Morgunblaðið - 19.03.1988, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1988
7
Húsavík.
NÝR bátur mb. Björg Jóns-
dóttir ÞH 321, bættist i báta-
flota Húsavíkur fyrir skömmu.
Báturinn er 190 lestir að stærð,
byggður í Noregi 1963 og hét
lengst af Faxi en nú síðast Snæ-
fari HF 186 ogvar Júlíus Stefáns-
son, útgerðarmaður, Kópavogi,
áður eigandi hans. Báturinn var
lengdur árið 1973 og fjórum árum
sfðar yfírbyggður og nýlega var
skipt um brú á honum og hann
sandblásinn, lest einangruð fyrir
frosti, sett í hann grandaraspil
og skipt um aðalvél 1982 svo
segja má að hann sé í mjög góðu
ástandi.
Björg Jónsdóttir ÞH 321 kemur
til heimahafnar. Innfellda
myndin er af Aðalgeir Bjarna-
syni skipstjóra.
Eigandi bátsins er Langanes
hf. á Húsavík og skipstjóri er
Aðalgeir Bjamason.
Langanes hf. átti áður 131 lesta
bát, sem bar sama nafn, en hefur
nú selt hann til Dalvíkur og er
kaupandi hans Haraldur hf.
Björg Jónsdóttir fer til neta-
veiða nú í vikunni.
Fréttaritari
Morgunblaðið/Sigurður P. Bjömsson
Björgúlfur
seldi í Brem-
erhaven
BJÖRGÚLFUR EA seldi 159 tonn
í Bremerhaven sl. fimmtudag og
í gær fyrir 8,6 milljónir króna.
Meðalverð var 54,12 krónur og
uppistaða aflans var karfi.
Selt var 51 tonn úr gámum í
Hull og Grimsby sl. fímmtudag fyr-
ir 3,1 milljón króna. Meðalverð var
60,56 krónur. Seld voru 25 tonn
af þorski á 58,07 króna meðal-
verði, 13 tonn af ýsu á 75,18 króna
meðalverði og 4 tonn af kola á
64,92 króna meðalverði. Ekkert var
selt úr gámum erlendis í gær.
Breskur fræðimaður:
Fyrirlestur
um varnir
Norðurslóða
Kynnum „toppinn" frá Honda
í hádeginu i dag flytur Clive
Archer frá háskólanum í Aber-
deen ræðu um varnir á Norður-
Atlantshafi og viðbrögð vest-
rænna þjóða við Múrmansk-
ræðu Gorbatsjovs.
Hádegisverðarfundurinn er hald-
inn á vegum Samtaka um vest-
ræna samvinnu og Varðbergs og
er opinn félagsmönnum og gestum
þeirra. Hann er f Átthagasal Hótel
Sögu og verður húsið opnað klukk-
an 12.
Clive Archer er forstöðumaður
rannsóknastofnunar í vamarmál-
um við Háskólann í Aberdeen og
einn þekktasti fræðimaður á Bret-
landseyjum í vömum á Norður-
Atlantshafí og almennt í málefn-
um Norðurlanda og Norðurhafa.
Drukkinn
í höfnina
MAÐUR féll út af Ingólfs-
garði í Reykjavíkurhöfn i
fyrrinótt. Lögreglan dró hann
á þurrt og flutti hann á slysa-
deild.
Það var um kl. 2.45 um nótt-
ina sem maðurinn féll f sjóinn
og var hann nokkuð drukkinn.
Lögreglan kom á vettvang
skömmu sfðar og kastaði til
hans bjarghring. Var hann sfðan
dreginn á þurrt og ekið á slysa-
deild. Ekki mun honum hafa
orðið meint af volkinu, en lög-
reglumaður, sem dró hann upp,
tognaði á hendi við björgunar-
starfíð.
Leiðrétting:
1,7 milljóna
króna hagnað-
ur Granda hf.
HAGNAÐUR Granda hf. var 1,7
miiy. króna árið 1987 en ekki
188,6 millj. króna eins og sagt
var í fyrirsögfn fréttar Morgun-
blaðsins á blaðsíðu 2 í gær. Blað-
ið biðst velvirðingar á mistök-
unum.
Hagnaður Granda hf. var hins
vegar 188,6 milljónir króna fyrir
afskriftir og Qármagnskostnað,
sem námu 159,8 milljónum króna,
þannig að hagnaður á reglulegri
starfsemi fyrirtækisins fyrir
skatta varð 30 milljónir króna.
Á ÍSLANDI, VATNAGÖRÐUM 24, SÍMI 689900.