Morgunblaðið - 27.03.1988, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1988
KJARASAMNINGAR A AKUREYRI
Frá undirritun kjaraaamninganna á Akureyri í fyrrinótt. Guð-
laugur Þorvaldsson, rikissáttasenijari, og Elísabet Ólafsdóttir,
skrifstofustjóri, eru fyrir miðju borðsins. Næst á myndinni eru
Morgunbladið/Rúnar
Þóra Hjaltadóttir, formaður ASN, og Sigfinnur Karlsson, formað-
ur ASA. Fjær eru forystumenn vinnuveitenda Ólafur B. Ólafs-
son, Þórarinn V. Þórarinsson og Viglundur Þorsteinsson.
Snær Karlsson:
Verulegar
kjarabætur
með aukinni
starfsreynslu
„ÞESSA samninga þarf að bera
upp í félögunum fyrir 12. apríl
og ég held að menn flýti sér
ekki við það. Samningamir
þurfa góða kynningu, því kjara-
og réttarbætur felast i fleiru en
beinum launatöxtum. VMSÍ-
samningarnir Iiðu fyrir það að
vera of Iítið kynntir og það virt-
ist verða einhvers konar tízka
að fella þá, i flestum tilfellum
meira og minna ókynnta," sagði
Snær Karlsson, varaformaður
Alþýðusambands Norðurlands.
„Þetta er allt á svipuðum nótum
og fyrri samningar. Þeir eru hóg-
værir, en fela í sér ýmsar réttinda-
bætur. Menn eru sammála um, að
þessum samningum verður ekki
kennt um, ef verðbólga fer úr bönd-
um, en reyndar hefur það, að
minnsta kosti til þessa, verið ann-
að, sem valdið hefur því en launin.
Ég hef trú á því að þessir samning-
ar verði samþykktir af aðildarfélög-
unum, enda færa þeir okkur meira,
en VMSÍ-samningamir. Hvað laun-
in varðar njótum við starfsreynslu
í meira mæli en áður. Byijunarlaun
verða svipuð og í Iðju-samingun-
um, en starfsaldurshækkanir skila
sér fyrr en í fyrri samningum. Að
auki er nánast allt inni hjá okkur,
sem var í VMSÍ-samningunum,
nema að kaflinn um sveigjanlegan
vinnutíma hefur verið felldur út.
Hann olli talsverðri andstöðu í at-
kvæðagreiðslum, en verður ekki
ásteytingarsteinn nú.
Ég vona þvi fastlega að upp úr
þessu fáist vinnufriður að nýju.
Þetta eru í raun §ölmargir samn-
ingar, sem byggjast á svipuðum
grunni og færa okkur verulegar
kjarabætur með vaxandi starfs-
reynslu. Þá verður eftirvinna felld
niður í núverandi mjmd og greiðist
sem næturvinna, en á móti er felld-
ur niður 16 mínútna kaffitími
klukkan 17.00. Fiskvinnslufólk fær
verulega hækkun á fatapeningum,
sem fara úr 3,15 krónum á hveija
greidda vinnustund í 4,10. Ýmis-
iegt fleira mætti tína til, en þetta
tel ég aðalatriðin," sagði Snær
Karlsson.
Arnar Sigurmundsson:
Félögin 3
taka einnig-
afstöðu til
saminganna
„ÞAÐ lá fyrir að samningsum-
boð Snótar var mjög takmarkað,
en fulltrúar félagins tóku, ásamt
fulltrúum Verkalýðsfélags
Akraness og Verkalýðsfélags
Vestmannaeyja, fullan þátt í
samningagerðinni fram á loka-
stig og óskuðu síðan eftir þvi
við sáttasemjara að fá að taka
kjarasamningana til afgreiðslu
í félögum sínum, þó að þeir
væru eingöngu undirritaðir af
fulltrúum vinnuveitenda," sagði
Amar Sigurmundsson, formað-
ur stjórnar Sambands fisk-
vinnslustöðvanna, í samtali við
Morgunblaðið.
„Að lokinni lotunni á Akureyri
er búið að semja við alla nema fé-
lögin þijú, sem taka þessa samn-
inga þrátt fyrir allt til afgreiðslu á
félagsfundum sínum. FVamhaldið
er því komið undir fundum verka-
lýðsfélaganna og vonandi leiða þeir
til lausnar þeirra deilna, sem uppi
hafa verið. Ég er fremur bjartsýnn
á að svo verði.
