Morgunblaðið - 19.03.1988, Qupperneq 52
52
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. MARZ 1988
+
■^LwwJPI'VJI i
ANUDIRNIR
ERU BIjOMATIMI
SKÍÐABAKTERÍUNNAR
í Kerlmgarfjöllum
veróa eftirtalin
námskeiÓ í sumar:
Brottför Tegurui númskeiðs Ddgd- fjóhti Grunngjald breytilegt eftir aldri Jiátttakenda
Júnt
21. UNGLINGA 6 15.400
26. UNGUNGA 6 15.400
Júli
3- FJÖLSKYLDU 6 9950 til 17.400
10. FULLORÐINNA 6 17.400
17. IJÖLSKYLDU 6 9.950 til 17.400
24. FJÖLSKYLDU 6 9.950 til17.400
29. ALMENNT ( verslmannabelgi) 4 5.700 til 10.400
Ágúst
1. IJÖISKYIDU 5 6.850 til 12.950
7. IJNGLINGA 6 15.400
14. UNGIJNGA 6 14.800
21. UNGUNGA 5 11.800
25. ALMENNT 4 5.250 lil9.450
GRUNNCiJALU felur í sér fceði og búsnceði í Skíðaskólanum,
ferðir milli skcila og skíðalands, afnot af skiðalyftum og
aðgang að kvöldvökum, svo og skíðakennslu fyrir
15 ára og yngri.
KENNSLUGJAIS) FYRIR FULLORÐNA er kr. 1000-1500 á 4
daga námskeiði, kr. 2000 á 5 daga námskeiði og kr. 2600
á 6 daga námskeiði. Kennslugjald er innifalið í grunn-
gjaldi fyrir unglinga og böm.
FARGJALD RVÍK - KERUNGARFJÖLL - RVÍK er kr. 2.500.
Afsláttur fyrir böm yngri en 12 ára á fjölskyldu - og
almennum námskeiðum.
FJÖLSKYLDU - OG HELGARNÁMSKEIÐ (fó. - suj
íjúlíogágúst. Grunnverðkr. 3.700 til6.450. Kennsla
fyrir fullorðna kr. 1000.
UPPLYSINCAR OG BOKANIR:
VIO AUSTURVOLl
SÍMI 26900
JMBOÐSMENN URVALS UM LAND ALLT
Minning:
William Þorsteins-
son, Ólafsfirði
Fæddur 29. júní 1898
Dáinn 13. mars 1988
í dag er til moldar borinn í heima-
byggð sinni í Ólafsfírði elskulegur
tengdafaðir minn, William Þor-
steinsson, en hann andaðist á Fjórð-
ungssjúkrahúsinu á Akureyri 13.
mars sl. á nítugasta aldursári eftir
langvarandi heilsuleysi.
William var fæddur að Hringvers-
koti 29. júní 1898, sonur hjónanna
Þorsteins Þorkelssonar oddvita og
Guðrúnar Jónsdóttur.
Níu ára gamall flytur hann með
foreldrum sínum að Osbrekku og þar
ólst hann upp. Þrettán ára fór hann
að stunda sjó með föður sínum og
fímmtán ára var hann ráðinn háseti
á vélbát. Seinna var hann svo með
Þorsteini Þorsteinssyni til sjós. En
árið 1919 eignaðist hann sjálfur 8
smálesta bát, er Óskar hét, og gerði
hann út í nokkur ár. Þorsteinn og
Guðrún, foreldrar Williams, áttu
fímm syni og fjórar dætur, sem upp
komust og lifír nú aðeins af þeim
systkinum Kristín, búsett í
Reykjavík. A síðastliðnum tveimur
árum hafa fímm systkini fallið frá.
William kvæntist árið 1919 Jónínu
Daníelsdóttur fæddri á Kálfsá 1895,
dóttur hjónanna Daníels Jóhanns-
sonar og Helgu Rósu Jónsdóttur.
Þeim hjónum varð sex bama auðið,
en af þeim em á lífí fjögur böm.
Konu sína missti William 13. apríl
1972 og var honum það mikill missir.
