Morgunblaðið - 16.02.1988, Page 63
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988
Jón Kort við þorskhausa- og lifrarbinginn sem húnninn át úr.
Morgunblaðið/RAX
þau væru eftir sama dýrið og
fundu engin spor eftir stærra dýr,
en allt útlit var fyrir að bjamdýrs-
húnninn hefði gengið á land fyrir
nokkrum dögum, því bæli fundu
menn skammt frá landtökustaðn-
um.
Bjamdýrshúnninn er aðeins
60—70 kg á þyngd og því vart
orðinn eins árs gamall. Venjulega
eru húnamir með móður sinni til
tveggja ára aldurs, því þeir eiga
erfítt með að bjarga sér fyrr, og
því óttuðust menn að biman væri
skammt undan og hún getur orðið
stórhættuleg ef hún er að leita að
í
unga sínum auk þess sem bjamdýr
eru með hættulegri dýmm. Heima-
mönnum í Haganesvík þótti auð-
heyrilega leitt að hafa þurft að
drepa þetta unga dýr, en annað
þótti ekki fært, því ekki hefði ver-
ið hægt að taka áhættu gagnvart
bömum og búpeningi. — á.j.
íslensku skákmennirnir
um miðjan hóp keppenda
Karl Þorsteins í úrslit heimsmeistaramótsins í hraðskák
ÍSLENSKU skákmönnunum í St.
John hefur gengið misjafnlega á
alþjóðlega opna skákmótinu sem
þar stendur yfir. Eftir 6 um-
ferðir hefur Helgi Ólafsson feng-
ið 3,5 vinninga en Margeir Pét-
ursson og Karl Þorsteins eru með
3 vinninga. Efstir á mótinu eru
stórmeistararnir Yasser Seiraw-
an og Lputjan með 5 vinninga.
Karl Þorsteins tryggði sér fyrir
helgina sæti í úrslitum heims-
meistaramótsins í hraðskák.
Helgi Ólafsson hefur teflt við
sterkustu andstæðingana af íslend-
ingunum og gerði hann jafntefli í 4
sfðustu skákum sínum við stórmeist-
arana Kiril Georgiev, Dimitrij Gure-
vitjs sem var aðstoðarmaður Viktors
Kortsjnojs, Jaan Ehivest og Inhiov.
Allar þessar skákir hafa verið langar
og miklar baráttuskákir.
Margeir Pétursson gerði jafntefli
við breska alþjóðameistarann Gallag-
her í 3. umferð en tapaði siðan fyrir
stórmeistaranum Anatolij Lein í 4.
umferð. Þetta var fyrsta kappskákin
sem Margeir tapaði síðan á móti í
Moskvu í maí í fyrra og hefur hann
í millitíðinni teflt vel yfír 30 kapp-
skákir án taps. í 5. umferð vann
Margeir Karl Þorsteins en í 6. um-
ferð tapaði hann fyrir búlgarska al-
Þrjú hross
fyrir bifreið
þjóðameistaranum Krum Georgiev,
bróður Kirils.
Karl vann bandarísku stúlkuna
Ginu Linn í 3. umferð en Gina hafði
í fyrstu tveimur umferðunum gert
jafntefli við stórmeistara. Hann tap-
aði fyrir sovéska stórmeistaranum
Gipsils í 4. umferð, síðan fyrir Mar-
geiri f 5. umferð en vann Kanada-
manninn Boyd í 6. umferð.
Karl Þorsteins hefur bæst í hópinn
sem teflir í úrslitum heimsmeistara-
mótsins f hraðskák 18. febrúar en
hann tiyggði sér annað af tveimur
sætum í úrtökumóti sem fór fram á
föstudag. Griinfeld varð f ' fyrsta
sæti en Karl varð í 2.-4. sæti ásamt
tveimur Júgóslövum, þeim Djuric og
Ivanovich. Þeir tefldú svo sín á milli
og hafði Karl sigur.
Karl tefldi við bandaríska stór-
meistarann Walther Browne í sfðustu
umferðinni og varð að vinna. Það
gerði hann á afgerandi hátt - með
því að drepa kóng Brownes þegar
hann sá ekki skák.
Alls tefla 32 skákmenn í úrslitun-
um og hefur Helgi Ólafsson einnig
tiyggt sér sæti þar.
áLaxárbrÚ Keflavík:
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
Krakkamir f 9. bekk í Holtaskóla í Keflavik með afraksturinn af
flöskusöfnuninni sem reyndist vera 6.000 flöskur. Ágóðinn á að renna
í Frakklandsferð í vor.
Söfnuðu 6000 flöskum
Höfn, Horaafírði.
ÞAÐ óhapp varð á Laxárbrú í
Nesjum á sunnudaginn, að rútu-
bifreið ók á þijú hross. Bifreiðin
var á suðurleið og f rökkrinu
varð bílstjórinn einskis var fyrr
en hann var lentur á hrossunum.
Tvö þeirra voru aflífuð strax á
slysstað, en það þriðja mánudags-
morgun. Tjón varð lítið á bifreið-
inni. Hrossunum hafði verið hleypt
út meðan á gjöf og hreinsun hest-
húss stóð, en þau tekið á rás uppá
veg, með fyrrgreindum afleiðing-
um. Þau voru í eigu eins og sama
aðila.
Keflavfk.
KRAKKARNIR f 9. bekk f Holta-
skóla f Keflavfk tóku sig til um
daginn og stóðu að flöskusöfnun
meðal bæjarbúa og tókst þeim
að safna 6.000 flöskum á einum
degi. Ágóðann ætla þau að nota
til Frakklandsferðar f maf, en þá
ætla þau að heimsækja jafnaldra
sína f Hem f Norður-Frakklandi
sem er vinabær Keflavfkur.
í fyrra var formlegum tengslum
komið á milli bæjanna og þá kom
hópur franskra ungiinga ásamt
kennurum til Keflavíkur og dvöldu á
heimilum í bænum. Síðan endurguldu
krakkamir í 9. bekk heimsóknina og
bjuggu á heimilum jafnaldra sinna í
Hem.
Sama hátt á að hafa á í ár og eru
frönsku unglingamir væntanlegir í
apríl, en 9. bekkur fer utan í maí
og standa þeir nú að margvíslegum
fjáröflunarleiðum til að standa
straum af kostnaðinum.
loftræstiviftur -
m FALKINN A
____Þekking Reynsla Þjónusta_
SUDURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670 TMB? ,
- JGG.
- BB