Morgunblaðið - 07.05.1988, Síða 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988
Um ofbeldisaðgerðir „Verk-
fallsvarða“ á Akureyri
eftirSigrúnu
Grímsdóttur
í Morgunblaðinu 3. maí sl. er
birt myndskreytt grein undir fyrir-
sögninni „Stöðvum flugleiðafar-
þega meðan ósamið er“. Á einni
myndinni sem greininni fylgdi sést
hvar kvenmaður leggur hendur á
konu og er heldur kampakát að sjá.
Forsaga þess atburðar er þama
átti sér stað er dæmigerð saga
ruddaskapar og yfírgangs, sem
enga stoð á sér í lögum og er enn
eitt dæmi fáránleika þessa svo-
nefnda verkfalls, sem ( reynd var
aldrei verkfall í þess orðs skilningi.
Ég var stödd á Akureyri og hafði
farmiða, sem keyptur var (
Reykjavík, áður en verkfall verzl-
unarmanna" hófst. Ég sleppti ferð
með bíl sem mér stóð til boða frá
Akureyri til Reykjavíkur, þegar ég
var upplýst um að Flugleiðavél
færi frá Akureyri um kvöldið. Ég
sat í biðsal flugstöðvarinnar þegar
kvenmaður vindur sér að mér og
„Það þykir orðið sjálf-
sagður hlutur að hver
sá er skrýtt getur sjálf-
an sig nafninu „verk-
fallsvörður“ sé hafinn
yfir lög og rétt.“
spyr; „Ert þú á leið til Reykjavíkur?"
„Já, það hefí ég hugsað mér,“
svara ég. „Ég mun sjá til þess góða
mín, að þú komist ekki héðan fljúg-
Sigrún Grímsdóttir
SKIPAFÉLAG
MEÐ STÓRT HLJUTVERK
í ÞÁGU ALLRA LANDSMANNA
Ríkisskip gegnir stóru hlutverki í vöruflutningum umhverfis landið.
Það er sama hver varan er. Nútíma flutningatækni,
góður skipakostur og þjálfað starfslið tryggja vörunni
góða meðferð alla leið á áfangastað.
í þjóðbraut okkar eru 36 hafnir.
Tíðar ferðir tryggja hraða flutninga.
andi", hvæsti þessi kvenvargur þá
framan í mig eins og illur köttur.
Jóna Steinbergsdóttir, en það
mun nafn þessa kvenvargs, var
ekki ein á ferð. Ula mun henni þó
hafa gengið liðssöfnun, því uppi-
staðan f „hemum" voru böm og
unglingar.
Er ég reyndi að komast um borð
í flugvél Flugleiða var liðinu sigað
á mig eins og hundum og stóð ekki
á að hópurinn hlýddi. Það er ofur
einfalt að æsa böm og unglinga
upp til skrflsláta og jafnvel lögbrota
ef rétt er að farið, ekki síst ef full-
orðið fólk stjómar aðgerðum eins
og í þessu tilfelli.
Lögregla neitaði flugstjóra flug-
vélarinnar um afskipti af öryggisat-
riðum á flugplaninu og segir það
sína sögu um í hverskonar óefni
þessi mál em komin hér á landi.
Það þykir orðið sjálfsagður hlut-
ur að hver sá er skrýtt getur sjálf-
an sig nafninu „verkfallsvörður" sé
hafinn yfir lög og rétt. Jafnvel hóp-
árásir á saklausa einstaklinga er
talið eðliiegt. Eins og ég gat um
áður var ég með farmiða sem keypt-
ur var í Reykjavík fyrir þann tfma
að þetta svonefnda verkfall hófst.
Ég hafði enga þjónustu að sækja
til afgreiðslu Flugleiða á Akureyri.
Farangur var ég engan með.
Það orkar því ekki tvímælis að
árásin á mig, þar sem lagðar vora
á mig hendur, var gróft óafsakan-
legt og svívirðilegt lögbrot, framið
af Jónu Steinbergsdóttir, sem
greinilega stjómaði skrflshópnum.
Ekki þótti þeirri konu þó nóg að
gert, því daginn eftir er ég mætti
á flugvelli til þess að fara suður
með Flugfélagi Norðurlands stóð
hópurinn enn undir sömu foiystu
og gerði að mér hróp. Er ég gekk
að dyram afgreiðslu FN réðst að
mér fullorðinn maður, brá fyrir mig
fæti og reyndi fella mig og lagði á
mig hendur. Mér er engin launung
á að hér þótti mér mælirinn fullur
svo ekki sé meira sagt. Mér skilst
að þetta heiti kjarabarátta f dag.
Ég flaug til Reykjavíkur með
flugvél frá FN og í sömu vél var
einnig'annar farþegi, kona að nafni
Jóna Steinbergsdóttir.
Að iokum vil ég aðeins bæta við;
Þegar flölmiðlar birta „fréttir"
af atburðum með stórfyrirsögnum
ög myndum er það eðlileg lág-
markskrafa að þeir aðilar sem
myndir era birtar af í umdeilanleg-
um átökum eins og þama vora fái
að leggja orð í belg, en einhliða
álit og útskýringar annars aðila
ekki látnir nægja sem algild stað-
reynd.
Höfundur rekur gistiheimili og er
akiðakeaaari.
Morgunblaöið/Bjami
Margrét Reykdal við eitt verka
sinna f FÍM-salnum.
Margrét
Reykdal sýnir
í FIM-sabium
Láttu Ríkisskip annast flutningana fyrir þig.
RÍKISSKIP
NÚTÍMA FLUTNINGAR
MARGRÉT Reykdal opnar sýn-
ingu f FÍM-salnum, Garðastræti
6, f dag, laugardag, kl. 14. Á sýn-
ingunni eru 15 verk, flestöll unn-
in á þessu ári.
Margrét hefur búið í Noregi frá
1968, þegar hún hóf nám við Lista-
akademfuna í Ósló. Hún er hér í
áredvöl en þetta er 6. einkasýning
hennar í Reykjavík.
Sýningin stendur til 22. maí og
er opin alla daga kl. 14—19.
(Fréttatilkyiminff)