Morgunblaðið - 07.05.1988, Side 35

Morgunblaðið - 07.05.1988, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988 35 ttgoni ertár Frá fundi atvinnumálanefndar Reykjavíkur um fiskeldi við Reykjavík. frostskemmdum og ráð til vamar. Hann rakti sögu fyrsta eldisár- gangs stöðvarinnar. Hún hófst 1983 þegar laxar voru kreistir til klaks. Fiskinum var síðan slátrað síðastliðið haust. Þá var meðal- þyngdin 8 pund, sá stærsti 20 pund. Sögu þessa árgangs sagði Eyjólfur jafnframt vera í hnotskum sögu íslensks sjókvíaeldis, svo ung er þessi atvinnugrein. Síðan sagði hann frá rannsóknum á sjávarhita við Reykjavík undanfarin 40 ár. 7 - 9 af þessum árum hafa verið það köld, að búast hefði mátt við tjóni í sjókvíaeldi, eða um fímmta hvert ár. Þá kom fram að reikna má með meira tjóni tíunda hvert ár, vegna mikilla sjávarkulda. Eyjólfur taldi þó að það ætti ekki að hindra góða afkomu eldisstöðva, að því tilskyldu að hin níu árin heppnaðist eldið. Vetur ríkir í sjónum mánuðina des- ember til apríl og sagði Eyjólfur mæiingar sýna, að f sérhveijum þessara mánaða mætti búast við að kólnaði niður fyrir frostmark. Kaldast er venjulega í febrúar, meðalhiti þá um ein og hálf gráða. í vetur var sjávarhiti við Reykjavík nokkuð hár til áramóta, en fyrstu viku janúar hríðféll hann og er 21. janúar kominn niður í 0,1 gráðu. Síðan hefur verið kalt í sjónum og hefur hlýnað óvenju hægt og lítið. Eyjólfíir sagði síðan frá helstu áhrifum sjávarkulda á fískinn og ræddi um aðgerðir til að vinna gegn tjóni af völdum kuldans. Þar á meðal að sleppa í sjó 30 - 60 gramma seiðum og ala í tveggja og hálfs punds stærð. Dregið gæti úr hugsanlegu tjóni af völdum kulda, að hálfstálpuð laxaseiði, 0,5 kg, eru söluvara og því ekki algjört tjón þótt slík seiði drepist í frostum. „Fiskeldi hér hefur aðeins verið stundað eina fískævi, þess vegna hafa komið upp byxjunarerfiðleikar sem varla hefði verið hægt að kom- ast hjá,“ sagði Eyjólfur. Hann sagði verstu erfiðleikana í fiskeldinu vera Qármagnsskort. Lán vegna fjárfest- inga væru í lagi, rekstrarlán að komast í gott lag, en í allar áætlan- ir vantaði að gera ráð fyrir rann- sókna- og tilraunakostnaði. Það væri ekki lánshæfur kostnaður. Hann lagði tjón vegna byijunarerf- iðleika jöfnu við slíkan kostnað. „Stöðvar við Faxaflóa gætu tekið við einni til einni og hálfri milljón seiða. Mig grunar að þær muni aðeins taka hluta af því magni. Þarna vantar 150 til 200 milljóna króna vítamínsprautu núna, flest fyrirtækin eru orðin uppiskroppa með eigið fé,“ sagði Eyjólfur. Hann lauk máli sínu með að hvetja til frekari uppbyggingar fískeldis og sagði ijárfestingu í sjóeldi nú mun öruggari en þegar það fór fyrst af stað. Helgi Kjartansson líffræðingur, framleiðslustjóri Lindalax hf á Vatnsleysuströnd ræddi um frost- hættu og vamir gegn frostskemmd- um. Hann rakti áhrif kulda á físk- inn og hvað hægt væri að gera til að forðast tjón af völdum kulda. Meðal aðgerða eru kynbætur á fisk- inum og að bæta umhverfíð, laga það að þörfum lífyeranna. Helgi greindi síðan þolmörk i fískeldi, en þau eru þrenns konar. í fyrsta lagi eru líffræðileg þolmörk, hvað fisk- amir geta þolað með tilliti til erfða og aðlögunar. í öðra lagi era tækni- leg þolmörk, þ.e. hvað sé tæknilega framkvæmanlegt. í þriðja lagi era hagfræðileg þolmörk, þ.e. hvað sé rekstrarlega hagkvæmt. „Ávallt skyldi miða eldi við aðstæður eins og þær geta orðið verstar," sagði Helgi. Hann taldi síðan helstu úr- ræði, ef þolmörkin hafa verið yfír- stigin: 1. Hefja ekki eldi eða hætta því og heQa þess S stað eldi á nýjum stað, flytja það. Moregunblaðið/Sverrir 2. Stunda eldi ekki á þeim tímum þegar aðstæður leyfa það ekki.þ.e. stunda aðeins sumareldi. 3. Stunda eldi við tilbúnar að- stæður á tímabili slæmra aðstæðna, þ.e. fareldi, skiptieldi. 