Morgunblaðið - 16.02.1988, Page 64
ÞEGAR
MESTÁ REYNIR
ÞRIÐJUDAGUR 16. FEBRÚAR 1988 VERÐ í LAUSASÖLU 56 KR.
Hrafn Sveinbjarnarson III:
Björgmmrsveit-
in fékk bátinn
Gríndavfk.
Tryggmgamiðstöðin hefur
með samþykki eigenda Hrafns
Sveinbjarnarsonar III gefið
slysavarnasveitínni Þorbimi í
Grindavik bátínn þar sem hann
liggur á strandstað en hann var
dæmdur ónýtur f gærdag. Húf-
tryggingaverðmæti skipsins er
tæpar 58 milþ‘ónir króna. Reynt
var að ná bátnum af strandstað
f fyrrinótt eftír að dráttarbátur-
inn Goðinn kom varðskipinu Óðni
til aðstoðar en án árangurs.
„Við munum halda áfram að
bjarga tækjum úr bátnum og nota
istórvirk tæki til að koma honum
ofar í fjöruna svo hann skemmist
síður. Hugmyndin er að selja eða
bjóða allt upp hér á staðnum og
vænti ég þess að gjöfín verði sveit-
inni mikil lyftistöng," sagði Sigmar’
Eðvarðsson formaður slysavama-
sveitarinnar Þorbjamar.
Eiríkur Tómasson framkvæmda-
stjóri Þorbjamar hf. sagði að þeir
Þorbjamarmenn væru þegar famir
að svipast um eftir öðmm báti og
ljóst er að nýsmíði er kemur til
greina ef ekki semst um notaðan
bát.
„Hrafn Sveinbjamarson III fór
mjög illa á flóðinu í fyrrinótt og í
'gærmorgun var gatið í lestinni orð-
ið það stórt að sá niður í gijót og
þilið inn í vélarrúmið farið að gefa
sig. Þegar ástandið var orðið slíkt
var ekki um annað að ræða en
dæma bátinn ónýtan," sagði Eirík-
ur. Kr.Ben.
Sjá ennfremur bls. 60.
Miklar annir í
gjaldheimtum
Viðræður um að staðgreiðslufé af
launum verði greitt í bönkum
Morgunblaðið/Júlíus
Jóhanna Stefánsdóttir undir stýri bflsíns sem skotíð var á.
Skotið
ábílá
Eiðs-
granda
„ÉG HÉLT fyrst að einhveijir
krakkar hefðu hent snjóbolta eða
grjóti f rúðuna, en furðaði mig
þó á hvað hvellurinn var hár,“
sagði Jóhanna Stefánsdóttír, hús-
móðir úr Kópavoginum, en skotíð
var á bfl hennar um kvöldmatar-
leytíð á sunnudag. Jóhanna var
að koma vestan af Seltjamarnesi
og ók eftír Eiðsgranda er skotíð
var í framrúðuna, þar sem bfllinn
var staddur um miðja vegu á milli
JL-hússins og Nýjabæjar. Fram-
rúðan splundraðist og kúlan fór f
gegnum bakið á aftursætínu.
„Það var mesta mildi að ekki
hlaust verra af þar sem tvö böm,
sem vora f aftursætinu, höfðu far-
ið úr bflnum skömmu áður, “ sagði
Jóhanna.
Jóhanna kvaðst í fyrstu ekki hafa
áttað sig á hversu alvarlegt mál hér
var um að ræða og ók því áfram
heim til sín. „Ég hefði auðvitað átt
að stoppa og kanna nánar hvað hér
var á seyði. Það var ekki fyrr en á
mánudagsmorgun, þegar maðurinn
minn fór að athuga bflinn betur, að
kúlan fannst í skottinu," sagði Jó-
hanna.
Rannsóknarlögregla ríkisins hefur
nú málið til meðferðar, en það var
óupplýst er Morgunblaðið fregnaði
síðast í gærkvöldi.
EINDAGl skila á staðgreiðslufé
er 15. hvers mánaðar og f gær var
fuflt út úr dyrum allan daginn hjá
Gjaldheimtunni f Reykjavík og
miklar annir hjá sambærilegum
stofnunum útí um land. Gjald-
heimtustjórinn f Reykjavík, Guð-
mundur Vignir Jósefsson, taldi að
gærdagurinn hefði verið met-
dagur hjá Gjaldheimtunni.
— Indriði H. Þorláksson, skrifstofu-
stjóri í fjármálaráðuneytinu, sagði
að gjaldheimtunefnd og fulltrúi flár-
málaráðuneytis stæðu í viðræðum
við banka og sparisjóði um að hægt
verði að greiða staðgreiðslufé af
launum og reiknað endurgjald í bönk-
um og sparisjóðum. Það er nú hins
vegar einungis hægt að greiða hjá
gjaldheimtum og innheimtumönnum
ríkissjóðs.
