Morgunblaðið - 07.05.1988, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. MAÍ 1988
Þijú af erlendu rannsóknaskipum í Reykjavíkurhöfn.
Morgunblaðið/ÓIafur K. Magnússon
Tíu rannsóknarskip í Reykjavíkurhöfn
NÚ ERU tíu erlend rannsóknarskip frá sex þjóðum
í Reykjavíkurhöfn. Skipin verða hér fram á mánu-
dag, en þau eru hér til að hvíla áhafnir og taka
vistir á meðan skipstjómarmenn þeirra bera sam-
an bækur sinar um hafrannsóknarverkefni sem
þeir eru að fást við, samkvæmt upplýsingum sem
fengust þjá utanríkisráðuneytinu.
Þijú skipanna eru bresk; Hecla, Newton og Sea
Searcher, tvö eru dönsk; Hvidebjem og Ingolf, tvö
vestur-þýsk; Planet og Schwedeneck, en auk þeirra
eru franska skipið D’entrecusteaux, hollenska skipið
Tydeman og bandaríska skipið Lynch í þessum hópi.
! áhöfnum skipanna munu vera samtals um 200 sjó-
menn og vísindamenn.
Þessi fundur skipstjómarmannanna er seinni liður
í áætlun sem hófst árið 198B, en þá vom öll þessi
skip við rannsóknir á íslenskum hafsvæðum og þar
norður af.
VEÐURHORFUR í DAG, 7.5. 88
YFIRUT f gser: Á vestanveröu Grœnlandshafi er hægfara 980 mb
lægö um 800 km suð-suö-vestan af Vestmannaeyjum, sem hreyf-
ist norð-austur og mun fara norður með Austfjörðum é morgun.
Heidur mun kólna í bili um vestanvert landið.
SPÁ: Á morgun er gert ráð fyrir sunnan- og suð-vestanátt um land
allt, víðast golu eða kalda. Rigning verður austast á landinu fram
eftir degi, annars víða skúraveður, einkum þó suð-vestanlands.
Hiti verður á bilinu 5 til 11 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA
HORFUR Á SUNNUDAG OG MÁNUDAG: Suðlægar áttir og hiti á
bilinu 5—10 stig. Ýmist skúrir eða rigning um sunnan- og vestan-
vert landið, en þurrt að mestu og öllu bjartara á Norð-Austurlandl.
o
á
V; x Norðan, 4 vindstig: X Vindörin sýnir vind- Ifl Hitastig:
10 gráður á Cels
stefnu og fjaðrirnar y Skúrir
Heiðskírt vindstyrk, heil fjöður
er 2 vindstig. * V El
Léttskýjað / / / / / / / Rigning = Þoka
/ / / = Þokumóða
Hálfskýjað * / * ’, ’ Súld
/ * / * Slydda ©O Mistur
Skýjað / * /
* * # —j- Skafrenningur
Alskýjað * * * * Snjókoma * * * [y Þrumuveður
VEÐUR VÍÐA UM HEIM
kl. 12:00 í gær að ísl. tíma
Akurayri ReyVjavík hhi 12 6 vaður aiekýjað akýjað
Bergen 8 rigning
Heisinki 6 þokumóða
Jen Mayen 0 aúld
Kaupmannah. 13 aký|að
Nareaaraauaq +6 úrkoma
Nuuk +6 hálfakýjað
Oaió 12 léttakýjað
Stokkhólmur 11 akýjað
Þórehöfn 9 rigning
Algarve 18 akýjað
Amaterdam 17 Mttakýjað
Aþena vantar
Barcalona 26 skýjað
Bertin 12 alskýjað
Chicago 12 helðskfrt
Fenoyjar 21 þokumóða
Frankfurt 20 léttskýjað
Glasgow 16 akýjað
Hamborg 12 akýjað
Laa Palmas 22 •kýjað
London 19 héttakýjað
Loa Angales 10 léttakýjað
Lúxemborg 18 hátfakýjað
Madríd 13 rigning
Malaga 18 þokumóða
Mallorca 24 mlatur
Montroal 14 alakýjað
Naw York vantar
Parla 21 léttakýjað
Róm 26 heiðskírt
San Dlogo 13 léttakýjað
Wlnnipeg vantar
Birgir ísleifur Gunnarsson, mennta-
málaráðherra:
Tímabært að kenna
sj ávarútvegsfræði
á háskólastigi
I RÆÐU á ársfundi Sölumið-
stöðvar Hraðfrystihúsanna sagði
Birgir ísleifur Gunnarsson,
menntamálaráðherra, að tíma-
bært væri orðið að kenna sjávar-
útvegsfræði á háskólastigi, en
nýskipuð nefnd. hefur nú i
smíðum tillögur um slíkt nám við
Háskólann á Akureyri. Þá sagði
Birgir að dreifa ætti námi í sjáv-
arútvegi um landið, en nefnd á
vegum menntamálaráðuneytis-
ins hefur lagt til að stofna físk-
vinnslubraut við framhaldsskól-
ann í Dalvík í haust, en einnig
er verið að íhuga slika kosti fyr-
ir Siglufjörð og Vestmannaeyjar.
Menntamálaráðherra sagði að
álitsgerð nefndar frá 1986 um
stofnun sérstaks sjávarútvegsskóla
í Reykjavík, sem tæki við hlutverk-
um Stýrimannaskólans í Reykjavík,
Fiskvinnsluskólans í Hafnarfirði og
Vélskóla íslands, væri enn til athug-
unar hjá sjávarútvegs- og mennta-
málaráðuneytum, en hún hefði
mætt mótspymu innan skólanna
sem ætti að sameina.
