Morgunblaðið - 07.05.1988, Blaðsíða 36
36
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 7. MAÍ 1988
Ferðagetraun Útsýnar:
Verðlaunahafinn valcli
Lignano á Italíu
INGA Einarsdóttir úr Garðabæ
bar sigur úr býtum í Ferðag-et-
raun Utsýnar og valdi hún ásamt
manni sínum, Birgi Garðarssyni,
sólarferð til Lignano á Ítalíu.
Þau hjón kváðust hvorugt hafa
farið í sólarferð áður, en hðfðu
dvalið i Þýskalandi í sumarleyfi
og heimsótt dóttur sfna til Ástr-
alfu. Inga sagði, er hún tók við
vinningnum, að þau hefðu valið
Ítalíu þar sem þau teldu að þar
væri mest að sjá, enda boðið upp
á fjölmargar spennandi skoðun-
arferðir í Lignanoferðum Útsýn-
ar.
Ferðagetraunin fólst í því að
fínna hve margar myndir væru af
fegurðardrottningu Islands, Önnu
Margréti Jónsdóttur, í Sumaráætl-
un Utsýnar og í verðlaun var sólar-
landaferð að verðmæti 150 þúsund
krónur. Þau Inga og Birgir hafa
nú gegnið frá ferðinni og fara 27.
maf og verða í 3 vikur. Þegar þau
tóku við vinningnum vildi svo vel
til að hér á landi voru staddir tveir
ferðamálafrömuðir frá Lignano,
Antonio Renosto, frá ferðaskrifstof-
unni Eurosun og Bruno Da Fre,
eigandi og framkvæmdastjóri hótel-
anna Olimpo og Terra Mare, sem
eru tvö af þremur hótelum, sem
Útsýnarfarþegar gista á á Lignano.
Reyndar vill þannig til að þau Inga
og Birgir koma til með að gista á
öðru þeirra, Olimpo, sem staðsett
er við eina stærstu smábátahöfn
Evrópu, „Marina Grande". Þetta er
svokallað íbúðarhótel og á jarðhæð
eru verslanir auk þess sem aðal-
skrifstofa Útsýnar á Lignano er á
Olimpo.
Bæði Bruno og Antonio hafa átt
margra ára samvinnu við Útsýn,
eða allt frá því Útsýn hóf skipulagð-
ar ferðir til Lignano skömmu eftir
1970. Létu þeir vel af samskiptum
sínum við íslendinga og kváðu þá
mikla aufúsugesti á Lignano. Að-
spurðir um kosti Lignano sem
ferðamannastaðar sögðu þeir að
kostimir væm margir. Staðurinn
væri mjög vel í sveit settur, mið-
svæðis á Ítalíu og þaðan væri
skammt tii margra áhugaverðra
staða, svo sem hinnar sögufrægu
borgar Feneyja. Á Lignano sögðu
þeir að hægt væri að sameina flest
það sem ferðamenn sækjast eftir í
sumarleyfum: Fagurt umhverfí,
sólböð, stmadlíf og sjó, auk þess
sem þar væri tilvalið að kynnast
ítölskum siðum og menningu því
að ítölsk matargerðarlist og
vínmenning blómstraði á Lignano.
Þeir sögðu að mikil fjölbreytni
ríkti hvarvetna í bænum og komið
væri til móts við flesta aldurshópa.
Sérstök áhersla hefði þó verið lögð
á að byggja upp sem besta aðstöðu
fyrir bömin. Ströndin væri ein sú
besta og hreinasta við Adríahaf auk
þess sem hún væri afar örugg fyrir
böm, vegna þess hversu aðgrunnt
þar væri. Góð aðstaða til íþróttaið-
kanna væri á Lignano, svo sem
tennis, minigolf, Go-kart kappakst-
ursbflar, líkamsræktarstöðvar,
hjólaskutahöll, seglbretti og hægt
væri að fá seglskútur á leigu. Af
skemmtigörðum mætti nefna Tívolí,
Hemmingwaygarðinn, sem er lysti-
garður með flölda íþróttatækja,
dýragarð og Aqua Splash, sem þeir
sögðu að væri einn stærsti og glæsi-
legasti vatnsskemmtigarður á ít-
alíu. Fyrir þá sem vildu fjömgt
næturlíf væri af nógu að taka, di-
skótek, næturklúbbar, ótal barir og
dansstaðir af öllum gerðum.
Fjölbreytt úrval kynnisferða er í
boði fyrir farþega Útsýnar á Lign-
ano svo sem fjallaferð, þar sem
meðal annars gefst kostur á að sjá
náttúrufegurð Alpanna, kvöldsigl-
ing út í fiskimannaeyjuna Marano,
þriggja daga ferð til Rómar, dags-
Morgunblaðið/BAR
Frá Lignano á ítaliu.Á innfelldu
myndinni sést Verðlaunahafinn,
Inga Einarsdóttir, teka við ferða-
vinningnum úr hendi Helga
Magnússonar, forstjóra Útsýnar.
Lengst til vinstri er eiginmaður
Ingu, Birgir Garðarsson, og á
milli Helga og Ingu eru Antonio
Renosto og Bruno Da Fre frá
Lignano og Rúnar Björgvinsson
markaðsstjóri Útsýnar.
og kvöldferð til Feneyja og dags-
ferð um landbúnaðarhéruð til borg-
arinnar Udine, svo nokkuð sé nefnt.
Bruno Da Fre og Antonio Ren-
osto hafa oft komið til íslands og
sá síðamefndi alls tuttugu sinnum.