Indriði sagðist telja að ekki þyrfti
að breyta iögunum um staðgreiðslu
til að hægt yrði að greiða stað-
greiðsiufé af launum og reiknað end-
urgjald í bönkum og sparisjóðum.
„Það hefur hins vegar skapað visst
vandamál að í skattakerfínu eru not-
aðar kennitölur en nafnnúmer í
bankakerfínu ,“ sagði Indriði.
Innflutniiigsleyfi á
seiðum til Noregs
NORSKA landbúnaðarráðuneyt-
ið hefur gefið út innflutnings-
Húnninn
stoppaður
upp og sett-
ur á safn í
Varmahlíð
^ Hofsósi.
ÁKVEÐIÐ hefur verið að húnn-
inn sem skotínn var á sunnudag
í Haganesvfk verði stoppaður
upp fyrir náttúragripasafn
Skagafjarðarsýslu f Varmahlfð.
Ekki er ákveðið hver stoppar
dýrið upp.
Sex menn fóru í gærmorgun á
vélsleðum og svipuðust um eftir
öðrum hvítabimi sem líkur voru
taldar á að væri í grennd við Haga-
nesvík. Þeir röktu slóð frá sunnu-
deginum norður með ströndinni út
að Hraunum. Þar fundu þeir tvö
bæli og slóð niður að sjó. Þar fyrir
framan var stór jaki með bæli í en
ekkert dýr. Telja menn nú fullvíst
að aðeins húnninn hafí gengið á
land og að hann hafí þvæist um í
nokkra daga áður en hann var
felldur á sunnudag. Ófeigur
Sjábiaðsíðu 62—63.
Morgunblaðið/Ragnar Axelsson
Sigurbjöra
Þorleifsson
bóndií
Langhúsum
viðHaga-
nesvik með
bjarndýrs-
húninn sem
hann felldi
síðastliðinn
sunnudagen
menn töldu
annaðekki
óhætt vegna
barnaog
búpenings á
staðnum.
Heimamenn
sáudýrið
ekkial-
mennilega
fyrr en það
óð á land og
var skotið.
leyfi fyrir íslensk seiði til Norð-
ur-Noregs á þessu ári. Norskar
stöðvar hafa sýnt áhuga á seiða-
kaupum hér en samningar
íslensku seiðastöðvanna og
norsku kaupendanna hafa
strandað á innflutningsbanni
Norðmanna. Fiskeldismenn hafa
lengi unnið að þvi að fá þessa
undanþágu og beitti Matthías Á.
Mathiesen, samstarfsráðherra,
sér einnig fyrir lausn þessa máls.
Friðrik Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri Landssambands
fiskeldis- og hafbeitarstöðva tel-
ur að búast megi við strangari
kröfum norskra sjúkdómayfir-
valda en verið hefur undanfarin
ár.
Talið er að íslensku seiðastöðv-
amar framleiði á þessu ári 6—9
milljón gönguseiði umfram innan-
landsþörfína og hefur verið talið
að mögulegt yrði að selja allt að
4—5 milljónir seiða til Noregs.
Verðmæti þeirra gæti verið nálægt
30Ö milljónum kr. Bannað er að
flytja lifandi físk til Noregs, en
norska landbúnaðarráðuneytið hef-
ur árlega veitt íslensku stöðvunum
undanþágu með fyrirvörum um
sjúkdómaeftirlit og fleira. Meta þeir
umsókn hverrar stöðvar fyrir sig
með tilliti tii aðstæðna.
Einhveijar stöðvar hafa fyrir-
liggjandi ákveðnar pantanir sem
nema nokkrum skipsförmum og
geta þær nú gengið endanlega frá
samningum.
Trillur og grænlensk-
ur togari 1 erfiðleikum
TVÆR trillur frá Breiðdalsvík
lentu í erfiðleikum út af Streiti
síðdegis í gær og kölluðu þær á
Snæfugl SU frá Reyðarfirði sér
til aðstoðar. Tveggja manna
áhöfn var á hvorri trillu, en eng-
an sakaði. Um svipað leyti barst
beiðni frá grænlenskum togara
með bilaða vél út af Garðskaga.
Varðskipið Óðinn hélt honum til
aðstoðar og tók í tog.
Vélarbilun varð í annarri trillunni
er hún var á veiðum út af Streiti
og tók hin trillan hana í tog. Vegna
veðurs lentu þær báðar í erfiðleikum
óg leituðu vars í Berufírði. Snæfugl
var þá kallaður til aðstoðar og tók
hann biluðu trilluna í tog og var á
leið með hana til Breiðdalsvíkur er
Morgunblaðið hafði síðast spumir
af í gærkvöldi.