Birgir sagði að í framhaldsskóla-
frumvarpinu, sem væntanlega yrði
að lögum fyrir þinglok, væru
ákvæði sem auðvelduðu eflingu
sjávarútvegsmenntunar á fram-
haldsskólastigi, þar á meðal stofnun
Fræðsluráðs sjávarútvegsins, þar
sem sæti ættu átta fulltrúar stjóm-
valda og atvinnulífsins.
Þá minntist Birgir á starfs-
fræðslunámskeið í fiskvinnslunni,
sem hófust árið 1985 í tengslum
við kjarasamninga. Hann sagði að
alls hefðu verið haldin 2500 nám-
skeið á tveimur vetrum og hefðu
3600 fískvinnslumenn lokið öllum
tíu námskeiðunum sem boðið væri
upp á. Þessi námskeið þættu hafa
gefið mjög góða raun og athuga
þyrfti hvort hægt væri að tengja
þau betur skólakerfinu.
Fáskráðsfjörður:
Slitnar upp úr
meiríhlutasamstarfi
ANNAR fulltrúi Alþýðubanda-
lagsins í hreppsnefnd Búða-
hrepps á Fáskrúðsfirði, Björg-
vin Baldursson varaoddviti, hef-
ur Iýst því yfir að hann styðji
ekki lengur meirihlutann i
hreppsnefnd og lagt til að mynd-
aður verði nýr meirihluti sem
fyrst. Meirihlutann skipuðu
fjórir hreppsnefndarmenn af
sjö, tveir fuUtrúar Alþýðubanda-
lagsins og tveir fulltrúar Fram-
sóknarflokksins, og hefur þvi
slitnað upp úr meirihlutasam-
starfinu með yfirlýsingu Björg-
vins. í minnihlutanum eru tveir
fulltrúar Sjálfstæðisflokksins
og fulltrúi óháðra.
Tildrög málsins eru deilur á
milli Björgvins og Arnfríðar Guð-
jónsdóttur fyrsta varamanns
Framsóknarflokksins í hrepps-
nefnd. Amfríður sendi hrepps-
nefndinni harðort bréf þann 10.
apríl sl. vegna ummæla Björgvins
Baldurssonar á hrepgsnefndar-
fundi skömmu áður. Á þessum
fundi sagði Björgvin m.a. að Reyn-
ir Guðjónsson (bróðir Amfríðar)
hefði helgað sér land fyrir salt á
hafnarsvæðinu. Amfríður segir í
bréfi sínu að varaoddvitinn hafí
logið á hreppsnefndarfundinum og
að framkoma hans sé vítaverð.
í tilefni bréfsins urðu umræður
á næsta hreppsnefndarfundi, þann
14. apríl og þá gerðar bókanir,
meðal annars af oddvitanum, Guð-
mundi Þorsteinssyni öðmm full-
trúa Framsóknarflokksins. Vegna
bréfsins og bókunar oddvitans
lagði Björgvin fram bókun á
hreppsráðsfundi á fimmtudag þar
sem hann m.a. lýsir því yfir að
hann styðji meirihlutann ekki leng-
ur og hvetur til að myndaður verði
nýr meirihluti sem fýrst.
Guðmundur Þorsteinsson odd-
viti sagði í samtali við Morgun-
blaðið að ljóst væri eftir þessa
bókun varaoddvitans að meiri-
hlutasamstarfið væri búið að vera
en óákveðið væri með framhaldið.
Bjóst hann við að boða fljótlega
til hreppsnefndarfundar og láta
þar reyna á hvort borið yrði fram
vantraust og sjá þannig hvort nýT
meirihluti væri í vændum. Hann
sagði að Framsóknarflokkurinn
myndi fyrst um sinn ekki hafa
frumkvæði að viðræðum um mynd-
un nýs meirihluta. Fjárhagsáætlun
Búðahrepps fyrir yfírstandandi ár
er óafgreidd og eru efiðleikar að
koma henni saman vegna slæmrar
fjárhagsstöðu sveitarfélagsins
samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins.
Kjaradeila í veitinga-
húsum tQ sáttasemjara
KJARADEILU Félags starfs-
fólks f veitingahúsum hefur
verið vfsað til ríkissáttasemjara
eftir árangurslausan samninga-
fund seinnipart fimmtudagsins.
í félaginu eru um 1.100 manns
og það hefur ekki aflað sér
verkfallsheimildar.
Sigurður Guðmundsson, form-
aður FSV, sagði að viðræðumar
hefðu strandað á þeirri kröfu að
félagar fengu sömu kauptaxta og
afgreiðslufólk. Fimm þúsund
króna eingreiðslunni í júní og
1.100 króna launauppbótinni hefði
verið hafnað af vinnuveitendum.
„Við töldum ekki eftii til þess
að afla verkfallsheimildar, þar sem
það hafði verið látið að því liggja
að við myndum fá sams konar
samning og verslunarmenn. Af-
staðan er breytt núna og við mun-
um endurskoða kröfugerðina og
trúlega leggja fram nýja kröfugerð
á fyrsta fundinum með ríkissátta-
semjara," sagði Sigurður.
Hann sagði að gærdeginum
hefði verið eitt til að kanna málin
og ræða við fólk. Það væri orðið
langeygt eftir nýjum samningi,
enda hefði gildistíma síðasta
samnings lokið um áramótin.