Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 5
5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988
Alþjóðleg keppni óperusöngvara á ítalíu;
Sigrún Hjálmtýsdóttir
í hópi verðlaunahafa
„ÞESSI árangur er mér mikil
hvatning til að halda áfram á
þessari braut, því ég veit nú bet-
ur hvar ég stend og get auðvitað
ny’ög- vel við unað,“ sagði Sigrún
Hjálmtýsdóttir óperusöngkona,
en hún varð i fimmta sæti, og
jafnframt fremst í hópi kvenna,
í alþjóðlegri keppni óperusöngv-
ara, sem haldin var i bænum
Rovigo dagana 27. til 30. apríl
Innlent sælgæti:
síðastliðinn. Alls tóku 90 óperu-
söngvarar, viðs vegar að úr
heiminum þátt i keppninni.
Sigrún sagði að keppnin hefði
farið fram í þremur lotum, sem lauk
með hljómleikum sigurvegaranna.
„Ég ætlaði nú bara að prófa þetta
og hélt að ég ætti ekki nokkra
möguleika. En ég fann það í þess-
ari keppni að ég er á réttri leið og
það er greiniiegt að kennari minn
í vetur, þessi fræga kona Rina
Malatrasi, hefur gert kraftaverk á
mér og ég get þakkað henni þennan
góða árangur," sagði Sigrún.
Aðspurð sagði Sigrún að óráðið
væri hvað við tæki hjá sér eftir að
námsári hennar lýkur nú í sumar,
en hún hefur verið ráðin til að
syngja í San Babýlon óperunni í
Milano í lok maí. Þar fer hún með
hlutverk Óskars í Grímudansleik
eftir Verdi. „Ætli ég komi svo ekki
bara heim,“ sagði hún, en bætti því
við að það væri aldrei að vita hvað
kæmi upp á og hún myndi að sjálf-
sögðu nýta þau tækifæri sem byð-
ust.
Sigrún Hjálmtýsdóttir óperu-
söngkona.
Slökkvilið
Reykjavíkur:
Kynningu
frestað til
hausts
VEGNA viðgerða og anna verð-
ur ekki opið hús þjá slökkviliði
Reykjavíkur í dag, laugardag-
inn 7. maí. önnur slökkvilið
laudsina munu kynna almenn-
ingi starfsemi sina þann dag.
Að sögn Rúnars Bjamasonar
slökkviliðsstjóra, verður kynning
á starfi slökkviliðsins í Reykjavík
næsta haust í tengslum við Norr-
ænt tækniár.
4% lækkun
í sjoppum
MEÐALVERÐ á einstökum inn-
lendum sælgætistegundum hefur
lækkað í sjoppum um rúmlega
4% frá þvi Verðlagsstofnun birti
verðkönnun á innlendu sælgæti
í febrúar sl. Þá hefur meðalverð
sælgætis lækkað um 2% í stórum
matvöru verslunum. Verðið hefur
lækkað mest i sjoppunni Soga-
veri við Sogaveg, eða um 12%,
en þar var verðið einna hæst i
febrúarkönnuninni.
Verðkönnunin í febrúar var gerð
vegna þess að sælgætisframleið-
endur lækkuðu verðið á sælgæti
um 7-12% vegna lækkunar á vöru-
gjaldi um áramótin. Könnunin leiddi
í ljós að sælgætisverð í sjoppum
hafði ekki lækkað þrátt fyrir verð-
Iækkun frá framleiðendum en verð
hafði lækkað í flestum marvöru-
verslunum.
Verðlagsstofnun hvatti seljendur
sælgætis til að lækka smásöluverð
til samræmis við verðlækkun fram-
leiðenda og var í apríllok kannað
hvort þeir hefðu orðið við þessum
óskum. Niðurstaðan varð sú sem
greinir frá hér að ofan.
Reykhólar:
Treg grá-
sleppuveiði
Miðhúsum, Reykhólaveit.
Grásleppukarlar eru farair
hér að athuga með veiði á rauð-
maga og hefur fréttaritari haft
samband við nokkra þeirra sem
hafa lagt og hafa þeir tæplega
orðið varir og era búnir að fak»
upp net sin aftur. Þeir segja að
það líti nyög illa út með gráslepp-
una i vor.
Grásleppukörlum er að fjölga
hér. Bæði eru bændur famir að
veiða til þess að bæta sér upp tekju-
missi af minnkandi landbúnaðar-
framleiðslu og svo eru nýir aðilar
að reyna fyrir sér.
Að undanfömu hefur verið allgóð
þorskveiði í svonefndum Bjameyj-
arál og hafa sumar trillur fengið
allt að einu og hálfu tonni að meðal-
tali í róðri. Þessari þorskgöngu er
að ljúka vegna þess að rigning er
að byija og þá tekur þorskurinn
illa beitu. Það em mörg ár síðan
að fiskur hefur gengið jafn mikið
í Bjameyjarál og nú.
- Sveinn
IConica
U-BIX
UÓSRiTUNARVÉLAR
Byggingarsamvinnufélag ungs fólks í
Reykjavík, BYGGUNG, var sfofnað 1974 fil að
byggja með-sem hagfelldusfum kjörum íbúðir
og íbúðarhús fyrir unga félagsmenn sína.
Fró þeim fíma hefur BYGGUNG byggf
íbúðarhús víða í Reykjavík og ó Selfjamar-
nesi. í lok þessa órs verður BYGGUNG búið að
afhenda alls sjö hundruð óffafíu og ótta
íbúðir. í órslok verða því samanlagðar
fimmfón óra byggingaframkvœmdir BYGGUNG
orðnar rétt um 83.468,89 heildarfermeírar.
Við reiknum að meðalfali með u.þ.b. 2,5
íbúum ó hverja íbúð, sem þýðir að í órslok
1988 búa nólœgf um 1970 íslendingar í
BYGGUNG-húsnœði, eða jafnmargir einsfakl-
ingar og búa í Grindavík.
BYGGUNG er virkur þótttakandi í að gera
búsefu í Reykjavík betri.
788 ÍBÚMR
1970 ÍBÚAR
BYGGINGARSAMVINNUFÉLAG
UNGS FÓLKS
Lynghólsi 3, 110 Reykjavík,
sími (91)-67-33-09.