
maður sem ekki gekk á bak orða
sinna.
Elsku amma, við biðjum góðan
Guð að styðja þig á sorgarstund
og vitum að minningin um góðan
lífsförunaut veitir þér styrk. Með
þessum fátæklegu orðum þökkum
við honum fyrir allt og allt. Söknuð-
urinn er sár en minningin bjarta
mun lifa meðal okkar.
Ðrottinn vakir, Drottinn vakir,
daga og nætur yfír þér.
Blíðlynd eins og besta móðir
ber hann þig í faðmi sér.
Allir þótt þér aðrir bregðist,
aldrei hann á burtu fer.
Drottinn elskar, Drottinn vakir
daga og nætur yfir þér.
(S.Kr. Pétursson.)
Hvfli hann í friði.
Barnabörn
Á heimili svona stórrar íjölskyldu
hefur oft verið líflegt, enda var
Sturla ánægðastur þegar líf og fjör
var í kringum hann, og í nógu að
snúast.
Fyrir fjórum árum hitti ég Sturlu,
en við hþfðum þá ekki sést í tvo
áratugi. Ég var að stíga á bak hesti
mínum upp í Víðidal þegar ríður
upp að hlið mér snaggaralegur,
brosandi maður og segir. „Átt þú
líka bleikan hest?“ Ég leit upp og
þar var Sturla kominn og sat bleik-
an hest sem Seifur heitir og hann
hafði mikið dálæti á. Upp frá þess-
um degi áttum við saman margar
ánægjustundir með þessum fer-
fættu vinum okkar. Það var oft
glatt á hjalla i kaffístofunni í hest-
húsinu og þröngt setinn bekkurinn.
Syni mínum, sem þá var að byija
að sitja hest, lánaði hann þægan
klár til afnota hvenær sem hann
vildi. En með þeim tókst strax góð
vinátta, sem með tímanum varð
eins og besta samband feðga. Til
Sturlu gat hann leitað með allt sem
þarfnaðist úrlausnar, hvort sem það
var viðgerð á hjólinu eða akstur
austur í sveit, og ekki stóð á Sturlu
að leysa málið. Þannig var hann
við okkur öll, sem hann taldi vini
sína, alltaf reiðubúinn að aðstoða
og hjálpa, og þurftum við oft á
aðstoð hans að halda, og hjá okkur
á hann mörg handtökin, en hann
var bæði laghentur og vandvirkur
við það sem hann gerði.
Það er margs að minnast þegar
litið er til baka, því aldrei liðu marg-
ir dagar að ekki heyrðist í Sturlu.
Um leið og ég kveð þennan vin
minn vil ég flytja honum þakkir frá
systkinum mínum og foreldrun fyr-
ir ánægjuleg kynni. Við þökkum
honum samfylgdina og minnumst
hans með hlýhug. Öllum aðstand-
endum hans votta ég samúð mína.
Blessuð sé minning hans.
Hve skammt nær vor síðbúna þökk
í þögnina inn, .
sem þulin er líkt og afsökun
horfnum vini.
Hve stöndum vér fjarri þá stund
er í hinsta sinn
hans stirðnuðu hönd vér þrýstum
í kveðjuskyni. (Guðm. fiöðvarsson.)
Esther
Opið öllkvöld
til kl. 22,- einnig um helgar.
Skreytingar viö öll tilefni.
Gjafavörur.
Skreytum
við öll tækifæri
ikh;c;
Reytjavikurvegi 60, tfml 53848.
Mftwimum 6, síml 33878.
Bojarhrauni 26, afml 50202.
t
Þökkum auösýnda samúð við andlát og jaröarför móður okkar,
DAISY SÖGU JÓSEFSSON.
Hildur Lárusdóttir,
Karólína Lárusdóttir,
Lúðvíg Lárusson.
t
Þökkum innilega fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
útför
DÓRU BJARGAR THEODÓRSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir til hjúkrunarfólks
Kristín Pétursdóttir,
Ragna Jónsdóttir,
Björn Theodórsson,
Jón Theodórsson,
Helga Theodórsdóttir,
á deiid 32a Landspítala.
Helga Björnsdóttir,
TheodórJóhannesson,
Valgerður Kristjónsdóttir,
Anne Höst Madsen,
Örn Friðrik Georgsson.
Steinefnaverksmiðjan
Helluhrauni 14, sími 54034,
222 Hafnarfjörður
t Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð og vinarhug við andlát og útför föður okkar, SÆMUNDAR E. ÞÓRARINSSONAR. Kristfn Sæmundsdóttir, Þórarinn Sæmundsson, Reynir Sæmundsson. k
t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför GESTS ÓLAFSSONAR frá Efri-Brúnavöllum, Skeiðum. Guðný G. Ólafsdóttir, Hjörtur Ólafsson, Guðlaug Ólafsdóttir og fjölskyldur.
t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall eiginkonu minnar og móður okkar, INGIBJARGAR ARNÓRSDÓTTUR, Freyjugötu 6, Reykjavík. Sæmundur Bjarnason, Arnór Þorláksson, Auður Sæmundsdóttir, Þorsteinn Sæmundsson.
t Eiginmaður minn, faðir og afi, SIGURÐUR Á. SOPHUSSON verslunarmaður, Laufási 1, Garðabæ, lést í Borgarspitalanum 15. febrúar sl. Vilborg Jónsdóttir, Ragnheiður Sigurðardóttir, Sigurður Björnsson, Vilborg Björnsdóttir.
t Innilegar þakkir fyrir sýnda samúð og hjálpsemi við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóöur, ömmu og langömmu, INGIGERÐAR LOFTSDÓTTUR. Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki á Droplaugarstöðum fyrir elskulega hjálpsemi og hjúkrun við hina látnu. Hörður Óskarsson, Þorbjörg Sigtryggsdóttir, Ingveldur Óskarsdóttir, Einar Sveinsson, Jón Óskarsson, Katrfn Marteinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.
t Alúðarþakkir til allra sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls og útfarar GUÐRÚNAR JÓHANNESDÓTTUR frá Vik. Brandur Stefánsson, Jóhannes Brandsson, Þuríður Halldórs, Hrönn Brandsdóttir, Guðjón Þorsteinsson, Birgir Brandsson, Jóhanna Þórhallsdóttir, Hörður Brandsson og barnabörn.
t Hugheilar kveðjur og þakklæti til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og hlýhug við andlát og útför dóttur minnar, móöur, tengdamóður, systur og ömmu, GUÐFINNU HALLDÓRSDÓTTUR frá Efri-Brúnavöllum, Skeiðum, Fossheiði 10, Selfossi. Sérstakar þakkir til starfsfólks Sjúkrahúss Suðurlands. Guð blessi ykkur öll. Halldór Bjarnason, Ólína María Jónsdóttir, Guðjón Egilsson, systkini og barnabörn.
t Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför föður okkar, tengdaföður og afa, HARALDAR BREIÐFJÖRÐ ÞORSTEINSSONAR, Maríubakka 8. Jóhanna Haraldsdóttir, Gunnlaugur Valtýsson, Helga Haraldsdóttir, Jón Sveinsson, Ásgerður Haraldsdóttir, Birgir Sigurðsson, Kristín Haraldsdóttir, Birgir Þór Sigurbjörnsson, Gisli Haraldsson, Bergdís Guðnadóttir, Sævar Haraldsson, Aðalheiður Steinadóttir, Haraldur Vilbprg Haraldsson, Hrönn Sigurðardóttir og barnabörn. -•