Böm þeirra hjóna: Þorsteinn
Gunnar, byggingam., Akureyri,
kvæntur Soffíu Þorvaldsdóttur.
Rósa Daney, gift Gunnari Skagijörð
Sæmundssyni, starfsmanni í Út-
vegsbanka íslands hf., Reykjavík.
Sigríður Margrét sem dó tveggja
ára. Asta Sigríður, búsett í Kópa-
vogi, gift Andrési Þ. Guðmundssyni.
Guðmundur, dó af slysförum 9. júní
1979, var kvæntur Freydísi Bem-
harðsdóttur, og Eva Guðrún, var
gift Kristjáni Ásgeirssyni, skip-
stjóra, sem drukknaði 7. nóv. 1975.
William var mikill dugnaðar- og
framtaksmaður, sem aldrei féll verk
úr hendi, meðan heilsa leyfði. Þau
hjónin reistu sér heimili á Kirkjuvegi
2, í kauptúninu, sem þá var óðum
að myndast og stundaði William sjó-
sókn og útgerð þaðan, en rak einnig
nokkum búskap. Þá vann hann að
smíðum, einkum bátasmíði, er stöð-
ugt varð ríkari þáttur í atvinnu hans
með árunum.
Á heimili Williams og Jónínu
dvaldist einnig lengst af systir
Jónínu, Ágústa, og sonur hennar
Daníel, sem þau hjón litu ávallt á,
sem eitt af sínum bömum. Daníel
er kvæntur Kristínu Egilsdóttur og
eru þau búsett í Reykjavík. William
byggði síðar húsið á Brekkugötu 23
ásamt Guðmundi syni sínum, og bjó
þar allt þar til að heilsan þvarr en
þá fluttist hann að Hombrekku,
dvalarheimili aldraðra á Ólafsfirði,
og þar dvaldist hann síðustu æviár-
in. Margir urðu til að heimsækja
hann þar, enda vinmargur og þau
hjón voru alla tíð með fádæmum
gestrisin. Ættingjar hans á Ólafs-
fírði hugsuðu einstaklega vel um
hann og ber þeim miklar þakkir fyr-
ir.
Að endingu þökkum við fjölskyld-
an honum samfylgdina og undirrit-
aður áralanga vináttu.
I Guðs fríði.
Andrés Þ. Guðmundsson
Afí, Villi, í Ólafsfirði er dáinn.
Stór hópur afkomenda og ástvina
kveður hann með söknuði og þakk-
læti. Mætur maður hefur lokið dags-
verki sínu með sóma. í kirkjugarði
Ólafsíjarðar þar sem hann hefur
kvatt svo marga ástvini sína, verður
hann nú lagður til hinstu hvíldar við
hlið ömmu, sem hann saknaði svo
sárt. Nú eru þau aftur saman. Hjart-
ans þökk fyrir þá fallegu endurminn-
ingu sem við eigum um þau. Betra
veganesti er ekki hægt að gefa af-
komendum sínum en það fordæmi
sem þau gáfu okkur með lífí sínu
og starfí.
Það var ævintýri fyrir litla stelpu
að fá að fara ein með póstbátnum
til Ólafsfjarðar að heimsækja afa
og ömmu. Stundum var ég dálítið
sjóveik fyrir Múlann, en öryggis-
kenndin streymdi um mig og öll sjó-
veiki glejrmdist við að sjá afa bíða
mín á bryggjunni. Hvort sem hann
var spariklæddur eða í vinnugalla,
reisn og höfðingsbragur var yfír
þessum manni. Sterka höndin hans
aðstoðaði mig við að stíga í land og
með ferðatöskuna í annarri hendi
leiddi hann mig heim til ömmu sem
beið með eitthvað gott í eldhúsinu.
Heimili þeirra var öllum opið og oft
var þar margt um manninn og mik-
ið starfað, en líka sungið og leikið.
Afí hafði fallega söngrödd og naut
þes_s að taka lagið á góðri stund.
