Morgunblaðið - 27.03.1988, Blaðsíða 42
42
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1988
Glugginn
auglýsir
Vorum að taka upp sumarbússur, peysur
°g pils. Glugginn,
Laugavegi 40.
3 ódýrar lausnir
\
~rJ>
\
Breidd 2.0 metrar. Lengd 2.50 metrar. Hæð 2.30
metrar. Verð 42.000.
_------------„--------------------- j.
/
/
/
* »//lv
Breidd 5.0 metrar. Lengd 10 metrar. Hæð 2.65
metrar. Verð 130.000, ______
I
Breidd 7.5 metrar. Lengd 10 metrar. Hæð 3.30
metrar. Verð 290.000.
Húsin eru byggð úr heitgalvaniseraðri stálgrind
og klædd með níðsterkum, eldþolnum plastdúk.
Hluti af þakinu er gegnsær og húsin eru fest með
jarðspjótum.
ALLAR STÆRÐIR FÁANLEGAR.
Gisli Jónsson & Co hf.
Sundaborg 11. Sími 686644.
Rekstur Landakotsspítala:
Yfir 100 milljón króna bak-
reikningar eru alvarlegt mál
— segir Fjárlaga- og hagsýslustofnun
FJÁRLAGA- og hagsýslustofnun segir að fjárveitingar til Sankti
Jósefsspítala, Landakoti, hafi ekki verið vanáætlaðar á undanförnum
árum. Sjúkrahúsið hafi fengið sambærilega meðferð og önnur sjúkra-
hús í áætlun um rekstrargjöld og stöðuheimildir. Það sé alvarlegt
mál þegar ríkissjóður fái bakreikninga upp á yfir eitt hundrað millj-
ónir króna frá einstökum stofnunum. Því verði gerð nákvæm athug-
un á rekstri sjúkrahússins árið 1987 áður en endanlegar ákvarðanir
verði teknar í málinu.
Þegar sjúkrahúsið hafi verið fært
af daggjöldum á föst fjárlög árið
1983 hafi það ekki fengið lakari
afgreiðslu en önnur sjúkrahús sem
eins hafi verið ástatt um. Stofnunin
hafi jafnan metið og afgreitt áætl-
anir sjúkrahússins á sama hátt og
hjá öðrum. Skýringin á rekstrar-
gjöldum sjúkrahússins, umfram
fjárveitingar, sé sú áð það hafi far-
ið út í rekstur og fjárfestingar án
þess að hafa tilskildar heimildir í
fjárlögum.
Þessi umframstarfsemi hafí skert
greiðslugetu sjúkrahússins og að
auki valdið hærri fjármagnskostn-
aði. Sem dæmi megi nefna kaup
og rekstur á fasteigninni á Marar-
götu 2, rekstur og kaup á tækjum
og innréttingum í nýtt þvottahús
með kaupleigusamningum og ýms-
ar fjárfestingar styrktarsjóðs
sjúkrahússins. Það sé álit stofiiun-
arinnar að stóran hluta af vanda
sjúkrahússins megi skýra með
slíkum umsvifum umfram sam-
þykkt ijárlög.
Stofnunin tekur skýrt fram að
stjómendum sjúkrahússins, sem og
öðrum stjómendum ríkisfyrirtækja
og -stofnana, ætti að vera ljóst að
við afgreiðslu fjárlaga liggi fyrir
ákvörðun Alþingis um það rekstrar-
umfang sem löggjafarvaldið telji
eðlilegt að greitt sé af skattfé al-
mennings hvetju sinni. Rík áhersla
sé lögð á að Sankti Jósefsspítali
Landakoti njóti engrar sérstöðu
umfram önnur sjúkrahús og þurfi
að haga starfsemi sinni innan fjár-
heimilda, segir í fréttatilkynningu
frá Fjárlaga- og hagsýslustofnun.
Starfsmannaráð Landakotsspítala:
Alvarlegt ástand skapast
ef rúmum verður fækkað
„í KJÖLFAR skrifa og umræðu í fjölmiðlum um stöðu Landakotsspít-
ala hefur skapast mjög óþægilegt ástand á sjálfum spitalanum. Ekki
hefur verið mögulegt að ráða nýtt starfsfólk sem vonlegt er, svo
og hefur það starfsfólk seih fyrir er strax farið að líta eftir vinnu
annars staðar, sem gerir allt starf innan spítalans erfiðara,“ segir
í yfirlýsingu frá Starfsmannaráði Landakotsspítala.
Þá segir, að fólk geri sér al-
mennt ekki grein fyrir þvi hversu
stór vinnustaður Landakotsspítali
er, en á launaskrá spítalans em um
660 manns, þó ekki allir í fullu
starfi. Því sé mjög alvarlegt mál,
ef fækka á um 50 sjúkrarúm, en
fyrir hvern sjúkling, sem liggur á
spítalanum, séu um 2,3-3 starfs-
menn. Það liggi því í augum uppi
að mjög mörg stöðugildi tapist ef
til þessa kemur.
A sameiginlegum fundi starfs-
fólks spítalans á fimmtudag, 24.
mars, var samþykkt ályktun um að
beina þeim tilmælum til fjármála-
ráðherra, að hann hlutist til um það
að eðlilegur rekstrargrundvöllur
verði skapaður fyrir Landakotsspít-
ala. Þá segir í ályktuninni að það
sé með öllu óþolandi að stofna at-
vinnuöryggi um 120-150 manns í
hættu vegna vanreiknaðra fjárlaga.
Það hafí aldrei verið á það bent,
að starfsemi spítalans ætti að vera
önnur en hún nú er og því órökrétt
að áætla fjárveitingar lægri en
raunverulegur kostnaður sé. Ekki
geti starfsfólk sjúkrahússins sætt
sig við að sjúklingar, sem leggjast
inn á Landakotsspítala, fái annars
flokks þjónustu einungis vegna
þess, að Fjárlaga- og hagsýslu-
stofnun neiti að taka mark á rekstr-
aráætlunum sjúkrahússins. Benda
megi á, að um 500 manns eru á
biðlistum, svo ekki verði annað séð
en að full þörf sé á áframhaldandi
starfsemi spítalans.
Starfsfólkið ályktaði því, að það
sé mjög áríðandi að gripið verði í
taumana nú þegar, svo hvorki
starfsfólk spítalans né sjúklingar
þurfi að verða fyrir óþægindum.
Ferming
í dag fermist í Garðakirkju, kl.
10.30, Sigrún Bima Einarsdóttir,
Ásbúð 76 í Garðabæ.
Metsölublad á hvetjum degi!
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Röskan starfsmann vantar á hjólbarðaverkstæði. Góð laun. Upplýsingar á staðnum. Sólning, Skeifunni 11. Fiskeldi Óskum efir aðstoðarstöðvarstjóra í fiskeldis- stöð á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Æskilegt er að viðkomandi sé vanur sjómaður. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „F - 13317“ fyrir 7. apríl nk. Snyrtivöruverslun- inaTarý vantar snyrtisérfræðing, eða starfskraft vanan, afgreiðslu í snyrtivöruverslun hálfan daginn. Upplýsingar í síma 673240.
Opið ídacj 11-18
Fullt hús matar
KJOTMIÐSTOÐIN
GARÐABÆ, S. 656411