Það hefur verið mjög einkenn-
andi við þessa samningalotu hve
margir fulltrúar fiskvinnslunnar
hafa tekið þátt í samningagerð-
inni. Líklega hafa þeir í allt verið
á milli 50 og 60. Stefna okkar hjá
Sambandi fiskvinnslustöðvanna
hefur einmitt verið að fá sem flesta
með til að þeir kynnist gangi mála.
Þá er rétt að þakka fyrir þá frá-
bæru aðstöðu, sem okkur bauðst á
Akureyri og öllum, sem að þessu
stóðu þar, ríkissáttasemjara,
starfsfólki hans og öðrum, sem við
sögu komu. Það var góður andi
yfir þessum samningum og virtist
skipta miklu máli að fundimir voru
á þessum stað, að gengið var til
móts við óskir launþega með því
að funda úti á landi," sagði Amar
Sigurmundsson.
Hjörtur Eiríksson:
Hef trú á að
samning- _
arnir verði
samþykktir
„ÉG ER að sjálfsögðu ánægður
yfir þvf að þessari Iotu er lokið.
Ég hef trú á því að þessir samn-
ingar verði samþykktir vegna
þess að það er búið að fara svo
rækilega yfir stöðuna hjá öllum
aðilum og ég held að allir geri
sér grein fyrir að það er alls
ekki hægt að gera betur en þess-
ir samningar segja um,“ sagði
Hjörtur Eirfksson, formaður
Vinnumálasambands samvinnu-
félaganna.
„Það er ekki spuming um það,
að fyrir atvinnuvegina verður þessi
samningur ansi þungur, sérstak-
lega fyrir útflutningsgreinamar,
sem eiga nú undir högg að sækja.
Ýmsir kostnaðarliðir atvinnuveg-
anna era mjög háir, og þar má
sérstaklega nefna vaxtakostnað,
sem er allt of mikill. Það er von
okkar að það takist með einhveijum
ráðum að lækka þann kostnað,
þannig að atvinnuvegimir fái stað- '
ist þann kostnaðarauka sem þessir
samningar hafa í för með sér.
Þetta var ansi löng lota. Það
má segja að hún hafi staðið frá
30. janúar, þannig að þetta era
orðnir tveir mánuðir og mérfinnst
tfmi til kominn að menn hætti deil-
um um kaup og kjör.“
Guðiaugur Þorvaldsson:
Nokkur
hundruð
blaðsíðna
kjara-
samningar
„ÞETTA er búið að vera ansi
erfitt en það gekk,“ sagði Guð-
laugur Þorvaldsson ríkissátta-
semjari að loknum samningun-
um á Akureyri. „Það var geng-
ið frá mjög yfirgripsmiklum
samningum; ég man ekki eftir
að hafa f eitt og sama skiptið
gengið frá jafn mörgum samn-
ingum. Það voru gerðir fast-
hópa og samningarnir voru upp
á nokkur hundruð blaðsíður,“
sagði Guðlaugur.
Næstu verkefni ríkissáttasemj-
ara era samningamál Kennarafé-
Iags íslands, en félagið hefur boð-
að verkfall frá 11. apríl. Þá hafa
mjólkurfræðingar og lang-
ferðabílstjórar f Sleipni einnig
vísað sínum málum til sáttasemj-
ara. Deila verslunarmanna hefur
ekki enn komið til kasta sátta-
semjara en gerir það sjálfkrafa
ef verkfall verður boðað.
Guðlaugur sagði að gengið
hefði verið frá þvf við fulltrúa
verkalýðsfélaganna á Akranesi og
í Vestmannaeyjum, sem ekki und-
irrituðu samninginn á Akureyri,
að þeim yrðu sendir samningamir
undirritaðir af vinnuveitendum.
Síðan réðu þeir því hvort þeir
tækju upp frekari viðræður undir
verkstjóm ríkissáttasemjara eða
bæru samningana, eins og þeir
vora gerðir á Akureyri, undir sitt
fólk.
Mikil leit að 15 ára pilti
Núpi.