4. Stunda eldi alfarið við tilbúnar aðstæður, þ.e. eldi í lokuðum sjó- kvíum eða strandeldi. Fundurinn á Hótel Loftleiðum var fjölsóttur af fískeldismönnum á Reykjavíkursvæðinu. Þar vora einn- ig fulltrúar Reykjavíkurborgar, þar á meðal frá atvinnumálanefnd og Hitaveitu Reykjavíkur. Fundarstjóri var Össur Skarphéðinsson fískeldis- fræðingur og varaborgarfulltrúi. íslendingar í Póllandi: Fólk óttast að verk- follín breiðíst meira út - segir Sigríður Arnórsdóttir í Gdansk „LÖGREGLUÞJÓNAR eru á hveiju götuhorni og fólk er al- mennt mjög óttaslegið. Kunn- ingjar okkar óttast að verkfallið geti breiðst út til annarra borga og við það geti ástandið orðið verulega alvarlegt. Hingað tii hafa verkföll í öðrum borgum þó koðnað niður,“ sagði Sigríður Amórsdóttir sem dvelur í Gdansk í Póllandi í samtali við markviss framsöguerindi tækifæri til opinna skoðanaskipta. Á fund- unum voru frá 15 - 150 manns utan einum þar sem voru færri, en röskun varð á þeim fundi af óviðráðanlegum orsökum. Yfírleitt voru um 30 - 40 manns á hveijum fundi, en einstaka fundur var sérs- taklega fjölsóttur eins og til dæm- is fundur á Laugarvatni um mál- efni og möguleika Laugarvatns. Þann fund sóttu um 100 manns, Morgunblaðið i gær. Eiginmaður Sigrfðar, Sigurður Sólbergsson starfsmaður Ráðgarðs, hefur eftirlit með breytingum og við- gerðum á íslenskum fiskiskipum sem unnið er að í Gdansk. í vet- ur hafa að staðaldri dvabð 10 íslendingar í borginni vegna þessara verkefna. Sigriður og Sigurður eru með tvo unga syni sina í för og eru þeir þriggja og en fastir íbúar á Laugarvatni eru um 150. Það bar við að fólk af höfuðborgarsvæðinu kæmi austur fyrir ijall á fundina, en lengst að komnir á einum fundi voru menn frá Kópavogi á Kirkjubæjar- klaustri. Þorsteinn Pálsson forsæt- isráðherra flutti ræður á fyrsta og síðasta fundinum, en allir ráð- herrar Sjálfstæðisflokksins tóku þátt í fundaherferðinni í Suður- landslqördæmi. sex ára. „Það vora uppi sögusagnir á fímmtudag að um nóttina ætti að gera atlögu að verkfallsmönnum en í dag er allt með kyrram kjöram,“ sagði Sigríður. „Eftir átökin fyrsta maí höfum við ekki haft fregnir af beinum eijum milli verkamanna og lögreglu. En spennan er mikil og fólki fínnst sér ógnað.“ Sigríður sagðist hafa farið að Lenin-skipasmíðastöðinni á þriðju- dag en þá hefði lögregla skyndilega horfið af svæðinu. „Fólk safnaðist saman fyrir framan stöðina og hyllti verkfallsmenn, henti til þeirra matarpökkum og blómvöndum. Mannsöfnuðurinn hrópaði nöfn þeirra sem vora að ganga til liðs við mennina í stöðinni. Daginn eftir var lögreglan mætt tvíefld.“ Ríkissjónvarpið hefur flutt óvenju miklar fréttir af aðgerðunum að sögn Sigrfðar. Þær era þó ræki- lega litaðar sjónarmiðum stjóm- valda og ekki minnst á kröfur verk- fallsmanna einu orði. „Sjónvarpið segir marga ljóta hluti. Því var haldið fram að verkfallsmenn hefðu hótað þeim sem hlypust undan merkjum hengingu. Maður veit aldrei hveiju ber að trúa.“ Engar róttækar breytingar hafa orðið á daglegu lífi þrátt fyrir ástandið í borginni. Sigríður sagði Eurlandskjördæmi: sóttu 27 fundi að flestar nauðsynjavörar væra skammtaðar, eins og vanalega. Kvaðst hún óttast að stjómvöld gripu til harðari skömmtunar ef verkföllin yrðu langvin. „Við vitum að það er fylgst með okkur en við eram ekki þvinguð að neinu Ieiti. Ég myndi ekki vilja setj- ast að í Póllandi en það er stórkost- legt að fá að kynnast landi og þjóð," sagði Sigriður Amórsdóttir. íþrótta- og tómstundaráð: Kyiming á sumarstaifi ÚT ER kominn bæklíngurinn „Sumarstarf fyrir böm og ungl- inga 1988“ og er honum dreift til allra aidurshópa i skólum Reykjavíkur um þessar mundir. I bæklingnum er að fínna upplýs- ingar um framboð félaga og borgar- stofnana á starfi og leik fyrir böm og unglinga í borginni sumarið 1988. Boðið er upp á íþróttir og útivist en einnig eru kynntar reglu- legar skemmtisamkomur ungs fólks. Miðað er við aldurinn 2 til 16 ára. Kostnaður vegna þátttöku í nám- skeiðum er mismunandi. Era for- eldrar, sem hug hafa á að hagnýta sér það sem boðið er upp á, hváttir til að draga ekki innritun þeirra. (Úr fréttatilkynnigu)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.