Morgunblaðið - 13.03.1988, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. MARZ 1988
33
Frá hugmyndum til framkvæmda
Aukaþing Sambands ungra sjálfstæðismanna, undiryfirskriftinni Frá
hugmyndum til framkvæmda, verður haldið í Vestmannaeyjum dag-
ana 25.-26. mars. Þetta þing er opið öllu ungu fólki, sem aðhyllist
sjálfstæðisstefnuna.
Arni Sigfússon, formaður SUS:
„Við höldum til Vestmannaeyja til þess að móta
okkur skýra og styrka stefnu í fjölda málaflokka. Á
fjórða hundrað ungs sjálfstæðisfólks hefur í vetur
unnið að stefnumótun fyrir þetta þing, og margar
nýjar hugmyndir hafa komið frá þessum stóra hópi.
Á aukaþinginu tökum við afstöðu til þessara hug-
mynda.
Það er hins vegar ekki nóg að setja fram stefnu ár
eftir ár. Það hefur brunnið við að sjálfstaeðismenn
hafa tatað mikið, en framkvæmt minna. í Vest-
mannaeyjum þurfum við einnig að huga að ieiðum
til þess að kynna stefnu okkar og koma henni í fram-
kvæmd. Þvíer þinginu valin þessi yfirskrift.
Ég hvet allt ungt sjálftæðisfólk til þess að slást í
för með okkur til Vestmannaeyja og taka þátt í
spennandi verkefni."
Fimmtán verkefnisstjórnirhafa unnið að málefnastarfi ungs sjálfstæðisfólks ívetur, bæðiað
stefnumótun út á við og að þvíað efla innra starfSUS. Verkefnisstjórarnir okkar munu stjórna
málefnavinnunni á þinginu:
Blrglr Þór Runólfsson, verk-
efnisstjórl sjávarútvegsmála:
„Gengismál eru lykilatriði. Sú
stefna er með öllu óhæf að
stjórnvöld niðurgreiði innflutning
á kostnaö sjávarútvegsins. Rétt
gengisskráning erforsepda þess
að þessari undirstöðuatvinnu-
grein vegni vel.“
Árnl Sigfússon, verkefnis-
stjórl verkaskiptingar ríkis og
sveitarfélaga.
Eiríkur Ingólfsson, verkefnis-
stjórl I dagvistunarmálum:
„Við viljum fara nýjar leiðir í dag-
vistun barna. Það má vel hugsa
sér dagheimili, þar sem foreldrar
eru eigendurnir, eða greiöa hluta
dagvistargjaldanna með vinnu-
framlagi."
Þór Sigfússon, verkefnis-
stjórl umhverfismála: „Tökum
átthagana í fóstur - á næstu
þrjátíu árum á að vera hægt að
rækta upp mestan part af órækt-
uðu landi, þar skiptir mestu fram-
tak einstaklinga og samtaka
þeirra."
Þorgrlmur Daníelsson, verk-
efnlsstjórl í málum kirkju og
krlstnl og óhrlfa trúarinnar á
sjálfstæðisstefnuna: „Sjálf-
stæðismenn þurfa að sýna fram
á að þeir þekki og virði hug-
myndakerfi, sem gerir fólki kleift
að gera mun á réttu og röngu
og hjálpar því þannig að vera
ábyrgir einstaklingar í frjálsu
þjóðfélagi."
Hreinn Loftsson, verkefnls-
stjórl f málum fslensks fjór-
magnsmarkaðar: „Við viljum
aukið erlent áhættufjármagn í
íslenskan atvinnurekstur. Með
þátttöku erlendra aðila kemur
aukin þekking inn í landið, bæði
á tæknilega sviðinu og í sölu og
markaðsmálum. ísland gæti iika
átt möguleika á að verða miðstöð
alþjóðlegra bankaviðskipta."'
Slgurður Sigurðarson, verk-
efnlsstjóri í neytendamólum:
„Opinber verðstýring á eggjum
og alifuglum felldi síðasta vígi
frjálsrar verðlagningar í land-
búnaði. Neyslu landsmanna er
stýrt með valdi. Ofríki stjórnvalda
gagnvart innkaupum heimilanna
verðuraðlinna."
Ólafur Björnsson, verkefnis-
stjóri í landbúnaðarmólum:
„Við teljum að athuga ætti mögu-
leika á að stofna kjötmarkaði,
sem lytu sömu lögmálum og fisk-
markaðirnir. Það er óþarfi að
hneppa alla kjötframleiðslu í
landinu í fjötra SÍS-veidisins".
Árnl M. Mathlesen, verkefn-
Isstjórl í samgöngumólum:
„Það er vel athugandi að fjár-
magna samgöngumannvirki á
nýjan hátt, til dæmis með afnota-
gjöldum vegfarenda um brýr,
jarðgöng eða vegi."
Þórhallur Jósepsson, verk-
efnisstjóri i húsnæðismólum:
„Við ætlum ekki að reyna að
lappa upp á gamla kerfið eða búa
til sósíalískt skömmtunarkerfi
fyrir nýja forgangshópa - við
byrjum með autt blað."
Sveínn Andrl Sveinsson,
verkefnlsstjórl lónamóla
nómsmanna: „Að okkar mati
er það ekki hlutverk Lánasjóðs-
ins að stýra því hvert námsmenn
fara til menntunar. Slíkt val hlýtur
að vera í höndum hvers og eins."
Belinda Theriault, verkefnis-
stjórl f utanríklsmólum: „Það
þarf að halda umræðunni um
tengsl okkar við EB áfram og
athuga alla möguleika. Fordómar
og meinlokur eiga ekki heima í
þeirri umræðu - íslendingar
mega ekki einangra sig frá um-
heiminum.
Arnar Hákonarson, banka-
stjóri hugmyndabanka SUS.
Rósa Guðbjartsdóttir, verk-
efnisstjóri í almennings-
tengslum SUS.
Magnús Jónasson, formaður
fjórmólaróðs SUS.
Ferðir - gisting- matur
★
★
Vestmannaeyjaferjan Herjólfur veitir þinggest-
um afslátt. Ferð fram og til baka kostar kr. 960.
Flugleiðir hf. veita 50% afslátt af flugi til Vest-
mannaeyja.
Farfuglaheimilið við Faxastíg er nýtt og þægi-
legt húsnæði, þar sem gisting kostar aðeins
370 krónur á nóttu.
Hótel Þórshamarer nýjasta og glæsilegasta
hótelið í Eyjum, staðsett í hjarta bæjarins.
Verð á nóttu er 1750 kr.
Gistiheimilið Hvíld býður upp á þægilega gist-
ingu. Verð á nóttu: 1000 krónur.
Veitingahúsið Skútinn veitir þinggestum 20%
afslátt af auglýstum matseðii meðan á þinginu
stendur.
Kaffi og léttar veitingar verða á boðstólum
allan tímann á þingstaðnum - á vægu verði.
Barnagæsla verður á svæðinu fyrir þá sem
vilja.
Þinggjald verður 1950 krónur. Innifalinn er
gl^esilegur kvöldverður á veitingahúsinu Mun-
inn á hótel Þórshamri á laugardagskvöldinu.
Þingsetning er klukkan 18.00 á föstudag.
Allar nánari upplýsingar og skráning í síma
82900.
Hér eru nokkur sýnishorn af viðfangsefnum, sem við munum fást við á þinginu. Vertu með íað móta fram-
sækna stefnu!