Tvö þurr-
leiguskip
Eimskips
skráðá
Antigua
EIMSKIP hefur tekið tvö flutn-
ingaskip í svokallaða þurrleigu,
en þá eru skipin rekin á ábyrgð
viðkomandi skipafélags með
islenskum áhöfnum. Félagið
hafði bæði skipin áður í tíma-
leigu. Hefur öðru skipinu verið
gefíð nafnið Bakkafoss en það
hét áður Helios. Hitt skipið hefur
fengið nafnið Mánafoss en það
hét áður Esperanta.
Skipin era bæði skráð í Saint
John’s á eyjunni Antiqua í Karabíu-
hafi. Að sögn Þórðar Sverrissonar,
framkvæmdastjóra hjá Eimskip,
ráða eigendur skipanna hvar þau
era skráð en íslensku áhafnimar á
þurrleiguskipum félagsins væra
ráðnar samkvæmt íslenskum kjara-
samningum. Sífellt fer í vöxt að
skip séu skráð á Antiqua en Þórður
sagði að fyrri þurrleiguskip félagins
hefðu verið skráð á stöðum eins og
Panama og Bahamaeyjum.
Bakkafoss hefur 7785 tonna
burðargetu, er 106,46 metrar að
lengd og 19 metrar að breidd. Skip-
ið verður í Ameríkusiglingum. Skip-
stjóri á skipinu verður Þór Elísson,
yfirvélstjóri Þorsteinn Pétursson og
fyrsti stýrimaður Guðmundur Krist-
insson.
Mánafoss hefur 3650 tonna burð-
argetu, er 80 metrar á lengd og
15 metrar á breidd. Skipstjóri verð-
ur Engilbert Engilbertsson, jrfirvél-
sljóri Halldór E. Agústsson og fyrsti
stýrimaður Magnús Kjæmested.
Eldur í bragga
á Selfossi
Selfossi
ELÐUR varð laus síðdegis á
fimmtudag i bragga sem er á
túni vestan við Selfossbæina.
Bragginn var ekki i notkun og
augljóst að um íkveikju var að
ræða.
Eldur logaði glatt í bragganum
þegar slökkviliðið kom á staðinn
og réð niðurlögum hans.
Sig. Jóns.
Lækkandi
verð á mark-
aðinum í
Rotterdam
MEÐALVERÐ á gasoliu á Rott-
erdam-markaði var 138,60 krón-
ur tonnið á timabilinu frá árs-
byrjun 1988 til 18. mars síðastlið-
inn. í upphafí árs var það hæst
158.50 krónur tonnið en var
skráð 134 krónur þann 18. þessa
mánaðar. Á sama tímabili var
meðalverð á venjulegu bensíni
142,83 krónur tonnið og meðal-
verð á svartolíu var 70 krónur
tonnið.
í upphafi þessa árs var verð á
bensíni hæst 143 krónur tonnið, en
var lægst 138,50 krónur í enduðum
janúar og bjujun febrúar síðastlið-
inn. Bensínverðið var hæst í enduð-
um febrúar, 149,75 krónur tonnið
en 22. mars sl. var það hins vegar
144,25 krónurtonnið. Svartolíuverð
á Rotterdam-markaði var skráð
79.50 krónur hinn 5. janúar síðast-
liðinn, en var 68 krónur 22. mars.
Þann sama dag var verð á gasolíu
á Rotterdam-markaði 136 krónur
tonnið.
Slysavarnasveitin á Þingeyri
var, sl. föstudag, kölluð út tíl að
leita að 15 ára gömlum pilti, sem
ætlaði að fara á skellinöðru um
30 kílómetra Ieið, frá Þingeyri
að bænum Hrafnabjörgum í Arn-
arfirði.
Skellinaðra drengsins fannst við
Sveinseyri, sem er um 10 kílómetra
frá Þingejrri, og slysavamasveitin
var kölluð út um klukkan 21.30 til
að leita að honum. Pilturinn kom
hins vegar fram á Hrafnabjörgum
klukkan 23.20 og var nokkuð vel á
sig kommn enda þótt hann væri
einungis í íþróttagalla og striga-
skóm. Frá Sveinseyri að Hrafna-
björgum er einungis ýtuslóð skorin
inn í fjailshlfðina og sums staðar
um 100 metra þverhnípi frá slóð-
inni niður í sjó og var varðskip feng-
ið til að lýsa upp ströndina. Þegar
pilturinn kom fram undraðist hann
að verið væri að leita að honum.
Drengurinn er reykvfskur, en í skóla
á Núpi, og ætlaði að dvelja á
Hrafnabjörgum yfir páskana.
Kárí.