Morgunblaðið - 13.03.1988, Side 9

Morgunblaðið - 13.03.1988, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MARZ 1988 9 HUGVEKJA ........... Skrifaðu það ájörðina eftir sr. HALLDÓR GUNNARSSON ■ 4. sd. í föstu Jóh. 6; 35.-51. Jóh. 8; 2.—11. Mér var heilsað í símanum með lágri röddu. Fullorðinn karlmaður baðst afsökunar á ónæðinu og sagðist ekki geta sagt til nafns. Hann ætti við mikinn vanda að stríða, sem hann réði ekki við en vildi svo gjaman yfirstíga. Hann væri búinn að búa í löngu hjóna- bandi, en hefði svo komist að því fyrir nokkrum árum að konan hefði verið honum ótrú í mörg ár. Það hefði átt sér stað mjög erfitt uppgjör milli þeirra, sem hefði endað með því að hann fyrirgaf í orðum og þau síðan ákveðið að búa áfram saman. Honum þætti vænt um konuna sína, en fyrir- gefningin væri ekkki ennþá komin í huga hans. Allt hefði breytzt og fortíðin væri honum ljóslifandi með nagandi afbiýðisemi. Hann hefði í bænum sínum reynt að biðja um frið og lausn frá þessum vanda, en allt komið fyrir ekki. Hvað gæti hann annað gert? Ég reyndi að útlista fyrir hon- um nauðsyn þess að ræða þetta vandamál við einhvern sem hann treysti og að hann skyldi vera minnugur þess að fortíðinni gæti hann ekki breytt. Nokkrum dögum síðar kom upp í huga minn frásögnin um það þegar fræðimennimir og Faríse- amir komu með hórseku konuna til Jesú og vildi grýta hana og sögðu: „Hvað segir þú um hana?“ En Jesús laut þá niður og ritaði með fingrinum á jörðina. En þar eð þeir héldu áfram að spyrja hann, rétti hann sig upp og sagði við þá: „Sá yðar sem syndlaus er, kasti fyrstur steini á hana.“ Og hann laut aftur niður og ritaði á jörðina með fingrinum. Síðan fóm eþir burt og síðast sagði Jesú við konuna: „Eg sakfelli þig ekki heldur. Far þú, syndga ekki upp frá þessu." Eigir þú í líku sálarstríði út af einhveiju sem skeð hefur bið ég þig að hugleiða þetta. Jesús skrif- aði dóm sinn á jörðina, á sandinn, þar sem aldan máði orðin út eða í moldina, þar sem gróðurinn huldi orðin. Hann gerði það tvisvar, fyrst gagnvart synd konunnar og síðan aftur gagnvart synd þeirra sem hana dæmdu. Hann dæmir syndina en horfist í augu við þann sem syndgar og hann fyrirgefur. Okkur mönnunum er hættara á að dæma þann sem syndgar eða brýtur lög, þegar það kemst upp, en horfa fram hjá syndinni eða lögbrotinu á meðan það er án kæm, án dóms, — já, jafnvel í okkar eigin fari, gjörð sem er hulin eða löngun, sem við höfum marg oft fallið fyrir í huganum. Jafnvel þessa ódrýgðu synd hugs- unarinnar dæmdi Jesús miskunn- arlaust, því hann dæmdi syndina, en umvafði syndarann. Hann dæmir á gmndvelli siðferðis og á gmndvelli þeirrar stundar sem syndin á sér stað. Fyrirgefningin er gefin þegar einstaklingurinn hefur sigrað syndina. Dómurinn er í syndinni sjálfri, afleiðingu hennar, sem enginn kemst undan, því syndin er brot á lífslögmáli Guðs og sá sem hana drýgir upp- sker eins og hann hefur sáð til. Þegar við því mætum þessari uppgjörsstund að fyrirgefa öðr- um, sem hefur brotið gegn okkur, þá eigum við fyrst að líta í eigin barm og ef brotið er stærra en við ráðum við að fyrirgefa, þá getum við skrifað það á jörðina og látið ölduna má það út eða ný blóm hylja það. — Þá getum við rætt það við trúnaðarvin eða skrif- að það niður á blað og með því litið það með nýjum hætti. Aðrar hliðar kunna að koma upp, aðrar ástæður og aðrar afleiðingar, en við gerðum okkur grein fyrir áð- ur. Það var ef til vill eitthvað í eigin fari eða annað, sem hefði getað hent okkur sjálf sem kemur fram og á að skrifast á jörðina- og mást þar út, gleymast í fortíð til þess að við getum tekið á móti blómstrandi blómi úr jarð- vegi sem hefur brotnað og mul- ist. Þannig getur þjáning leitt til hamingju, sé fyrirgefning gefin algjörlega, syndin dæmd, en synd- aranum fyrirgefíð. Til þess að geta þetta, verðum við að sækja styrk okkar til hans, þennan andlega styrk, sem gefur okkur sigur yfir hugsuninni. Það er erfíðast. I orðum ritningarinn- ar, sem tilheyra þessum sunnu- degi, fjallar Jesús um þennan andlega styrk sem við eigum í kristinni trú og segir: „Eg er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra sem til mín kemur, og þann aldrei þyrsta, sem á mig trúir." Þetta er fagnaðarboðskap- ur föstunnar, þjáningarinnar og syndarinnar. Þetta er lífíð sjálft sem við mætum með einum eða öðrum hætti og verðum að takast á við. Guð gefí að syndin okkar sé skráð í sandinn og að við stöndum frammi fyrir honum, þegar hann segir: „Ég sakfelli þig ekki held- ur. Far þú, syndga ekki upp frá þessu." UFANDIPENINCAMARKAÐUR IKRINGLUNNI fjármál fyrirtakisins _ Hjá Fjárfestingarfélaginu í Kringlunni erlifandi peningamarkaður og persónuleg þjónusta. FJARFESHNGARFÉLAGIÐ Kringlunni 123 Reykjavík Sími 689700 Opið mánudaga til föstudaga kl. 10 — 18 og laugardaga kl. 10 — 14 Brynhildur Sverrisdóttir Stefán Jóhannsson Símsvari ALLAN SÓLARHRINGINN í síma 28506. Upplýsingar um daglegt gengi Kjarabréfa, Markbréfa, Fjölþjóðabréfa og Tekjubréfa Gengi: 11 mars 1988: Kjarabréf 2,700 - Tekjubréf 1,378 - Markbréf 1,401 - Fjölþjóðabréf 1,268

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.