Árin hafa liðið og margt hefur
breyst. Amma og fleiri ástvinir eru
horfnir héðan. Bamabömin sem
fylltu heimili afa og ömmu em orðin
fullorðin, afkomendumir orðnir
margir og íjölskyldan töluvert
dreifð. En eitt hefúr aldrei breyst. •
Það er alltaf gott að koma í Ólafs-
fjörð. Gestrisnin og hlýjan fylgja
kynslóð eftir kynslóð og ijarlægð og
aðskilnaður hafa aldrei náð að ijúfa
tengslin sem mynduðust í bamæsku.
Rætumar eru sterkar og þróttmiklar
því þær nærðust á mannelsku og
hlýju.
Afí var fallegur maður og fyrir-
mannlegur. Fas lians og viðmót báru
vott um skapfestu og innra öryggi.
Hann var vinnusamur og ósérhlífinn,
vinsæll og virtur. Hann rétti hik-
laust hjálparhönd þar sem með
þurfti og þótti slíkt sjálfsagt og ekki
umtalsvert. Við vomm stolt af hon-
um og bámm djúpa virðingu fyrir
honum. Langt fram eftir aldri var
hann kvikur og léttur í spori og mér
er minnisstætt hvemig hann stökk
upp bratta bakkann framan við hú-
sið sitt og stytti sér þannig leiðina
heim. Með aldrinum gránuðu hárin,
heilsutap og ástvinamissir settu sitt
mark á hann, en rændu hann þó
aldrei reisn og höfðinglegu yfír-
bragði. Hann gladdist jrfír nýjum
Qölskyldumeðlimum og velgengni
ástvina sinna og sýndi öllum þessum
stóra hóp afkomenda áhuga og
umhyggju.
Síðustu árin dvaldi hann í góðu
yfírlæti á elliheimilinu Hombrekku
í Ólafsfírði og naut þar að auki ein-
staks ástríkis og umhyggju Evu,
yngstu dóttur sinnar, dætra hennar
og tengdasona og Freydísar tengda-
dóttur sinnar, bama hennar og
tengdabama. Þegar hann var fluttur
mjög veikur á Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri og Ijóst var að hann
ætti skammt eftir ólifað hópuðust
vinir og ættingjar að sjúkrabeð hans
til að kveðja þennan aldna heiðurs-
mann og sýna honum virðingu sína
og væntumþykju.
Með þessum fátæklegu orðum
langar mig að gera slíkt hið sama.
Guð blessi minningu Villa afa í Ól-
afsfirði.
Jóna Lísa
í dag, laugardaginn 19. mars, er
til moldar borinn William Þorsteins-
son í heimabyggð hans, Ólafsfirði.
William fæddist 29. júní 1898 í
Hringverskoti í Ólafsfirði. Foreldrar
hans voru hjónin Guðrún Jónsdóttir
og Þorsteinn Þorkelsson, hrepps-
stjóri frá Ósbrekku í Ólafsfirði.
William ólst upp í stórum systk-
inahópi, en þau eru Jón, Kristinn,
Guðmundur, Eugeníus, Sigríður,
Freygerður, Kristín, Margrét og
tvær Lofísur, öll eru þau látin nema
Kristín, sem búsett er í Reykjavík.
Árið 1919 gekk William að eiga
Jónínu Daníelsdóttur. Þau hjón eign-
uðust sex böm: Þorsteinn, kvæntur
ff
A UKDAM FRAMmmHl
TÆPLEGA ... en við fullyrðum að THOMSON sjónvarpstækin eru
allt að því fullkomin tæknilega .. .og útlitið gefur engum eftir.
ff
UTSIÓNVARP 28'
TF 7252 PG
Stereo
.,BlackMatrix" (útilokarglampá)
Fjarstýring
Meö 'gervihnattamóttöku
Áöurkr. 86.700
Nú kr. 69.900 stgr.
LITSJÓNYARP 25"
TF6352PSK
Stereo
„Black Matrix"
(útilokar glampa)
Fjarstýring
Meö gervihnattamóttöku
Áðurkr. 71.550
Núkr. 58.512 stgr.
m-
■+++++
LITSJÓNVARP 25"
TF6351 PSK
„Black Matrix"
(útilokar glampa)
Fjarstýring
Meö gervihnattamóttöku
Áðurkr. 59.100
Núkr. 49.590
stgr.
f.