Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 1
72 SIÐUR B
STOFNAÐ 1913
103. tbl. 76. árg.
LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Frakkland:
Samskipti við írana
hafin innan 40 daga
París, Bonn,aReuter.
STJÓRNVÖLD í íran og Frakklandi hafa orðið ásátt nm að taka
upp stjómmálasamband að nýju innan 40 daga, að þvi er sagði
f fréttum franska ríkissjónvarpsins í gær. í fréttinni var fullyrt
að þetta væri liður f samkomulagi Frakka og írana, sem orðið
hefði til þess að þremur Frökkum, sem öfgamenn f Líbanon höfðu
haldið í gíslingu í þijú ár, var sleppt úr haldi á miðvikudag.
Frakkar slitu stjómmálasam-
bandi við írana á síðasta ári eftir
að íranskur embættismaður í
París, Vahid Gordij að nafni, hafði
neitað að bera vitni fyrir rétti en
hann var grunaður um að hafa
átt þátt í sprengjutilræðum í borg-
inni sem urðu 13 manns að bana.
Heimildarmenn í Líbanon full-
yrtu á fimmtudag að Frakkar
hefðu greitt lausnargjald fyrir
gíslana auk þess sem þeir hefðu
heitið að selja írönum vopn. Þá
hefðu stjómvöld í Frakklandi og
skuldbundið sig til að greiða að
fullu lán sem tekið var í íran árið
1979 áður en öfgafullir fylgis-
menn Khomeinis erkiklerks
steyptu stjóm Reza Pahlavis ír-
anskeisara. Franskir embættis-
menn hafa staðfest að lánið verði
greitt en að eftir sé að semja um
vaxtagreiðslur. Hins vegar neita
yfirvöld því harðlega að greitt
hafi verið gjald fyrir gíslana.
Ónefndur vestrænn embættis-
maður í Bonn sagði í gær að
Frökkum væri í lófa lagið að
greiða lausnargjaldið í formi vaxta
af láninu. Sagði hann ógerlegt að
segja til um hvort íranir létu
vaxtagreiðslumar renna til „Hiz-
bollah“-samtakanna (Flokkur
Guðs) sem talin em hafa rænt
gíslunum þremur.
í Frakklandi er almennt litið
svo á að atburðir undanfarínna
daga hafi treyst stöðu Jacques
Chiracs forsætisráðherra í for-
setakosningunum. Líklegt er talið
að Chirac segi af sér embætti for-
sætisráðherra á mánudag hver
svo sem úrslit kosninganna verða.
Sjá einnig fréttir frá Frakk-
landi á bls. 30.
Pólskir herlögreglumenn hrekja óbreyttan borgara
Lenin-skÍDasmiðastöðvarinnar i Gdansk.
AP
á brott við hlið
Bandaríkin:
Minnkandi
atvinnuleysi
Washington, Reuter,
BANDARÍSKA atvinnumála-
ráðuneytið skýrði frá því í gær
að atvinnuleysi í Bandaríkjun-
um í aprilmánuði hefði verið
hið minnsta í 14 ár. 5,4 prósent
vinnufærra manna voru án at-
vinnu.
Hagfræðingar og Qármálasér-
fræðingar nöfðu beðið þessara
upplýsinga með nokkurri eftir-
væntingu því þær þykja gefa góða
vísbendingu um ástand
bandarísks efnahagslífs. Hag-
fræðingar hafa margir hverjir
sagt að minnkandi atvinnuleysi
kunni að leiða til aukinnar verð-
bólgu og vaxtahækkana.
Bandaríkjadollar hækkaði lítil-
lega á fjármálamörkuðum í Evr-
ópu í gær. Virtist svo sem sér-
fræðingar litu svo á að upplýsing-
ar ráðuneytisins bæm fyrst og
fremst vott um traustan efnahag
Bandarílq'anna.
Kommúnistastjórnin í Póllandi herðir enn tök sín á landsmönnum:
Lagft bann við verkföllum
og alræði í efnahagsmálum
Varsjá, Reuter.
Kommúnistastjórnin í Póllandi
hyggst banna öll verkföll i
landinu með sérstakri lagasetn-
ingu, sem tryggja mtm stjóra-
völdum alræðisvald á sviðf efna-
hags- og félagsmála. Frumvarp
í þessa veru hefur þegar verið
lagt fram og er búist við að það
verði að lögum þann 11. þessa
mánaðar. Lögin eru sett til höf-
36 manns farast í flug-
slysi í Vestur-Noregi
Osló, Reuter.
FLUGVÉL með 36 manns innan-
borðs hrapaði til jarðar í gær
skammt frá bænum Bronnoy-
sund í Noregi. Um klukkan 22.30
að íslenskum tima í gærkvöldi
staðfestu lögregluyfirvöld að all-
ir sem um borð voru hefðu farist.
