Morgunblaðið - 27.03.1988, Side 58
58
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 27. MARZ 1988
morphij richards
Fullkomin brauðrist með stillingu
fyrir þykkt sneiðanna.
Eínangraðar hliðar sem hitna
ekki. Stílhreint og fallegt tæki frá
Morphy Richards.
Fæst í næstu raftækjaverslun.
FYRIR ALLAR
SNEIÐAR
l
VEÐDEILDARBRÉF ÚTVECSBANKANS
SAMEINA KOSTI CÓÐRAR CJAFAR
Verðtryggð skuldabréf Veðdeildar Útvegsbanka íslands hf.
eru einhver hagkvæmasta lausnin á gjafavandamálinu.
Veðdeildarbréfin sameina alla kosti góðrar gjafar.
Veðdeildarbréfin eru þar að auki tákn um hlýhug
Finnland:
Ríkissjón-
varpiðvill
birta aug-
lýsingar
Helsinki, frá Lars Lundsten, frétta-
ritara Morgunblaðsins.
AÐ líkindum verða þáttaskil
í sögn finnska ríkissjón-
varpsins í vor því að forráða-
menn þess hafa í hyggju að
heimila birtingu auglýsinga
í útsendingartímanum. Allt
frá því sjónvarpsrekstur
hófst í Finnlandi í lok sjötta
áratugarins hafa auglýs-
ingar verið bannaðar i út-
sendingum rikissjónvarpsins.
Stjómvöld í Finnlandi hafa
ekki viljað tengja starfsemi
ríkissjónvarpsins við lögmál
markaðarins og hefur verið
borið við að með því yrði sjálf-
stæði þess ógnað. Engu að
síður hafa fjárveitingar til ríkis-
sjónvarpsins alltaf verið háðar
auglýsingatekjum sjónvarps-
stöðvarinnar MTV, sem er í
einkaeigu. Afnotagjöldin duga
skammt. MTV kaupir hins veg-
ar útsendingartíma á tveimur
rásum ríkissjónvarpsins og
greiðir fyrir upphæð sem sam-
svarar kostnaði við alla inn-
lenda dagskrárgerð ríkissjón-
varpsins.
Aukið framboð á sjónvarps-
efni í Finnlandi, sem einkum
er tilkomið vegna gervihnatta
og kapalsjónvarpsstöðva, hefur
bitnað á finnska ríkissjónvarp-
inu. Brýnt þykir að auka og
bæta innlenda dagskrárgerð en
Qármagnið vantar. Að undan-
fömu hafa tekjur MTV af birt-
ingu auglýsinga ekki verið í
samræmi við það sem áætlað
hafði verið. Á síðasta ári stofn-
uðu ríkissjónvarpið og MTV
Rás 3 en hún hefiir ekki reynst
sú gullnáma sem menn höfðu
vonað. Rekstur Rásar 3 er íjár-
magnaður með auglýsingum
líkt og rekstur MTV. Nú vilja
forráðamenn rfkissjónvarpsins
vinna bug á flárhagsvandanum
með því að heimila MTV að
birta auglýsingar nálægt út-
sendingartíma vinsæls sjón-
varpsefnis svo sem fréttatíma
og íþróttaþátta ríkissjónvarps-
ins. Flest bendir því til þess að
stjóm ríkisútvarpsins ræði á
næstunni „hlutleysi og menn-
ingarlega ábyrgð" ríkisíjölmiðl-
anna af meiri þunga en áður.
Ráðínn bæj-
arritari í
og fyrirhyggju þína, sem þiggjandinn nýtur ávaxtanna af.
Veðdeildarbréfin eru hvatning til raunhæfs sparnaðar,
þau bera góða ávöxtun auk verðtryggingar.
í Útvegsbankanum færðu Veðdeildarbréf í verðflokkum við allra hæfi.
Það er, til dæmis, tilvalið fyrir nokkra að slá sér saman um góða gjöf.
Komdu sem fyrst og kynntu þér málið. Starfsfólk Útvegsbankans
veitir þér fúslega allar upplýsingar um Veðdeildarbréf til gjafa.
Veðdeildarbréf Útvegsbankans eru til sölu
á öllum afgreiðslustöðum bankans.
Útvegsbanki íslands hf
Veðdeild
Stykkishólmi
Stykkifthólmi.
UMSVIF Stykkishólmsbæjar
hafa verið að aukast undanfarin
ár eins og áður hefir verið sagt
frá. Hafa starfsmenn bæjarins
haft næg verkefni og fleiri og
fleiri verkefni komið til af-
greiðslu á skrifstofu bæjarins.
Fyrir nokkru var samþykkt að
ráða til bæjarins bæjarritara og var
starfíð síðan auglýst til umsóknar.
Nú hefir bæjarstjóm ráðið Jóhannes
Finn Halldórsson sem er viðskipta-
fræðingur til starfans og mun hann
senn taka til starfa.
-Arni
RITVÉLAR
REIKNIVÉLAR
PRENTARAR
TÖLVUHÚSGÖGN