Þeir kváðust báðir vera mjög hrifn-
ir af landi og þjóð og sögðu að
vegna sérstöðu sinnar væri ísland
tilvalið ferðamannaland, og þá ekki
síst fyrir ítali. í krafti sannfæringar
sinnar um kosti íslands sem ferða-
mannalands væru þeir nú, ásamt
Helga Magnússyni, forstjóra Út-
sýnar, að _ skipuleggja og kynna
ferðir frá Ítaiíu til Islands, þannig
að þegar fram í sækti gæti orðið
um gagnkvæm skipti á ferðamönn-
um að ræða á milli landanna.
Morgunblaðið/Bjami
Garðar og Vilhjálmur Kjartanssynir þjá Sportval og kylfingarnir
Björgúlfur Lúðvíksson, Ragnar Olafsson og Karl Jóhannsson.
Sportval opnar sér-
stakar golfdeildir
Gestaguðsþjón-
ustaásunnudag
Gestaguðsþjónusta verður
haldin { Nýju Postulakirigunni
næstkomandi sunnudag og mun
umdæmisöldungur Gene Storer
frá Kitchener Ontario, Kanada
þjóna fyrir altari.
Nýja Postulakirkjan hefur starf-
að hérlendis síðan 1980 og eru
haldnar guðsþjónustur á sunnudög-
um kl. 11 og 17 að Háaleytisbraut
58-60. Safnaðarprestur er Hákon
Jóhannesson.
QENQISSKRÁNINQ
Nr. 86. 6. maí 1988 Kr. Kt. ToH-
Etn- Kl. M.1B K.up 8«U BM>Ql
Dollari 38,88000 39,00000 38,89000
Sterip. 72,68900 72,81300 73,02600
Kan. dollari 31,51100 31,60800 31,61700
Dönsk kr. 6,00600 6,02460 6,03510
Norsk kr. 6,30910 6,32860 6,31480
Sænskkr. 6,61220 6,63270 6,62750
Fi. mark 9,69820 9,72810 9,73350
Fr. franki 6,80790 6,82890 6,84440
Belg. franki 1,10690 1,11030 1,11150
Sv. franki 27,78530 27,87110 28,07940
Holl. gyHini 20,65720 20,72100-20,72970
V.i). mark 23,16490 23,23640 23.24640
ít. lira 0,03101 0,03110 0,03126
Austurr. sch. 3,29530 3,30550 3,30700
Port. escudo 0,28290 0,28370 0.28400
Sp. peseti 0,34910 0,35020 0,35170
Jap. yen 0,31188 0,31284 0,31157
Irskt pund 61,75500 61,94600 62,07400
SDR (Sérst.) 53,62450 53,79000 53,73780
ECU, evr. m. 48,01870 48,16700 48,24890
Tollgengi fyrir maí er sölugengi 28. apríl.
Sjálfvirkur simsvari gengisskróningar ar
62 32 70.
SPORTVAL hefur opnað sér-
stakar golfdeildir í verslunum
sínum í Kringlunni og við
Hlemm. Þar verða á boðstólnum
allar þær vörur sem kylfingar
þurfa tíl þess að stunda íþrótt
sína, auk fatnaðar sem hentar
golfiðkun. Fyrst um sinn verður
lögð áhersla á golfvörur frá
framleiðandanum Browning í
Bandaríkjunum.
í fréttatilkynningu frá Sportval
segir að fyrirtækið muni kapp-
kosta að veita fullkomna viðgerða-
og varahlutaþjónustu og sérstakt
tillit verði tekið til þeirra sem óski
eftir sérpöntunum.
uppþvottavélin
hljóðlát - dugleg - örugg
/M* RÖNNING
%//f// heimilistæki
KRINGLUNNI - SÍMI (91)685868
'*S
80 ára afmæli
ÁTTRÆÐISAFMÆLI á í dag, 7.
maí Jóhanna Kristjánsdóttir í
Kirkjubóli í Bjarnardal. í tilefni
afmælisins ætlar Kvenfélag Mos-
vallahrepps að heiðra afmælisbam-
ið með því að efna til kaffísamsæt-
is fyrir Jóhönnu í dag. Verður það
haldið f skólanum f Holti f Önundar-
fírði og hefst kl. 15.
Steinþór Marinó
sýnir í Eden
Hveragerði.
STEINÞÓR Marinó Gunnars-
son hefur opnað myndlistarsýn-
ingu í listamannaskálanum í
Eden í Hveragerði.
Á sýningunni, sem stendur til
15. maí, eru 12 olíumálverk og
34 vatnslita- og olíukrítarmyndir
ásamt myndum með blandaðri
tækni. Eru myndimar allar til
sölu og er verð við flestra hæfí.
Steinþór Marinó fæddist á
ísafirði 1925. Hann er málara-
meistari að iðn. Steinþór er að
mestu sjálfmenntaður f myndlist-
inni en hann hefur aflað sér þekk-
ingar með náms- og kynnisferðum
til margra landa á meginlandi
Evrópu, meðal annars til Holl-
ands, V-Þýskalands og Frakk-
lands. Einnig hefur hann farið til
Norður-Ameríku í sama skyni.
Fyrst sýndi Steinþór á samsýn-
ingu Félags íslenskra frístunda-
málara í Reykjavfk 1947. Seinna
átti hann verk á samsýningu Fé-
lags íslenskra myndlistarmanna,
FIM, en síðan hefur hann haldið
flölda einkasýninga hér á landi
og í Noregi. Hann hefur hlotið
listamannalaun og listasöfn, sveit-
arfélög og einkaaðilar hafa keypt
verk eftir Steinþór Marinó.
- Sigrún
Morgunblaðið/Sigrún Sigfúsdóttir
Steinþór Marinósson við eitt verka sinna í Eden.