Flugvélin var í aðflugi er hún
Verdens Gang
Myndin þessi sýnir flugvélina
sem fórst. Hún var fjögurra
hreyfla af gerðinni „de Havilland
Canada Dash Seven“. Myndin var
tekin á flugsýningu fyrir
skömmu.
Mörgunblaóið /AM
hrapaði og eru órsakir slyssins
ókunnar. Vélin, sem var fjögurra
hreyfla, af gerðinni „de Havilland
Canada Dash Seven", var á leið frá
Þrándheimi til Brenneysund í
Þrændalögum og hafði hún millilent
í bænum Namsos, um 100 kíló-
metra suður af Brenneysund.
33 farþegar voru um borð í flug-
vélinni, sem var í eigu norska flug-
félagsins Widerö, auk þriggja
manna áhafnar. Allir þeir sem fór-
ust voru Norðmenn. Flugvélin kom
niður í mjög grýttu landslagi og
voru björgunarsveitir lengi á slys-
stað af þeim sökum. Að sögn Olavs
Sönderlands, yfírmanns lögreglu í
bænum Bodö, var flak flugvélarinn-
ar alelda og urðu björgunarmenn
ftrekað að hörfa undan sökum
sprenginga í flakinu.
Að sögn lögregluyfírvalda í
Bronneysund hvarf flugvélin
skyndilega af ratsjá og ekkert neyð-
arkall barst. Flugvélin hrapaði um
16 kílómetra suðvestur af bænum.
Rigningarsuddi var á þessum slóð-
um en aðstæður til flugs voru ekki
sagðar hafa verið sérstaklega
sláémar.
uðs verkamönnum, sem lagt hafa
niður störf að undanfömu og
öðrum þeim sem andmælt hafa
stefnu stjóravalda í efnahags-
málum.
Að sögn Reuters-fréttastofunnar
munu lög þessi gilda til áramóta. í
þeim er kveðið á um að allir þeir
sem þátt taka í verkföllum í landinu
geti átt yfir höfði sér allt að eins
árs fangelsisdóm. Fram að þessu
hafa stjómvöld liðið að félagar í
opinberum verkalýðsfélögum skipu-
leggi verkföll. Þá er gert ráð fyrir
því að lagaákvæði frá árinu 1982
um meðferð kjaradeilna verði af-
numin. Þessu hafa OPZZ, hin opin-
bera heildarsamtök pólskra verka-
lýðsfélaga, þegar mótmælt og hafa
talsmenn þeirra sagt að félagar í
samtökunum geti ekki stutt áætlan-
ir stjómvalda um endurreisn efna-
hagslífisins verði þau svipt grund-
vallarréttindum sínum.
Nýju lögin munu einnig tryggja
pólsku ríkisstjóminni alræðisvald á
sviði efnahagsmála og mun hún
þannig ekki þurfa að hafa samráð
aðrar stofnanir stjómkerfisins.
Þannig mun stjómin geta „fryst"
verðlag og kaupgjald fyrirvaralaust
og lagt nýja skatta á einstaklinga
og fyrirtæki. Ráðamenn munu geta
rekið bæði verkamenn og stjómend-
ur og beitt neitunarvaldi gegn fyrir-
hugðum fjárfestingum einstakra
fyrirtækja.
Efnahagsáætlanir pólska komm-
únistaflokksins hafa mætt andstöðu
íhaldsamra stjómmálamanna og
stjómenda fyrírtækja víða um
landið. Vitað er að stjómvöld hafa
undanfamar vikur lagt á ráðin um
hvemig bijóta beri andófið á bak
aftur og þykir enginn vafi leika á
að verkföll undanfarinna tveggja
vikna hafi ráðið úrslitum.
Lenín-skipasmíðastöðin í Gdansk:
Helmingur verkfalls-
manna hættir andófi
Gdaósk, Reutir.
ALLT að helmingur þeirra
3.000 verkamanna, sem verið
hafa í verkfalli i Lenín-skip-
asmíðastöðinni í Leningrad í
fimm daga, ákvað að láta af
frekari andófi i gær er þær
fréttir bárust að stjóravöld í
Póllandi hygðust banna verk-
föll með lögiun.
Fyrr um daginn hafði forstjóri
skipasmiðastöðvarinnar skipað
verkfallsmönnum, þar á meðal
andófsmanninum þekkta, Lech
Walesa, að hafa sig á brott ella
. yrði gripið „til annarra ráða“.
Pólski andófsmaðurinn Adam
Michnik sagði í Gdansk i gær að
áform stjómvalda um að banna
verkföll og andóf með lögum
sýndu ljóslega að Wojciech Jaraz-
elski, leiðtogi pólska kommúnista-
flokksins, stjómaði í anda Jósefs
Stalíns.
Sjá einnig samtal við Sigriði
Arnórsdóttur á miðopnu.